Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gunnar Einarsson með tímamótaleik í kvöld Gunnar Einarsson, fyrirliði Keflvíkinga, spilar í kvöld sinn þrítugasta Evrópuleik í körfubolta fyrstur íslenskra körfuboltamanna. Keflvíkingar taka á móti liði Norrköping í Keflavík í kvöld í Ákorendakeppni Evrópu og hefst leikurinn klukkan 19:15. 23.11.2006 16:44
Leverkusen - Tottenham í beinni á Sýn í kvöld Fjöldi leikja fer fram í riðlakeppni Evrópumóts félagsliða í knattspyrnu í kvöld og verður sjónvarpsstöðin Sýn með beina útsendingu frá viðureign Bayer Leverkusen og Tottenham sem hefst klukkan 19:20. 23.11.2006 16:10
Schumacher útilokar endurkomu Þýski ökuþórinn Michael Schumacher gaf það út í viðtali við þýska fjölmiðla að það væri enginn möguleiki á því að hann settist undir stýri í Formúlu 1 á ný, því það væri einfaldlega ekki hægt eins og íþróttin hafi þróast síðustu ár. 23.11.2006 16:04
Nadal ber mikla virðingu fyrir Federer Spánverjinn Rafael Nadal sem er annar stigahæsti tenniskappi heimsins, viðurkennir fúslega að Roger Federer sé í algjörum sérflokki í heiminum í dag og telur að Svisslendingurinn sé eina ástæðan fyrir því að hann sjálfur hefur aldrei náð efsta sæti heimslistans. 23.11.2006 15:53
Wenger gengst við ákæru sinni Arsene Wenger hefur gengist við ákæru sinni frá aganefnd enska knattspyrnusambandsins í kjölfar þess að uppúr sauð milli hans og Alan Pardew í leik Arsenal og West Ham á dögunum. Pardew hefur ekki vilja gangast við sinni kæru og heldur fram sakleysi sínu í málinu. 23.11.2006 15:49
Stjórar ósáttir við undanþágu Southgate Samtök knattspyrnustjóra á Englandi hafa gagnrýnt ákvörðun stjórnar úrvalsdeildarinnar að veita Gareth Southgate undanþágu til að stýra liði Middlesbrough út leiktíðina án þess að hafa til þess tilskilin réttindi. 23.11.2006 14:48
Mourinho hefur ekki áhyggjur af meiðslum Jose Mourinho segist ekki hafa teljandi áhyggjur af meiðslunum sem þeir Michael Ballack og Didier Drogba urðu fyrir í tapinu gegn Werder Bremen í Meistaradeildinni í gærkvöld og á von á því að þeir verði klárir í slaginn gegn Manchester United um næstu helgi. 23.11.2006 14:39
Gummersbach á toppinn Þýska úrvalsdeildarliðið Gummersbach náði aftur toppsætinu í deildinni í gærkvöld þegar liðið burstaði Göppingen 41-33 á heimavelli sínum. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 10 mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson 5. Þá steinlá Lemgo nokkuð óvænt fyrir Kronau/Östringen 35-24 þar sem Logi Geirsson skoraði 5 mörk fyrir Lemgo og Ásgeir Hallgrímsson 2 mörk. 23.11.2006 14:34
Enn einn sigurinn hjá Tiger Woods Tiger Woods vann í nótt sinn 7. sigur á Hawai mótinu í golfi þegar hann lauk keppni á átta höggum undir pari og sá við sínum helsta keppinaut Jim Furyk sem var þar tveimur höggum á eftir. Woods lék lokahringinn á sex undir pari en leiknar voru 36 holur. 23.11.2006 14:29
Argentínumennirnir eiga framtíð á Upton Park Alan Pardew, stjóri West Ham, segir Argentínumennina Javier Mascherano og Carlos Tevez báða eiga framtíð fyrir sér hjá félaginu þrátt fyrir að þeim hafi gengið illa að fóta sig hjá liðinu og bendir á að þeir hafi verið gagnrýndir full harkalega. 23.11.2006 14:22
