Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Salihamidzic fer til Juventus Bosníumaðurinn Hasan Salihamidzic hjá Bayern Munchen hefur gert samkomulag við ítalska liðið Juventus um að ganga í raðir þess næsta sumar. Salihamidzic er þrítugur og hefur verið hjá Bayern síðan árið 1998. Hann hefur samþykkt að skrifa undir fjögurra ára samning við ítalska félagið. 16.1.2007 14:52
NFL deildin í útrás Forráðamenn amerísku ruðningsdeildarinnar NFL hafa nú staðfest að fyrsti leikurinn utan Norður-Ameríku verði haldinn í London á næsta ári. Ekki er búið að staðfesta hvar leikurinn fer fram, en talið er að Wembley leikvangurinn verði fyrir valinu. Aðeins einu sinni hefur verið spilaður leikur í NFL deildinni utan Bandaríkjanna og það var í Mexíkó árið 2005. 16.1.2007 14:40
Skráning opin í Red Bull Romaniacs Skráning er hafin í eina erfiðustu endurokeppni í heimi Red Bull romaniacs. Keppnin er haldin árlega og er mjög vinsæl. Það er ekkert grín að keppa í henni þar sem þú lendir í því að keyra yfir steina á stærð við hjólið þitt, fara upp snarbrattar og grýttar brekkur og stökkva niður úr blokkaríbúð. Þessi keppni reynir mjög mikið á keppendur bæði andlega og líkamlega. 16.1.2007 14:35
Evrópukeppnin í körfubolta á Eurosport 2 í dag Það verður mikið um dýrðir á Eurosport 2 á Fjölvarpinu í dag þegar stöðin sýnir tvo leiki beint úr Evrópukeppninni í körfubolta. Leikur Hapoel Jerusalem og Alba Berlin verður sýndur klukkan 17 og klukkan 19 eigast við Lietuvos Rytas frá Litháen og AEK Aþena frá Grikklandi. 16.1.2007 14:32
BMW Sauber stefnir á verðlaunapall Forráðamenn BMW Sauber-liðsins í Formúlu 1 ætla liðinu að komast oftar á verðlaunapall á komandi keppnistímabili og setja stefnuna á að keppa um titilinn árið 2009. BMW tók við liði Sauber í lok árisins 2005 og komust ökumenn liðsins tvisvar á verðlaunapall á síðasta tímabili. 16.1.2007 14:21
Boro ætlar ekki að semja við Viduka í janúar Forráðamenn Middlesbrough hafa tekið það skýrt fram að félagið muni ekki endurnýja samning sinn við framherjann Mark Viduka fyrr en eftir að janúarglugganum lokar, því samningur hans rennur ekki út fyrr en í sumar. 16.1.2007 14:14
Riquelme með nokkur tilboð á borðinu Argentínski miðjumaðurinn Juan Roman Riquelme hefur nú framtíð sína algjörlega í höndum sér en hann er sagður vera að íhuga nokkur tilboð utan Spánar. Riquelme er úti í kuldanum hjá liði sínu Villarreal og vitað er af áhuga Bayern Munchen og liða í Mexíkó, Argentínu og Katar. Hann hefur væntanlega spilað sinn síðasta leik með spænska liðinu. 16.1.2007 14:10
Ronaldo fer ekki til Milan Brasilíski framherjinn Ronaldo mun ekki ganga í raðir AC Milan í vetur ef marka má forráðamenn ítalska félagsins, en leikmaðurinn er kominn út í kuldann hjá Fabio Capello þjálfara eins og David Beckham. Slitnað hefur upp úr viðræðum Milan og Real Madrid um kaup á Ronaldo og nú er útlit fyrir að hann verði að klára árið sem hann á eftir af samningi sínum á bekknum hjá spænska liðinu. 16.1.2007 14:07
Rommendahl vill fara aftur heim Danski landsliðsmaðurinn Dennis Rommendahl hjá Charlton virðist vera orðinn þreyttur á botnbaráttunni, því hann hefur kallað á FC Kaupmannahöfn í heimalandi sínu og skorar á menn þar á bæ að gera tilboð í sig. 16.1.2007 13:58
Engin örvænting í Ferguson Sir Alex Ferguson hefur beðið blaðamenn að halda ekki niðri í sér andanum í janúarglugganum ef þeir telji Manchester United ætla að versla mikið. Hann segir enga örvæntingu í herbúðum félagsins. 16.1.2007 13:52
