Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Markvörðurinn klúðraði vítaspyrnu Brasilíumeistaranir í Sao Paulo urðu loks að lúta í gras í fyrsta sinn frá í september. Sao Paulo tapaði fyrir mexikóska liðinu Necaxa í Suður Ameríkukeppninni í gærkvöldi. Sao Paulo skoraði fyrsta markið og markvörðurinn Rogerio Ceni gat komið liðinu í 2-0 en honum mistókst að skora úr vítaspyrnu, Alexandro Alvarez varði frá honum. Mexikóarnir skoruðu tvívegis í seinni hálfleik og unnu 2-1. Þetta var fyrsti ósigur Sao Paulo í 29 leikjum frá því í september. 22.3.2007 10:25
Roy Keane samur við sig Fyrrverandi fyrirliði írska landsliðsins, Roy Kenae, gagnrýnir harðlega marga af landsliðsmönnum Íra og segir þá eingöngu gefa kost á sér í liðið til þess að baða sig í sviðsljósinu. Roy Keane, sem núna er knattspyrnustjóri Sunderland, gagnrýndi landsliðsþjálfarann Steve Staunton harðlega í síðustu viku fyrir að velja ekki Sunderlandmennina, David Connolly og Liam Miller í landsliðið. Írar mæta Walesverjum í undankeppni Evrópumótsins á laugardag. Leikurinn verður sýndur beint á Sýn. 22.3.2007 10:21
Benítez fer hvergi Bandaríkjamennirnir Gillett og Hicks sem keyptu Liverpool á dögunum sáu ástæðu til þess að gefa út yfirlýsingu um knattspyrnustjórann Rafa Benitez. Benitez er eftirsóttur og forystumenn Real Madríd sagðir ólmir vilja fá hann til þess að stýra Madrídarskútunni. 22.3.2007 10:11
Birgir Leifur byrjaður á Madeira Birgir Leifur Hafþórsson er á einu höggi undir pari eftir 4 holur á opna Madeira mótinu í golfi sem hófst á Santo da Serra vellinum í morgun. Birgir Leifur paraði tvær fyrstu holurnar en fékk síðan fugl á fjórðu holu. Hann er á einu undir pari eftir 5 holur. 22.3.2007 10:10
Enn vinnur Dallas Dallas sigraði Cleveland 98-90 í Cleveland í gærkvöldi í NBA körfuboltanum. Dirk Nowitzki var stigahæstur hjá Dallas með 23 stig en hann hitti illa í leiknum. Jason Terry skoraði 21 stig í 56. sigurleik Dallas. LeBron James var langstigahæstur hjá Cleveland með 31 stig. 22.3.2007 08:31
Sir Alex vill Eið Smára Enska blaðið The Sun greinir frá því í morgun að Sir Alex Ferguson knattspyrnustjóri Manchester United vilji fá Eið Smára Guðjohnsen í raðir Manchester liðsins. Samkvæmt The Sun er Eiði ætlað að taka við hlutverki sænska framherjans Henriks Larson. 22.3.2007 08:01
Fimm mörk í 2 æfingaleikjum Hannes Þ. Sigurðsson byrjar vel hjá norska liðinu Viking en hann hefur skorað fimm mörk í síðustu tveimur æfingaleikjum liðsins. Hannes skoraði þrennu í 7-1 sigri á Start og bætti síðan við tveimur mörkum á fyrstu 22 mínútunum í 3-3 jafntefli á móti Bryne í gær. Hannes lagði einnig upp mark og var nálægt því að innsigla þrennuna annan leikinn í röð en mark sem hann skoraði var dæmt af. 22.3.2007 00:01
Myndband af tilþrifum vikunnar hjá Jóni Arnóri Jón Arnór Stefánsson þótti eiga tilþrif vikunnar í ítölsku úrvalsdeildinni í körfubolta þegar hann tryggði liði sínu Roma sigur á toppliði Siena í vikunni 84-83. Frá þessu var greint á heimasíðu KKÍ. Smelltu á hlekkinn hér fyrir neðan til að sjá tilþrifin. 21.3.2007 22:15
Bandaríkjamenn heppnir með mótherja Landslið Bandaríkjanna í körfubolta sleppur við að leika með liði Ólympíumeistara Argentínu í riðli í Ameríkukeppninni sem fram fer í sumar, en dregið var í riðla í dag. Tvö af liðunum tíu sem taka þátt tryggja sér sæti á Ólympíuleikunum í Peking á næsta ári. 21.3.2007 21:02
