Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Everton valtaði yfir Liverpool Rauðklæddu gestirnir úr Liverpool áttu aldrei möguleika gegn frískum leikmönnum Everton í hádegisleik enska boltans. Lokatölur urðu 3-0, Everton í vil. 9.9.2006 14:00
Arnór byrjar vel Arnór Atlason var markahæstur með sjö mörk og þótti besti maður vallarins þegar lið hans FCK bar sigurorð af Lemvig í opnunarleik dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta í gærkvöldi. 9.9.2006 13:30
Vill að Sanchez verði áfram David Healy, sóknarmaður Norður-Írska landsliðsins í fótbolta, hefur beðið Lawrie Sanchez, þjálfara liðsins, um að halda áfram með liðið út undankeppni EM. Eins og kunnugt er var Sanchez ekki ánægður með fjölmiðla í landi sínu eftir að íslenska landsliðið gjörsigraði liðið ytra í síðustu viku. 9.9.2006 13:00
Hannes líklega í byrjunarliðinu Hannes Þ. Sigurðsson, landsliðsmaðurinn sem var skilinn eftir utan hóps vegna þreytu í leiknum í Danmörku, verður líklega í byrjunarliði Bröndby gegn toppliði Aab í viðureign liðanna í dönsku úrvalsdeildinni í dag. 9.9.2006 13:00
2-0 fyrir Everton í hálfleik Mörk frá Andy Johnson og Tim Cahill hafa tryggt Everton tveggja marka forystu þegar flautað hefur verið til hálfleiks á Goodison Park í viðureign Everton og Liverpool. 9.9.2006 12:37
Gasol frá keppni í fjóra mánuði Spænski framherjinn Paul Gasol verður á hliðarlínunni næstu fjóra mánuðina eftir að hafa gengist undir aðgerð á vinstri fæti. Þetta er mikið áfall fyrir lið Memphis Grizzlies í NBA þar sem Gasol er lykilmaður liðsins. 9.9.2006 12:09
Risaslagur í úrslitum VISA-bikarsins Valur og Breiðablik mætast í dag í úrslitaleik VISA-bikars kvenna í knattspyrnu. Liðin hafa haft þó nokkra yfirburði í Landsbankadeildinni í sumar og bæði liðin hafa unnið bikarinn níu sinnum í gegnum tíðina. 9.9.2006 11:45
Fowler og Crouch í fremstu víglínu Það eru þeir Robbie Fowler og Peter Crouch sem skipa sóknarlínu Liverpool í stórleik enska boltans í dag en verið var að flauta til leiks á Goodison Park rétt í þessu. Dirk Kuyt er á bekknum en Craig Bellamy er ekki í hópnum. 9.9.2006 11:39
HK getur tryggt úrvalsdeildarsætið Tólf þýðingarmiklir leikir fara fram í neðri deildum karla í dag. HK getur tryggt sér úrvalsdeildarsæti ásamt því að leikurinn um þriðja sæti 3. deildarinnar er nú í fyrsta sinn spennuhlaðin viðureign. 9.9.2006 11:15
Vettel fljótastur á æfingu í gær Hinn nítján ára gamli Þjóðverji Sebastian Vettel, á BMW, átti besta tíma allra ökumanna á æfingu í gær fyrir fomúlukeppnina á Monza sem fram fer í dag. 9.9.2006 11:00
Nýtt mútuhneyksli væntanlegt hjá enskum úrvalsdeildarfélögum The Sun greinir frá því í gær að BBC, breska ríkissjónvarpið, muni á næstunni sýna heimildarmynd sem muni sýna að mútugreiðslur séu algengar hjá félögum í ensku úrvalsdeildinni. 9.9.2006 11:00
Wayne Rooney á að hafa kýlt Michael Gray á veitingastað Á laugardaginn síðasta fór Wayne Rooney út að borða með unnustu sinni, Coleen McLoughlin, og þremur öðrum pörum. Þetta væri svo sem ekki í frásögur færandi nema fyrir að það að Michael Gray, leikmaður Blackburn, vatt sér upp að borðinu þeirra, undir áhrifum áfengis og byrjaði að móðga kvenfólkið sem þar var. Þetta á að hafa endað með því að Rooney kýldi Gray með þeim afleiðingum að Gray fékk glóðurauga. 9.9.2006 10:00
