Fleiri fréttir

Nicklas Bendtner tryggði Arsenal sigur í uppbótartíma

Daninn Nicklas Bendtner er svo sannarlega hetja Arsenal-manna þessa dagana því hann fylgdi á eftir þrennunni á móti Porto í Meistaradeildinni í vikunni með því að skora sigurmark Arsenal í 2-1 útisigri á Hull í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Framkonur unnu fyrri leikinn í Makedóníu með þremur mörkum

Bikarmeistarar Fram eru í ágætum málum eftir fyrri leik sinn á móti Metalurg frá Makedóníu í Áskoraendakeppni Evrópu. Framkonur unnu 29-26 sigur í leik liðanna í Makedóníu í dag þar sem Íris Björk Símonardóttir átti stórleik í markinu og varði 24 skot.

Tvö Grindavíkurmörk eftir að þeir misstu mann útaf

Grindavík vann dramatískan 3-2 sigur á Þór Akureyri í Akraneshöllinni í dag í riðli 1 í A-deild Lengjubikars karla. Þór var 2-1 yfir í leiknum þegar Grindvíkingurinn Grétar Ólafur Hjartarson var rekinn útaf fimm mínútum fyrir leikslok en Grindavíkurliðið skoraði tvö mörk manni færri.

Hamarskonur komnar í 1-0 eftir tuttugu stiga sigur á Keflavik

Hamarskonur unnu 20 stiga sigur á Keflavík, 97-77, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna í körfubolta í Hveragerði í dag. Julia Demirer var með 25 stig og 16 fráköst hjá Hamar og Kristrún Sigurjónsdóttir bætti við 18 stigum, 8 fráköstum og 8 stoðsendingum.

Gareth Bale: Það vita allir hversu góður Pav er

Tottenham er í góðri stöðu í baráttunni um fjórða sæti ensku úrvalsdeildarinnar eftir flottan sigur á heimavelli í dag. Gareth Bale átti góðan leik þegar Tottenham vann 3-1 sigur á Blackburn.

Guardiola segir dómarann hafa logið í skýrslu sinni

Pep Guardiola, þjálfari Barcelona, segist ekki vera stoltur af sjálfum sér eftir framkomu sína á leik Barcelona og Almeria um síðustu helgi. Guardiola segist hafa áfrýjað leikbanni sínu þar sem dómari leiksins hafi logið um það sem hann sagði.

Verkfall MLS-deildarinnar gæti komið sér vel fyrir Everton

Landon Donovan gæti spilað lengur með Everton í ensku úrvalsdeildinni víst að leikmenn bandarísku atvinnumannadeildarinnar, MLS, kusu það að fara í verkfall ef samningar takast ekki fyrir opnunarleik tímabilsins sem fer fram 25. mars.

Vettel fremstur á ráslínu

Þjóðverjinn Sebastian Vettel ræsir fremstur af stað í fyrsta Formúlu 1 mót árins á Red Bull. Hann náði besta tíma í tímatökum í Barein í dag og varð á undan Felipe Massa og Fernando Alonso á Ferrari.

Leikur Inter hrundi á síðustu sextán mínútunum

Ítölsku meistararnir í Inter Milan koma með slæmt tap á bakinu inn í leikinn á móti Chelsea í Meistaradeildinni í næstu viku eftir að liðið fékk á sig þrjú mörk á síðustu sextán mínútunum á móti Catania í gær. Smáliðið vann 3-1 sigur og AC Milan getur því minnkað forskot Inter á toppnum í eitt stig.

NBA: LeBron spilaði aftur með Cleveland og Lakers vann Phoenix

LeBron James spilaði á ný með Cleveland Cavaliers í 100-95 sigri á Philadelphia 76ers í NBA-deildinni í körfubolta í nótt og var með 23 stig, 10 stoðsendingar og 6 fráköst. James missti af tveimur síðustu leikjum liðsins. James hafði misst af tveimur síðustu leikjum toppliðs NBA-deildarinnar.

Alonso fremstur í flokki

Spánverjinn Fernando Alonso á Ferrari náði besta tíma á lokaæfingu fyrir tímatökuna í Barein, sem verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport kl. 10.45 í dag.

