Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Miami - Memphis í beinni í kvöld Meistarar Miami Heat taka á móti Memphis Grizzlies í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni í kvöld klukkan hálf eitt. Bæði lið hafa átt mjög erfitt uppdráttar það sem af er vetri, en Dwyane Wade hjá Miami og Pau Gasol hjá Memphis snúa aftur eftir meiðsli í kvöld og því má eiga von á skemmtilegum leik. 16.12.2006 20:45
Ekström sigraði í Race of Champions Sænski ökuþórinn Mattias Ekström kom mjög á óvart í dag þegar hann vann sigur á heimamanninum Sebastien Loeb í úrslitum í Race of Champions fyrir framan 60.000 áhorfendur á Stade de France í París. 16.12.2006 20:09
Lélegasti hálfleikur undir minni stjórn Paul Jewell, stjóri Wigan, sagði að fyrri hálfleikurinn í dag hefði verið lélegasti hálfleikur sem lið hans hafi spilað síðan hann tók við stjórn þess fyrir fjórum árum. Wigan tapaði á heimavelli fyrir lærisveinum Neil Warnock í Sheffield United, en þar á bæ voru menn að vonum kátari með niðurstöðuna. 16.12.2006 19:59
Íþróttaveislan á Sýn heldur áfram alla helgina Það er búið að vera mikið fjör á sjónvarpsstöðinni Sýn í dag og halda beinar útsendingar áfram langt fram á kvöld. Nú stendur Race of Champions sem hæst og klukkan 20:50 verður leikur Zaragoza og Valencia í spænska boltanum í beinni. Þá er rétt að minna á golfmót Tiger Woods í beinni klukkan 20 á Sýn Extra. 16.12.2006 19:17
Bolton lagði Aston Villa Bolton vann mikilvægan 1-0 útisigur á Aston Villa í lokaleik ensku úrvalsdeildarinnar í dag og lyfti sér með sigrinum í 5. sæti deildarinnar. Það var gamla kempan Gary Speed sem skoraði sigurmark Bolton úr vítaspyrnu um miðjan síðari hálfleik. Bolton er í fimmta sæti með 30 stig en Aston Villa er enn í því áttunda með 25 stig. 16.12.2006 19:06
Ótrúlegt að vera á topp fjögur Harry Redknapp gat ekki verið annað en ánægður með frammistöðu sinna manna í Portsmough í dag þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Arsenal á útivelli. Hann hrósaði sínum mönnum í hástert og sagði það ótrúlegt að liðið væri á meðal fjögurra efstu liðanna í deildinni. 16.12.2006 19:01
Wenger óhress með fyrsta mark Portsmouth Arsene Wenger fékk ekki að standa á hliðarlínunni í síðari hálfleik í dag þegar hans menn í Arsenal náðu aðeins 2-2 jafntefli gegn spræku liði Portsmouth. Wenger þótti fyrsta mark Portsmouth ansi blóðugt en hrósaði leikmönnum sínum fyrir að ná að jafna leikinn. 16.12.2006 18:40
Valur lagði HK Valur lagði HK 25-22 í uppgjöri liðanna á toppi DHL deildarinnar í handbolta í dag eftir að Valsmenn höfðu yfir 14-10 í hálfleik. Markús Máni Michaelsson skoraði 8 mörk fyrir Val og Davíð Höskuldsson og Arnór Gunnarsson skoruðu 5 hvor. Valdimar Þórsson skoraði 8 mörk fyrir HK og Ragnar Hjaltested 6 mörk 16.12.2006 17:44
Schalke á toppinn Schalke komst í dag á toppinn í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar liðið lagði Bielefeld 1-0 á útivelli með marki frá varamanninum Zlatan Bajramovic og Bayern Munchen burstaði Mainz 4-0 með mörkum frá Hasan Salihamidzic, Roy Makaay, Claudio Pizarro og Bastian Schweinsteiger. Bremen á leik til góða gegn Wolfsburg á morgun. 16.12.2006 17:33