Ætlar sér sigur gegn Tottenham í dag Miðjumaðurinn Michael Carrick spilar í fyrsta sinn á sínum nýja heimavelli, Old Trafford, þegar Man. Utd mætir hans gamla félagi Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Carrick kveðst ekki ætla að taka létt á sínum fyrrum félögum. 9.9.2006 10:00
Baptista verður magnaður Varnarmaðurinn Jonathan Woodgate, sem kom á láni til Middlesbrough frá Real Madrid rétt áður en félagsskiptaglugginn lokaðist fyrir skemmstu, spáir Julio Baptista hjá Arsenal glæstri framtíð í enska boltanum. 9.9.2006 09:45
Njarðvík spilar heimaleikina í Keflavík Sú skondna staða er komin upp að Njarðvík mun leika heimaleiki sína í Evrópukeppninni á heimavelli erkifjendanna í Keflavík. Körfuknattleikssamband Evrópu neitaði að samþykkja litlu ljónagryfjuna í Njarðvík sem völl fyrir Evrópukeppni og því varð Njarðvík að kyngja stoltinu og sætta sig við að spila hjá "stóra" bróður. 9.9.2006 06:45
Tippaði á sigur Dana á norsku Lengjunni Danski knattspyrnumaðurinn Allan Borgvardt sleit fyrir skömmu krossbönd í hné og verður frá næstu 6-8 mánuðina. Hann lék með FH í þrjú ár og var tvívegis kjörinn knattspyrnumaður ársins. Í fyrra fór hann til Noregs og samdi við 1. deildarliðið Bryne, þar sem hann hefur slegið í gegn og er markahæsti leikmaður liðsins með níu mörk. 9.9.2006 06:00
Æfir með Malmö í viku Þórhildur Stefánsdóttir, fimmtán ára leikmaður með HK, mun síðar í mánuðinum halda til Svíþjóðar þar sem hún mun æfa með unglingaliði Malmö í eina viku en aðallið félagsins leikur í sænsku úrvalsdeildinni. 9.9.2006 00:01
Akureyri - handboltafélag prófar Litháa Í gær kom til Akureyrar litháíska skyttan Dmitrij Afanasjev en hann mun vera til reynslu hjá félaginu næstu daga og einnig mun hann leika með liðinu á Sjallamótinu um helgina. Afanasjev er 22 ára gamall og er örvhent skytta. Hann er rúmir 190 sentimetrar á hæð. Hann skoraði rúmlega fimm mörk í leik í litháísku deildinni síðasta vetur og kom ekkert þeirra af vítalínunni. Lið hans endaði í fjórða sæti deildarinnar. 9.9.2006 00:01
Ledley King kominn aftur í lið Tottenham Enski landsliðsmaðurinn Ledley King verður hugsanlega í byrjunarliði Tottenham sem sækir Manchester United heim í ensku úrvalsdeildinni á morgun, en King hefur verið lengi frá vegna uppskurðar. Dimitar Berbatov er þó mjög tæpur fyrir leikinn og svo gæti farið að egypski framherjinn Mido taki sæti hans í byrjunarliðinu. Manchester United hefur verið á miklu flugi í upphafi leiktíðar, á meðan Tottenham hefur byrjað afleitlega. 8.9.2006 22:00
Boltaveisla á Sýn um helgina Það verður mikið um að vera í íþróttalífinu hér heima sem og erlendis um helgina. Af innlendum vettvangi má nefna að úrslit fara langt með að ráðast í fyrstu- og Landsbankadeild karla í knattspyrnu og þá fer sjálfur bikarúrslitaleikurinn í kvennaflokki fram á morgun. Þá fer allt á fullt í spænska- og enska boltanum um helgina. 8.9.2006 21:30
