Fleiri fréttir

Valdís Þóra er Íslandsmeistari kvenna í golfi árið 2012

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni er Íslandsmeistari kvenna í golfi 2012 eftir gríðarlega spennandi keppni í kvennaflokki á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Hellu. Valdís Þóra var að vinna titilinn í annað skiptið en hún varð líka Íslandsmeistari í Grafarholti fyrir þremur árum.

Rúnar og Haraldur áfram hlið við hlið á toppnum

Rúnar Arnórsson úr Keili og Haraldur Franklín Magnús úr GR eru enn jafnir á toppnum þegar þeir hafa leikið níu holur á lokadegi Íslandsmótsins í höggleik á Strandarvelli á Hellu. Báðir hafa þeir leikið á einu höggi undir pari í dag og þar með sex höggum samanlagt. Það er hægt að fylgjast með lokadeginum í beinni útsendingu á Stöð2 Sport sem og hér inn á Vísi.

Þórður Rafn tapaði ekki höggi á 27 holum í röð

GR-ingurinn Þórður Rafn Gissurarson er eins og er í þriðja sætinu á Íslandsmótinu í höggleik en lokadagurinn er kominn á fullt á Strandarvelli á Hellu. Það er hægt að fylgjast með í beinni útsendingu á Stöð2 Sport sem og hér inn á Vísi.

Anna Sólveig byrjar best hjá konunum

Anna Sólveig Snorradóttir úr Keili er með eitt högg í forskot eftir fyrstu átta holurnar á lokadegi Íslandsmótsins í höggleik en Anna Sólveig hefur leikið átta fyrstu holur dagsins á einu höggi undir pari. Útsending Stöð 2 Sport og Vísis frá lokadeginum hefst klukkan 15.00.

Wilshere spilar ekkert fyrr en í október

Endurkomu Jack Wilshere seinkar enn og nýjustu fréttir af stráknum eru þær að hann verði ekkert með Arsenal-liðinu fyrr en í fyrsta lagi í október. Wilshere missti af öllu síðasta tímabili og hefur hvað eftir annað orðið fyrir bakslagi í endurkomu sinni inn á fótboltavöllinn.

Hamilton vann ungverska kappaksturinn

Lewis Hamilton leiddi ungverska kappaksturinn frá ræsingu og kom fyrstur yfir marklínuna nú rétt í þessu. Kimi Raikkönen ók frábærlega og endaði annar eftir að hafa sett þónokkra pressu á Lewis undir lok kappakstursins.

Arsenal náði bara jafntefli á móti meisturunum frá Hong Kong

Arsenal gerði 2-2 jafntefli á móti meisturunum frá Hong Kong, KitChee, í æfingaleik í dag en þetta var síðasti leikur enska liðsins í æfingaferð sinni til Asíu. Theo Walcott og Thomas Eisfeld skoruðu mörk Arsenal og jöfnuðu metin í bæði skiptin.

Villas-Boas reiður Charlie Adam fyrir ljóta tæklingu á Gareth Bale

Gareth Bale meiddist í æfingaleik Tottenham og Liverpool í Bandaríkjunum í gær eftir að hafa lent í ljótri tæklingu frá Liverpool-manninum Charlie Adam. André Villas-Boas, stjóri Tottenham, var allt annað en sáttur með Skotann í viðtölum við fjölmiðla eftir leikinn.

Huldukona laumaði sér með indverska hópnum inn á Opnunarhátíð ÓL

Indverjar hafa kvartað formlega við mótshaldara Ólympíuleikanna í London eftir að óþekkt kona gekk með indverska hópnum inn á Opnunarhátíð Ólympíuleikana á föstudagskvöldið. Konan skar sig vel út enda allt öðruvísi klædd en aðrar konur í hópi Indverja.

