Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Maria Sharapova: Ég er sú besta Vont tap gegn Serenu Williams í úrslitum opna ástralska meistaramótsins í tennis um helgina hefur ekki slegið rússnesku drottninguna Mariu Sharapovu út af laginu. Sharapova er í efsta sæti á nýjum heimslista sem birtur var í morgun og segir hún það ekki vera neina tilviljun. 29.1.2007 15:00
Eggert Magnússon: Áform Platini eru óraunhæf Eggert Magnússon, fyrrum meðlimur í framkvæmdastjórn UEFA, segir að áform Michael Platini um að fækka liðum frá stærstu deildum Evrópu sem eiga gjaldgengt í Meistaradeild Evrópu vera óraunhæf. Platini var í síðustu viku kosinn nýr forseti UEFA og hafði hann boðað róttækar breytingar á fyrirkomulagi Meistaradeildarinnar. 29.1.2007 14:36
Montgomerie vill verða fyrirliði Evrópuliðsins Skoski kylfingurinn Colin Montgomerie hefur sett sér það markmið að verða fyrirliði Evrópuliðsins í keppninni um Ryder-bikarinn árið 2010. Fari svo að honum takist ekki ætlunarverk sitt mun Montgomerie freista þess að hljóta nafnbótina árið 2014, en þá fer keppnin fram í heimalandi hans. 29.1.2007 14:30
Chelsea heppið með dráttinn í bikarnum Englandsmeistarar Chelsea voru einstaklega heppnir þegar dregið var í 16-liða úrslit ensku bikarkeppninnar nú í hádeginu því þar mætir liðið annaðhvort 1. deildarliðinu Norwich eða 2. deildarliðinu Blackpool. Manchester United var ekki eins heppið því það verður Reading sem kemur í heimsókn á Old Trafford. 29.1.2007 14:05
Þrír með ólöglegt bensín í Anaheim. Nick Way ásamnt þeim Joshua Hill og Jason Thomas voru teknir með ólöglegt bensín í þriðju umferð AMA supercross í Anaheim nú á dögunum. Eldsneyti var tekið til athugunar úr níu hjólum og reyndust þessi þrjú hjól vera með eldsneyti sem ekki leyfist AMA supercrossinu. Þeim hefur því verið refsað með því að taka af þeim stigin sem þeir fengu ásamnt því að fá sekt fyrir athæfið. 29.1.2007 14:04
Íslendingar verða lítil hindrun Lars Rasmussen, leikmaður danska landsliðsins í handbolta, hefur trú á að liðið geti komist alla leið í úrslit Heimsmeistarakeppninnar í Þýskalandi. Rasmussen er sannfærður um að Íslendingar verði lítil hindrun fyrir Dani. 29.1.2007 14:00
Beckham verður hverrar krónu virði David Beckham mun standa undir hverri krónu sem hann fær fyrir að hafa skrifað undir fimm ára samning við bandaríska liðið LA Galaxy fyrir skemmstu. Þessu heldur Alexei Lalas, forseti Galaxy, fram og bætir við að Beckham hafi þegar fært félaginu töluverðar tekjur. 29.1.2007 13:32
Carlo Ancelotti: Ronaldo er ekki feitur Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan á Ítalíu, segir að nýjasti liðsmaður félagsins, brasilíski framherjinn Ronaldo, sé alls ekki feitur heldur aðeins vel í holdum. Ancelotti segir Ronaldo einungis skorta leikæfingu og að hann þurfi ekki að grennast. 29.1.2007 12:46
Framtíð Saviola ennþá óljós Yfirmaður íþróttamála hjá Barcelona er ekki að flýta sér að bjóða Argentínumanninum Javier Saviola nýjan samning hjá félaginu þrátt fyrir að framherjinn hafi staðið sig einstaklega vel í síðustu leikjum liðsins. 29.1.2007 12:37