Cannavaro maður ársins hjá World Soccer Ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro hefur verið útnefndur knattspyrnumaður ársins af breska tímaritinu World Soccer. Cannavaro er aðeins annar varnarmaðurinn sem hlýtur þessi verðlaun á þeim aldarfjórðungi sem þau hafa verið veitt, en áður hafði landi hans Paolo fengið þau árið 1994. Cannavaro fékk þrisvar sinnum fleiri atkvæði en næstu menn, þeir Thierry Henry og Samuel Eto´o. 16.12.2006 17:25
Arsenal og Portsmouth skildu jöfn Arsenal og Portsmouth skildu jöfn 2-2 í hörkuleik á Emirates vellinum í dag þar sem heimamenn lentu tveimur mörkum undir. Noe Pamarot kom Portsmouth yfir með skalla undir lok fyrri hálfleiks og Matt Taylor kom gestunum í 2-0 í upphafi þess síðari. Gilberto og Adebayor jöfnuðu metin svo með 2 mínútna millibili eftir klukkutíma leik. Freddie Ljungberg þurfti að fara meiddur af velli hjá Arsenal. 16.12.2006 17:04
Shevchenko er kjölturakki konu sinnar Silvio Berlusconi, forseti AC Milan, virðist vera búinn að missa allt álit á félaga sínum og fyrrum leikmanni Andriy Shevchenko hjá Chelsea. Berlusconi segir framherjann vera eins og kjölturakka í höndum konu sinnar. 16.12.2006 16:55
Valur yfir í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í leikjunum fjórum sem standa yfir í DHL deild karla í handbolta, en þetta eru síðustu leikirnir fyrir jólafrí. Valsmenn hafa yfir 14-10 gegn HK í toppslag liðanna í Laugardalshöll. Markús Máni Michaelsson hefur skorað 4 mörk fyrir Val og Davíð Höskuldsson og Ingvar Árnason 3 hvor, en Valdimar Þórsson 5 og Ragnar Hjaltested 4 fyrir HK. 16.12.2006 16:46
Stankovic knattspyrnumaður ársins Miðjumaðurinn sterki Dejan Stankovic hjá Inter Milan hefur verið útnefndur knattspyrnumaður ársins í Serbíu, en hann er fyrsti leikmaðurinn sem hlýtur þessi verðlaun eftir að Serbía og Svartfjallaland skiptust upp. 16.12.2006 16:41
Vantar allt sjálfstraust í liðið Les Reed, stjóri Charlton í ensku úrvalsdeildinni, segir að lið sitt vanti allt sjálfstraust eftir hörmulegt gengi það sem af er vetri og segir að mikil meiðsli í herbúðum þess hjálpi ekki til. Liðið tapaði 3-0 fyrir Liverpool á heimavelli í dag og er í vondum málum á fallsvæðinu. 16.12.2006 16:14
Portsmouth yfir gegn Arsenal Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum fjórum sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Portsmouth hefur yfir 1-0 á útivelli gegn Arsenal þar sem varnarmaðurinn Noe Pamarot skoraði mark gestanna. Reading hefur yfir 1-0 gegn Blackburn og þá er Sheffield United yfir 1-0 gegn Wigan á útivelli. Stöðuna í leikjunum má skoða á Boltavaktinni. 16.12.2006 16:01
Liverpool vann Charlton Ófarir Hermanns Hreiðarssonar og félaga í Charlton halda áfram í ensku úrvalsdeildinni en í dag lá liðið 3-0 á heimavelli fyrir Liverpool eftir 5-1 tap í síðasta leik sínum. Xabi Alonso kom Liverpool yfir með marki úr vítaspyrnu strax í byrjun leiks og þeir Craig Bellamy og Steven Gerrard bættu við tveimur mörkum á lokamínútunum. 16.12.2006 14:42
Newcastle sigraði í Intertoto bikarnum Enska knattspyrnuliðið Newcastle er Intertoto meistari þetta árið eftir að ljóst varð að liðið komst lengst liðanna fimm sem fóru í UEFA keppnina. Liðið fær afhentan bikar fyrir næsta leik sinn í UEFA keppninni þann 22. febrúar og er þetta fyrsti bikarinn sem Newcastle vinnur í 1969. 16.12.2006 14:17
