Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrettán í röð hjá Phoenix Suns Phoenix Suns burstaði Minnesota Timberwolves 131-102 í NBA í nótt og vann þar með sinn 13. leik í röð. Amare Stoudemire skoraði 25 stig fyrir Phoenix, Leandro Barbosa 20 og Shawn Marion skoraði 17 stig og hirti 20 fráköst. Randy Foye skoraði 25 stig fyrir Minnesota. 22.1.2007 11:36
Þorvaldur vann Keppt var á afmælismóti Júdósambands Íslands á laugardaginn. Þar fagnaði Þorvaldur Blöndal sigri í opnum flokki karla en hann vann einnig í +90 kg flokki. Gígja Guðbrandsdóttir vann keppni í opnum flokki kvenna. 22.1.2007 00:01
Verða að vinna Frakka Eftir tapið gegn Úkraínu í gær er ljóst að Ísland verður að vinna Frakka í kvöld til þess að komast áfram í milliriðil. Ef það tekst ekki fer liðið í Forsetabikarinn og mun mæta þar þjóðum á borð við Kúveit, Grænlandi, Brasilíu og Argentínu. 22.1.2007 00:01
Fer með til Suður-Afríku Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Ólafs Inga Skúlasonar, leikmanns Brentford á Englandi, staðfesti við Fréttablaðið í gær að Ólafur Ingi færi með Helsingborg í æfingaferð til Suður-Afríku á föstudaginn. 22.1.2007 00:01
Ligg bara í leti og horfi á HM Davíð Georgsson, handboltamaðurinn efnilegi úr ÍR, hefur gengist undir aðgerð vegna meiðsla á hné. Davíð er aðeins nítján ára en hefur leikið lykilhlutverk með ÍR í DHL-deildinni og skorað mikið. 22.1.2007 00:01
Ævintýralegur fyrri hálfleikur Ísland hefur yfir 18-8 þegar flautað hefur verið til leikhlés í lokaleik liðsins gegn Frökkum í B-riðli heimsmeistaramótsins í handbolta. Segja má að allt hafi gengið upp hjá íslenska liðinu fyrstu 30 mínúturnar, en liðið komst í 5-0 og náði svo tíu marka forskoti undir lok hálfleiksins. 22.1.2007 19:40
Ótrúleg byrjun íslenska liðsins Íslenska landsliðið hefur náð 5-0 forystu gegn Frökkum í leik þjóðanna á HM. Íslensku strákarnir voru um tíma tveimur færri en náðu samt að halda hreinu. Rétt í þessu voru Frakkar að skora sitt fyrsta mark eftir heilar 7 mínútur. 22.1.2007 19:09
Alfreð gerir breytingar Tvær breytingar hafa verið gerðar á íslenska hópnum fyrir leikinn gegn Frökkum í dag. Markús Máni Michaelsson kemur inn fyrir Arnór Atlason og þá hefur Hreiðar Guðmundsson tekið stöðu Rolands Eradze í markinu. 22.1.2007 18:58
Lélegasti leikur Íslands í mörg ár Fyrrum landsliðsmaðurinn Sigurður Sveinsson segist vera í hálfgerðu losti eftir leik Íslendinga og Úkraínumanna í dag. Hann segir leik íslenska liðsins þann slakasta sem hann hafi séð í mörg ár og setur spurningamerki við hugarfar leikmanna í dag. 21.1.2007 20:30
Tap hjá Jóni Arnóri og félögum Jón Arnór Stefánsson og félagar hans í spænska liðinu Valencia töpuðu naumlega fyrir liði Etosa Alicante 75-74 í ABC deildinni í dag. Jón Arnór skoraði 11 stig á 30 mínútum fyrir Valencia. Liðið er nú í 10. sæti deildarinnar með 9 sigra og 9 töp. 21.1.2007 23:32