Ósáttur við að fá ekki að spila úrslitaleikinn Jose Antonio Reyes segir að það hafi verið dropinn sem fyllti mælinn fyrir sig hjá Arsenal þegar hann fékk ekki að koma við sögu í úrslitaleik meistaradeildarinnar í vor, en Spánverjinn tjáði sig um brotthvarf sitt frá enska liðinu þegar hann var kynntur til sögu á blaðamannafundi hjá Real Madrid í dag. 8.9.2006 21:30
Sanchez ætlar að halda áfram Talsmaður írska knattspyrnusambandsins hefur staðfest við breska sjónvarpið að Lawrie Sanchez, landsliðsþjálfari Norður-Íra, ætli að halda áfram í starfi. Mikil óvissa hefur ríkt um framtíð hans síðan eftir sigurinn á Spánverjum á miðvikudag, en hann setti sig í fyrsta skipti í samband við knattspyrnusambandið í dag og er sagður ætla að halda áfram þrátt fyrir allt. 8.9.2006 20:45
Holyfield aftur í hringinn í nóvember Gamla brýnið Evander Holyfield er nú á fullu við að fullkomna enn eina endurkomuna í hnefaleikahringinn. Hann vann á dögunum auðveldan sigur í sínum fyrsta bardaga í langan tíma og hefur nú ákveðið að mæta Fres Oquendo frá Portó Ríkó næst þann tíunda nóvember næstkomandi. Holyfield stefnir á að vinna sinn fimmta heimsmeistaratitil á ferlinum, en það hefur engum boxara tekist áður. 8.9.2006 20:00
Njarðvíkingar leika í Sláturhúsinu Njarðvíkingar fengu ekki leyfi hjá Körfuknattleikssambandi Evrópu til þess að leika heimaleiki sína í Evrópukeppninni í vetur í ljónagryfjunni í Njarðvík. Þess í stað þurfa þeir að leika heimaleikina í Sláturhúsinu, heimavelli erkifjendanna í Keflavík. Þorsteinn Gunnarsson greindi frá þessu í íþróttafréttum á NFS í kvöld. 8.9.2006 19:07
Raikkönen fer til Ferrari Flavio Briatore segist vera búinn að gefast upp á að reyna að fá finnska ökuþórinn Kimi Raikkönen til Renault-liðsins, því hann sé þegar búinn að gera munnlegt samkomulag um að ganga í raðir Ferrari og segir að þar verði hann eftirmaður Michael Schumacher á næsta tímabili því Þjóðverjinn muni tilkynna að hann sé hættur um helgina. 8.9.2006 18:40
Ferguson og Giggs bestir Sir Alex Ferguson og Ryan Giggs hjá Manchester United voru í dag útnefndir knattspyrnustjóri og leikmaður mánaðarins í ensku úrvalsdeildinni. Manchester United hefur byrjað allra liða best í deildinni og því kemur þessi niðurstaða ekki sérlega á óvart. Þrátt fyrir að Ryan Giggs hafi spilað yfir 600 leiki í úrvalsdeildinni og verið einn besti leikmaður síðasta áratugar, er þetta merkilegt nokk í fyrsta sinn sem hann hlýtur þessi verðlaun. 8.9.2006 16:58
Alltaf erfitt að mæta Liverpool David Moyes segir sína menn í Everton vera tilbúna í slaginn fyrir grannaslaginn við Liverpool á Goodison Park á hádegi á morgun, en jafnan er heitt í kolunum þegar þessir erkifjendur frá Liverpool borg eigast við á knattspyrnuvellinum. 8.9.2006 16:04
Wenger jákvæður í garð Cole Arsene Wenger virðist ekki hafa neitt nema gott að segja um Ashley Cole, fyrrum leikmann Arsenal, sem nýverið gekk í raðir Chelsea í skiptum fyrir William Gallas. Wenger vill ekki líkja þeim Cole og Gallas saman, en segir bæði félögin og leikmennina hafa grætt á skiptunum. 8.9.2006 15:53