13 sigrar í röð hjá Phoenix Phoenix Suns hélt áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í NBA deildinni í nótt þegar liðið lagði Golden State á heimavelli 105-101 og vann þar sinn 13. leik í röð. Amare Stoudemire skroaði 25 stig fyrir Phoenix og Boris Diaw náði fyrstu þrennu sinni í vetur með 21 stigi, 14 fráköstum og 10 stoðsendingum. Monta Ellis skoraði 24 stig fyrir Golden State. 16.12.2006 13:58
Birgir Leifur í þremur undir pari Birgir Leifur Hafþórsson heldur áfram að spila vel á SA Airlines mótinu í golfi í Portl Elizabeth í Suður-Afríku, en hann lauk þriðja hringnum í morgun á 70 höggum eða tveimur undir pari. Hann er því á samtals þremur höggum undir pari á mótinu og er í kring um 57. sæti í mótinu. 16.12.2006 13:49
Auðvelt hjá Gummersbach Gummersbach skellti sér í kvöld í þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta með auðveldum útisigri á Balingen 34-26. Guðjón Valur sigurðsson skoraði 6 mörk fyrir Gummersbach, Róbert Gunnarsson 5 og Guðlaugur Arnarsson 1 mark. 15.12.2006 21:39
United fær leikheimild fyrir Fangzhou Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester United hefur nú loks fengið leikheimild fyrir kínverska landsliðsmanninn Dong Fangzhou, en hann skrifaði undir samning við félagið í janúar árið 2004. Fangzhou hefur verið í láni hjá belgíska liðinu Antwerpen en hinn 21 árs gamli framherji fær nú loksins tækifæri til að sanna sig á Englandi í janúar. 15.12.2006 21:32
Skallagrímur á toppinn Skallagrímsmenn komust í kvöld upp að hlið Snæfells og KR á toppi úrvalsdeildar karla í körfubolta með sigri á grönnum sínum í Snæfelli í uppgjöri vesturlandsliðanna í Borgarnesi 83-77. KR vann auðveldan sigur á Tindastól 109-89, Hamar lagði Fjölni á útivelli 88-83 og Þór Þorlákshöfn lagði ÍR 82-78. 15.12.2006 21:25
Rúrik á leið til Valencia? Knattspyrnumaðurin Rúrik Gíslason sem enska úrvalsdeildarliðið Charlton keypti frá HK í fyrra er hugsanlega á leið til Valencia á Spáni þar sem honum er ætlað að fara beint inn í aðallið félagsins. 15.12.2006 21:15
Kínverjar Asíumeistarar í körfubolta Kínverjar tryggðu sér í dag Asíumeistaratitilinn í körfubolta þegar lið þeirra lagði Katar 59-44 í úrslitaleik Asíuleikanna. Wang Zhizhi skoraði 28 stig fyrir kínverska liðið og varpaði skugga á ungstirnið Yi Jianlian sem skoraði 8 stig og hirti 15 fráköst, en sá gefur væntanlega kost á sér í nýliðaval NBA næsta sumar. 15.12.2006 20:45
Sævar Þór hættur hjá Fylki Sævar Þór Gíslason verður ekki með Fylkismönnum í Landsbankadeildinni á næsta keppnistímabili eftir því sem fram kemur á heimasíðu félagsins í dag. Sævar starfar á Selfossi og gaf þá skýringu að hann treysti sér ekki til að spila með liði Fylkis næsta sumar vegna anna í starfi. 15.12.2006 20:00
Hargreaves er ekki að skapa sér vinsældir Karl-Heinz Rummenigge, yfirmaður knattspyrnumála hjá Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen, hefur varað enska landsliðsmanninn Owen Hargreaves við sífelldum yfirlýsingum sínum um að hann vilji fara til Manchester United. 15.12.2006 19:15
Kanu fer hvergi Yfirmaður knattspyrnumála hjá Portsmouth, Peter Storrie, segir ekki koma til mála að félagið selji framherjann Kanu í janúar. Fréttir í gær hermdu að framherjinn ætlaði að fara frá félaginu í janúar ef honum yrði boðinn betri samningur hjá öðru liði, en Kanu hefur farið á kostum með Portsmouth í vetur og er óvænt markahæstur í deildinni með 9 mörk. 15.12.2006 18:45
