Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
KR vann í jöfnum leik KR vann Stjörnuna 70-63 í eina leik kvöldsins í Iceland Express deild karla í körfubolta. Þetta er fyrsti leikur sjöttu umferðar en hann var færður vegna þátttöku KR í Evrópukeppninni. 12.11.2007 21:10
Zlatan leikmaður ársins í Svíþjóð Í kvöld fór fram lokahóf knattspyrnumanna í Svíþjóð. Það var Zlatan Ibrahimovic, sóknarmaður ítalska liðsins Inter, sem hlaut stærstu verðlaunin en hann var kjörinn leikmaður ársins 2007 í Svíþjóð. 12.11.2007 21:02
Sigur hjá Hreiðari og félögum Markvörðurinn Hreiðar Guðmundsson og félagar hans í Sävehof unnu botnlið Helsingborg í sænska handboltanum í kvöld. Sävehof vann 33-25 og að loknum tíu umferðum er liðið með fjórtán stig, stigi á eftir toppliðunum. 12.11.2007 20:15
Leikmenn verða að taka ábyrgð „Leikmenn verða að taka sinn skammt af ábyrgð," segir Steven Gerrard sem stendur við bakið á Steve McClaren, landsliðsþjálfara Englands. McClaren hefur fengið vænan skammt af gagnrýni en Gerrard sýnir honum stuðning. 12.11.2007 20:00
Bikarmeistarar ekki í Meistaradeildina Tillaga Michel Platini, forseta knattspyrnusambands Evrópu, um að bikarmeistarar fái sæti í Meistaradeild Evrópu hefur verið felld. Þetta gerðist á stjórnarfundi UEFA í dag. 12.11.2007 19:15
Barton ekki refsað Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur ákveðið að refsa ekki Joey Barton fyrir tæklingu hans um helgina. Barton átti glæfralega tæklingu á Dickson Etuhu í leik Newcastle og Sunderland á laugardag. 12.11.2007 18:45
Strachan spáir nýrri Evrópudeild Gordon Strachan, knattspyrnustjóri skoska liðsins Glasgow Rangers, reiknar með því að lið hans muni innan tíðar mæta sterkustu liðum Evrópu í sérstakri ofurdeild. 12.11.2007 18:00
Ólafur Páll í Fjölni Ólafur Páll Snorrason mun spila með nýliðum Fjölnis í Landsbankadeildinni næsta sumar. Ólafur Páll hefur fengið sig lausan undan samningi við FH og staðfesti á vefsíðunni Fótbolti.net að hann mun semja við Fjölni. 12.11.2007 17:30
Arsenal heimsækir Reading Einn leikur er í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og verður hann að sjálfsögðu í beinni útsendingu á Sýn 2. Reading og Arsenal mætast á Madjeski vellinum en leikurinn hefst klukkan 20:00. 12.11.2007 17:00
Logi: Jónas var efstur á óskalistanum Logi Ólafsson, þjálfari KR, segir að Jónas Guðni Sævarsson passi vel inn í áætlanir sínar fyrir lið KR-inga og leik liðsins á næstu leiktíð. 12.11.2007 16:02
Jónas Guðni: Þurfti á breytingu að halda Jónas Guðni Sævarsson skrifaði í dag undir þriggja ára samning við KR. Hann sagði að hann hefði þurft á breytingu á nýrri áskorun að halda. 12.11.2007 15:41
Lögreglumaðurinn niðurbrotinn Lögreglumaðurinn sem varð valdur að bana 26 ára stuðningsmanns Lazio á Ítalíu í gær segist vera niðurbrotinn maður. 12.11.2007 14:22
Steinþór áfram í Val Steinþór Gíslason hefur framlengt samning sinn við Val til loka ársins 2009. Hann gat ekkert leikið með félaginu í sumar vegna meiðsla. 12.11.2007 13:22
Frail: Eggert valinn í landsliðið Steven Frail, aðstoðarknattspyrnustjóri Hearts, sagði í samtali við skoska fjölmiðla að Eggert Gunnþór Jónsson hafi verið valinn í A-landslið Íslands. 12.11.2007 12:46
Meistaradeildarfé greitt til íslenskra félaga KSÍ hefur nú úthlutað þeim tæpu 20 milljónum sem sambandinu barst frá Knattspyrnusambandi Evrópu vegna tekna Meistaradeildar Evrópu tímabilið 2006-7. 12.11.2007 12:29
Jónas Guðni í KR Jónas Guðni Sævarsson mun í dag ganga til liðs við KR samkvæmt heimildum Vísis. 12.11.2007 11:25
Loksins sigur hjá Miami Miami Heat vann í nótt sinn fyrsta leik í NBA-deildinni á tímabilinu er liðið vann New York Knicks, 75-72. 12.11.2007 10:31