Chicago Bears í úrslitaleikinn Chicago Bears batt í kvöld enda á öskubuskuævintýrið hjá New Orleans Saints í NFL deildinni í ruðningi þegar liðið vann öruggan 39-14 sigur og tryggði sér sæti í leiknum um ofurskálina í fyrsta skipti síðan 1985. Nánar verður fjallað um leiki kvöldsins í NFL á morgun. 21.1.2007 23:27
Jefferson úr leik Framherjinn Richard Jefferson verður úr leik um óákveðinn tíma í liði New Jersey Nets í NBA eftir að ljóst varð að hann þyrfti að fara í uppskurð vegna ökklameiðsla sem hafa hrjáð hann allar götur síðan í haust. Ljóst er að hann verður frá í að minnsta kosti nokkrar vikur og ekki er ástandið gott fyrir hjá liði Nets, sem hefur valdið stuðningsmönnum sínum gríðarlegum vonbrigðum í vetur. 21.1.2007 23:15
Spútniklið Ungverja lagði Norðmenn Ungverjar tryggðu sér sæti í milliriðlum á HM í síðasta leik mótsins í kvöld þegar liðið skellti Norðmönnum 25-22 eftir að hafa verið yfir 15-13 í hálfleik. Ungverjar lögðu Dani í gær og því verður leikur Dana og Norðmanna upp á líf og dauða á morgun. Gabor Császár skoraði 8 mörk fyrir Ungverja í kvöld og Frank Loke 7 fyrir Norðmenn, en þrír leikmenn fengu rautt spjald í þessum átakaleik í kvöld. 21.1.2007 22:30
Johnson slapp við brot Framherjinn skæði Andy Johnson hjá Everton er ekki ökklabrotinn eins og óttast var í fyrstu þegar hann meiddist illa í leik Wigan og Everton í dag. Johnson var borinn af velli og færður á sjúkrahús, en þar leiddi rannsókn í ljós að hann er óbrotinn. Enn er þó ekki víst hvenær hann getur spilað á ný. 21.1.2007 22:15
O´Sullivan fór hamförum og vann Masters-mótið Snókerspilarinn Ronnie O´Sullivan var sannarlega í essinu sínu í kvöld þegar hann tryggði sér sigur á Masters-mótinu á Wembley með því að rúlla Kínverjanum Ding upp í úrslitum 10-3. Sexfaldur heimsmeistari Steve Davis afhenti O´Sullivan sigurlaunin eftir leikinn og kallaði þetta einhverja bestu frammistöðu sem hann sjálfur hefði orðið vitni að. 21.1.2007 22:04
Real Madrid í þriðja sæti Real Madrid komst í kvöld í þriðja sætið í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu með mikilvægum 1-0 sigri á Mallorca. Það var Jose Antonio Reyes sem skoraði sigurmark Real beint úr aukaspyrnu undir lok leiksins. Barcelona, Sevilla og Real Madrid hafa nú öll 38 stig í efstu þremur sætum deildarinnar en meistararnir í Barcelona eiga leik til góða. 21.1.2007 21:54
Flugeldasýning í boði Phoenix í kvöld? Fastlega má búast við því að hið frábæra lið Phoenix Suns bjóði áskrifendum NBA TV á Fjölvarpinu upp á skrautsýningu klukkan eitt í nótt þegar liðið tekur á móti Minnesota Timberwolves. Tveir bestu menn gestanna, þeir Kevin Garnett og Ricky Davis, verða í leikbanni og því verður forvitnilegt að sjá hvort liðinu tekst að hanga í Phoenix sem hefur unnið 12 leiki í röð. 21.1.2007 21:46
Haukar völtuðu yfir Hamar Yfirburðir Íslandsmeistara Hauka voru sem fyrr ótrúlegir þegar liðið kjöldró Hamar á heimavelli sínum á Ásvöllum í dag í efstu deild kvenna í körfubolta. Haukar höfðu sigur 107-54 þrátt fyrir að lykilmenn liðsins spiluðu ekki nema rúmlega hálfan leikinn. 21.1.2007 21:33