Sebastian Deisler leggur skóna á hilluna Þýski miðjumaðurinn Sebastian Deisler hjá Bayern Munchen hélt blaðamannafund í morgun þar sem hann tilkynnti að hann væri hættur að leika knattspyrnu, aðeins 27 ára að aldri. Deisler þótti einhver efnilegasti leikmaður Þýskalands á sínum tíma en hefur aldrei náð ferlinum á fullan skrið vegna meiðsla og þunglyndis. Hann sagðist hætta því hann hefði einfaldlega ekki gaman af að spila fótbolta lengur. 16.1.2007 13:46
Everton að íhuga tilboð í Joey Barton David Moyes, stjóri Everton, hefur staðfest að félagið hafi gert Manchester City fyrirspurn í miðjumanninn Joey Barton. Leikmaðurinn má ræða við hvert það félag sem gerir formlegt amk 5,5 milljón punda tilboð í hann, en Everton hefur enn ekki gert formlegt tilboð. City vill ekki selja leikmanninn, en svo gæti farið að Everton gerði tilboð næstu daga. 16.1.2007 13:41
Liverpool sækir um undanþágu vegna Mascherano Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur ritað FIFA bréf þar sem það sækir um undanþágu fyrir miðjumanninn Javier Mascherano hjá West Ham og vonast til að hann fái grænt ljós á að spila með þriðja liðinu á leiktíðinni. Liverpool mun líklega ganga frá lánssamningi við leikmanninn ef félagið fær málið í gegn. 16.1.2007 13:36
LA Lakers lagði Miami Fjöldi leikja fór fram í NBA deildinni á degi Martin Luther King í Bandaríkjunum. Kobe Bryant og félagar í LA Lakers stöðvuðu sigurgöngu Miami með 124-118 sigri í framlengdum leik í Staples Center í Los Angeles. 16.1.2007 13:19
Logi kveikti líf í vinstri vængnum Skyttur íslenska liðsins skoruðu tólf færri langskotsmörk en Tékkar í leikjum helgarinnar. Logi Geirsson átti flotta innkomu í seinni hálfleik seinni leiksins og hefur engar áhyggjur af skyttum íslenska liðsins. 16.1.2007 12:00
Logi fagnar gagnrýninni Það vakti athygli í lok landsleiksins við Tékka á sunnudaginn að Ólafur Stefánsson sást þá fara í gegnum ákveðna hluti með Loga Geirssyni sem hafði leikið mjög vel í seinni hálfleiknum og skorað sex mörk. 16.1.2007 12:00
Getum gert góða hluti ef við sleppum við frekari meiðsli Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari í handbolta, valdi í gær 17 manna leikmannahóp sem fer á HM í Þýskalandi. Alfreð segir að íslenska liðið geti vel gert góða hluti á mótinu en minnir á að liðið má vart við frekari skakkaföllum. 16.1.2007 11:45
Vildi helst vera á tveimur stöðum í einu Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari í handbolta kynnti í gær hópinn sem fer til Þýskalands og spilar á heimsmeistaramótinu sem hefst þar á föstudag. Meðal þeirra er leikstjórnandinn Ragnar Óskarsson sem hefur að mörgu öðru að huga en handbolta þessa dagana. 16.1.2007 11:15
Líkir Platini við leyniskyttu Það stefnir í harða kosningabaráttu milli Lennarts Johansson og Michels Platini sem báðir sækjast eftir forsetastóli UEFA. Sitjandi forseti sambandins, Lennart Johansson, hefur líkt vinnuaðferðum Michels Platini við þeirra sem vinna sem leyniskyttur. 16.1.2007 10:00
Genk vildi fá Veigar Pál fram á sumar Belgíska úrvalsdeildarliðið Genk setti sig fyrir helgi í samband við norska úrvalsdeildarliðið Stabæk með það fyrir augum að fá Veigar Pál Gunnarsson lánaðan til félagsins. Stabæk var aðeins tilbúið að lána Veigar til Belgíu í þrjá mánuði en ekki til loka tímabilsins eins og óskað var eftir. Útlit er því fyrir að ekkert verði af því að Veigar Páll fari til Belgíu, í bili að minnsta kosti. 16.1.2007 09:00
Svíar flengdu Norðmenn Svíar unnu 13 marka sigur á Norðmönnum, 22-35, í Haukelandshallen í Bergen, í lokaleik norska liðsins fyrir HM í handbolta. Norska liðið hefur verið á mikilli siglingu í síðustu leikjum og vann meðal annars 12 marka sigur á Íslandi. 16.1.2007 08:00
