Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Chris Harrington: Ekkert verið rætt við mig um framhaldið Christopher Thomas Harrington, þjálfari KR, var ósáttur við spilamennsku liðins þegar liðið fékk 5-0 skell gegn Þrótti í næstsíðustu umferð Bestu deildar kvenna í fóbolta í dag. 25.9.2022 17:30
Viggó tryggði Leipzig jafntefli gegn Lemgo Viggó Kristjánsson, leikmaður Leipzig, var markahæsti leikmaður liðsins og skoraði markið sem réði úrslitum í 29-29 jafntefli gegn Lemgo. Gísli Þorgeir Kristjánsson og Ómar Ingi Magnússon, leikmenn Magdeburg, skoruðu samtals 12 mörk í stórsigri á Minden á sama tíma. 25.9.2022 17:01
Umfjöllun: Selfoss - Breiðablik 2-0 | Evrópudraumar Blika í hættu eftir tap á Selfossi Breiðablik mátti þola 2-0 tap er liðið heimsótti Selfoss í næstseinustu umferð Bestu-deildar kvenna í knattspyrnu í dag. Tapið þýðir að liðið þarf að treysta á hagstæð úrslit í öðrum leikjum til að tryggja sér Evrópusæti í lokaumferðinni. 25.9.2022 16:47
„Eina sem við getum gert er að klára mótið með sæmd“ Ásmundur Arnarsson, þjálfari Breiðabliks, var eðlilega súr og svekktur eftir 2-0 tap liðsins gegn Selfyssingum í næstseinustu umferð Bestu-deildar kvenna í dag. Tapið þýðir að Evrópudraumar Blika eru í hættu og Ásmundur segir tilfinninguna ekki góða eftir leik. 25.9.2022 16:35
Umfjöllun og viðtöl: Keflavík - ÍBV 1-2 | ÍBV aftur á sigurbraut ÍBV komst aftur á sigurbraut en ÍBV hafði ekki tekist að vinna í síðustu fjórum leikjum. Leikurinn fór rólega af stað en ÍBV komst yfir þegar 40 mínútur voru liðnar af leiknum. Keflavík brotnaði algjörlega við þetta mark og ÍBV bætti við öðru marki tveimur mínútum síðar.Keflavík minnkaði forystu ÍBV í seinni hálfleik en gerði lítið til að jafna leikinn og Eyjakonur fögnuðu 1-2 sigri. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. 25.9.2022 16:25
„Eins og við verðum að hafa eitthvað undir til að spila vel“ Keflavík tapaði 1-2 gegn ÍBV. Þetta var fimmta tap Keflavíkur í röð á heimavelli og var Gunnar Magnús Jónsson, þjálfari Keflavíkur, hundfúll með niðurstöðuna. 25.9.2022 16:15
Umfjöllun og viðtöl: Þróttur - KR 5-0 | Þróttur átti ekki í vandræðum með andlausa KR-inga Þróttur Reykjavík vann öruggan og þægilegan 5-0 sigur þegar liðið fékk KR í heimsókn á AVIS-völlinn í Laugardalinn í 17. og næstsíðustu umferð Bestu deildar kvenna í fótbolta í dag. 25.9.2022 16:00
Lewandowski: Styttri leið að Ballon d‘Or hjá Barcelona en Bayern Robert Lewandowski, leikmaður Barcelona, telur sig eiga meiri möguleika að vinna Ballon d‘Or sem leikmaður Barcelona frekar en sem leikmaður Bayern München. 25.9.2022 15:30
Hlín og Berglind á skotskónum í Svíþjóð Hlín Eiríksdóttir, leikmaður Piteå, og Berglind Rós Ágústsdóttir, leikmaður Örebo, voru báðar í eldlínunni með sínum liðum í sænsku úrvalsdeildinni í dag og tókst þeim báðum að skora mark í sigri síns liðs. 25.9.2022 14:56
Anna Björk á toppnum á Ítalíu Anna Björk Kristjánsdóttir, leikmaður Inter Milan, var í byrjunarliði liðsins og lék allan leikinn í miðri vörninni í 0-2 útisigri Inter gegn Sampdoria í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 25.9.2022 14:31
Óttaðist líf sitt vegna rasista og nettrölla Alex Scott, fyrrum leikmaður Arsenal og enska landsliðsins, segist hafa óttast um líf sitt og gat ekki yfirgefið húsið sitt vegna rasista og nettrölla sem hótuðu að binda enda á líf hennar. 25.9.2022 14:00
