Hamarskonur komnar í 1-0 eftir tuttugu stiga sigur á Keflavik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2010 16:28 Julia Demirer fór á kostum í leiknum í dag. Mynd/Valli
Hamarskonur unnu 20 stiga sigur á Keflavík, 97-77, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna í körfubolta í Hveragerði í dag. Julia Demirer var með 25 stig og 16 fráköst hjá Hamar og Kristrún Sigurjónsdóttir bætti við 18 stigum, 8 fráköstum og 8 stoðsendingum. Hamar byrjaði leikinn frábærlega og var komið í 25-9 eftir fyrsta leikhluta þar sem þær Kristrún Sigurjónsdóttir (12 stig) og Julia Demirer (11 stig, 6 fráköst) voru allt í öllu fyrstu tíu mínútur leiksins. Keflavík vann síðustu fimm mínútur fyrri hálfleiks 19-8 og kom muninum niður í sex stig, 48-42, fyrir hálfleik. Hamar byrjaði seinni hálfleikinn vel en Keflavík kom til baka og það munaði áfram sex stigum, 70-64, fyrir lokaleikhlutann. Hamarsliðið byrjaði lokaleikhlutann á 9-1 spretti, komst í 79-65 og var með nokkur góð tök á leiknum eftir það. Guðbjörg Sverrisdóttir fór mikinn á lokakaflanum í liði Hamars en hún skoraði 12 stig á síðustu 10 mínútunum og 10 sekúndunum í leiknum. Hamar er þar með komið í 1-0 í þessu undanúrslitaeinvígi en það lið kemst í lokaúrslitin sem fyrr vinnur þrjá leiki. Næsti leikur er í Keflavík á þriðjudaginn.Hamar-Keflavík 97-77 (48-42)Stig Hamars: Julia Demirer 25 (16 frák.), Kristrún Sigurjónsdóttir, 18 (8 fráköst, 8 stoðsendingar) Guðbjörg Sverrisdóttir 18, Koren Schram 11, Fanney Lind Guðmundsdóttir 10 (8 fráköst), Sigrún Ámundadóttir 8 (8 fráköst), Íris Ásgeirsdóttir 4, Hafrún Hálfdánardóttir 3.Stig Keflavíkur: Kristi Smith 22, Birna Valgarðsdóttir 15, Bryndís Guðmundsdóttir 14, Marín Rós Karlsdóttir 7, Pálína Gunnlaugsdóttir 7, Rannveig Randversdóttir 6, Hrönn Þorgrímsdóttir 4, Svava Ósk Stefánsdóttir 2.
Dominos-deild kvenna Mest lesið PSG - Arsenal 1-1 (4-3) | Vörðu titilinn í vítakeppni Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Af hverju hefst úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu svona snemma? Fótbolti Arftaki Slot hjá Liverpool fundinn Enski boltinn Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Slot rekinn frá Liverpool Enski boltinn Bergrós flutt á sjúkrahús: „Gat hvorki gengið né talað“ Sport Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Körfubolti Þrír líklegustu dottnir úr leik Sport „Betra liðið tapaði” Fótbolti Fleiri fréttir Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Fetar í fótspor föður síns og þjálfar Keflavík Þrír ættliðir Íslandsmeistara: „Nú þarftu fimm í viðbót til að ná mér“ Elvar Már óvænt til Tenerife út tímabilið Sjá meira