Hvað er málið með Materazzi? Marco Materazzi, ítalski varnarmaðurinn hjá Inter Milan, hefur enn einu komið sér í sviðsljósið en í gærkvöldi varð hann þess valdur að Gennaro Delvecchio, leikmaður Sampdoria, fékk að líta rauða spjaldið í viðureign liðanna. Atvikið þykir minna óþarflega mikið á uppákomu hans og Zinedine Zidane á HM síðastliðið sumar. 29.1.2007 12:23
Inter vann 14. leikinn í röð Inter Milan er áfram með 11 stiga forystu í ítölsku A-deildinni í knattspyrnu eftir að hafa unnið sinn 14. sigur í röð í gærkvöldi. Liðið vann þá Sampdoria, 2-0, en helstu keppinautarnir í Roma gera það sem þeir geta til að halda í við Inter og unnu 1-0 sigur á Siena um helgina. 29.1.2007 12:08
McLeish tekur við Skotum Skoska knattspyrnusambandið hefur staðfest að það hefur ráðið Alex McLeish sem þjálfara skoska landsliðsins í knattspyrnu. McLeish tekur við starfinu af Walter Smith, eftir að sá síðarnefndi tók við liði Rangers fyrir skemmstu. 29.1.2007 12:01
Íslenska liðið sagt óskamótherjinn Ulrik Wibek, þjálfari danska landsliðsins, segir Íslendinga mjög spennandi andstæðinga en ljóst varð í gær að liðin mætast í átta liða úrslitum heimsmeistarakeppninnar í handknattleik. Þá er haft eftir Lasse Boesen, einum leikmanna danska liðsins, í Jótlandspóstinum að Íslendingar hafi verið óskamótherjinn í átta liða úrslitum og hann viðurkennir að Danir eigi nú góða möguleika á að ná í undanúrslitin og jafnvel lengra. 29.1.2007 11:51
Alfreð hættir með landsliðið í sumar Alfreð Gíslason segir í viðtali við vefmiðilinn Sport1.de að hann muni hætta með landsliðið í sumar vegna fjölskyldu-ástæðna. Alfreð er þjálfari þýska liðsins VfL Gummersbach og það er ekki mikið um frítíma hjá kappanum enda fara öll fríin með þýska liðinu í verkefni landsliðsins. 29.1.2007 11:46
Finley skoraði flautukörfu gegn LA Lakers Michael Finley skoraði þriggja-stiga körfu og tryggði San Antonio 96-94 sigur á LA Lakers þegar 1,3 sekúndur voru eftir í leik liðanna í NBA-deildinni í nótt. Phoenix gefur ekkert eftir og vann sinn 17. sigur í röð. 29.1.2007 11:43
Guðjón Valur fjórði markahæstur á HM Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaður íslenska landsliðsins í handknattleik, er í fjórða sæti yfir markahæstu menn á heimsmeistaramótinu nú þegar keppni í milliriðlum er lokið. Þá hefur Ólafur Stefánsson átt flestar stoðsendingar alla á mótinu. 29.1.2007 10:38
Sjöundi sigurinn í röð hjá Tiger Woods á PGA Tiger Woods vann í gær sitt sjöunda mót í röð á bandarísku PGA-mótaröðinni þegar hann sigraði á Buick Invitational mótinu í San Diego í gær. Þetta er næstlengsta sigurganga kylfings í sögu PGA en Byron Nelson á metið, 11 sigra í röð. 29.1.2007 10:16
Búist við að McLeish taki við skoska landsliðinu Reiknað er með að tilkynnt verði um það nú klukkan ellefu að Alex McLeish taki við sem landsliðsþjálfari Skota í knattspyrnu en skoska knattspyrnusambandið hefur þá boðað til blaðamannafundar. 29.1.2007 10:04
