Fleiri fréttir

Upphitun fyrir Arsenal - United

Stórleikur helgarinnar í enska boltanum er viðureign Arsenal og Manchester United á Emirates á morgun, en leikurinn verður að sjálfssögðu sýndur beint á Sýn 2 og hefst útsending klukkan 12:25.

Tekinn á 270 km hraða

Framherjinn Milan Baros hjá Lyon í Frakklandi á nú yfir höfði sér að missa bílprófið í allt að þrjú ár eftir að hafa verið tekinn af lögreglu á rúmlega 270 kílómetra hraða á Ferrari bíl sínum í grennd við Lyon. Þetta mun vera hraðamet á svæðinu að sögn lögreglu.

Koeman vígður hjá Valencia

Hollendingurinn Ronald Koeman var í kvöld formlega ráðinn þjálfari Valencia og skrifaði undir samning við félagið til ársins 2010. Koeman var áður hjá Benfica og PSV Eindhoven í Hollandi, en gerði garðinn frægan á Spáni sem leikmaður Barcelona.

Eigandi Sonics sækir um flutning á liðinu

Clay Bennett, eigandi Seattle Supersonics í NBA deildinni, staðfesti í kvöld að hann ætlaði að óska eftir því við forráðamenn deildarinnar að liðið verði flutt frá Seattle eins fljótt og hægt er.

Wenger langaði að kaupa Tevez

Arsene Wenger segist hafa velt því mikið fyrir sér að reyna að kaupa Carlos Tevez frá West Ham í sumar. Hann segist hafa hætt við það þegar hann frétti af áhuga Manchester United á Argentínumanninum.

Hroki Ferguson efldi okkur

Robert Pires, fyrrum leikmaður Arsenal, segir að hrokafullar yfirlýsingar Sir Alex Ferguson og Manchester United hafi á sínum tíma verið aðal hvati leikmanna Arsenal fyrir einvígi liðanna í deildinni.

Jol gagnrýnir vinnubrögð Comolli

Hollendingurinn Martin Jol hefur nú varpað ljósi á nokkur atriði sem urðu þess valdandi að hann fór frá Tottenham á dögunum. Í viðtali hans við Sun kemur fram að erfitt samstarf hans við Damien Comolli var ein af ástæðunum fyrir því að allt fór í hundana hjá félaginu.

Boston - Washington í beinni á Sýn í nótt

Sjónvarpsstöðin Sýn hefur beinar útsendingar frá NBA deildinni í körfubolta á miðnætti í nótt þegar stöðin sýnir beint frá viðureign Boston og Washington. Leiksins er beðið með mikilli eftirvæntingu í Boston.

Wenger ætlar sér sigur gegn United

Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, ætlar sér sigur í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar gegn Manchester United á morgun.

Fjárfestar í Seattle vilja kaupa Sonics

Hópur fjárfesta í Seattle gaf það út í dag að þeir hefðu í huga að kaupa NBA lið Seattle Supersonics af núverandi eiganda Clay Bennett, með það fyrir augum að halda liðinu í borginni. Fátt bendir til annars en að Bennett flytji liðið til heimaborgar sinnar Oklahoma.

Kristján Örn hvíldur um helgina

Kristján Örn Sigurðsson er einn þeirra leikmanna sem verða hvíldir í lokaleik Brann í norsku deildinni en liðið mætir Tromsö á útivelli um helgina.

Albert Ingason skrifar undir hjá Val

„Það er bara allt spennandi við þennan klúbb. Þeir eru meistarar og svo er það evrópukeppninn, aðstæðan og bara allur pakkinn," segir Albert Brynjar Ingason knattspyrnumaður sem hefur leikið með Fylki nánast alla sína tíð.

Sanchez: Bjóst við erfiðum leik gegn Íslandi

Lawrie Sanchez tjáir sig í nýrri bók um tíma hans sem landsliðsþjálfari Norður-Írlands. Leikur Norður-Írlands og Íslands í Belfast spilar stórt hlutverk í bókinni.