Allardyce gagnrýnir uppsögn Alan Pardew Sam Allardyce, stjóri Bolton, segir að stjórn West Ham hafi verið aðeins of fljót á sér í að reka Alan Pardew úr starfi knattspyrnustjóra hjá West Ham, en viðurkennir að líklega hafi undraverður árangur liðsins á síðustu leiktíð komið í bakið á stjóranum þegar halla tók undan fæti í vetur. 15.12.2006 18:09
Ferguson stríðir Mourinho og Chelsea Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United og kollegi hans Jose Mourinho hjá Chelsea, skjóta nú föstum skotum á hvorn annan í fjölmiðlum. Ferguson átti nýjasta skotið í dag þegar hann tjáði sig um nýjustu ummæli Jose Mourinho. 15.12.2006 17:22
Denver að landa Iverson? Þær fréttir berast nú frá Bandaríkjunum að Denver sé í þann mund að ná í gegn með leikmannaskipti sem myndu færa þeim leikstjórnandann Allen Iverson frá Philadelphia. Fimm lið eru sögð koma að skiptunum og því er haldið fram að málið verði jafnvel klárað í kvöld. Iverson er sem stendur búinn að fá flest atkvæði allra leikmanna í Austudeildinni í Stjörnuleikinn í febrúar nk. 15.12.2006 17:17
Cleveland - Seattle í beinni á Sýn í kvöld Leikur Cleveland Cavaliers og Seattle Supersonics verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan hálf eitt eftir miðnætti í kvöld. Cleveland hefur unnið fjóra heimaleiki í röð og tíu af tólf alls, sem er besti árangur í Austurdeildinni. Mikil meiðsli eru í herbúðum Seattle sem hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum á keppnisferðalagi á austurströndinni. 15.12.2006 16:45
Strachan mjög ánægður með að mæta Milan Gordon Strachan, þjálfari skoska liðsins Glasgow Celtic, segist mjög ánægður með þá miklu prófraun sem leikmenn hans fá í febrúar eftir að liðið lenti á móti ítalska liðinu AC Milan í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. 15.12.2006 16:38
Laporta hlakkar til að heimsækja Bítlaborgina Joan Laporta, forseti Barcelona, segir að enska liðið Liverpool sé sannkallaður óskamótherji í næstu umferð Meistaradeildarinnar og segist ekki geta beðið eftir að heimsækja Bítlaborgina þegar Evrópumeistarar síðustu tveggja ára reyna með sér í 16-liða úrslitunum. 15.12.2006 16:32
Spilar Tottenham fyrir luktum dyrum? Svo gæti farið að stuðningsmenn Tottenham misstu alveg af útileik liðsins gegn hollenska liðinu Feyenoord í Evrópukeppni félagsliða, en hollenska liðið á yfir höfði sér heimaleikjabann vegna óláta stuðningsmanna þess í keppninni fyrir skömmu. Úrskurðar er ekki að vænta í málinu fyrr en í næsta mánuði, en liðin eiga ekki að leika fyrr en í febrúar. 15.12.2006 16:26
Heimildarmyndin um Jón Pál sló öll met Heimildarmyndin Þetta er ekkert mál um Jón Pál Sigmarsson aflraunakappa var í dag sæmd viðurkenningu frá útgáfufyrirtækinu Senu eftir að ljóst varð að myndin er aðsóknarmesta heimildarmynd sem gerð hefur verið hér á landi. Hátt í tólf þúsund manns sáu myndina í bíó og þegar hafa tæplega fimm þúsund eintök selst af myndinni sem nýlega kom út á DVD. 15.12.2006 16:22
