Guðjón Valur: Ekki búinn að afskrifa EM Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 2. nóvember 2007 11:01 Guðjón Valur fagnar marki gegn Dönum á HM í Þýskalandi. Nordic Photos / Getty Images
Haft er eftir Guðjóni Vali Sigurðssyni á handball-welt.de í dag að hann gæti verið frá í 5-6 mánuði í viðbót. Hann gefur lítið fyrir viðtalið sem hann kannast ekki einu sinni við. Guðjón Valur sagði í samtali við Vísi að það þyrfti gjörsamlega allt að ganga á afturfótunum ef hann ætlaði að vera frá svo lengi. Hann gekkst undir aðgerð á öxl í september síðastliðinn. „Ég er hins vegar bjartsýnn og stefni á að spila aftur í desember. Mér hefur liðið það vel síðustu daga og farinn að geta gert það mikið að ég geri mér vonir um það," sagði hann. EM í handbolta hefst í janúar næstkomandi í Noregi og segir Guðjón Valur að hann ætli sér að gera allt sem í hans valdi stendur til að spila á mótinu. „EM er það eina sem ég lifi fyrir þessa dagana, auk barnanna minna. Þetta er það sem rífur mig fram úr á morgnana og hvetur mig til að halda áfram í endurhæfingunni. Ég ætti vel að hafa þetta enda er ég búinn að lofa Alfreð því að ég verði í 150% líkamlegu formi þegar að mótinu kemur." Hann segir að Alfreð, sem er bæði landsliðsþjálfari Íslands sem og þjálfari Guðjóns Vals hjá Gummersbach, eigi enn sem komið er erfitt með að trúa honum. „Mér er svo sem sama um það," sagði hann í léttum dúr. „Þá hef ég bara eitthvað að afsanna." Guðjón Valur segir einnig að það sé honum í hag að landsliðsþjálfarinn sé einnig þjálfari sinn hjá sínu félagsliði. „Ef hann í fyrsta lagi ákveður að velja mig í liðið verður það mjög þægilegt fyrir mig. Leikmenn hafa lent í því að vera meiddir í desember en eru svo klárir í slaginn 2-3 vikum síðar. Þeir ætla sér svo að fara á stórmót með landsliðinu en þá setur klúbburinn sig upp á móti því." Hann ætlar sér að halda áfram næstu vikurnar með jákvæðnina að vopni. „Hér nýt ég góðs stuðnings og góðrar aðstöðu. Ég ætla svo sem ekkert að tala um ef og hefði en ég ætla mér að fara til Noregs. Ef það tekst ekki þá reyndi ég alla vega allt sem í valdi mínu stóð."
Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Félag Hákonar hótar lögsóknum eftir mikið áfall Fótbolti Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira