Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Luke Donald í forystu Luke Donald er sem stendur í efsta sæti á PGA mótinu í golfi sem stendur yfir í Illinois-fylki í Bandaríkjunum, en þetta er síðasta risamót sumarsins. Donald er á 12 höggum undir pari í þriðju umferð mótsins en þeir Shaun Micheel og Mike Weir koma fast á hæla hans á 11 undir pari. Tiger Woods er í góðri aðstöðu til að hefja atlögu að efstu mönnum eins og hans er von og vísa, en hann er tveimur höggum á eftir þeim á Medinah-vellinum. Sýn er með beinar útsendingar í gangi frá mótinu. 19.8.2006 20:17
Piltalandsliðið fallið í B-deild Íslenska piltalandsliðið í körfubolta skipað leikmönnum 16 ára og yngri tapaði sjöunda leik sínum í röð í A-deildinni á Evrópumótinu í dag þegar það lá fyrir Portúgölum 84-70. Þetta var sjöundi tapleikur liðsins í sjö leikjum á mótinu og endaði það í neðsta sæti og er fallið í B-deild. Örn Sigurðarson skoraði 20 stig fyrir íslenska liðið. 19.8.2006 18:48
Heiðar náði sér ekki á strik á lokahringnum Heiðar Davíð Bragason náði sér ekki á strik á lokadeginum á sænsku mótaröðinni í dag þegar hann lék á 77 höggum eða fimm höggum yfir pari. Hann lauk því keppni á fimm höggum yfir pari og hafnaði í 53. sæti á mótinu. 19.8.2006 17:04
Hannover steinlá Hannover 96 tapaði í dag 4-0 fyrir Hertha Berlín í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu og er liðið því neðst í deildinni án stiga eftir tvær umferðir. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var ekki í leikmannahópi Hannover í dag, frekar en í fyrsta leik liðsins á dögunum. 19.8.2006 16:41
Lyon samþykkir að selja Diarra Frönsku meistararnir í Lyon hafa loks gefið eftir og hafa samþykkt að selja Malímanninn Mahamadou Diarra til Real Madrid. Talið er að kaupverðið sé um 17 milljónir punda, en Diarra hafði krafist þess að fá að fara til Spánar og hótaði að fara í verkfall ef forráðamenn franska félagsins yrðu ekki að kröfum hans. 19.8.2006 13:27
Sigur í fyrsta leik hjá Bandaríkjamönnum Lið Bandaríkjanna vann sinn fyrsta leik á HM í körfubolta þegar það lagði lið Portó Ríkó 111-100. Bandaríkjamennirnir voru í bullandi vandræðum í fyrri hálfleik og lentu þá undir í leiknum, en sigur þeirra var nokkuð öruggur þegar upp var staðið. Carmelo Anthony var stigahæstur í liði BNA með 21 stig og þeir LeBron James og Kirk Hinrich skoruðu 15 stig hvor. Chris Paul skoraði 11 stig, gaf 9 stoðsendingar og stal 5 boltum. 19.8.2006 12:56
Óvíst hvað tekur við í haust Hafnfirðingurinn Emil Hallfreðsson hefur staðið sig vel hjá sænska úrvalsdeildarliðinu Malmö í ár en hann kom til liðsins um áramótin. Þangað var hann lánaður frá enska úrvalsdeildarliðinu Tottenham sem hann er samningsbundinn. Hvað tekur við í haust er enn í lausu lofti en að öllu óbreyttu heldur hann aftur til Tottenham þegar tímabilið í Svíþjóð er búið. 19.8.2006 00:01
Stenson tekur forystu Sænski kylfingurinn Henrik Stenson hefur eins höggs forystu eftir tvær umferðir á USPGA mótinu sem nú stendur yfir á Medinah vellinum í Chicago. Stenson lék annan hringinn á 68 höggum eða 4 höggum undir pari og er því einu höggi á undan Davis Lowe III sem vann sigur á mótinu árið 1997. Bein útsending verður frá mótinu á Sýn í kvöld. 18.8.2006 18:27