Íslendingar mæta Dönum Nú er orðið ljóst að það verða Danir sem mæta Íslendingum í 8-liða úrslitum HM í handbolta á þriðjudag. Danir lögðu Tékka af velli í Mannheim í kvöld þar sem lokatölur urðu 33-29. Þar sem Spánverjar töpuðu fyrir Króötum í dag fara Danir upp í annað sæti millriðils 2 og mæta þar með Íslendingum, sem höfnuðu í þriðja sæti milliriðils 1. 28.1.2007 21:30
ÍR og Hamar/Selfoss mætast í bikarúrslitum Það verða lið Hamars/Selfoss og ÍR sem leiða saman hesta sína í úrslitaleik bikarkeppni Lýsingar og KKÍ í körfubolta karla. Hamar/Selfoss lagði Keflavík í kvöld og ÍR vann Grindavík í undanúrslitunum sem fram fóru í kvöld. Í kvennaflokki eru Haukar komnir í úrslit þar sem þeir mæta annaðhvort Keflavík eða Hamar, sem mætast annað kvöld. 28.1.2007 21:16
Arsene Wenger: Vorum ekki góðir í dag Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, var óánægður með frammistöðu sinna manna í leiknum gegn Bolton í dag en þá náði liðið aðeins 1-1 jafntefli á heimavelli. Liðin þurfa því að mætast öðru sinni á heimavelli Bolton í leik sem Wenger kvíður þó ekki fyrir. 28.1.2007 20:26
Werder Bremen aftur á toppinn í Þýskalandi Schalke sat sat um sólarhring í toppsæti þýsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta en Werder Bremen endurheimti sætið með öruggum 3-0 sigri á Hanover í sínum fyrsta leik eftir vetrarfrí í dag. Gunnar Heiðar Þorvaldsson var ekki í leikmannahóp Hanover. 28.1.2007 20:18
Danir með tveggja marka forystu í hálfleik Þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign Dana og Tékka á HM í handbolta er staðan 17-15, Dönum í vil. Tékkar komu Dönum í opna skjöldu með mikilli baráttu í upphafi leiks og náðu meðal annars 7-2 forystu. Danir hafa hins vegar náð að vinna sig aftur inn í leikinn og gott betur. Ef Danir sigra mæta þeir Íslendingum í 8-liða úrslitum. 28.1.2007 19:55
Barcelona aftur á toppinn eftir sigur gegn Celta Barcelona er á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir 3-1 sigur á Celta Vigo í kvöld þar sem úrslitin réðust ekki fyrr en skammt var eftir af leiknum. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn á í lið Barcelona þegar tæpar 10 mínútur voru eftir. 28.1.2007 19:50
Pearce tekur líklega við U-21 árs liði Englands Stuart Pearce, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur samþykkt að taka við stjórn enska U-21 árs landsliðsins í fótbolta. Hins vegar er ekki orðið endanlega ljóst hvort hann taki við liðinu þar sem forráðamenn Man. City og enska knattspyrnusambandsins þurfa að ná samkomulagi. 28.1.2007 19:45
Logi Geirsson: Þjóðverjar eru væluskjóður “Þetta var bara hrein snilld. Það er ekki hverjum sem er sem tekst að fá 12 þúsund manns upp á móti sér. Þessir Þjóðverjar eru svo miklar væluskjóður. Þetta var skemmtilegast tapleikur sem ég hef spilað á ævinni,” sagði Logi Geirsson eftir leikinn gegn Þýskalandi í dag. Ítarlega verður rætt við Loga í Fréttablaðinu á morgun um atvikið sem varð til þess að hann fékk alla áhorfendur í Halle-höllinni á móti sér. 28.1.2007 19:15
Noregur burstaði Úkraínu og vann Forsetabikarinn Norðmenn unnu Forsetabikarinn svokallaða með því að gjörsigra Úkraínumenn í úrslitaleik í dag, 32-22. Um er að ræða keppni þeirra liða sem komust ekki áfram í milliriðla á HM í Þýskalandi. Norðmenn höfnuðu þar með í 13. sæti Heimsmeistarakeppninnar. 28.1.2007 19:00