Njarðvíkingar á toppinn Njarðvíkingar sitja nú einir á toppi úrvalsdeildar karla í körfubolta eftir sigur á liði Hamar/Selfoss í Hveragerði í kvöld 75-69. Á sama tíma töpuðu KR-ingar fyrir Skallagrími í Borgarnesi 93-84 og Keflvíkingar unnu loks sigur þegar liðið skellti Fjölni 102-90 í Keflavík. Þá vann Grindavík nauma sigur á Þór Þorlákshöfn 98-97 í hörkuleik. 21.1.2007 21:23
Góð sárabót fyrir Dallas Einum leik er lokið í NBA í dag en hér var á ferðinni einvígi liðanna sem börðust um meistaratitilinn í fyrra. Þetta var fyrsti leikur liðanna síðan Miami tryggði sér titilinn í sumar, en Dallas kom fram hefndum með góðum sigri á útivelli 99-93 þar sem Jerry Stackhouse var hetja gestanna og skoraði 16 stig í fjórða leikhlutanum. 21.1.2007 21:10
Van Persie úr leik í sex vikur Jöfnunarmark hollenska framherjans Robin Van Persie hjá Arsenal gegn Manchester United reyndist honum dýrt, því í myndatöku eftir leikinn kom í ljós að hann er með brákað bein á ristinni og verður því frá keppni í að minnst sex vikur. 21.1.2007 21:02
Hermannsmótið fór fram um helgina Um helgina fór fram Hermannsmótið í alpagreinum skíðaíþrótta í Hlíðarfjalli við Akureyri, en mótið er liður í bikarkeppni Skíðasambands Íslands. Þorsteinn Ingason tryggði sér Hermannsbikarinn en Salome Tómasdóttir sigraði í keppnini um Helgubikarinn. 21.1.2007 20:13
Barcelona lagði Tarragona Barcelona skellti sér á toppinn í spænsku deildinni í kvöld þegar liðið vann tilþrifalítinn en sannfærandi 3-0 sigur á botnliði Tarragona. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn sem varamaður á 65. mínútu og átti þátt í tveimur síðustu mörkum liðsins. Barcelona og Sevilla eru efst og jöfn í deildinni með 38 stig en Barca á leik til góða, líkt og Real Madrid sem getur komist í þennan hóp með sigri á Mallorca i kvöld. 21.1.2007 19:59
Wenger hrósar "ljónunum" sínum Arsene Wenger var mjög ánægður með sína menn í dag þegar Arsenal náði að leggja Manchester United að velli 2-1 á heimavelli sínum í ensku úrvalsdeildinni. Wenger líkti leikmönnum sínum við ljón. 21.1.2007 19:23
Úrslit dagsins á HM Línur eru farnar að skýrast nokkuð í riðlakeppni HM en nokkrar þjóðir hafa þegar tryggt sér sæti í milliriðlum. Hér fyrir neðan má sjá úrslit dagsins á mótinu. 21.1.2007 18:53
Ísland tapaði fyrir Úkraínu Íslenska landsliðið í handknattleik steinlá fyrir Úkraínu 32-29 í leik liðanna í B-riðli heimsmeistaramótsins í dag. Íslenska liðið var yfir 13-12 í hálfleik, en sá aldrei til sólar í þeim síðari, hvorki í vörn né sókn. 21.1.2007 18:22
Úkraína fjórum mörkum yfir Úkraínumenn hafa yfir 22-18 gegn Íslendingum þegar síðari hálfleikur er hálfnaður í Magdeburg. Íslenska liðið hefur verið heillum horfið í síðari hálfleik og fátt bendir til annars en að Úkraínumenn fari með sigur af hólmi. 21.1.2007 18:08
Dramatískur sigur Arsenal á Man Utd Arsenal vann í dag dramatískan 2-1 sigur á Manchester United í ensku úrvalsdeildinni og því er ljóst að forskot United er enn aðeins sex stig á toppnum. Wayne Rooney kom United yfir í fyrri hálfleik, en Robin Van Persie jafnaði á 87. mínútu fyrir Arsenal og það var svo hinn magnaði Thierry Henry sem tryggði Arsenal sigurinn í uppbótartíma. 21.1.2007 17:53