Sigurganga Utah Jazz heldur áfram Spútniklið Utah Jazz hélt áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í nótt þegar liðið skellti Sacramento á útivelli 110-101. Þetta var 11. sigur liðsins í fyrstu 12 leikjunum í vetur og er liðið öllum að óvörum í efsta sæti deildarinnar. Þetta var auk þess þriðji leikurinn í röð þar sem lið Utah vinnur upp 16 stiga forskot eða meira í síðari hálfleik. 23.11.2006 13:48
Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum Meistaradeild í hestaíþróttum mun á næstu dögum undirrita samstarfssamning við VÍS um mótaröð í hestaíþróttum veturinn 2007. Með þessu samstarfi verður stefnt að því að styrkja og efla meistaradeildina. Úrtaka fyrir keppendur í Meistaradeild VÍS mun fara fram í Ölfushöll 20. janúar 2007. 23.11.2006 12:50
700 þúsund króna sekt fyrir illa meðferð á hrossum Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í gær karlmann til greiðslu 700 þúsund króna sektar vegna illrar meðferðar í hrossum. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa síðla árs 2005 og í janúar og febrúar 2006, vanrækt gróflega aðbúnað, umhirðu og fóðrun á ellefu hrossum sem voru í hans umsjá en fjórum þeirra þurfti að lóga vegna þess hve horuð þau voru. 23.11.2006 12:45
Stofnun hlutafélags um stóðhestinn Þrist frá Þorlákshöfn Ákveðið hefur verið að stofna hlutafélag um stóðhestinn Þrist frá Þorlákshöfn, brúnskjóttan 5 vetra gamlan úr ræktun Þórarins Óskarssonar í Þorlákshöfn. Forsvarsmaður hlutafélagsins er Sæmundur T. Halldórsson, Miklagarði við Akranes. 23.11.2006 11:27
Kári orðaður við Álasund Landsliðsmaðurinn Kári Árnason hefur verið orðaður við norska úrvalsdeildarliðið Álasund sem Haraldur Freyr Guðmundsson leikur með. Kári er samningsbundinn sænska liðinu Djurgården til 2008. 23.11.2006 00:01
Tottenham leiðir í hálfleik Tottenham hefur yfir 1-0 gegn Bayer Leverkusen þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í Evrópukeppni félagsliða í Þýskalandi. Það var fyrrum leikmaður Leverkusen, Búlgarinn Dimitar Berbatov, sem skoraði mark gestanna skömmu fyrir leikhlé. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn og á VefTV hér á Vísi. 23.11.2006 20:25
Keflvíkingar yfir í hálfleik Keflvíkingar hafa yfir 55-51 þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðsins gegn sænska liðinu Norrköping í Áskorendakeppni Evrópu. Leikurinn fer fram í Keflavík. Thomas Soltau er stigahæstur heimamanna með 16 stig og 7 fráköst og Sverrir Sverrisson hefur skorað 10 stig. 23.11.2006 19:56
LA Clippers - Seattle í beinni í nótt Leikur Los Angeles Clippers og Seattle Supersonics verður á dagskrá NBA TV sjónvarpsstöðvarinnar á Fjölvarpinu klukkan 3:30 í nótt. Lið Clippers heldur uppteknum hætti frá í fyrra og hefur byrjað leiktíðina mjög vel svo hætt er við því að Seattle eigi á brattann að sækja í Staples Center í nótt. 22.11.2006 23:00
Ísland leikur við Færeyjar um helgina Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik mætir því færeyska í tvígang um næstu helgi. Hér er um að ræða æfingaleiki fyrir íslenska liðið sem er að undirbúa sig fyrir forkeppni HM sem fram fer í Rúmeníu í næstu viku. 22.11.2006 22:30