Rússar í 8-liða úrslit eftir ótrúlegan sigur á Ungverjum Ungvjerar voru fjórum sekúndum frá því að komast í 8-liða úrslit HM í handbolta en það var þegar svo mikið var eftir þegar Rússar náðu að skora sigurmarkið í leik liðanna nú í kvöld. Rússar sigruðu með einu marki, 26-25, og "stálu" sæti í 8-liða úrslitum af Ungverjunum. 28.1.2007 18:49
Guðjón Valur: Við vorum að spara kraftana Guðjón Valur Sigurðsson, leikmaður íslenska liðsins, viðurkenndi í samtali við fjölmiðla eftir leikinn gegn Þýskalandi á HM í dag að leikmenn liðsins hefðu sparað krafta sína fyrir væntanlega viðureign í 8-liða úrslitum. Leikmenn þýska liðsins segja úrslitin hafa ráðist í fyrri hálfleik. 28.1.2007 18:34
Sverre Jakobsson: Hugurinn við þriðjudaginn “Hugurinn var svolítið við þriðjudaginn. Það er ekki hægt að neita því. Aðalatriðið var að hafa gaman af þessu og sleppa við meiðsli,” sagði Sverre Andreas Jakobsson eftir tapið gegn Þýskalandi í dag, þó brosmildur sem fyrr. 28.1.2007 18:32
Vignir Svavarsson: Ekki merkilegur leikur “Það náðist að bjarga þessu fyrir horn og þetta ekki merkilegur leikur hjá okkur hér í dag.. Hvorki í vörn né sókn,” sagði línumaðurinn Vignir Svavarsson sem náði sér ekki alveg á strik gegn Þjóðverjum í dag. 28.1.2007 18:30
Pólverjar sigruðu Slóvena og tryggðu efsta sætið Slóvenar voru engin fyrirstaða fyrir sterkt lið Pólverja á HM í Þýskalandi í dag og svo fór að Pólverjar unnu 11 marka sigur, 38-27, og tryggðu sér þannig sigur í milliriðli 1. Þar með er endanlega ljóst að Ísland hafnar í þriðja sæti riðilsins og Frakkar í því fjórða, sama hvernig leikur þeirra gegn Túnisum fer í kvöld. 28.1.2007 18:17
Eiður Smári byrjar á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er á varamannabekk Barcelona sem tekur á móti Celta Vigo í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Argentínumaðurinn Javier Saviola byrjar inn á hjá meisturunum í þriðja leiknum í röð. Leikurinn hófst nú kl. 18 og er í beinni útsendingu á Sýn. 28.1.2007 18:09
Arsenal og Bolton skildu jöfn í hörkuleik Arsenal og Bolton þurfa að eigast við öðru sinni til að skera úr um hvort liðið fer áfram í 16-liða úrslit ensku bikarkeppninnar. Liðin skildu jöfn, 1-1, á Emirates-vellinumí dag en mætast að nýju á Reebook-vellinum þann 14. febrúar næstkomandi. 28.1.2007 17:53
Kolo Toure búinn að jafna fyrir Arsenal Eftir þunga pressu Arsenal í langan tíma hefur varnarmaðurinn Kole Toure loksins náð að jafna metin fyrir lið sitt gegn Bolton í ensku bikarkeppninni. Toure skoraði markið með góðum skalla af stuttu færi. Áður hafði Kevin Nolan komið gestunum í Bolton yfir en ennþá eru rúmar 10 mínútur til leiksloka. 28.1.2007 17:41
Moyes opinn fyrir því að lána Bjarna Þór David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, íhugar nú að lána unglingalandsliðsmanninn Bjarna Þór Viðarsson til að láta hann öðlast meiri reynslu. Moyes fór fögrum orðum um Bjarna eftir frammistöðu hans fyrir Everton í æfingaleik gegn Bournemouth í gær. Bjarni skoraði mark Everton í 1-1 jafntefli. 28.1.2007 17:28