Eins marks forysta í hálfleik Íslendingar leiða gegn Úkraínumönnum með einu marki, 13-12 í hálfleik. Roland Valur Eradze hefur verið besti maður íslenska liðsins í hálfleiknum og meðal annars varið vel úr hraðaupphlaupi og eitt víti. 21.1.2007 17:39
Ein breyting á íslenska hópnum Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari gerði eina breytingu á 14 manna hópi fyrir leikinn gegn Úkraínumönnum sem er í þann mund að hefjast. Roland Valur Eradze kemur inn fyrir Hreiðar Levý Guðmundsson. 21.1.2007 16:58
Jafnt á Emirates í hálfleik Ekkert mark er enn komið í stórleik Arsenal og Manchester United á Emirates vellinum í London. Jafnræði hefur verið með liðunum fyrir hlé, en Jens Lehmann hefur tvisvar varið meistaralega frá framherjum United. 21.1.2007 16:53
Sigurganga Inter heldur áfram Ítalíumeistarar Inter Milan héldu áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í A-deildinni í dag þegar liðið lagði Fiorentina 3-1 eftir að hafa lent marki undir. Roma varð á í messunni og náði aðeins jafntefli við Livorno á útivelli þar sem Francesco Totti jafnaði leikinn 1-1 áður en hann var rekinn af velli í lokin. 21.1.2007 16:41
Frakkar söltuðu Ástrali Fimm leikjum er lokið á HM í handbolta í dag og óhætt er að segja að þeir hafi allir unnist nokkuð örugglega. Þrátt fyrir fádæma sigur Frakka á Áströlum tókst þeim ekki að slá met okkar Íslendinga yfir stærstu sigra í sögu HM en til þess vantaði þá fjögur mörk í viðbót. 21.1.2007 16:32
Látum Larsson ekki eyðileggja fyrir okkur aftur Cesc Fabregas, miðvallarleikmaður Arsenal, segir ekki koma til greina að láta sænska markaskorarann Henrik Larsson endurtaka leikinn frá í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í fyrra þegar sá sænski átti stóran þátt í sigri Barcelona á Arsenal. Liðið tekur á móti Manchester United í ensku úrvalsdeildinni í dag klukkan 16. 21.1.2007 15:47
Safarova sló Mauresmo úr keppni Tékkneska stúlkan Lucie Safarova kom heldur betur á óvart í nótt þegar hún gerði sér lítið fyrir og sló Amelie Mauresmo úr leik á opna ástralska meistaramótinu í tennis. Safarova er í 40. sæti heimslistans, en Mauresmo átti titil að verja á mótinu og var í öðru sæti heimslistans fyrir mótið. 21.1.2007 15:37
Everton vann Wigan - Andy Johnson meiddur Wigan tapaði sínum sjöunda leik í röð í ensku úrvalsdeildinni í dag þegar þá lágu fyrir Everton 2-0 á heimavelli. Andy Johnson framherji Everton meiddist illa. 21.1.2007 15:34
Glæsilegur sigur Ricky Hatton Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton stimplaði sig endanlega inn í hjörtu Bandaríkjamanna í nótt þegar hann vann sannfærandi sigur á Kólumbíumanninum Juan Urango á stigum og endurheimti IBF beltið í léttveltivigt. Talið er víst að Hatton muni næst mæta Jose Luis Castillo sem vann sinn bardaga í Las Vegas í nótt. 21.1.2007 15:24