Sigur hjá Jóni Arnóri og félögum Jón Arnór Stefánsson var í byrjunarliði Lottomatica Roma og skoraði fjögur stig er liðið vann sigur á Ari Avellino, 106-90. 12.11.2007 10:21
Helena góð í tapi TCU Helena Sverrisdóttir átti góðan leik er lið hennar í háskólaboltanum í Bandaríkjunum, TCU, tapaði fyrir No. 5/5 LSU í nótt. 12.11.2007 10:12
Mikilvægur sigur hjá Flensburg Flensburg vann í gærkvöldi tveggja marka sigur á Noregsmeisturum Drammen á heimavelli sínum í Campushalle. 12.11.2007 09:58
Ciudad Real heldur toppsætinu Ciudad Real er enn á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar í handbolta eftir leiki helgarinnar. 12.11.2007 09:42
Gullin helgi fyrir Rögnu Árangur íslensku keppendanna á alþjóðlega badmintonmótinu Iceland Express International sem lauk í gær var mjög góður og stjarna mótsins var Ragna Ingólfsdóttir sem vann tvö gull í einliðaleik og tvíliðaleik. 12.11.2007 06:00
Frábær sigur hjá Valsmönnum Valsmann unnu í kvöld fyrsta leik sinn í riðlakeppni Meistaradeildarinnar þegar liðið gerði sér lítið fyrir og lagði stórlið Celje Lasko frá Slóveníu 29-28 í Vodafone höllinni. 11.11.2007 18:58
Fyrsti sigur Valsstúlkna Kvennalið Vals vann í dag sinn fyrsta sigur í Iceland Express deildinni þegar liðið skellti Fjölni í Grafarvogi 78-58. Liðin eru á botni deildarinnar með eitt stig hvort. 11.11.2007 21:30
Gömlu mennirnir úti í kuldanum hjá Donadoni Roberto Donadoni landsliðsþjálfari Ítala valdi í dag hópinn sem mæta Skotum og Færeyingum í undankeppni EM í næstu viku. Gömlu kempurnar Alessandro Del Piero og Filippo Inzaghi hljóta ekki náð fyrir augum þjálfarans þrátt fyrir að spila ágætlega með liðum sínum Juventus og Milan. 11.11.2007 20:15
Strákurinn var óheppinn Sir Alex Ferguson viðurkenndi að rauða spjaldið sem David Dunn fékk í leik Manchester United og Blackburn í dag hefði verið strangur dómur. 11.11.2007 19:21
Ánægðastur með að halda hreinu Guus Poyet, aðstoðarstjóri Tottenham, sagðist fyrst og fremst ánægður með að hans menn hefðu náð að halda hreinu í dag þegar liðið burstaði Wigan 4-0 og fjarlægðist fallsvæðið enn frekar. 11.11.2007 19:14
Einn af okkar bestu leikjum Avram Grant knattspyrnustjóri sagðist hafa verið ánægður með sína menn í dag þegar lið hans Chelsea gerði 1-1 jafntefli við Everton á heimavelli. 11.11.2007 18:27
City heldur þriðja sætinu Portsmouth og Manchester City skildu jöfn 0-0 í lokaleiknum í ensku úrvalsdeildinni í dag og því eru City-menn enn í þriðja sæti deildarinnar. Hermann Hreiðarsson var á bekknum hjá Portsmouth í dag og kom ekki við sögu. Portsmouth er í sjötta sæti deildarinnar. 11.11.2007 18:22
Stjarnan úr leik Kvennalið Stjörnunnar er úr leik í EHF keppninni í handbolta eftir 30-29 tap fyrir franska liðinu Mios í síðari leik liðanna í Mýrinni í Garðabæ. Franska liðið vann fyrri leikinn líka með einu marki. Rakel Dögg Bragadóttir var atkvæðamest hjá Stjörnunni með 12 mörk, þar af 8 úr vítum og Björk Gunnarsdóttir skoraði 6 mörk. 11.11.2007 18:08
Reggina af botninum eftir fyrsta sigurinn Emil Hallfreðsson og félagar í Reggina unnu loks sinn fyrsta sigur í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu í dag þegar liðið lagði Genoa 2-0 á heimavelli sínum. Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði Reggina í dag og með sigrinum lyfti liðið sér úr botnsætinu. 11.11.2007 17:17
Ronaldo skaut United á toppinn Cristiano Ronaldo skoraði bæði mörk Manchester United í dag þegar liðið skaust á topp ensku úrvalsdeildarinnar með verskulduðum sigri á Blackburn 2-0 á Old Trafford. 11.11.2007 16:59