Forráðamenn Espanyol kæra Barcelona Forráðamenn spænska knattspyrnufélagsins Espanyol sendu spænska knattspyrnusambandinu kærubréf skömmu fyrir fyrri leik liðsins gegn Barcelona í meistarakeppninni í gær, því þeir segja granna sína hafa brotið reglur FIFA þegar þeir tefldu þeim Xavi og Carles Puyol fram í leiknum. 18.8.2006 17:30
Ósáttur við vinnubrögð Real Madrid Arsene Wenger er lítt hrifinn af vinnubrögðum stjórnar spænska knattspyrnufélagsins Real Madrid og segir endalausar yfirlýsingar félagsins um leikmannakaup koma sér afar illa fyrir leikmenn annara liða. 18.8.2006 17:15
Tony Parker fingurbrotinn og missir af HM Leikstjórnandinn Tony Parker getur ekki leikið með Frökkum á HM í körfubolta sem hefst í Japan á morgun eftir að í ljós kom að hann er fingurbrotinn. Þetta er gríðarlegt áfall fyrir franska landsliðið sem mætir gríðarlega sterku liði Argentínu strax í fyrsta leik sínum á morgun. Parker hefur þegar verið beðinn um að snúa aftur í herbúðir San Antonio Spurs í Bandaríkjunum, þar sem hann mun fá læknismeðferð. 18.8.2006 16:45
Beiðni Juventus vísað frá Ítalska knattspyrnufélagið Juventus hafði ekki erindi sem erfiði í dag þegar forráðamenn þess áttu lokafund með ítalska knattspyrnusambandinu þar sem þeir reyndu að fá dóm félagsins mildaðan. Juventus þarf því að hefja leik í B-deildinni þar í landi með 17 sig í mínus eins og staðfest var fyrir dómi á dögunum. 18.8.2006 16:37
James, Wade og Anthony fyrirliðar Mike Krzyzewski, þjálfari körfuboltalandsliðs Bandaríkjanna, hefur útnefnt þá LeBron James, Dwyane Wade og Carmelo Anthony sem fyrirliða liðsins á HM sem hefst í Japan á morgun. Þremenningarnir komu allir inn í NBA deildina árið 2003 og eru stigahæstu leikmenn bandaríska liðsins í þeim fimm undirbúningsleikjum sem það hefur spilað að undanförnu. 18.8.2006 16:18
Villenueve ræðst hart að Schumacher Fyrrum heimsmeistarinn í Formúlu 1, Kanadamaðurinn Jacques Villenueve, er harðorður í garð Michael Schumacher hjá Ferrari og kallar hann lygara og bragðaref sem aldrei muni ná að festa sig í sessi sem goðsögn í íþróttinni vegna þessa. 18.8.2006 15:45
Heiðar á pari í Svíþjóð Kylfingurinn Heiðar Davíð Bragason er á pari eftir tvo fyrstu hringina á sænsku mótaröðinni í golfi sem fram fer á Haverdal vellinum. Heiðar lék á 71 höggi í dag eða einu höggi undir pari, en hann var á höggi yfir pari í gær. Heiðar er þó nokkuð langt frá efstu mönnum á mótinu. 18.8.2006 14:20
Ég smellpassa inn í Norrköping Sóknarmaðurinn Garðar Gunnlaugsson gekk í raðir sænska liðsins Norrköping fyrir skömmu og er að koma sér fyrir þar ytra. Hann hefur farið vel af stað í sænska boltanum og skorað tvö mörk í þeim þremur leikjum sem hann hefur leikið til þessa. Hann var ekki lengi að finna fjölina og segist smellpassa inn í liðið. 18.8.2006 00:01
Barcelona lagði Espanyol Barcelona er í ágætum málum í meistarakeppninni á Spáni eftir 1-0 sigur á grönnum sínum í Espanyol í fyrri viðureign liðanna í kvöld, en leikurinn fór fram á heimavelli Espanyol. Ludovic Giuly skoraði sigurmark Barca rétt áður en flautað var til leikhlés eftir frábæran undirbúning Ronaldinho, en Eiður Smári Guðjohnsen fékk ekki tækifæri með liðinu að þessu sinni. Liðin eigast við öðru sinni á Nou Camp á sunnudag og verður sá leikur einnig sýndur beint á Sýn. 17.8.2006 21:50