Vildi frekar halda Carrick en að græða peninga Martin Jol og félagar í Tottenham hafa verið gagnrýndir nokkuð fyrir að selja landsliðsmanninn Michael Carrick í ljósi lélegrar byrjunar liðsins á fyrstu vikum ensku úrvalsdeildarinnar. Jol segist hinsvegar ekkert hafa geta gert í máli Carrick, því leikmaðurinn hefði viljað fara nær heimaslóðum sínum til Manchester United. 8.9.2006 15:41
Schumacher fljótastur á æfingum Michael Schumacher hafði í dag gríðarlega yfirburði aðalökuþóra á æfingum fyrir Ítalíukappaksturinn sem fram fer á Monza brautinni á sunnudag, en hann var með 1,7 sekúndum betri tíma en keppinautur sinn Fernando Alonso. Ferrari bílarnir komu mjög vel út úr æfingunum í dag og því er ljóst að þeir verða illsigraðir á heimavelli sínum um helgina ef að líkum lætur. 8.9.2006 14:30
Henchoz aftur til Blackburn Enska úrvalsdeildarfélagið Blackburn hefur samið við svissneska varnarmanninn Stephane Henchoz út leiktíðina, en hann var með lausa samninga eftir að hafa verið látinn fara frá Wigan. Henchoz er 32 ára gamall og spilaði með Blackburn í tvö ár frá árinu 1997. Hann hefur þar fyrir utan spilað með Liverpool og Celtic í Skotlandi. 8.9.2006 14:00
Dæmdur í eins leiks bann Steve Staunton hefur verið dæmdur í eins leiks bann fyrir að missa stjórn á skapi sínu í fyrsta alvöru leik sínum með írska landsliðsins á dögunum, en dómarinn rak hann upp í stúku á leik Íra og Þjóðverja. Staunton þarf því að sitja meðal áhorfenda þegar Írar mæta Kýpur í undankeppni EM í október. 8.9.2006 13:45
Framlengir við Milan til 2011 Ítalski landsliðsmaðurinn Andrea Pirlo hjá AC Milan hefur framlengt samning sinn við félagið til ársins 2011. Gamli samningurinn hans náði til ársins 2008, en greinilegt er að félagið vill ekki missa þennan öfluga miðjumann úr röðum sínum. Þá framlengdi Georgíumaðurinn Kakha Kaladze einnig samning sinn við Milan á dögunum og hefur hann sömuleiðis bundið sig til ársins 2011. 8.9.2006 13:16
Liverpool fær grænt ljós á nýjan leikvang Enska úrvalsdeildarfélagið Liverpool hefur nú fengið grænt ljós frá borgaryfirvöldum til að byggja nýjan knattspyrnuleikvang sem taka mun 60.000 manns í sæti. Félagið hefur gert 999 ára leigusamning á lóð við Stanley Park, sem er steinsnar frá Anfield Road þar sem núverandi leikvangur félagsins er staðsettur. 8.9.2006 13:05
Rooney lenti í ryskingum við leikmann Blackburn Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að skaphundurinn Wayne Rooney hjá Manchester United hafi lent í ryskingum við Michael Gray, leikmann Blackburn, á veitingastað í Manchester um helgina. 8.9.2006 12:51
Ekki dæma mig á mörkunum Frank Lampard, leikmaður Chelsea og enska landsliðsins, segist vera orðinn leiður á því að frammistaða sín með enska landsliðinu sé endalaust dæmd á því hve mörg mörk hann skori. 7.9.2006 22:00
Schumacher verður með fulla einbeitingu Heimsmeistarinn Fernando Alonso hjá Renault segir að Michael Schumacher verði með 100% einbeitingu í Ítalíukappakstrinum á Monza á sunnudaginn, þó tilkynnt verði eftir keppnina hverjir ökumenn Ferrari verði á næsta keppnistímabili - en þá kemur formlega í ljós hvort hinn sigursæli Þjóðverji leggur stýrið á hilluna eða heldur áfram að keppa á næsta tímabili. 7.9.2006 21:30