Andri Stefan ristarbrotinn Handboltakappinn Andri Stefan, leikmaður Hauka, gengur um á hækjum þessa dagana enda er hann ristarbrotinn. Það er bót í máli fyrir Hauka að Andri skuli meiðast meðan frí er í DHL-deildinni vegna heimsmeistarakeppninnar í handbolta. 16.1.2007 07:30
20 milljónir til kvennaíþrótta Menningarsjóður Glitnis hefur lagt fram 20 milljónir króna til að stofna Afrekskvennasjóð Glitnis og ÍSÍ en Sjóðstjórnin tók við styrknum á Nýárshófi Glitnis. 16.1.2007 06:00
Webber fer til Detroit Miðherjinn Chris Webber hefur staðfest að hann muni ganga til liðs við Detroit Pistons í NBA-deildinni en búist er við að gengið verði formlega frá félagsskiptum hans úr Philadelphia síðar í þessari viku. Mörg félög voru á höttunum á eftir Webber, sem er einn reyndasti miðherji deildarinnar. 15.1.2007 22:00
Arenas hetja Washington - enn einu sinni Gilbert Arenas skoraði 51 stig, þar af sigurkörfu með þriggja stiga skoti um leið og flautan gjall, þegar Washington lagði Utah af velli í NBA-deildinni nú í kvöld, 114-111. 15.1.2007 21:17
Alonso stefnir á sigur með McLaren Heimsmeistari síðustu tveggja ára í formúlu 1, Spánverjinn Fernando Alonso, er sigurviss fyrir komandi tímabil í kappakstrinum. Alonso skipti úr herbúðum Renault í McLaren eftir síðasta tímabil og telur hann að keppnisbíll McLaren eigi mikið inni þrátt fyrir að liðið hafi ekki unnið eina einustu keppni í fyrra. 15.1.2007 20:55
Young sagði nei takk við Eggert og félaga Ashley Young, framherji Watford, neitaði í dag að ganga til liðs við West Ham, en félag hans hafði áður samþykkt 9,65 milljón króna tilboði frá Eggerti Magnússyni og félögum. Ástæðan fyrir ákvörðun Young er óþekkt. 15.1.2007 20:31
Norman dustar rykið af kylfunum “Hvíti hákarlinn” eða hinn gamalreyndi ástralski kylfingur Greg Norman hefur boðað þáttöku sína á Dubai-Classic mótinu í golfi sem fram fer í næsta mánuði. Tilkynning Norman kemur mikið á óvart, enda hefur hann að mestu einbeitt sér að eigin viðskiptum á síðustu misserum og lítið sem ekkert keppt á opinberum vettvangi. 15.1.2007 19:45
Alfreð tilkynnir landsliðshópinn Enginn leikmaður datt úr landsliðshóp Alfreðs Gíslasonar sem fer til Þýskalands og tekur þátt í Heimsmeistaramótinu í handbolta. Alfreð kaus að fara með 17 leikmenn á mótið en aðeins 16 þeirra mega taka þátt í undanriðlinum. 15.1.2007 19:25
Capello biðst afsökunar á ósiðlegu athæfi Fabio Capello, stjóri Real Madrid, hefur beðist afsökunar á að hafa sýnt tveimur áhorfendum fingurinn í viðureign Real Madrid og Zaragoza í gærkvöldi. Capello hefur verið undir miklu álagi að undanförnu og svo virðist sem að það sé farið að sjá á sálinni á ítalska stjóranum. 15.1.2007 17:30
Ekkert miðað við Valencia Rafael Benitez segir að pressan sem hann sé undir sem knattspyrnustjóri Liverpool sé ekkert miðað við þá sem hann þurfti að þola þegar hann var við stjórnvölinn hjá Valencia á Spáni. Benitez hefur verið sagður valtur í sessi hjá Liverpool eftir tvö slæm töp gegn Arsenal fyrr í mánuðinum. 15.1.2007 16:45
Vopnahlé í herbúðum Chelsea Nokkur ensku dagblaðanna segja frá því í morgun að Jose Mourinho og æðstu stjórnarmenn Chelsea hafi komist að samkomulagi um vopnahlé – að minnsta kosti fram á sumar. Lausnin felst í því að gefa Mourinho einhvern pening til að kaupa varnarmann til liðsins í janúar. 15.1.2007 16:00
Kawasaki / Pro circuit tók þrjú efstu sætin í Phoenix Kawasaki / Pro Circuit "lites" liðið er vel mannað þetta árið. Það sannaðist um helgina þegar liðið skellti sér í þrjú efstu sætin í minni flokknum í Supercross keppninni í Phoenix. Þetta hefur ekki gerst áður fyrir Team Kawasaki og eru menn því mjög sáttir í þeim herbúðum. 15.1.2007 15:24
