Sport

Myndasyrpa frá glæsilegri setningarhátíð

Eiríkur Stefán Ásgeirsson í London skrifar
Setningarhátíð Ólympíuleikanna í Lundúnum var haldin með pompi og prakti á Ólympíuleikvanginum í gær. Sýningin var hin glæsilegasta og náði hámarki þegar komið var með Ólympíueldinn inn á leikvanginn.

Eftir að eldurinn var tendraður á vellinum var komið að þætti Paul McCartney sem leiddi 80 þúsund manns í hópsöng með Bítlalaginu Hey Jude.

Andrúmsloftið var magnað en þessar skemmtilegu myndir tók Valgarður Gíslason, ljósmyndari Vísis og Fréttablaðsins, sem var á vettvangi í gær.

Mynd/Valli



Fleiri fréttir

Sjá meira


×