Keane á enn í deilum við Íra Roy Keane, stjóri Sunderland og fyrrum fyrirliði írska landsliðsins, er ekki hættur að deila á írska knattspyrnusambandið þó hann sé búinn að leggja skóna á hilluna. Keane átti í frægum deilum við landsliðsþjálfarann þegar hann spilaði með liðinu á sínum tíma og nú hefur hann gagnrýnt hreppapólitík hjá knattspyrnusambandinu í heimalandi sínu. 21.3.2007 21:00
Toronto - Orlando í beinni í kvöld Leikur Toronto Raptors og Orlando Magic í NBA deildinni verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á Fjölvarpinu klukkan 23:00 í kvöld. Hér er á ferðinni athyglisverður slagur í Austurdeildinni þar sem tveir af bestu stóru mönnunum í deildinni kljást - þeir Chris Bosh og Dwight Howard. 21.3.2007 20:20
Berbatov fer ekki frá Tottenham Umboðsmaður búlgarska framherjans Dimitar Berbatov hjá Tottenham segir engar líkur á því að markaskorarinn fari frá félaginu. Berbatov er búinn að skora 19 mörk á leiktíðinni og hefur slegið í gegn síðan hann kom frá Leverkusen í sumar. 21.3.2007 20:15
Valur biðst afsökunar á ummælum sínum Valur Ingimundarson, þjálfari Skallagríms, hefur beðist afsökunar á ummælum sínum í viðtali við Arnar Björnsson á Sýn í gærkvöld. Þar lýsti Valur yfir óánægju sinni með störf dómara og lét í það skína að hallaði á lið utan af landi í dómgæslu. Félag körfuknattleiksdómara hefur leitað sér aðstoðar lögfræðinga og íhugar að kæra Val. 21.3.2007 19:41
Drogba og Cole sleppa Didier Drogba og Ashley Cole hjá Chelsea verða ekki ákærðir fyrir afskipti sín af manninum sem réðist að félaga þeirra Frank Lampard eftir leik Tottenham og Chelsea í enska bikarnum á mánudaginn. Aganefnd fór yfir myndband af atvikinu og fann ekkert athugavert við framkomu leikmannanna, en Drogba var um tíma sakaður um að hafa stigið á manninn þegar öryggisverðir höfðu yfirbugað hann. 21.3.2007 18:17
Sevilla vill ekki spila á skírdag Forráðamenn spænska knattspyrnuliðsins Sevilla hafa farið þess á leit við Knattspyrnusamband Evrópu að fyrri leikur liðsins við Tottenham í 8-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða verði færður. Leikurinn er á dagskrá 5. apríl, en það er skírdagur. 21.3.2007 18:00
Blótsyrðaflaumur Ferguson skemmdi viðtal BBC Breska blaðið The Sun greinir frá því í dag að Sir Alex Ferguson hafi ráðist harkalega að starfsmanni Sky eftir leik Manchester United og Middlesbrough á mánudaginn. Skotinn öskraði og blótaði svo hátt að breska sjónvarpið þurfti að klippa til viðtal sitt við knattspyrnustjóra Boro eftir leikinn. 21.3.2007 17:04
Bann Navarro gildir í öllum keppnum Varnarmaðurinn David Navarro hjá Valencia getur nú farið að einbeita sér að golfinu næsta hálfa árið eða svo eftir að Alþjóða knattspyrnusambandið samþykkti beiðni þess evrópska um að láta sjö mánaða keppnisbann hans í Meistaradeildinni gilda í öllum keppnum. Navarro fékk bannið eftir alvarleg agabrot í uppþoti sem varð eftir leik Valencia og Inter Milan á dögunum. 21.3.2007 16:56
Andy Cole lánaður til Birmingham Framherjinn Andy Cole hefur gengið til liðs við 1.deildarlið Birmingham á lánssamning til loka leiktíðar. Cole hefur aðeins spilað fimm leiki fyrir lið sitt Portsmouth í úrvalsdeildinni í vetur. Hann gekk í raðir Portsmouth frá Manchester City fyrir hálfa milljón punda í fyrra. 21.3.2007 16:42