Barcelona yfir í hálfleik Barcelona hefur yfir 1-0 gegn Espanyol þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna um meistarabikarinn á Spáni. Það var Ludovic Giuly sem skoraði mark Börsunga á 43. mínútu eftir glæsilegan undirbúning Brasilíumannsins Ronaldinho. Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona og kemur vonandi við sögu í síðari hálfleik. Leikur kvöldsins er sýndur beint á Sýn, líkt og síðari leikur liðanna á heimavelli Barcelona á sunnudaginn. 17.8.2006 20:50
Heiðar Davíð á höggi yfir pari Kylfingurinn Heiðar Davíð Bragason úr Kili lék fyrsta hringinn á sænsku mótaröðinni á 73 höggum, eða einu höggi yfir pari í dag. Keppnin fer fram í Haverdal í Svíþjóð og er efsti maður eftir fyrsta dag á sex höggum undir pari. 17.8.2006 20:43
Samningar í höfn við Indanapolis Nú er ljóst að Formúla 1 verður áfram í boði í Bandaríkjunum, í það minnsta í eitt ár í viðbót, eftir að forráðamenn Indianapolis-kappakstursins náðu samkomulagi við Bernie Ecclestone um mótshald þar á næsta ári. 17.8.2006 20:18
Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona í kvöld þegar liðið mætir Espanyol í meistarakeppninni á Spáni sem er árleg viðureign Spánar- og bikarmeistaranna. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. 17.8.2006 20:12
Eiður Smári í leikmannahópi Barcelona Eiður Smári Guðjohnsen verður í leikmannahópi Spánar- og Evrópumeistara Barcelona í kvöld þegar liðið tekur á móti Espanyol í meistarakeppninni sem markar upphaf keppnistímabilsins þar í landi. Þeir Gianluca Zambrotta og Lilian Thuram eru einnig í leikmannahópi Barcelona, en þeir komu til félagsins fyrir skömmu líkt og Eiður Smári. 17.8.2006 16:56
PGA-mótið í beinni á Sýn í kvöld PGA-meistaramótið í golfi sem fram fer á Medinah-vellinum í Illinois hefst í kvöld og hest bein útsending frá mótinu klukkan 21:50. Það er Phil Mickelson sem á titil að verja á mótinu síðan í fyrra, en auk hans eru skráðir til leiks flestir af sterkustu kylfingum heims. Þetta er síðasta risamót sumarsins á PGA-mótaröðinni og Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu alla fjóra keppnisdagana. 17.8.2006 16:45
Barcelona - Espanyol í beinni í kvöld Fyrsti alvöruleikur Eiðs Smára Guðjohnsen með Evrópumeisturum Barcelona verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í kvöld klukkan 20. Hér er á ferðinni viðureign Spánar- og bikarmeistara Barcelona og Espanyol. Það verður hinn óviðjafnanlegi Guðjón Guðmundsson sem lýsir leiknum og hefst útsendingin klukkan 19:50. 17.8.2006 15:53
Diarra er efstur á óskalistanum Ramon Calderon, forseti spænska knattspyrnufélagsins Real Madrid, segir það algjört forgangsatriði fyrir félagið að landa afríska miðjumanninum Mahamadou Diarra frá franska liðinu Lyon. Real hefur einnig mikinn áhuga á að fá Jose Reyes frá Arsenal, en þó komi það ekki til greina nema Arsenal samþykki að selja hann á hóflega upphæð. 17.8.2006 15:00