Glódís hélt hreinu gegn Bremen | Cecilía mætt aftur Glódís Perla Viggósdóttir var í byrjunarliði Bayern og lék allan leikinn í 3-0 sigri gegn Werder Bremen í þýsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. 25.9.2022 12:45
Bætti eigið heimsmet um 30 sekúndur Hlauparinn Eliud Kipchoge frá Keníu sló í dag eigið heimsmet í maraþoni þegar hann vann Berlínar maraþonið á tveimur klukkustundum, einni mínútu og níu sekúndum. 25.9.2022 12:01
Southgate reynir að róa bresku pressuna: „Ég er rétti maðurinn“ Nú þegar tæpir tvær mánuðir eru í fyrsta leik Englands á HM í Katar standa öll spjót bresku pressunnar á Gareth Southgate, landsliðsþjálfara Englands. 25.9.2022 11:30
Arnar Þór: Ungu strákarnir fá stórt hlutverk gegn Albaníu Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfari Íslands, telur afar mikilvægt að Ísland sæki til sigurs gegn Albaníu á þriðjudaginn í leik þar sem ungu strákarnir fá að njóta sín. 25.9.2022 10:45
Heimsúrvalið hafði betur á þriðja degi forsetabikarsins Af alls átta viðureignum í gær voru það aðeins Jordan Spieth og Justin Thomas ásamt Tony Finau og Max Homa sem unnu sín einvígi fyrir Bandaríkjamenn. Heimsúrvalið hefur því náð að minnka forskot Bandaríkjanna úr sex niður í fjóra vinninga. 25.9.2022 10:00
Ísak Snær dregur sig úr landsliðshópnum Ísak Snær Þorvaldsson, leikmaður Breiðabliks og íslenska U-21 landsliðsins, hefur dregið sig úr landsliðshópnum vegna meiðsla. Hilmir Rafn Mikaelsson hefur verið kallaður inn í hópinn í stað Ísaks. 25.9.2022 09:31
„Þetta er Klopp-syndrome“ Farið var yfir stemninguna hjá Gróttu í síðasta þætti Seinni bylgjunnar. Róbert Gunnarsson, þjálfari liðsins, fagnaði sigrinum á Stjörnunni vel og innilega með leikmönnum sínum. 25.9.2022 08:00
„Þetta var draumur sem ég bjóst ekkert endilega við að myndi rætast“ Martha Hermannsdóttir, fyrirliði KA/Þórs í Olís deild kvenna undanfarin ár, hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna eftir viðburðarríkan feril. Tannlækningar eiga nú hug hennar allan. 25.9.2022 07:00
Dagskráin í dag: Besta, NFL, BLAST Premier og golf Það er svo mikið um að vera á rásum Stöðvar 2 Sport í dag að það er varla hægt að telja það allt upp. Alls eru 17 beinar útsendingar á dagskrá. 25.9.2022 06:01
„Ungur strákur sem átti margt ólært“ Slegið var á létta strengi í síðasta þætti Seinni bylgjunnar. Stefán Árni Pálsson, þáttastjórnandi hafði nefnilega grafið upp fermingarmyndir af sérfræðingum þáttarins sem og sjálfum sér. Ásamt Stefáni Árna voru þeir Þorgrímur Smári Ólafsson og Jóhann Einar Gunnarsson að þessu sinni. 24.9.2022 23:31
Myndir: Valur tryggði Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð Valur er Íslandsmeistari kvenna í knattspyrnu annað árið í röð. Meistararnir tryggðu sigur í Bestu deildinni með 3-1 sigri á Aftureldingu í Mosfellsbæ fyrr í dag. Sigurinn sendi Aftureldingu niður í Lengjudeildina. 24.9.2022 23:00
Þrír íslenskir kappar í topp tíu í ofurhlaupi í Frakklandi Þorbergur Jónsson, Snorri Björnsson og Þorsteinn Roy urðu allir á meðal tíu efstu af um fimmtán hundruð keppendum í 59 kílómetra fjallahlaupi í Suður-Frakklandi í dag. Þorbergur hafnaði í öðru sæti í keppinni. 24.9.2022 22:27