Bargnani fékk botnlangakast Ítalski framherjinn Andrea Bargnani hjá Toronto Raptors fékk botnlangakast í nótt og var fluttur á sjúkrahús. Botnlanginn var tekinn úr honum og er hann nú á batavegi. Bargnani er 21 árs gamall og var tekinn númer eitt í nýliðavalinu í NBA síðasta sumar. Hann er almennt talinn eiga góða möguleika á að verða valinn nýliði ársins og skorar 11 stig og hirðir 4 fráköst. Ekki er vitað hvenær leikmaðurinn getur byrjað að æfa á ný. 21.3.2007 16:35
Drogba undir smásjá knattspyrnusambandsins Aganefnd enska knattspyrnusambandsins er nú að rannsaka hvort Didier Drogba gerðist brotlegur þegar áhorfandi réðist inn á völlinn eftir leik Tottenham og Chelsea í enska bikarnum á dögunum. Dagblaðið Mirror segir myndir af leiknum sýna að Drogba hafi reynt að traðka á árásarmanninum þar sem hann lá bugaður á vellinum í haldi öryggisvarða. Maðurinn reyndi að kýla Frank Lampard og hefur verið settur í lífstíðarbann á White Hart Lane. 21.3.2007 16:15
Treyja Kobe Bryant nú vinsælust í Kína Kobe Bryant á nú vinsælustu keppnistreyju allra leikmanna í NBA deildinni í Kína á meðan treyja heimamannsins Yao Ming hefur hrapað niður lista þeirra söluhæstu. Treyja Bryant er sú vinsælasta í Bandaríkjunum, en Yao Ming er aðeins í sjötta sæti í heimalandi sínu. 21.3.2007 15:59
Drullusvað á Tóftum Leik Færeyinga og Úkraínumanna í undankeppni EM sem fara átti fram á Tóftum á Austurey verður að öllum líkindum frestað. Vallarskilyrði þar eru ekki góð um þessar mundir eftir snjókomu og rigningar og til greina kemur að leikurinn verði færður til 22. ágúst. Úkraínumenn hafa samþykkt að fresta leiknum ef völlurinn verður ekki í leikhæfu ástandi. 21.3.2007 15:45
Englendingar eru úr leik ef þeir tapa Miðjumaðurinn Idan Tal hjá Bolton segir að Englendingar muni ekki komast á EM 2008 ef þeir tapa fyrir Ísraelsmönnum í leik liðanna í Tel Aviv á laugardaginn. Tal er ísraelskur landsliðsmaður og segir það sama uppi á teningnum hjá sínum mönnum. Englendingar og Ísraelar hafa 7 stig líkt og Makedónar í 3.-5. sæti E-riðilsins. 21.3.2007 15:30
Grindavík - Njarðvík í beinni á Sýn Sjónvarpsstöðin Sýn mun halda áfram að gera úrslitakeppninni í Iceland Express deild karla góð skil og næsta beina útsending stöðvarinnar verður annar leikur Grindavíkur og Njarðvíkur í undanúrslitunum mánudaginn 26. mars. Allir leikir í keppninni þar eftir verða sýndir beint. 21.3.2007 14:49
Hermann og Jóhannes Karl ekki með gegn Spánverjum Tvö stór skörð voru í dag höggvin í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Spánverjum í undankeppni EM þann 28. mars næstkomandi. Þeir Hermann Hreiðarsson og Jóhannes Karl Guðjónsson geta ekki tekið þátt í leiknum. 21.3.2007 14:37
Bann Van Bommel stytt Marc van Bommel hjá Bayern Munchen hefur fengið leikbann sitt í Meistaradeildinni stytt og verður því löglegur í síðari leik Bayern og AC Milan í 8-liða úrslitum keppninnar. Hann var dæmdur í tveggja leikja bann fyrir nokkrum dögum, en Bayern áfrýjaði og hefur bannið nú verð stytt. "Ég trúði ekki öðru en að banninu yrði breytt í einn leik," sagði van Bommel. 21.3.2007 14:23
Ronaldo: Ég er enginn Galactico Portúgalinn Cristiano Ronaldo hjá Manchester United vill ekki láta tengja sig við Real Madrid á Spáni og segist ekki vera neinn Galactico - en það er orð sem spænskir nota yfir stórstjörnur liðsins. Ronaldo virðist ætla að einbeita sér algjörlega að því að spila með enska liðinu þrátt fyrir þrálátan orðróm um að hann sé á leið til Spánar. 21.3.2007 14:17