Nýr samningur í sjónmáli fyrir Beckham Forráðamenn Real Madrid segja stutt í að samningur David Beckham verði framlengdur við félagið og gæti nýr samningur náð allt fram til ársins 2009. Beckham gekk í raðir Real árið 2003 og líkar lífið vel á Spáni með fjölskyldu sinni. Hann mætti raunar of seint á æfingu liðsins í gærkvöldi eftir að hafa verið í heimalandi sínu að fylgjast með leik Englendinga og Grikkja og gæti átt yfir höfði sér sekt vegna þessa. 17.8.2006 14:15
Fer fram á sölu frá Bayern Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves er sagður eiga fund með forráðamönnum Bayern Munchen í dag, þar sem hann muni fara fram á að verða seldur frá félaginu til Manchester United. Enska liðið ku hafa mikinn áhuga á að fá Hargreaves í sínar raðir, en hann er nýbúinn að framlengja samning sinn við þýska liðið og ólíkt þykir að hann fari fyrir minna en 13 milljónir punda. 17.8.2006 12:22
Stoltur af 100 leikjum Landsliðsfyrirliði Spánar, Madrídingurinn Raul Gonzalez, sagði í samtali við spænska fjölmiðla eftir leikinn gegn Íslandi í fyrrakvöld að hann væri stoltur af 100 landsleikjum sínum fyrir Spán. "Ég var mjög hamingjusamur og stoltur," sagði kappinn. "Það er mjög mikilvægt fyrir mig að hafa náð þessum áfanga. Það var synd að úrslit leiksins hafi ekki verið betri en þetta var erfitt fyrir okkur." 17.8.2006 00:00
Newcastle eða Celtic? Newcastle United og Glasgow Celtic eru bæði talin vera að berjast um danska miðjumanninn Thomas Gravesen sem leikur með Real Madrid. 17.8.2006 00:00
Meiddist lítillega á ökkla Fernando Torres, leikmaður Atletico Madrid á Spáni, meiddist lítillega í leik Íslands og Spánar á Laugardalsvelli í fyrrakvöld. Hann snerist á ökkla í fyrri hálfleik en hélt engu að síður áfram. 17.8.2006 00:00
Schumacher þénar sem aldrei fyrr Þó þýski ökuþórinn Michael Schumacher hafi oft verið í betri málum á kappakstursbrautinni virðist hann enn halda góðum dampi hvað varðar tekjur. Schumacher tekur gott stökk á lista tekjuhæsta fólks úr röðum skemmtikrafta og íþróttamanna á nýútkomnum lista Forbes. 16.8.2006 16:54
Hargreaves er ekki til sölu Forráðamenn Þýskalandsmeistara Bayern Munchen voru fljótir að bregðast við þeim tíðindum sem bárust fyrr í dag þess efnis að enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves væri á leið til Manchester United. Framkvæmdastjóri Bayern segir málið einfalt - Hargreaves sé alls ekki til sölu. 16.8.2006 15:58
Hargreaves íhugar tilboð Man Utd Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Bayern Munchen segist nú vera að íhuga tilboð frá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United. Hargreaves hefur nýverið skrifað undir framlengingu á samningi sínum við þýska liðið, en segist ekki geta annað en hugsað sig vel um þegar lið eins og Manchester United sýni honum áhuga. 16.8.2006 13:11
Valdi Juventus fram yfir AC Milan Gianluigi Buffon, landsliðsmarkvörður heimsmeistara Ítala, hefur ákveðið vera um kyrrt hjá Juventus sem fyrr í sumar var dæmt niður í Seríu B vegna hneykslismálsins þar. Eins og svo margir aðrir leikmenn liðsins var búist við því að hann færi frá félaginu. 16.8.2006 00:01