Sjöland efstur - Birgir Leifur áfram Sænski kylfingurinn Patrik Sjöland er í efsta sæti á SA Airways mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku þegar tveimur fyrstu hringjunum er lokið. Sjöland er samtals á 12 höggum undir pari eftir að hann lék á 8 undir í dag. Birgir Leifur tryggði sér naumlega áframhaldandi keppni eftir góðan leik í dag. Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu sem halda áfram í fyrramálið. 15.12.2006 16:15
Ferguson ætlar að snúa við blaðinu Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir að ekki komi til greina að endurtaka klúðrið frá því í fyrra þegar liðið náði aðeins einu stigi gegn franska liðinu Lille í Meistaradeildinni en það varð öðru fremur til þess að enska liðið féll úr keppni. Liðin mætast nú í 16-liða úrslitum keppninnar og er Lille talið eitt veikasta liðið í þeim hópi. 15.12.2006 16:09
Við höfum engu að tapa Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir að sínir menn hafi engu að tapa í 16-liða úrslitum meistaradeildarinnar eftir að ljóst var að liðið myndi mæta Eiði Smára og félögum í Barcelona í næstu umferð. 15.12.2006 16:01
Birgir Leifur í góðri stöðu Birgir Leifur Hafþórsson er kominn með annan fótinn í gegn um niðurskurðinn á SA Airways mótinu í golfi sem fram fer í Suður-Afríku eftir að hann lauk öðrum hring í dag á þremur höggum undir pari og er því á höggi undir pari samanlagt. Hann er sem stendur í 58. sæti ásamt nokkrum öðrum kylfingum þegar skammt er eftir af öðrum hring og komast 70 efstu menn áfram á mótinu. 15.12.2006 15:44
Davis tryggði Golden State sigur á Houston Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í körfubolta í nótt. Golden State lagði Houston 109-107 þar sem þriggja stiga karfa Baron Davis þegar 1,2 sekúndur voru eftir tryggði Golden State sigurinn. Davis skoraði 34 stig í leiknum en Yao Ming átti líka frábæran leik hjá Houston með 38 stigum og 18 fráköstum. 15.12.2006 13:57
Tottenham mætir Feyenoord Í dag var dregið í 32-liða úrslit í Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Enska liðið Tottenham mætir hollenska liðinu Feyenoord í næstu umferð, en þessi lið léku til úrslita í keppninni árið 1974 og þá hafði hollenska liðið betur. Leikið verður heima og úti og leikirnir verða háðir 14. og 22. febrúar. Hér fyrir neðan má sjá hvaða lið lentu saman. 15.12.2006 13:25
Barcelona mætir Liverpool Í morgun var dregið í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu. Eiður Smári Guðjohnsen og félagar í Barcelona mæta enska liðinu Liverpool, en þetta eru sigurvegarar keppninnar síðustu tvö ár. Þá mætir Jose Mourinho sínum gömlu félögum í Porto með liði Chelsea. 15.12.2006 13:11
Láttu Bent í friði Les Reed, sitjandi knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarliðsins Charlton, segist þegar hafa sent fyrrum stjóra félagsins Alan Curbishley sms-skilaboð og varað hann við því að reyna að bjóða í framherjann Darren Bent. Curbishley tók við West Ham í gær og breskir fjölmiðlar slá því föstu að Curbishley muni reyna að ná í markaskorarann unga. 14.12.2006 22:15
Auðvelt hjá Tottenham Tottenham tryggði sér í kvöld efsta sætið í riðli sínum í Evrópukeppni félagsliða þegar liðið vann auðveldan sigur á Dinamo Búkarest frá Rúmeníu 3-1. Jermain Defoe skoraði tvö mörk fyrir Tottenham og Dimitar Berbatov eitt, en gestirnir náðu að minnka muninn í lokin þó leikurinn hafi verið eign heimamanna frá fyrstu mínútu. 14.12.2006 21:40