Fleiri fréttir

Barthez verður í marki KR í dag

Leit KR-inga að nýjum markverði hefur tekið nýja og óvænta stefnu því Fabien Barthez, fyrrum markvörður Man. Utd og franska landsliðsins, er kominn til félagsins og mun standa í marki liðsins gegn Þrótti er liðin mætast í Lengjubikarnum á KR-vellinum klukkan 14.00 í dag.

Tímabilið búið hjá Gallas og Arshavin frá í þrjár vikur

Arsenal-mennirnir William Gallas og Andrei Arshavin meiddust báðir í fyrri hálfleik á móti Barcelona í Meistaradeildinni í gær og það lítur út fyrir að Arsene Wenger geti ekki notað þá í mörgum mikilvægum leikjum á næstunni. Þessar slæmu fréttir bætast ofan á þær af fyrirliðinn Cesc Fabregas sé hugsanlega fótbrotinn.

Leikirnir sem Wayne Rooney missir af á næstunni

Manchester United hefur ekki enn gefið út formlega tilkynningu um niðurstöður sínar á rannsóknum á ökklameiðslum Wayne Rooney en stjórinn Alex Ferguson ætlar ekki að skýra frá stöðu mála fyrr en á blaðamannafundi á morgun.

Forseti Inter óttast ekki að missa Jose Mourinho

Massimo Moratti, forseti Inter Milan, hefur ekki miklar áhyggjur af því að þjálfarinn Jose Mourinho sé á leið frá félaginu þrátt fyrir að Portúgalinn hafi ítrekað tjáð óánægju sína með ítalska fótboltann.

Fabregas óttast það að hann sé fótbrotinn

Enn einn ný kafli í meiðslasögu Cesc Fabregas á þessu tímabili bættist við á lokamínútu jafnteflisleiks Arsenal á móti Barcelona í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar i gær. Fabregas jafnaði leikinn í lokin en meiddist við það og hugsanlega er tímabilið búið hjá honum.

NBA: Cleveland marði Bucks og Lakers tapaði sínum öðrum leik í röð

Cleveland Cavaliers steig í nótt stórt skref í átt að því að vera með besta árangurinn í deildarkeppni NBA-deildarinnar í körfubolta og þar með heimavallarrétt út úrslitakeppnina. Cleveland vann 101-98 sigur á Milwaukee Bucks á sama tíma og Los Angeles Lakers tapaði sínum öðrum leik í röð.

Mourinho: Áttum að vinna stærra

Jose Mourinho, þjálfari Inter, sagði að sitt lið hefði átt skilið að vinna leikinn gegn CSKA Moskva í Meistaradeildinni stærra en 1-0.

Walcott: Sýndum frábæran karakter

„Þetta var klárlega frábær leikur fyrir alla hlutlausa sem fylgdust með. Að fá að taka þátt í þessum leik var meiriháttar," sagði Theo Walcott, leikmaður Arsenal, en innkoma hans í kvöld skipti sköpum.

Wenger: Jafntefli var sanngjörn niðurstaða

„Byrjunin á leiknum var okkur afar erfið. Barcelona hefði hæglega getað skorað nokkur mörk á fyrstu 20 minútum leiksins," sagði Arsene Wenger, stjóri Arsenal, eftir leikinn við Barcelona í kvöld.

Ágúst: Við þekkjum þessa stöðu

KR getur orðið Íslandsmeistari í körfubolta kvenna á laugardag. Liðið vann í kvöld Hamar örugglega og er komið í 2-1 forystu í einvíginu.

Benedikt: Bættum vörnina í seinni hálfleik

Benedikt Guðmundsson, þjálfari kvennaliðs KR, er ekki byrjaður að fagna þó liðið sé komið í bílstjórasætið í einvíginu um Íslandsmeistaratitilinn. KR vann Hamar örugglega í kvöld og er komið í 2-1 í einvíginu.

Fletcher: Óttumst engan á Old Trafford

Darren Fletcher segir að Manchester United óttist engan á heimavelli. Liðið tapaði fyrri leiknum 2-1 gegn FC Bayern en liðin mætast næsta miðvikudag í seinni leiknum á Old Trafford.

Stelpurnar völtuðu yfir Breta

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik vann öruggan sigur á Bretum, 16-27, þegar liðin mættust í London í kvöld.

Mikil varnarvandræði hjá Portsmouth

Varnarleikurinn er áhyggjuefni fyrir Avram Grant og félaga í Portsmouth sem mæta Tottenham í undanúrslitum ensku bikarkeppninna þann 11. apríl.

Jafnt á Emirates og Inter vann CSKA

Arsenal átti magnaða endurkomu gegn Barcelona í kvöld. Lokatölur 2-2 í mögnuðum leik. Inter marði síðan 1-0 sigur á CSKA Moskva.