Finnbogi semur við HK til 2010

Finnbogi Llorens hefur samið við HK til ársins 2010 en gamli samningurinn rann út núna í lok tímabilsins.

Alonso staðfestir viðskilnaðinn

Fernando Alonson hefur staðfest að hann sé hættur hjá McLaren í Formúlunni. Þriggja ára samningi hans við liðið hefur verið rift.

Guðjón Valur: Ekki búinn að afskrifa EM

Haft er eftir Guðjóni Vali Sigurðssyni á handball-welt.de í dag að hann gæti verið frá í 5-6 mánuði í viðbót. Hann gefur lítið fyrir viðtalið sem hann kannast ekki einu sinni við.

Hnífjafnar rimmur Wenger og Ferguson

Sir Alex Ferguson og Arsene Wenger kljást í 34. sinn á ferlinum um helgina þegar Arsenal tekur á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni.

McGrady sallaði 47 stigum á Jazz

Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt. Tracy McGrady var maður kvöldsins þegar hann skoraði 47 stig í góðum útisigri Houston á Utah 106-95.

Barcelona gerði jafntefli við Valladolid

Eiður Smári Guðjohnsen spilaði síðustu 20 mínúturnar í kvöld þegar Barcelona þurfti að sætta sig við jafntefli gegn Valladolid á útivelli í spænsku úrvalsdeildinni.

Ævintýraleg sigurkarfa Helga tryggði KR sigur

KR-ingar unnu dramatískan 82-81 sigur á Njarðvík í Iceland Express deildinni í kvöld þar sem ævintýraleg þriggja stiga karfa Helga Magnússonar tryggði KR sigurinn um leið og lokaflautið gall.

Grétar Rafn framlengir við AZ

Landsliðsmaðurinn Grétar Rafn Steinsson hefur framlengt samning sinn við hollenska félagið AZ Alkmaar til ársins 2012. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins í dag. Gamli samningurinn átti að renna út árið 2011 og því er hér um eins árs framlengingu að ræða.

Ulivieri tekur við Reggina

Emil Hallfreðsson og félagar í botnliði Reggina fengu í kvöld nýjan þjálfara eftir að Massimo Ficcadenti var rekinn. Sá heitir Renzo Ulivieri og er 66 ára gamall og var síðast hjá Bologna í B-deildinni. Hann er líka yfirmaður samtaka knattspyrnuþjálfara á Ítalíu.

Neville spilaði klukkutíma

Gary Neville komst vel frá þeim 60 mínútum sem hann spilaði með varaliði Manchester United í kvöld þegar það burstaði Stockport 6-1 í kvöld. Neville er enn talinn inn í myndini fyrir leikinn gegn Arsenal á laugardaginn en er líklegri í leikinn gegn Dynamo Kiev á miðvikudaginn.

Elding banaði starfsmanni Lecce

Forráðamenn ítalska knattspyrnuliðsins Lecce hafa farið þess á leit við knattspyrnusambandið að leik liðsins við Cecena í B-deildinni á laugardaginn verði frestað eftir að starfsmaður félagsins lét lífið þegar hann varð fyrir eldingu á æfingasvæði félagsins.

Ronaldo byrjaður að æfa með Milan

Brasilíski framherjinn Ronaldo er nú farinn að æfa með AC Milan á fullu eftir erfiða baráttu við meiðsli síðan á undirbúningstímabilinu. Samkvæmt heimasíðu Milan er þó ekki reiknað með því að hann verði klár í að spila leik fyrr en um miðjan mánuðinn.

Vieri hefur enn augastað á landsliðssæti

Framherjinn Christian Vieri hjá Fiorentina segist ekki vera búinn að gefa upp alla von um að spila aftur með landsliðinu þó hann sé orðinn 34 ára gamall. Vieri hefur átt við langvarandi meiðsli að stríða síðustu ár.