Ólafur: Þurfum að spila betur gegn Túnis

Landsliðsfyrirliðinn Ólafur Stefánsson segir að það hafi verið erfitt fyrir liðið að koma sér almennilega í gang í leiknum gegn Argentínumönnum í dag.

Aron: Er enn góður í hnénu

Aron Pálmarsson spilaði mikið með Íslandi í dag þrátt fyrir hnémeiðsli sín og er greinilega allur að koma til. Ísland vann í dag góðan sigur á Argentínu.

Snorri Steinn: Ég er enn mjög slæmur

Snorri Steinn Guðjónsson lék mjög vel með Íslandi í dag þrátt fyrir að vera að glíma við meiðsli. Hann átti sinn þátt í góðum sigri á Argentínu í dag.

Umfjöllun: Ísland - Argentína 31-25 | Fyrstu stigin í húsi

Íslenska handboltalandsliðið fór yfir fyrstu hindrun í handboltakeppni Ólympíuleikanna eftir sex marka sigur á Argentínumönnum, 31-25, í Koparkassanum í London í morgun. Íslenska liðið var með frumkvæðið í leiknum fyrir utan fyrstu tíu mínútur leiksins og þrátt fyrir að sigurinn hafi aldrei verið í hættu þá var hann aldrei í höfn fyrr en í lokin.

Eygló: Kvefast alltaf fyrir stórmót

Vísir kynnir til sögunnar íslenska íþróttafólkið sem keppir á Ólympíuleikunum í Lundúnum. Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkonan unga, stingur sér í Ólympíulaugina í dag í fyrsta sinn.

Saga stangveiða: "Risar meðal dýranna.“

Risalax veiddist í silunganet í Hvítá í Borgarfirði hjá Flóðatanga á síðustu öld. Menn eru ekki á eitt sáttir um þyngd hans, hvenær hann var veiddur eða af hverjum...

Íslandsmótið í höggleik: Lokadagurinn í beinni á Vísi

Fjórði og síðasti dagurinn á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Hellu er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hér á Vísi. Það er mikil spenna í bæði karla- og kvennaflokki en nýir Íslandsmeistarar verða krýndir í kvöld.

Myndasyrpa frá glæsilegri setningarhátíð

Setningarhátíð Ólympíuleikanna í Lundúnum var haldin með pompi og prakti á Ólympíuleikvanginum í gær. Sýningin var hin glæsilegasta og náði hámarki þegar komið var með Ólympíueldinn inn á leikvanginn.

Shevchenko skiptir fótboltanum út fyrir pólitíkina

Úkraínumaðurinn Andriy Shevchenko hefur ákveðið að leggja fótboltaskóna á hilluna og snúa sér að stjórnmálum í heimalandinu. Hann tilkynnti þetta formlega í fréttatilkynningu seint í gærkvöldi sem var send í gegnum félag hans Dynamo Kyiv.

Mancini: Það eru nýir leikmenn á leiðinni á næstu tveimur vikum

Roberto Mancini, stjóri Manchester City, hefur verið rólegur á leikmannamarkaðnum það sem af er sumars en hann boðar leikmannakaup á næstu tveimur vikum í viðtali við Sky Sports. City-menn hafa verið óhræddir við að eyða pening í leikmenn undanfarin sumur og því hefur komið á óvart hversu rólegir þeir hafa verið í sumar.

Phelps komst ekki á pall - sextán ára kínversk stelpa með heimsmet

Kínverjar unnu tvö gull í fyrsta úrslitahluta sundkeppni Ólympíuleikanna í London í kvöld og þar setti sextán ára kínversk sundkona glæsilegt heimsmet í 400 metra fjórsundi. 400 metra fjórsund karla var líka sögulegt því þar komst Michael Phelps ekki á pall.