Everton náði í stig á Stamford Bridge Bakfallsspyrna Tim Cahill tryggði Everton 1-1 jafntefli gegn Chelsea í viðureign liðanna á Stamford Bridge í dag eftir að Didier Drogba hafði komið heimamönnum yfir með laglegum skalla. 11.11.2007 15:56
Eriksson tjáir sig ekki um Eið Smára Sven-Göran Eriksson vill ekkert gefa upp um áformuð leikmannakaup sín hjá Manchester City þegar félagskiptaglugginn opnast í janúar. Fjöldi leikmanna hafa verið orðaðir við City undanfarið og þar á meðal Eiður Smári Guðjohnsen hjá Barcelona. 11.11.2007 15:45
Leik Atalanta og Milan hætt vegna óláta Leikur Atalanta og Milan sem fara átti fram í ítölsku A-deildinni í dag var flautaður af eftir ólæti áhorfenda í upphafi leiks. Fregnir herma að stuðningsmennirnir hafi reiðst þegar þeir heyrðu af dauða stuðningsmanns Lazio sem féll fyrir voðaskoti lögreglu í dag. 11.11.2007 15:30
Villa vann grannaslaginn í Birmingham Skallamark Gabriel Agbonlahor undir lokin tryggði Aston Villa nauman 2-1 sigur á grönnum sínum í Birmingham í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. 11.11.2007 15:20
Ragna vann tvöfalt Ragna Ingólfsdóttir vann tvöfalt á alþjóðlega badmninton mótinu sem haldið var í TBR húsinu um helgina. Fyrr í dag vann Ragna sigur í einliðaleik þar sem hún lagði Trine Niemaier frá Danmörku í úrslitaleik og sigraði svo í tvíliðaleiknum ásamt Katrínu Atladóttur síðar í dag þegar þær báru sigurorð af Söru Jónsdóttur og Tinnu Helgadóttur. 11.11.2007 15:04
Adriano vill fara til Manchester City Brasilíski framherjinn Adriano hjá Inter hefur nú lýst því yfir að hann vilji komast að hjá félagi í ensku úrvalsdeildinnii þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. 11.11.2007 13:50
Hitzfeld sáttur við að tapa stórt Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, segist í samtali við Bild vera mjög ánægður með að hans menn hafi fengið 3-1 skell gegn Stuttgart í gær. Hann vill meina að tapið verði þá kannski til þess að vekja hans menn úr rotinu. 11.11.2007 13:44
Leikjum frestað eftir dauða stuðningsmanns Leik Inter og Lazio í ítölsku A-deildinni í dag hefur verið frestað eftir að stuðningsmaður Rómarliðsins lét lífið í átökum sem brutust á veitingastað við hraðbraut í Toskana-héraði í dag. 11.11.2007 13:38
Hundurinn truflar Cole í kynlífinu Cheryl Cole, eiginkona knattspyrnumannsins Ashley Cole hjá Chelsea, segir bónda sinn ekki geta stundað kynlíf þegar hundurinn þeirra sér til. 11.11.2007 13:22
Grannaslagur í Birmingham Sex leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag og byrjar fjörið í Birmingham nú klukkan 13 þar sem grannarnir Birmingham og Aston Villa eigast við á St. Andrews vellinum. Leikurinn er sýndur beint á Sýn 2. 11.11.2007 13:00
Fínn sigur hjá GOG Danska liðið GOG vann í gær góðan útisigur á Tatran Presov frá Slóvakíu 38-31 í D-riðli Meistaradeildar Evrópu í handbolta eftir að staðan hafði verið jöfn 16-16 í hálfleik. Ásgeir Örn Hallgrímsson var markahæstur ásamt tveimur öðrum í danska liðinu með 8 mörk.. GOG er nú nánast öruggt með að komast upp úr riðlinum. 11.11.2007 12:57
Getafe hefur tak á Barcelona Smálið Getafe frá Madrid hefur enn föst tök á stórliði Barcelona og í gær vann Getafe 2-0 sigur í einvígi liðanna. Barcelona tapaði 4-0 síðast þegar það mætti á Coliseum fyrir hálfu ári og gekk ekki mikið betur í gærkvöldi. 11.11.2007 12:40
Mickelson sigraði í Kína Bandaríski kylfingurinn Phil Mickelson tryggði sér í nótt sigur á Shanghai mótinu í golfi. Þríri menn voru efstir og jafnir eftir á 10 undir pari eftir 72 holur en Mickelson hafði betur eftir bráðabana við þá Ross Fisher og Lee Westwood. 11.11.2007 12:35