Chelsea tapaði fyrir Bremen Chelsea tapaði sínum fyrsta leik í A-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld þegar liðið lá 1-0 fyrir þýska liðinu Werder Bremen. Á sama tíma vann Barcelona 2-0 sigur á Levski Sofia með mörkum frá Giuly og Iniesta, en Eiður Smári Guðjohnsen náði ekki að koma sér á blað þrátt fyrir að eiga nokkur ágæt færi í leiknum. Chelsea og Bremen eru jöfn í efsta sæti riðilsins með 10 stig en Barcelona hefur 8 stig. 22.11.2006 21:37
Tap hjá Njarðvíkingum Íslensk körfuknattleikslið ríða ekki feitum hesti frá þáttöku sinni í Evrópukeppnunum þar sem af er, en í kvöld tapaði Njarðvík 82-78 fyrir Tartu Rock frá Eistlandi í leik sem háður var í Keflavík. Friðrik Stefánsson og Jeb Ivey skoruðu 22 stig fyrir Njarðvíkinga, en Friðrik hirti auk þess 17 fráköst. 22.11.2006 21:09
Haukastúlkur töpuðu fyrir Parma Kvennalið Hauka tapaði í kvöld fyrir ítalska liðinu Parma í Evrópukeppninni í körfubolta 102-86, en leikið var ytra. Ifeoma Okonkwo skoraði 25 stig fyrir Hauka, Unnur Tara Jónsdóttir átti fínan leik og skoraði 19 stig og Helena Sverrisdóttir skoraði 17 stig og hirti 8 fráköst. 22.11.2006 20:56
Fram lagði Akureyri Einn leikur var á dagskrá í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. Íslandsmeistarar Fram lögðu lið Akureyrar 32-29 eftir að hafa verið með sjö marka forskot í leikhléi 19-12. Jóhann Einarsson skoraði 9 mörk fyrir Fram og Sigfús Sigfússon 7, en Goran Gusic skoraði 11 mörk fyrir Akureyri, þar af 10 úr vítum. Fram er í þriðja sæti deildarinnar en Akureyri í því fjórða. 22.11.2006 20:49
Bremen hefur yfir gegn Chelsea Nú er kominn hálfleikur í leikjunum sjö sem standa yfir í Meistaradeild Evrópu í knattspyrnu. Þýska liðið Werder Bremen hefur yfir 1-0 gegn Chelsea á heimavelli sínum og þá hefur Barcelona yfir 1-0 gegn Levski Sofia í Búlgaríu. Ekkert mark er komið í leik Liverpool og PSV, en markaskorara kvöldsins má sjá á Boltavaktinni hér á íþróttasíðu Vísis. 22.11.2006 20:44
Liverpool að landa ungum Argentínumanni Fréttir frá Englandi í kvöld herma að Liverpool sé við það að ganga frá lánssamningi við unga bakvörðinn Emiliano Insua frá Boca Juniors í Argentínu. Insua þessi ku vera á Anfield í kvöld þegar Liverpool mætir PSV í Meistaradeildinni þar sem þessi 17 ára leikmaður mun fá stemminguna beint í æð. 22.11.2006 20:30
Vafasamt met hjá Spartak Bayern Munchen fór langt með að tryggja sér efsta sætið í B-riðli Meistaradeildarinnar í kvöld þegar liðið gerði 2-2 jafntefli við Spartak í Moskvu á gervigrasvelli liðsins. Spartak setti vafasamt met með jafnteflinu, því liðið hefur nú spilað 22 leiki án sigurs í Meistaradeildinni. 22.11.2006 19:47
Fimm leikmenn tilnefndir sem knattspyrnumenn Afríku Þrír af þeim fimm leikmönnum sem tilnefndir hafa verið sem knattspyrnumenn Afríku spila í ensku úrvalsdeildinni. Nígeríumaðurinn Kanu hjá Portsmouth hefur tvisvar unnið til þessara verðlauna og er tilnefndur að þessu sinni. Auk hans eru þeir Didier Drogba og Michael Essien hjá Chelsea tilnefndir, en þeir koma frá Fílabeinsströndinni og Gana. 22.11.2006 19:22