Haraldur Franklín: Fór í fisk til ömmu í gær

Haraldur Franklín Magnús úr GR átti frábæran dag á Íslandsmótinu í höggleik á Hellu en hann fékk tvo erni og fimm fugla og lék hringinn á sex höggum undir pari. Haraldur Magnús er jafn Rúnari Arnórssyni í efsta sæti fyrir lokadaginn. Haraldur var í viðtali hjá Sigurði Elvari Þórólfssyni í útsendingu Stöðvar 2 Sport frá mótinu.

Fimm þjóðir komnar áfram í kvennafótboltanum á ÓL

Fimm þjóðir eru búnar að tryggja sér sæti í átta liða úrslitum í kvennafótboltakeppni Ólympíuleikanna og það þótt að enn sé ein umferð eftir. Bandaríkin, Brasilía, Bretland, Svíþjóð og Japan eru öll komin í átta liða úrslitin eftir leiki dagsins.

Keilis-systkinin með tólf fugla saman í dag

Rúnar Arnórsson og Signý Arnórsdóttir systir hans voru í miklu fuglastuði á þriðja degi Íslandsmótsins í höggleik í dag. Rúnar fékk sjö fugla og Signý var með fimm fugla. Rúnar er í efsta sæti hjá körlunum en Signý er sjötta hjá konunum.

Haraldur Franklín og Rúnar efstir og jafnir fyrir lokadaginn

Haraldur Franklín Magnús úr GR og Rúnar Arnórsson úr GK fóru á kostum á þriðja deginum á Íslandsmótinu í höggleik á Strandarvelli á Hellu. Þeir eru eftir og jafnir fyrir lokadaginn, báðir á fimm höggum undir pari.

Oscar til í að spila hvar sem er á vellinum hjá Chelsea

Brasilíumaðurinn Oscar, nýjasti meðlimur Evrópumeistaraliðs Chelsea, segist vera að til í að spila hvar sem er á vellinum hjá Chelsea eða bara sem að Roberto Di Matteo vill láta hann spila. Chelsea keypti kappann frá Internacional í vikunni en hann er þessa stundina á fullu með Ólympíuliði Brasilíumanna.

Tinna: Pútterinn var heitur

Tinna Jóhannsdóttir úr Keili lék best allra í kvennaflokki á þriðja degi Íslandsmótsins í höggleik og hún var í viðtali hjá Sigurði Elvari Þórólfssyni í útsendingu Stöð 2 Sport frá mótinu. Tinna er einu höggi á eftir Valdísi Þóru fyrir lokadaginn.

Valdís Þóra á eitt högg á Tinnu fyrir lokadaginn

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni er með eitt högg í forskot á Tinnu Jóhannsdóttur úr Keili fyrir lokadaginn á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer á Strandarvelli á Hellu. Þær voru fyrst skráðar jafnar en þegar betur var að gáð kom í ljós að mótshaldarar voru ekki með rétt skor skráð á Tinnu.

Pistill: Óskiljanlegar ákvarðanir

Ólíklegt er að hornamaðurinn Þórir Ólafsson hafi jafnað sig á því að hafa ekki verið valinn í landsliðshóp Íslands í handbolta fyrir Ólympíuleikana í handbolta. Skyldi engan undra.

Gunnar Heiðar og Alfreð skoruðu báðir í Íslendingaslag

Gunnar Heiðar Þorvaldsson og Alfreð Finnbogason voru báðir á skotskónum þegar lið þeirra mættust í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. IFK Norrköping, lið Gunnars Heiðars, vann þá 2-1 útisigur á Helsingborg, liði Alfreðs.

Ólafsvíkur-Víkingar með tveggja stiga forskot á toppi 1. deildar karla

Guðmundur Steinn Hafsteinsson tryggði Víkingi Ólafsvík 2-1 heimasigur á Tindastól í dag og þar með tveggja stiga forskot á toppi 1. deildar karla í fótbolta. Haukar náðú á sama tíma aðeins markalausu jafntefli á móti Hetti á heimavelli en liðin voru efst og jöfn fyrir leiki dagsins.

Sjá næstu 50 fréttir