Dean Ashton spilar ekki meira á leiktíðinni Framherjinn Dean Ashton spilar ekki meira með liði West Ham á leiktíðinni vegna ökklabrots sem hann varð fyrir í herbúðum enska landsliðsins í ágúst síðastliðnum. Læknir West Ham hefur nú staðfest að endurhæfingin hafi ekki gengið nógu vel og því verði leikmaðurinn ekki leikfær það sem eftir er af deildarkeppninni. 21.3.2007 14:12
Luke Young kallaður inn í enska landsliðið Varnarmaðurinn Luke Young frá Charlton var í dag kallaður inn í enska landsliðið fyrir leikina gegn Ísraelum og Androrra í undankeppni EM. Young kemur inn í hópinn í stað Micah Richards sem er meiddur. 21.3.2007 14:10
Cuban ætlaði að selja Dallas Mavericks Mark Cuban, eigandi Dallas Mavericks í NBA deildinni, segist hafa verið nálægt því að selja félagið eftir að það tapaði fyrir Miami Heat í úrslitunum síðasta sumar. Hann segist hafa hætt við allt saman eftir að hafa átt langt spjall við Dirk Nowitzki. 21.3.2007 13:44
Þýski: Jafntefli hjá Magdeburg og Nordhorn Magdeburg og Nordhorn gerðu jafntefli, 30-30 í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í gær. Magdeburg, sem eiga í mjög jafnri toppbaráttu, leiddu með 6 mörkum í hálfleik, 16-10 en glopruðu leiknum niður á síðustu mínútunum. 21.3.2007 09:17
NBA: Charlotte stöðvaði sigurgöngu Cleveland Tíu leikir fóru fram í NBA-deildinni í nótt. Charlotte Bobcats stöðvuðu átta leikja sigurgöngu Cleveland Cavaliers með 108-100 sigri í framlengdum leik. Cleveland höfðu forystu nær allan leikinn en í síðasta leikhluta komu Charlotte-menn til baka og náðu að jafna. Þeir áttu svo meira eftir til að klára framlenginguna. LeBron James var að vanda langatkvæðamestur Cleveland-manna, skoraði 37 stig og gaf 6 stoðsendingar. Hjá Charlotte skiptist stigaskorið jafnar á milli manna; Gerald Wallace var stigahæstur með 27 stig, Matt Carroll skoraði 20, Raymond Felton 17 og Walter Herrmann kom af bekknum og skoraði 19 stig. 21.3.2007 09:08
Benítez á leið til Real Madrid? Real Madrid vilja fá Rafael Benítez sem næsta þjálfara frekar en José Mourinho. Þeir munu nú reyna að lokka Benítez frá Liverpool með boði sem hann getur ekki hafnað. Frá þessu segir í The Times í dag. Benítez hafnaði boði frá Real fyrir um ári síðan en síðan þá hafa aðstæður breyst, bæði á Bernabau og Anfield. 21.3.2007 08:52
Sjálfstæðis- og Framsóknarflokkurinn gegn uppgangi akstursíþrótta. Framsýn tillaga Guðjóns Arnars Kristjánssonar um að breyta umferðarlögum með þeim hætti að skilgreina hvað akstursíþróttabraut væri fékk ekki náð fyrir augum stjórnarmeirihlutans. Atkvæðagreiðslan á Alþingi var nokkuð eftirminnileg þar sem að formaður samgöngunefndar Guðmundur Hallvarðsson studdi tillgöuna þegar hún var í fyrstu borin upp til atkvæða og sömuleiðis nokkrir stjórnarliðar til viðbótar. Þetta varð til þess að tillagan var samþykkt. 21.3.2007 19:18
Valur Ingimundarson íhugar að hætta Valur Ingimundarson þjálfari Skallagríms reiknar ekki með að þjálfa lið Skallagríms á næsta keppnistímabili í Iceland Express deildinni. Valur var súr í bragði í samtali við Arnar Björnsson á Sýn eftir tap hans manna fyrir Grindavík í kvöld og sagði dómara hafa leikið lið sitt illa. 20.3.2007 22:00
Friðrik Ragnars: Ég var orðinn skíthræddur Friðrik Ragnarsson sagði sína menn í Grindavík hafa spilað sinn besta bolta í vetur í fyrri hálfleiknum gegn Skallagrími í Borgarnesi í kvöld. Hann sagðist gríðarlega stoltur af strákunum og hlakkar til að mæta sínum gömlu félögum í Njarðvík í undanúrslitunum. 20.3.2007 22:38