Eto´o snýr aftur í þessum mánuði

Framherjinn Samuel Eto´o hjá Barcelona ætti að geta orðið tilbúinn í slaginn eftir 3-4 vikur að mati lækna liðsins. Hann meiddist á hné á undirbúningstímabilinu og fór í aðgerð í september.

Eiður í hóp Barcelona

Eiður Smári Guðjohnsen er í leikmannahópi Barcelona sem sækir Valladolid heim í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn. Eiður verður líklega á varamannabekk Barcelona annan leikinn í röð.

Stórleikur KR og Njarðvíkur í beinni á Sýn

Fimm leikir eru á dagskrá í Iceland Express deild karla í kvöld og hefjast þeir allir klukkan 19:15. Stórleikur kvöldsiner viðureign KR og Njarðvíkur í DHL höllinni og verður hann sýndur beint á Sýn.

Kókaín í blóði Matinu Hingis á Wimbledon-mótinu

Svissneska tennisstjarnan Martina Hingis hefur viðkennt að kókaín hafi fundist í sýni sem tekið var í lyfjaprófi á Wibledon-tennismótinu í sumar. Frá þessu greindi Hingis fyrir stundu á fréttamannafundi.

Tíu ára sigurganga Calzaghe á enda?

Búast má við rosalegum bardaga á laugardagskvöldið þegar hinn ósigraði Joe Calzaghe frá Wales leggur WBO beltið sitt í yfirmillivigt undir gegn Dananum Mikkel Kessler á Þúsaldarvellinum í Cardiff.

Neville spilar í kvöld

Varnarmaðurinn Gary Neville hjá Manchester United spilar í kvöld með varaliði félagsins gegn Stockport í bikarleik en ekki er talið að hann sé orðinn nógu heill til að mæta Arsenal um næstu helgi. Það hefur hinsvegar verið staðfest að Rio Ferdinand sé búinn að ná sér af sínum meiðslum og verði heill fyrir Arsenal-leikinn.

Efast um að Mourinho snúi aftur til Englands

Sir Alex Ferguson segist hafa verið í sambandi við Jose Mourinho eftir að hann hætti störfum hjá Chelsea. Hann segist efast um að Portúgalinn snúi aftur til Englands í bráð.

Fordæmir há laun og hátt miðaverð

Gerry Sutcliffe, nýráðinn íþróttamálaráðherra á Englandi, fordæmir laun fyrirliðans John Terry hjá Chelsea og segir miðaverð á leiki í ensku úrvalsdeildinni vera rokið upp fyrir allt velsæmi.

Meiðsli Richards ekki alvarleg

Varnarmaðurinn Micah Richards ætti að verða klár í slaginn með enska landsliðinu í leikinn gegn Króötum í þessum mánuði þrátt fyrir að hafa meiðst á hné í bikarleik gegn Bolton í gærkvöld.

Verður að slaka á kröfunum

Phil Neville óttast að fleiri gætu hætt að gefa kost á sér í enska landsliðið ef ekki verður slakað á þeim kröfum sem gerðar eru á leikmönnum sem spila reglulega með landsliðinu.

Alonso frá í tvær vikur

Xabi Alonso, leikmaður Liverpool, verður frá næstu tvær vikurnar en ekki í 6-10 vikur eins og óttast var eftir leik liðsins gegn Arsenal um helgina.

Þjálfari Emils rekinn

Stjórn ítalska úrvalsdeildarliðsins Reggina ákvað í dag að reka knattspyrnustjórann Massimo Ficcadenti úr starfi eftir tap liðsins fyrir Livorno á heimavelli í gær, 3-1.

Gunnar Þór til Norrköping

Gunnar Þór Gunnarsson samdi í dag við sænska úrvalsdeildarfélagið Norrköping til næstu þriggja ára.

Nemanja Sovic til Breiðabliks

Breiðablik fékk í gær góðan liðsstyrk er Nemanja Sovic samdi við Breiðablik en hann kemur frá Fjölni þar sem hann var á sínu fjórða tímabili.

Sjá næstu 50 fréttir