Bolton komið yfir gegn Arsenal Kevin Nolan er búinn að koma Bolton yfir gegn Arsenal í ensku bikarkeppninni sem nú fer fram á Emirates-leikvanginum í London. Markið skoraði hann þegar fimm mínútur voru liðnar af síðari hálfleik. Mikið fjör er í leiknum sem verið er að sýna í beinni útsendingu á Sýn. 28.1.2007 17:15
Úkraína og Noregur keppa um forsetabikarinn Það verða Úkraína og Noregur sem mætast í úrslitum Forsetabikarsins svokallaða, en það er keppnin sem liðin sem lentu í þriðja sæti undanriðlanna átta á HM fóru í. Norðmenn tryggðu sér sæti í úrslitaleiknum með því að leggja Suður-Kóreu af velli í gær, 34-32, en Úkraína, sem einmitt lagði Íslendinga af velli í riðlakeppninni, vann Argentínu naumlega, 23-22. 28.1.2007 17:15
Sagan er með Phoenix Phoenix Suns er óumdeilanlega heitasta liðið í NBA-deildinni um þessar mundir og hefur nú unnið 16 leiki í röð. Sú sigurhrina fer í sögubækur NBA sem sú sjötta besta frá upphafi. Miðað við tölfræðina bendir margt til þess að Phoenix verði meistarar þegar uppi er staðið í haust. 28.1.2007 17:00
Allar líkur á að Ísland mæti Dönum í 8-liða úrslitum Króatar lögðu Spánverja af velli í hreinum úrslitaleik liðanna um toppsætið í milliriðli 2 á HM í Þýskalandi í dag, 29-28. Úrslitin þýða að ef Danir vinna Tékka í kvöld munu þeir fara upp fyrir Spánverja og ná 2. sæti í riðlinum. Ef sú yrði raunin mætast Íslendingar og Danir í 8-liða úrslitum. 28.1.2007 16:52
Christiansen vill ekki mæta Þjóðverjum Lars Christiansen, hornarmaður danska landsliðsins í handbolta, vill með engu móti mæta gestgjöfum Þjóðverja í 8-liða úrslitum HM. Eftir sigur Þjóðverja á Íslendingum í milliriðli 1 dag er líklegast að þeir muni mæta liðinu sem hafnar í þriðja sæti í milliriðli 2. Ef Danir vinna Tékka í dag og Spánn tapar fyrir Króatíu verður Christiansen að ósk sinni. 28.1.2007 16:33
Nýtt Íslandsmet í 200 metra hlaupi karla Sveinn Elías Elíasson, spretthlaupari úr Fjölni, bætti í dag eigið Íslandsmet í 200 metra hlaupi karla á Meistaramóti Íslands 15-22 ára sem nú stendur yfir í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal. Sveinn Elías kom í mark á 21,96 sekúndum. 28.1.2007 16:20
Davids fer frítt til Ajax Fjölmiðlar í Hollandi greindu frá því fyrir stundu að Ajax hefði náð samkomulagi við miðjumanninn Edgar Davids um 18-mánaða samning sem skrifað verður undir um leið og leikmaðurinn hefur staðist læknisskoðun. Davids fer á frjálsri sölu frá Tottenham. 28.1.2007 16:12
Chelsea komið áfram í bikarnum Chelsea er komið í 16-liða úrslit ensku bikarkeppninnar eftir öruggan 3-0 sigur á 1. deildar liði Nottingham Forest á Stamford Bridge í dag. Segja má að Chelsea hafi gengið frá leiknum í fyrri hálfleik en þá skoraði liðið öll mörkin. 28.1.2007 16:01
Ísland tapaði fyrir Þýskalandi Íslendingar töpuðu síðasta leik sínum í milliriðli HM í handbolta gegn gestgjöfum Þjóðverja, 33-28. Þjóðverjar höfðu talsverða yfirburði í leiknum og leikur íslenska liðsins bar þess keim að liðið væri þegar búið að tryggja sig áfram í 8-liða úrslit. Nokkuð ljóst er að Ísland hafnar í 3. sæti milliriðilsins. 28.1.2007 15:51