Tvíhöfði í NFL í beinni á Sýn í kvöld Spennan er að ná hámarki í NFL-deildinni en Super Bowl-leikurinn fer fram eftir aðeins tvær vikur. Í kvöld kemur í ljós hvaða lið mætast í úrslitaleik deildarinnar. Fyrri leikur kvöldsins er viðureign Chicago Bears og New Orleans Saints í úrslitum Ameríkudeildarinnar en leikið er á heimavelli Bears, Soldier Field. 21.1.2007 15:11
Staðan eftir bókinni Nú eru fimm leikir hafnir á HM í handbolta og staðan í þeim öllum eftir bókinni. Pólverjar hafa tveggja marka forystu á Brasilíumenn í C-riðli þegar flautað hefur verið til hálfleiks en Pólverjar hófu leikinn mun betur en Brassar klóruðu í bakkann fyrir hálfleik. 21.1.2007 15:06
Fyrirhafnarlítill sigur hjá Valuev Tröllið Nikolay Valuev átti nokkuð náðugt kvöld í Sviss í gærkvöldi þegar hann tryggði sér WBC heimsmeistaratitilinn í þungavigt með sigri á Bandaríkjamanninum Jameel McCline, eftir að sá síðarnefndi sleik liðband í hnénu á sér í þriðju lotu og varð að hætta. 21.1.2007 15:00
Stephane Peterhansel sigraði í Dakar í þriðja sinn Franski ökuþórinn Stephane Peterhansel á Mitsubishi vann tryggði sér í dag þriðja sigurinn á ferlinum í Paris Dakar rallinu sem lauk í dag. Luc Alphand varð annar í heildarkeppninni í bílaflokki, en í vélhjólaflokki sigraði Cyril Despres í annað skipti á þremur árum eftir að Marc Coma heltist úr lestinni og var þetta sjöundi sigur KTM liðsins í keppninni. 21.1.2007 14:54
Loeb sigraði með yfirburðum í Monte Carlo Franski heimsmeistarinn Sebastien Loeb hefur titilvörn sína á heimsmeistaramótinu í ralli með tilþrifum, en í dag tryggði hann sér sigur í fyrstu keppni ársins í Monte Carlo þegar hann kom í mark á nýja Citroen C4 bílnum rúmum þremur mínútum á undan liðsfélaga sínum Dani Sordo. Finninn Marcus Grönholm á Ford náði þriðja sætinu. 21.1.2007 14:46
Paul Casey sigraði á Abu Dhabi mótinu Enski kylfingurinn Paul Casey sigraði í morgun á Abu Dhabi mótinu í Sameinuðu Arabísku Furstadæmunum. Casey lauk keppni á 17 höggum og spilaði lokahringinn á 65 höggum, eða 7 höggum undir pari. Svíinn Peter Hanson og Spánverjinn Miguel Angel Jimenez urðu í öðru til þriðja sæti, einu höggi á eftir Casey. Mótið var liður í Evrópumótaröðinni. 21.1.2007 14:41
Úrtöku Meistaradeildar lokið Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum er orðin fullskipuð þátttakendum eftir úrtöku í Ölfushöllinni í gær. Það má segja að landslið dómara hafi verið saman komið til að hita sig upp og stilla sig af fyrir átök nýs árs. Keppni að þessu tagi þar sem keppt er í fjórgangi og fimmgangi í janúar er nýbreytni og mjög krefjandi fyrir keppendur og hesta þeirra enda hvorki menn né hestar komnir í sitt besta form eins og gefur að skilja. 21.1.2007 14:39
Luku leik með sjö leikmönnum Fjórir leikmenn Osasuna fengu að líta rauða spjaldið þegar liðið heimsótti Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Osasuna er eina liðið í spænsku efstu deildinni sem lýkur leik með 7 leikmenn inni á vellinum á síðustu 10 keppnistímabilum. 21.1.2007 14:13