Pjanic: Megum ekki slaka á

„Sigurinn var verðskuldaður miðað við þróun leiksins. Þetta voru virkilega góð úrslit fyrir okkur en við megum alls ekki slaka á í seinni leiknum," segir Miralem Pjanic, hinn skemmtilegi nítján ára miðjumaður Lyon.

Aquilani flaug ekki með til Lissabon - Aftur meiddur

Alberto Aquilani, miðjumaður Liverpool, flaug ekki með liðinu til Lissabon í Portúgal. Liverpool mætir Benfica í fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum Evrópudeildarinnar á morgun.

Marca: Fabregas með í kvöld

Fréttavefur spænska blaðsins Marca greinir frá því að Cesc Fabregas sé klár í bátana og leiki með Arsenal gegn Barcelona í kvöld.

Stelpurnar unnu þriggja marka sigur í Króatíu

Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta vann 3-0 sigur á Króatíu í undankeppni HM í dag en leikurinn fór fram í Vrbovec í Króatíu. Katrín Jónsdóttir, Margrét Lára Viðarsdóttir og Rakel Logadóttir skoruðu mörk íslenska liðsins.

Edwin van der Sar: Við getum alveg spilað án Wayne Rooney

Edwin van der Sar, markvörður Manchester United, hefur ekki áhyggjur af því að United-liðið geti ekki spjarað sig án framherjans Wayne Rooney sem hefur farið á kostum á tímabilinu en meiddist á ökkla í Munchen í gær.

Sagan segir að sigurvegarinn í DHL-höllinni í kvöld verði meistari

KR og Hamar mætast í kvöld þriðja leik sínum í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í Iceland Express deild kvenna. Leikurinn fer fram í DHL-höll þeirra KR-inga og hefst klukkan 19.15. Staðan í einvíginu er 1-1 eftir að útiliðin hafa unnið tvo fyrstu leikina og skipts á því að rústa hvoru öðru í frákastabaráttunni.

Kristinn Guðbrandsson aðstoðar Ólaf

Kristinn Guðbrandsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Ólafs Þórðarsonar, þjálfara Fylkis. Páll Einarsson sinnti því hlutverki í fyrra en hann er nú aðalþjálfari Þróttar.

Trapattoni hafnaði því að taka við liði Juventus

Giovanni Trapattoni, landsliðsþjálfari Íra, tók ekki tilboði Juventus um að taka við liðinu þegar Ciro Ferrara var látinn fara í lok janúar. Alberto Zaccheroni tók við Juventus í staðinn og stýrir liðinu út leiktíðina.

Lotus meðal fimm fremstu 2013

Tony Fernandes hjá Lotus Formúlu 1 liðinu telur að lið sitt geti orðið meðal fimm fremstu keppnisliðanna innan þriggja ára, en lið hans hefur verið sneggst af nýju liðunum. Jarno Trulli og Heikki Kovalainen aka fyrir Lotus.

Rooney frá í tvær til fjórar vikur - myndband

Wayne Rooney verður líklega frá keppni í tvær til fjórar vikur. Sky fréttastofan hefur greint frá þessu. Rooney meiddist á ökkla í tapi Manchester United gegn Bayern München í gær.

Helena í hópi 45 bestu háskólaleikmanna Bandaríkjanna

Helena Sverrisdóttir fékk mikla viðurkenningu í gær þegar Fréttastofan Associated Press valdi úrvalslið ársins í bandaríska háskólaboltanum. Helena var í hópi þeirra leikmenn sem voru næstir því að komast inn í úrvalsliðin þrjú.

Jose Mourinho: Ég þoli ekki ítalskan fótbolta

Það er ekki margt sem bendir til þess að Jose Mourinho verði áfram í ítalska fótboltanum enda er portúgalski stjórinn kominn í mikið stríð við knattspyrnuyfirvöld á Ítalíu.

Button vill verja meistaratitilinn

Jenson Button er sérlega ánægður að hafa landað sigri í öðru móti sínu með McLaren, þar sem hann telur að önnur lið séu í raun með fljótari bíla en hans lið. Button varð meistari í fyrra með Brawn, sem nú heitir Mercedes

Ísland upp fyrir Haíti á styrkleikalista FIFA

Íslenska karlalandsliðið hækkaði sig um eitt sæti á nýjum styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins sem var gefinn út í dag. Íslenska landsliðið er nú í 90. sæti á listanum en í 42.sæti meðal 53 Evrópuþjóða.

NBA: Áttundi sigur Phoenix Suns liðsins í röð

Jason Richardson skoraði 27 stig fyrir Phoenix Suns í NBA-deildinni í körfubolta í nótt þegar liðið vann sinn áttunda leik í röð og tryggði sér endanlega sæti í úrslitakeppninni með 11-105 sigri á Chicago Bulls á útivelli.

Jafntefli í Íslendingaslag

Þrjú Íslendingalið voru á ferðinni í ensku B-deildinni í kvöld og þar af mættust tvö þeirra innbyrðis. Það voru Plymouth og Barnsley en þeim leik lauk með markalausu jafntefli.

Sjá næstu 50 fréttir