Ancelotti hefur miklar áhyggjur Carlo Ancelotti, þjálfari AC Milan, segist hafa miklar áhyggjur af slöku gegni liðs síns á leiktíðinni. Þessi ummæli lét hann falla eftir að Milan tapaði 1-0 fyrir AEK frá Aþenu í Meistaradeildinni í gær. Milan hefur þegar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitunum, en það dregur ekki úr áhyggjum þjálfarans. 22.11.2006 19:13
Uwe Rosler tekinn við Viking Þýski þjálfarinn Uwe Rosler var í dag ráðinn þjálfari norska úrvalsdeildarliðsins Vikings í Stavangri, en hann var rekinn frá Lilleström nokkrum dögum og varð þar með áttundi þjálfarinn í deildinni tila ð taka pokann sinn á leiktíðinni. Rosler hefur skrifað undir þriggja ára samning við Viking. 22.11.2006 18:44
Southgate fær að halda áfram Stjórn ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu tilkynnti í dag að Gareth Soutgate hefði verið veitt undanþága til að sinna starfi knattspyrnustjóra Middlesbrough út keppnistímabilið þó hann hafi enn ekki aflað sér fullra réttinda til þess. 22.11.2006 18:25
Mikil pressa á Eiði Smára í kvöld Útlit er fyrir að pressan sé mikil á Eið Smára Guðjohnsen hjá Barcelona í kvöld þegar liðið sækir Levski Sofia í Búlgaríu í Meistaradeildinni. Barcelona þarf nauðsynlega á sigri að halda og á heimasíðu félagsins í dag stendur að liðið muni treysta á að íslenski framherjinn sýni aðra eins frammistöðu og þegar hann skoraði tvö mörk gegn Mallorca í spænsku deildinni á dögunum. 22.11.2006 18:15
Njarðvíkingar mæta Tartu Rock í kvöld Karlalið Njarðvíkinga og kvennalið Hauka verða í eldlínunni í Evrópukeppninni í körfubolta í kvöld. Njarðvíkingar taka á móti eistneska liðinu Rartu Rock klukkan 19:15 í íþróttahúsinu í Keflavík, en Haukaliðið mætir sterku liði Parma frá Ítalíu á útivelli. 22.11.2006 17:18
Kennum okkur sjálfum um tapið Ryan Giggs, leikmaður Manchester United, segir að tap liðsins gegn Celtic í Meistaradeildinni í gærkvöld sé engum öðrum að kenna en leikmönnunum sjálfum, sem hafi fengið á baukinn fyrir að nýta ekki færin sín. Hann hefur ekki stórar áhyggjur af því að mæta Benfica í lokaleiknum í riðlakeppninni. 22.11.2006 17:10
Aðgerðin á Ameobi heppnaðist vel Forráðamenn Newcastle hafa gefið það út að sóknarmaðurinn Shola Ameobi hafi nú lokið við aðgerð vegna meiðsla á mjöðm og hafi hún heppnast með miklum ágætum. Aðgerðin var framkvæmd í Colorado fylki í Bandaríkjunum, en þar á bæ eru menn ekki óvanir því að eiga við meidda leikmenn Newcastle. 22.11.2006 17:06
Ísland upp um tvö sæti Í morgun var birtur nýr styrkleikalisti Alþjóða Knattspyrnusambandsins FIFA en þar hefur íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu hækkað sig um tvö sæti síðan síðasti listi var gefinn út og situr í 93. sæti. Brasilía er sem fyrr í efsta sæti listans, heimsmeistarar Ítalíu í öðru og Argentínumenn í því þriðja. 22.11.2006 17:02
Benitez vill hirða toppsætið Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur lagt ríka áherslu á það við leikmenn sína að reyna að ná toppsætinu í C-riðli Meistaradeildarinnar í undirbúningi liðsins fyrir leikinn við PSV á Anfield í kvöld. 22.11.2006 16:56