Ítalir reiðir út í Shevchenko Ítalskir stuðningsmenn AC Milan eru mjög reiðir eftir að hann virtist kyssa treyju Chelsea þegar hann fagnaði marki sínu gegn Liverpool í leiknum um Samfélagsskjöldinn um helgina. Stendur deilan einnig um hvort hann hafi kysst treyju liðsins eða merki þess. 16.8.2006 00:01
Á leið til Real Madrid Nú virðist fátt geta komið í veg fyrir að spænski landsliðsmaðurinn Jose Antonio Reyes hja Arsenal gangi í raðir Real Madrid. Reyes segir í samtali við breska fjölmiðla í dag að það sé draumur hans að spila fyrir Real og þakkar knattspyrustjóra sínum fyrir að greiða sér leiðina aftur heim til Spánar. 15.8.2006 12:27
Montoya leiddist hjá McLaren Juan Pablo Montoya segir í viðtali við dagblað í heimalandi sínu Kolumbíu að ástæðan fyrir því að hann ákvað að hætta í Formúlu 1 og snúa sér að Nascar hafi verið sú að honum hafi verið farið að leiðast. 14.8.2006 20:45
Snýr sig fimlega út úr yfirlýsingum sínum Ramon Calderon, nýráðinn forseti spænska knattspyrnufélagsins Real Madrid, hefur viðurkennt að ekkert verði af loforðum hans um að fá þá Kaka, Cesc Fabregas og Arjen Robben til félagsins eins og hann lýsti yfir í forsetakosningunum fyrr í sumar. 14.8.2006 19:15
Liverpool og Haifa leika í Kænugarði Síðari leikur Liverpool og Maccabi Haifa í forkeppni Meistaradeildar Evrópu verður leikinn í Kænugarði í Úkraínu vegna þeirrar ólgu sem ríkir í Ísrael um þessar mundir. Knattspyrnusamband Evrópu tilkynnti í síðustu viku að leikurinn yrði spilaður á hlutlausum velli og hafa forráðamenn Dynamo Kiev nú boðist til að hýsa leikinn. 14.8.2006 14:46
Liverpool hefur leik Liverpool er rétt í þessu að hefja leik í Meistaradeild Evrópu gegn Macabi Haifa á Anfield Road í Liverpool. Tveir af þeim nýju leikmönnum sem Liverpool fékk til liðs við sig fyrir keppnistímabilið eru í byrjunarliðinu, þeir Jermaine Pennant og Craig Bellamy. Leikurinn er í beinni á Sýn og VefTV. 9.8.2006 19:14
Indriði Sigurðsson farinn frá KR Indriði Sigurðsson leikur ekki með KR á þessu ári. Indriði hefur samið við Oslóarfélagið SFK Lyn og heldur utan í fyrramálið. Frá þessu er greint á heimasíðu KR. 8.8.2006 21:31
Slakur dagur hjá Michelle Wie Fyrsta umferðin í Opna breska meistaramóti kvenna í golfi stendur nú yfir á Royal Lytham og St Annes golfvellinum. Það er Juli Inkster frá Bandaríkjunum sem leiðir á sex höggum undir pari og hefur hún lokið hringnum. Michelle Wie hefur ekki náð sér á strik. 3.8.2006 19:43
Schumacher er seigur í boltanum Michael Schumacher sést hér í góðgerðarknattspyrnuleik sem fór fram á Ferenc Puskas vellinum í Budapest í Ungverjalandi. Þar áttust við ökuþórar úr Formúlu 1 og ungverska stjörnuliðið. Fjórir dagar eru nú þangað til ungverski kappaksturinn hefst. 2.8.2006 20:39
Ballack viss um gott samband við Lampard Michael Ballack, nýi miðjumaðurinn í stjörnum prýddu liði Chelsea á komandi leiktíð er viss um að hann og Frank Lampard eigi eftir að ná vel saman á miðjunni hjá Chelsea í vetur. 2.8.2006 15:46
Vieira kominn til Inter á 6,5 milljónir punda Patrick Vieira, fyrrum leikmaður Arsenal hefur gengið til liðs við Inter Milan frá Juventus á Ítalíu fyrir 6,5 milljónir punda og þar með bundið enda á vonir Manchester United um að fá leikmanninn. 2.8.2006 15:42