Benedikt Guðmunds: Eigum enn eftir að springa út Benedikt Guðmundsson þjálfari var mjög sáttur við leik sinna manna í KR í kvöld eftir frækinn sigur liðsins á ÍR. Varnarleikur liðsins í síðari hálfleik gerði þar útslagið og Benedikt á von á öðru jöfnu einvígi gegn Snæfelli í undanúrslitunum. 20.3.2007 22:25
Frábær sigur hjá Grindavík Grindvíkingar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum með frábærum sigri á Skallagrími í Borgarnesi 97-81 í oddaleik. Grindvíkingar komu gríðarlega einbeittir til leiks og þó heimamenn hafi komist inn í leikinn í síðari hálfleik og náð að komast yfir, sýndu gestirnir mikla seiglu og tryggðu sér sigur. 20.3.2007 21:47
KR í undanúrslit - Patterson með þrennu KR-ingar tryggðu sér í kvöld sæti í undanúrslitum Iceland Express deildarinnar í körfubolta með sigri á ÍR í oddaleik 91-78. Gestirnir úr Breiðholtinu höfðu yfir í hálfleik, en heimamenn skelltu í lás í vörninni í þeim síðari og völtuðu yfir gestina, eftir að hafa unnið þriðja leikhlutann 25-5. 20.3.2007 21:22
Deildarleik Chelsea og Man Utd frestað Síðari deildarleik Chelsea og Manchester United á leiktíðinni í ensku úrvalsdeildinni hefur nú verið frestað til miðvikudagsins 9. maí eftir að bæði lið komust áfram í enska bikarnum. Leikurinn átti að fara fram 14 apríl en nú er ljóst að liðin mætast í næstsíðustu umferð deildarkeppninnar. 20.3.2007 23:07
Þeir voru lélegri en ég hélt Sevilla komst í kvöld loksins í undanúrslitin í spænska konungsbikarnum í knattspyrnu eftir að hafa slegið út granna sína í Real Betis. Liðin léku það sem eftir var leiks þeirra frá því í lok síðasta mánaðar, en honum var frestað eftir að þjálfari Sevilla fékk flösku í höfuðið og rotaðist. Hann gat ekki stillt sig um að senda andstæðingum sínum smá skot eftir leikinn. 20.3.2007 22:54
Stjarnan jók forskotið á toppnum Stjarnan og Grótta skildu jöfn 21-21 í toppslag DHL deildar kvenna í kvöld eftir að Grótta hafði verið þremur mörkum yfir í hálfleik 12-9. Alina Petrache skoraði 6 mörk fyrir Stjörnuna og Rakel Bragadóttir 5. Florentina Grecu varði 23 skot í markinu. Natasha Damljanovic skoraði 6 mörk fyrir Gróttu og Íris Björk Símonardóttir varði 18 skot í markinu. 20.3.2007 21:42
Sjöundi oddaleikurinn hjá Axeli Kárasyni Körfuboltamaðurinn Axel Kárason ætti að þekkja það vel að spila upp oddaleiki í úrslitakeppninni. Hann hefur tekið þátt í sex oddaleikjum frá árinu 2001, fimm með Tindastóli og einum með Skallagrími. Axel hefur unnið fjóra af þessum sex leikjum, en hann verður í sviðsljósinu með Skallagrími gegn Grindavík í Fjósinu í Borgarnesi í kvöld klukkan 20 í beinni á Sýn. 20.3.2007 18:50
Byrjar Skarphéðinn í kvöld? KR-ingar hafa unnið alla sjö leiki sína í Iceland Express deildinni í ár þar sem Skarphéðinn Ingason hefur verið í byrjunarliðinu. Skarphéðinn byrjaði sex leiki í deildarkeppninni og var í byrjunarliðinu í Seljaskóla á laugardaginn þegar KR-ingar tryggðu sér oddaleik í kvöld. 20.3.2007 18:03
Framtíð Reyes óljós Jose Antonio Reyes segist ekkert hafa rætt við forráðamenn Arsenal og Real Madrid um framtíð sína en hann er nú á eins árs lánssamningi hjá spænska liðinu frá Arsenal. Reyes hefur oft undirstrikað að hann sé ánægður hjá Real og vilji aldrei aftur spila á Englandi. 20.3.2007 17:30