Þrír leikir í beinni á Sýn í kvöld Keppni í Meistaradeild Evrópu heldur áfram með miklum látum í kvöld og sjónvarpsstöðvar Sýnar verða með þrjá leiki í beinni útsendingu. Leikur Werder Bremen og Chelsea verður í beinni á Sýn klukkan 19:30, Liverpool - PSV verður í beinni á Sýn Extra og Levski - Barcelona verður í beinni á Sýn Extra 2 á sama tíma. 22.11.2006 15:04
Schumacher hefur ekki áhyggjur af framtíðinni Ævisaga Michael Schumacher kemur í bókahillur á næstu dögum og ber einfaldlega heitið "Schumacher". Sjöfaldur heimsmeistarinn segist ekki óttast aðgerðaleysi í framtíðinni þó hann sé hættur að keppa og flestir reikna með að hann setjist við hlið Jean Todt hjá Ferrari og sinni starfi ráðgjafa liðsins. 22.11.2006 14:57
Myndavélar verða notaðar á næsta ári Sepp Blatter, forseti FIFA, gaf það út í gær að notast verði við myndavélar til að skera úr um það hvort boltinn fer inn fyrir marklínu í heimsmeistarakeppni félagsliða á næsta ári. Til stóð að nota slíkan búnað á HM í sumar en hætt var við það eftir að búnaðurinn þótti ekki nógu langt kominn. Nú hefur hinsvegar verið ákveðið að reyna hann frekar og stefnt er á að koma þessari tækni inn á öll stórmót í nánustu framtíð. 22.11.2006 14:52
Joey Barton hefur ekki áhyggjur af landsliðinu Miðjumaðurinn skrautlegi Joey Barton hjá Manchester City segist ekki hafa stórar áhyggjur af því þó hann hljóti ekki náð fyrir augum Steve McClaren hjá enska landsliðinu og segist heldur vilja vinna titla með liði City. 22.11.2006 14:45
Gamlir refir íhuga að hætta Ítalska dagblaðið Gazzetta dello Sport greinir frá því í dag að einhver skörð verði væntanlega höggvin í stórlið AC Milan í vor, því þeir Paolo Maldini og Alessandro Corstacurta hallist að því að leggja skóna á hilluna. Þá er einnig reiknað með því að brasilíski bakvörðurinn Cafu sé að spila sína síðustu leiktíð með liðinu. 22.11.2006 14:40
Roy Carroll í meðferð Markvörðurinn Roy Carroll hjá West Ham er að sögn bresku blaðanna að ljúka meðferð við áfengis- og spilafíkn. Carroll hefur verið frá keppni um nokkurt skeið vegna þessa, en félagið fékk markvörðinn Gabor Kiraly til liðs við sig í nokkrar vikur til að fylla skarð hans. 22.11.2006 14:38
Vissi að Saha næði ekki að skora Neil Lennon, fyrirliði Glasgow Celtic, hefur gefið það upp að Gary Neville hjá Manchester United hafi komið til sín skömmu áður en Louis Saha tók vítaspyrnuna á lokamínútum leiks liðanna í Meistaradeildinni í gær og sagt sér að Saha myndi ekki skora úr henni. 22.11.2006 14:30
Anton Ferdinand ákærður fyrir líkamsárás Varnarmaðurinn Anton Ferdinand hjá enska úrvalsdeildarliðinu West Ham hefur verið kærður fyrir líkamsárás á næturklúbbi í London í síðasta mánuði. Breska sjónvarpið greinir frá þessu í dag. 22.11.2006 14:27
Akureyri og Fram mætast í 8-liða úrslitunum Í dag var dregið í 8-liða úrslit SS-bikarsins í handbolta í karla- og kvennaflokki. Í karlaflokki er aðeins einn úrvalsdeildarslagur þar sem Akureyri tekur á móti Íslandsmeisturum Fram. Stórleikurinn í kvennaflokki er án efa viðureign Hauka og Stjörnunnar. 22.11.2006 14:15