Kári Kristján í leið til Wetzlar í Þýskalandi Elvar Geir Magnússon skrifar 31. mars 2010 13:45 Kári Kristján Kristjánsson.
Handknattleiksmaðurinn Kári Kristján Kristjánsson mun yfirgefa herbúðir svissneska félagsins Amicitia Zürich í sumar og ganga til liðs við þýska úrvalsdeildarliðið Wetzlar. Wetzlar er sem stendur í þrettánda sæti þýsku deildarinnar en Sigurður Bjarnason, Róbert Sighvatsson og Gunnar Berg Viktorsson eru meðal þeirra sem áður hafa leikið með liðinu. Kári er línumaður og gekk í raðir Zürich fyrir aðeins ári. Dvölin hefur valdið Kára miklum vonbrigðum. „Það er ekkert hérna eins og maður bjóst við. Við búum í fínni borg í góðri íbúð en allt í kringum handboltann hefur valdið vonbrigðum. Ef ég á að segja eins og er þá hefur þetta bara verið hundleiðinlegt. Það er nákvæmlega enginn áhugi fyrir handbolta hérna," sagði Kári Kristján í viðtali við Fréttablaðið fyrr í þessum mánuði. Zürich er í miklum fjárhagsörðugleikum þó svo það hafi staðið við allar launagreiðslur hingað til. Það sameinast öðru félagi næsta sumar og í kjölfarið þarf væntanlega að semja upp á nýtt við leikmenn. Þeim er líka frjálst að fara annað.
Mest lesið Óttast að besti leikmaður Liverpool verði frá Enski boltinn Snýr aftur á æfingar eftir 100 daga í burtu Fótbolti Gat ekki komið í veg fyrir að City færi áfram Enski boltinn Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Handbolti Spilar áfram með Messi í Miami Fótbolti Spilaði 13 mínútur en var stigahæstur Körfubolti Ungstirnið skallaði meistarana áfram Enski boltinn „Ef við hefðum ekki verið að setja þessi skot þá hefðum við skíttapað“ Körfubolti Körfuboltakvöld: Tilþrif tímabilsins til þessa Körfubolti Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur Íslenski boltinn Fleiri fréttir Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Á hækjum á milli leikja og þoldi sífellt verri sársauka Uppgjörið: Haukar - Fram 25-27 | Meistararnir unnu toppliðið í naglbít „Fannst við bara lélegir í kvöld“ Botnliðið hrellti Aftureldingu og KA lék sér að eldinum Flott endurkoma FH og Valur vann í 83 marka leik Elliði framlengir dvölina í Gummersbach Þórir í skýjunum: „Sit með lítið tár í augnkróknum“ Tíu mörk frá Hauki ekki nóg Reistad valin best og Katrine Lunde besti markvörðurinn Ómar Ingi fiskaði vítið sem gaf sigurmarkið í Íslendingaslag Katrine Lunde fékk draumaendinn sinn og þær norsku urðu heimsmeistarar Einar Bragi fór mikinn í mikilvægum sigri Afhentu Akureyringum fimmta tapið í röð Donni markahæstur í dramatískum sigri Frakkar fengu bronsið eftir spennutrylli Eyjakonur gerðu sér góða ferð upp á land Segir Norðmönnum að setja hana í karlalandsliðið sitt Íslendingaliðin unnu öll og skipa sér í þrjú efstu sætin Bjarki Már raðaði inn mörkunum í seinni hálfleik Stelpurnar okkar mættar aftur í Olís deildina Sjá meira