Auglýsingar á búningi Barcelona í fyrsta sinn Spænska knattspyrnustórveldið Barcelona mun í fyrsta skipti í sögunni bera auglýsingar framan á búningum sínum á þriðjudagskvöldið þegar liðið mætir Levski Sofia í meistaradeildinni. Hér er þó ekki um hefðbundna auglýsingu að ræða, heldur ber liðið merki barnahjálpar sameinuðuþjóðanna. Forseti Barcelona mun á morgun undirrita sérstakan styrktarsamning við samtökin og talið er að spænska félagið muni láta um 1,5 milljónir evra af hendi rakna til styrktar þessu góða málefni. 7.9.2006 20:45
Sanchez heldur vonandi áfram Forseti írska knattspyrnusambandsins segist vonast til þess að Lawrie Sanchez verði áfram landsliðsþjálfari Norður-Íra, en margt þykir benda til þess að hann hafi sagt starfi sínu lausu eftir sigurinn á Spánverjum í gær. Í kvöld verður sérstakur fundur haldinn hjá sambandinu þar sem endanlega kemur í ljós hvort Sanchez heldur áfram eða ekki. 7.9.2006 19:30
Spánverjar gerðu sig að fíflum Spænskir fjölmiðlar fóru ekki fögrum orðum um landsliðsþjálfarann Luis Aragones eftir tapið í Belfast í gær frekar en búast mátti við og segja fjölmiðlar að hann hafi orðið landi og þjóð til skammar með því að tapa leiknum og ætti að sjá sóma sinn í því að segja af sér tafarlaust. 7.9.2006 19:30
Klitschko mætir Calvin Brock í nóvember IBF heimsmeistarinn í þungavigt, Wladimir Klitschko, mun mæta Bandaríkjamanninum Calvin Brock í titilbardaga þann 11. nóvember næstkomandi. Brock þessi er 31 árs gamall og hefur keppt 29 sinnum á ferlinum. Hann hefur unnið 22 þeirra á rothöggi og þetta er í fyrsta skipti sem hann fær að berjast um titil. Klitschko hefur unnið 46 sigra í 49 bardögum. 7.9.2006 18:30
Elísabet framlengir við Val Knattspyrnudeild Vals gekk í gærkvöld frá nýjum þriggja ára samningi við Elísabetu Gunnarsdóttur, þjálfara kvennaliðs félagsins sem tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn á dögunum. Elísabet mun einnig gegna starfi yfirþjálfara hjá yngri kvennaflokkum félagsins. Þetta kemur fram á heimasíðu Vals í dag. 7.9.2006 17:30
Tevez vill feta í fótspor landa sinna Argentínski framherjinn Carlos Tevez, sem nýverið gekk í raðir West Ham, segist ólmur vilja feta í fótspor landa sinna Ossie Ardiles og Ricardo Villa sem gerðu garðinn frægan með liði Tottenham fyrir um 30 árum síðan og ruddu leiðina fyrir útlendinga í ensku knattspyrnunni. 7.9.2006 16:45
Ætlar að ljúka ferlinum með Ciudad Landsliðsmaðurinn Ólafur Stefánsson hefur gert munnlegt samkomulag við spænska stórliðið Ciudad Real um að framlengja samning sinn um tvö ár við félagið og ætlar því væntanlega að ljúka atvinnumannsferli sínum með liðinu. Ólafur er 33 ára gamall og er almennt álitinn sterkasta örvhenta skytta heimsins í dag. 7.9.2006 16:26
Ætlar að gefa Essien hárlokk Ítalski framherjinn Bernardo Corradi hjá Manchester City segist ætla að gefa Michael Essien hjá Chelsea lokk úr hárinu á sér þegar liðin mætast í úrvalsdeildinni á ný eftir áramótin. Corradi var rekinn af leikvelli í sínum fyrsta leik með City í tapi gegn Chelsea og þá greip Essien í hárið á honum þegar hann gekk af velli. Ítalinn ætlar því að gefa Essien hárlokk og símanúmerið hjá rakaranum sínum þegar þeir mætast á ný. 7.9.2006 16:02