Sviss gerði Portúgal greiða Tveir leikir fóru fram í A-deild Þjóðadeildarinnar í fótbolta í kvöld. Portúgal vann 4-0 stórsigur á Tékklandi á meðan Sviss vann óvæntan 2-1 sigur á Spáni. 24.9.2022 22:15
Ísrael lagði Albaníu og kramdi drauma Íslands Sigur Ísrael á Albaníu í Þjóðadeildinni í fótbolta þýðir að Ísland getur ekki unnið sér inn sæti í A-deild þó svo að liðið sigri Albaníu á þriðjudaginn kemur. 24.9.2022 21:32
Serbía pakkaði Svíþjóð saman og mætir Noregi í úrslitaleik Serbía vann 4-1 sigur á Svíþjóð í Þjóðadeildinni í fótbolta í kvöld. Það þýðir að Noregur og Serbía mætast í úrslitaleik um sæti í A-deild. 24.9.2022 21:00
„Er mjög spenntur fyrir þessu og vona að strákarnir séu það líka“ Arnari Grétarssyni, þjálfara KA, var vikið úr starfi í gær, föstudag. Hallgrímur Jónasson, aðstoðarmaður Arnars, tekur við stjórnartaumunum og mun stýra liðinu út þetta tímabil sem og næstu þrjú ár. Honum lýst vel á verkefnið. 24.9.2022 20:30
„Ekkert grín að taka þetta svona tvö ár í röð“ „Þetta verður aldrei þreytt, sem betur fer,“ sagði Elísa Viðarsdóttir, fyrirliði Íslandsmeistara Vals, en liðið varði titil sinn með sigri á Aftureldingu í Bestu deild kvenna í fótbolta fyrr í dag. 24.9.2022 20:01
Rosengård enn með pálmann í höndunum eftir sigurmark í blálokin Það munaði minnstu að titilbaráttan í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta hefði opnast upp á gátt þegar Guðrún Arnarsdóttir og stöllur hennar í Rosengård voru við það að gera jafntefli við Vittsjö á heimavelli. Sigurmark í uppbótartíma þýðir að liðið er þó enn með þriggja stiga forystu á Kristianstad á toppi deildarinnar. 24.9.2022 19:30
„Þetta eru alltaf bestu bikararnir“ „Mér líður frábærlega, þetta er titill sem er erfitt að vinna. Að vinna annað árið í röð, það hefur ekki verið gert oft undanfarin ár þannig mér finnst þetta frábært hjá okkur,“ sagði Pétur Pétursson, þjálfari Íslandsmeistara Vals, eftir að titillinn var endanlega kominn í hús. 24.9.2022 18:30
„Selfoss kom okkur á óvart til að byrja með“ Valur vann sannfærandi níu marka sigur á Selfossi 18-27. Ágúst Jóhannsson, þjálfari Vals, var ánægður með sigurinn. 24.9.2022 18:15
Slóvenía setti riðilinn í uppnám með sigir á Noregi Slóvenía kom til baka og vann Noreg 2-1 í leik liðanna í B-deild Þjóðadeildarinnar í dag. Sigur Norðmanna hefði komið liðinu í einkar góða stöðu í riðlinum en tap setur allt í uppnám. 24.9.2022 18:00
„Er hrikalega stoltur af leikmönnum liðsins “ „Ég vil óska Valskonum til hamingju með Íslands- og bikarmeistaratitilinn, þær eru vel að þessu komnar,“ sagði Alexander Aron Davorsson, þjálfari Aftureldingar, eftir leik dagsins þar sem Valur tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu en Afturelding féll úr Bestu deildinni. 24.9.2022 17:25
Umfjöllun og viðtöl: Selfoss - Valur 18-27 | Valur ekki í vandræðum með nýliðana Valur var ekki í vandræðum með nýliða Selfoss í 2. umferð Olís deildar-kvenna. Varnarleikur Vals var vel skipulagður sem Selfyssingar áttu engin svör við. Valur var sex mörkum yfir í hálfleik og setti tóninn strax í upphafi síðari hálfleiks og áttu nýliðarnir aldrei möguleika. Valur endaði á að vinna níu marka sigur 18-27. Umfjöllun og viðtöl væntanleg. 24.9.2022 17:25
