Formúla 1

Alonso sagður hættur hjá McLaren

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alonso í McLaren-bifreið sinni síðasta keppnistímabil.
Alonso í McLaren-bifreið sinni síðasta keppnistímabil. Nordic Photos / Getty Images

Heimasíða spænska dagblaðsins El Mundo sagði í dag að Fernando Alonso væri hættur hjá McLaren.

Í fréttinni kemur fram að bæði Alonso og liðið sjálft hafi staðfest viðskilnaðinn. Alonso átti tvö ár eftir af samningi sínum við McLaren og náði aðeins að keppa fyrir hönd liðsins í eitt tímabil.

McLaren hafði ekkert um málið að segja þegar fréttastofa Reuters hafði samband við talsmann liðsins.

Alonso mun hafa ásamt sínum fulltrúa unnið að starfslokasamningi í höfuðstöðvum liðsins á Englandi í gær og í morgun.

Útvarpsstöðin Marca greindi svo einnig frá því í morgun að umboðsmaður Alonso hafi staðfest viðskilnaðinn við sig í morgun.

El Mundo sagði einnig að Alonso þyrfti ekkert að greiða til að fá sig lausan undan samningi sínum við McLaren.

Alonso og liðsfélagi hans, Lewis Hamilton, voru í hatrammi baráttu um meistaratitil ökuþóra allt tímabilið og töluðust ekki við löngum stundum. Talið var að rígur var byrjaður að myndast innan liðsins en á endanum þurftu þeir báðir að játa sig sigraða fyrir Finnanum Kimi Raikkönen sem tryggði sér heimsmeistaratitilinn með sigur á lokamóti keppnistímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×