Beckham tók rétta ákvörðun Nick Webster, helsti knattspyrnusérfræðingur FOX-íþróttastöðvarinnar í Bandaríkjunum, skrifar áhugaverðan pistil í dag um komu David Beckham til landsins. Þvert á skoðanir flestra aðra telur Webster að Beckham hafi tekið hárrétta ákvörðun. Og rökin sem hann gefur fyrir því eru býsna góð. 15.1.2007 14:51
Massa hlakkar til að keyra nýja bílinn Felipe Massa, annar ökumaður Ferrari-liðsins í formúlu 1 kappakstrinum á komandi tímabili, er mjög ánægður með hinn nýja bíl Ferrari sem frumsýndur var í gær. 15.1.2007 14:15
Ljubicic tapaði í fyrstu umferð Tennisspilarinn Ivan Ljubicic datt óvænt úr keppni í fyrstu umferð Opna ástralska meistaramótsins í tennis í morgun þegar hann beið í lægri hlut gegn Bandaríkjamanninum Mardy Fish í fjórum settum. Ljubicic var í fjórða sæti á styrkleikalista mótsins. Roger Federer hóf titilvörn sína með auðveldum sigri. 15.1.2007 13:45
Viðræður milli Real og LA Galaxy í fullum gangi Viðræður hafa staðið yfir í morgun og alla helgina á milli Real Madrid og LA Galaxy um að David Beckham fái að yfirgefa herbúðir spænska liðsins strax í þessari viku og ganga til liðs við bandaríska liðið. 15.1.2007 13:00
Jordan: Schumacher verður goðsögn Eddie Jordan, stofnandi og æðsti yfirmaður Jordan-liðsins í formúlu 1, segir að orðspor Michael Schumcaher í íþróttinni muni aukast til muna á næstum misserum nú þegar hann er hættur að aka. Jordan, sem gaf Schumacher fyrst tækifæri í formúlu 1 árið 1991, telur að Schumacher verði orðinn goðsögn innan fárra ára. 15.1.2007 12:45
Dallas með sigurkörfu á síðustu sekúndu Josh Howard tryggði Dallas sigur á Toronto í NBA-deildinni í nótt með því að skora sigurkörfuna þegar innan við sekúnda var til leiksloka. Dallas náði að vinna upp 16 stiga forystu Toronto á tiltölulega skömmum tíma og tryggja sér þannig sinn 17. sigur í síðustu 18 leikjum. 15.1.2007 12:13
Sharapova stefnir á sigur Maria Sharapova segist verða var við aukna pressu í sinn garð eftir að hún var sett í efsta sæti í styrkleikaröðun kvenna fyrir Opna ástralska meistaramótið í tennis. Komist Sharapova í undanúrslit mótsins mun hún hreppa toppsætið á heimslistanum í tennis. 15.1.2007 12:00
Fer Raul til Liverpool? Rafael Benitez reynir nú af öllum krafti að ná samkomulagi við Real Madrid um kaup á spænska gulldrengnum Raul til Liverpool. Spænskir fjölmiðlar greina frá þessu í morgun og segjast hafa fyrir því öruggar heimildir. Real Madrid hefur ekkert látið hafa eftir sér um málið. 15.1.2007 11:24
David Vuillemin óskaddaður eftir slæma byltu í Pheonix Frakkinn og MDK/Honda liðsmaðurinn David Vuillemin átti feikna byltu í Pheonix nú um helgina þegar keppt var í AMA Supercross. Keppnin var stöðvuð eftir tvo hringi og var óttast að David væri stórslasaður. Betur fór en á horfðist og kom í ljós við nánari skoðun á næsta sjúkrahúsi að allt var óbrotið og hann var aðeins blár og marinn. 15.1.2007 10:33
Beckham horfði á leikinn með mömmu sinni Mark frá Ruud van Nistelrooy var nóg til að tryggja Real Madrid öll þrjú stigin sem í boði voru í viðureign liðsins gegn Real Zaragoza í spænsku úrvalsdeildinni í dag. Real er nú komið með 35 stig líkt og Barcelona og er í 2.-3. sæti deildarinnar. David Beckham horfði á leikinn úr stúkunni með mömmu sína sér við hlið. 14.1.2007 21:55
Ronaldo fer frá Real Madrid Ramon Calderon, forseti Real Madrid, hefur viðurkennt að brasilíski framherjinn Ronaldo sé á förum frá félaginu og það líklega nú í janúar. Newcastle er sagt líklegast til að klófesta markaskorarann. 14.1.2007 21:30
Óvænt tap Sevilla á heimavelli Topplið Sevilla í spænsku úrvalsdeildinni tapaði óvænt fyrir Mallorca á heimavelli sínum í dag og mistókst þannig að auka við forskotið sem liðið hefur á Barcelona. Valencia er komið upp í þriðja sæti eftir sigur á Levante. 14.1.2007 20:31