Íslandsmeistarinn Þórdís Hrönn: „Alveg sama hvort ég skori eða leggi upp svo lengi sem við vinnum“ „Mér líður svo vel, stórskrítið að taka ekki á móti bikarnum og svoleiðis núna en við bíðum spenntar eftir að taka á móti bikarnum í heimaleiknum 1. október. Þetta er bara geggjuð tilfinning,“ sagði sigurreif Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir eftir að Valur tryggði sér sinn annan Íslandsmeistaratitil á jafn mörgum árum með sigri á Aftureldingu í Bestu deild kvenna í fótbolta í dag. 24.9.2022 17:00
Umfjöllun: Afturelding - Valur 1-3 | Íslandsmeistarar annað árið í röð Valur varð í dag Íslandsmeistari annað árið í röð og í þrettánda sinn alls eftir sigur á Aftureldingu, 1-3, í Mosfellsbænum í sautjándu og næstsíðustu umferð Bestu deildar kvenna í dag. Á meðan Valskonur fögnuðu voru Mosfellingar súrir endar fallnir úr Bestu deildinni. 24.9.2022 16:45
Aron skoraði fjögur í jafntefli gegn Bjerringbro-Silkeborg Aron Pálmarsson, leikmaður Álaborg, skoraði fjögur mörk í 29-29 jafntefli við Bjerringbro-Silkeborg í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. 24.9.2022 16:30
Skytturnar ekki í vandræðum með nágranna sína í Tottenham Arsenal vann þægilegan 4-0 sigur á nágrönnum sínum í Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeild kvenna í fótbolta í dag. Leikið var á Emirates vellinum og rúmlega 47 þúsund manns mættu á leikinn. 24.9.2022 15:46
Umfjöllun og viðtöl: ÍBV - Stjarnan 22-24 | Garðbæingar höfðu betur í Eyjum ÍBV og Stjarnan unnu bæði flottan sigur í fyrstu umferð Olís-deildar kvenna í handbolta en það voru Garðbæingar sem fóru með tveggja marka sigur með sér í Herjólf að leik loknum. 24.9.2022 15:30
Íslandsmeistararnir ekki í vandræðum með HK Íslandsmeistarar Fram unnu 25 marka stórsigur á HK í Olís-deild kvenna í dag, 39-14. 24.9.2022 15:00
Guðný hélt hreinu gegn Parma Guðný Árnadóttir var í byrjunarliði AC Milan og lék allan leikinn í 0-4 útisigri liðsins á Parma í ítölsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Alexandra Jóhannesdóttir lék einnig í deildinni með Fiorentina en Sara Björk Gunnarsdóttir gat ekki tekið þátt vegna meiðsla. 24.9.2022 14:30
Kannabis áfram á bannlista lyfjaeftirlitsins Alþjóðlega lyfjaeftirlitið, WADA (e. World Anti-Doping Agnecy), hefur tilkynnt eftir nánari endurskoðun að kannabis verður áfram á bannlista yfir þau lyf sem íþróttamönnum er bannað að taka inn. 24.9.2022 14:00
Grealish tilbúinn að djamma með Souness ef Pogba fær að koma með Jack Grealish, leikmaður Manchester City, og Graeme Souness, sparkspekingur og fyrrum leikmaður Liverpool, hafa eldað grátt silfur saman síðustu vikur með ummælum sínum í fjölmiðlum. 24.9.2022 13:31
2. umferð CS:GO lokið: Staðan og næstu leikir 2. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í CS:GO lauk með sigri Fylkis á Ten5ion. Dusty, Þór, NÚ, og Ármann unnu einnig sína leiki. 24.9.2022 13:00
Maguire: Fólk býr til sögur því ég er fyrirliði Manchester United Enska landsliðið í fótbolta er í töluverðum vandræðum í aðdraganda HM í Katar. Liðið tapaði 1-0 fyrir Ítalíu í gær og er nú í sama flokki og San Marínó, yfir mörk skoruð í opnum leik í þjóðardeildinni. Harry Maguire, fyrirliði Manchester United, spilaði með enska landsliðinu í gær þrátt fyrir að vera ekki í náðinni hjá knattspyrnustjóra Manchester United. 24.9.2022 12:31