Oddur: Eins og létt æfing

Oddur Gretarsson átti enn einn stórleikinn fyrir Akureyri í kvöld. Hann skoraði tólf af 36 mörkum liðsins sem fékk aðeins á sig 21 mark gegn Stjörnunni. Liðið er þar með aftur komið í annað sæti N-1 deildarinnar.

Umfjöllun: Akureyri valtaði yfir Stjörnuna

Leikur Akureyrar á Stjörnunni í N-1 deild karla í handbolta í kvöld var aldrei spennandi. Akureyri vann með fimmtán marka mun og gerði hreinlega lítið úr arfaslökum Garðbæingum. Lokatölur 36-21 sem segir margt um leikinn.

Iceland-Express deildin: KR vann Stjörnuna

KR vann frábæran sigur á Stjörnunni í stórskemmtilegum leik í Garðabænum í kvöld. Þrír leikir fóru fram í Iceland-Express deildinni og voru þeir allir jafnir og spennandi.

Komst ekki til Þýskalands vegna flughræðslu

Þýska félagið HSV endurheimti Perúmanninn Paolo Guerrero loks í gær eftir að hann hafði dvalið í heimalandinu í heila tvo mánuði þar sem hann varð allt í einu flughræddur.

Kona stýrir karlaliði í amerískum fótbolta

Menntaskóli í höfuðborg Bandaríkjanna, Washington, hefur ákveðið að ráða konu sem aðalþjálfara karlaliðs skólans í amerískum fótbolta. Það þykja stórtíðindi í Bandaríkjunum.

Tímabilið hugsanlega búið hjá Nesta

Ítalski varnarmaðurinn Alessandro Nesta hjá AC Milan spilar hugsanlega ekki meira í vetur því hann þarf væntanlega að leggjast undir hnífinn vegna hnémeiðsla.

Andri Steinn í Keflavík

Andri Steinn Birgisson hefur náð samkomulagi við Keflavík og spilar með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar. Andri samdi nýlega við Raufoss í Noregi en er núna kominn heim.

Hvenær snýr Tiger eiginlega aftur?

Það er fátt um annað rætt í golfheiminum hvenær Tiger Woods láti eiginlega sjá sig aftur á golfvellinum. Það hefur enginn eitt svar við þeirri spurningu.

Halldór Ingólfsson tekur við Haukum

Halldór Ingólfsson, þjálfari Gróttu, verður næsti þjálfari Hauka samkvæmt öruggum heimildum íþróttadeildar. Samkvæmt sömu heimildum verður leikmönnum Gróttu tilkynnt þetta í kvöld.

Arenas hermir eftir LeBron

Þegar LeBron James ákvað að sýna Michael Jordan virðingu með því að skipta úr númerinu 23 í 6 átti hann ekki von á því að alræmdasti leikmaður deildarinnar, Gilbert Arenas, myndi fylgja í fótspor hans.

Bikarúrslit karla og kvenna um sömu helgi

Stjórn KSÍ ákvað á fundi sínum í gær að bikarúrslitaleikur kvenna skildi fara fram sömu helgi og karlaleikurinn. Úrslitaleikurinn hjá konunum verður því sunnudaginn 15. ágúst.

43 prósent karfanna hans Jón Orra á árinu 2010 hafa verið troðslur

Eins og fram kom í viðtali við Fannar Ólafsson, fyrirliða KR, á heimasíðu félagsins þá voru leikmenn KR-liðsins einstaklega duglegir að troða í síðasta leik liðsns. KR-ingar tróðu alls átta sinnum í þessum 96-72 sigri á Blikum en enginn tróð þó oftar en Jón Orri Kristjánsson.

Blikar safna peningum fyrir knattspyrnudeildina

Stuðningsmenn Breiðabliks hafa hrundið af stað fjársöfnun til handa knattspyrnudeildinni. Blikar eru nýbúnir að punga út kaupverði fyrir framherjann Guðmund Pétursson og borguðu Blikar meira fyrir leikmanninn en þeir upprunalega voru til í að borga.

Barmby og Bullard slógust í almenningsgarði

Það er lítill vinskapur á milli Nicky Barmby og Jimmy Bullard þessa dagana en þeir leika með Hull City. Þeir lentu í miklum slagsmálum á æfingu sem einhverra hluta fór fram í almenningsgarði.

Sjá næstu 50 fréttir