Fleiri fréttir

Ég er tilbúinn að spila gegn Spurs

Enski framherjinn Alan Smith hjá Manchester United segist vera tilbúinn að koma inn sem varamaður með liðinu þegar það tekur á móti Tottenham í ensku úrvalsdeildinni á laugardaginn, en Smith hefur verið frá keppni í sjö mánuði eftir að hafa fótbrotnað illa í leik gegn Liverpool á síðustu leiktíð.

Ferguson stakk mig í bakið

Hollenski framherjinn Ruud Van Nistelrooy hjá Real Madrid segir að Sir Alex Ferguson hjá Manchester United hafi stungið sig í bakið þegar hann ákvað að tefla honum ekki fram í úrslitaleik deildarbikarsins í vor.

Frá í tvo mánuði eftir aðgerð

Franski miðjumaðurinn Steed Malbranque, sem nýverið gekk í raðir Tottenham, verður frá keppni í að minnsta kosti tvo mánuði eftir að hafa gengist undir aðgerð vegna kviðslits. Þá þykir ljóst að búlgarski framherjinn Dimitar Berbatov muni missa af leik Tottenham og Manchester United um helgina vegna nárameiðsla.

Sanchez hættur með Norður-Íra?

Breskir fjölmiðlar greina frá því í dag að hugsanlega hafi Lawrie Sanches stýrt landsliði Norður-Íra í síðasta sinn í gær þegar liðið vann dramatískan sigur á Spánverjum á heimavelli sínum. Talið er að Sanchez hafi íhugað að segja af sér eftir tapið gegn Íslendingum um síðustu helgi, en hann talaði ekki við blaðamenn eftir leikinn í gær, heldur henti jakka sínum og bindi upp í áhorfendastæðin og yfirgaf svæðið.

Keisarinn er ekki bjartsýnn

Franz Beckenbauer, forseti Bayern Munchen, er ekki bjartsýnn á að liðið nái góðum árangri í Meistaradeild Evrópu í vetur. Félagið hefur misst bæði Michael Ballack og Ze Roberto en fengið Mark van Bommel, Lukas Podolski og Daniel van Buyten til liðsins í þeirra stað.

Við bara frusum eins og hvolpar

Keppnismaðurinn Hlynur Bæringsson var afar ósáttur við tap íslenska landsliðsin í körfubolta gegn Finnum í B-deild Evrópukeppninnar í kvöld. Hann segir að þó vissulega sé finnska liðið sterkt, hafi íslenska liðið verið allt of lint í síðari hálfleiknum og því hafi Finnarnir gengið á lagið.

Boxar fyrir smáaura upp í skuldir

Fyrrum heimsmeistarinn í þungavigt, járnkarlinn Mike Tyson, er um þessar mundir að vinna hjá einu af spilavítunum í Las Vegas. Þar boxar Tyson við gesti og gangandi sem vilja fá að bera goðsögnina augum, en hann er nú að reyna sitt besta til að greiða skuldir sínar við skattayfirvöld í Bandaríkjunum.

Tap fyrir Finnum

Íslenska landsliðið í körfubolta tapaði fyrir Finnum í kvöld 93-86 í leik liðanna í B-deild Evrópumótsins. Íslenska liðið hafði forystu framan af leik og var 11 stigum yfir í hálfleik, en sterkt lið Finna með Hanno Mottola í fararbroddi, náði að komasti yfir og vann að lokum nokkuð öruggan sigur.

Frábær sigur hjá Gummersbach

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach eru enn taplausir í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik eftir frækinn útisigur á Kiel í kvöld 39-37, eftir að hafa verið undir 24-20 í hálfleik. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði átta mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson eitt, en þetta var fyrsta tap Kiel á heimavelli í nær þrjú ár.

Frakkar náðu fram hefndum

Frakkar náðu í kvöld fram hefndum frá úrslitaleiknum á HM fyrir tveimur mánuðum, þegar þeir lögðu Ítala 3-1 á heimavelli í undankeppni EM. Sidney Govou skoraði tvö mörk Frakka og Thierry Henry eitt, en Alberto Gilardino svaraði fyrir Ítala og ekki hægt að segja að byrjunin sé glæsileg hjá Roberto Donadoni landsliðsþjálfara.

Finnar yfir eftir þrjá leikhluta

Finnar hafa komist yfir í Evrópuleiknum gegn Íslendingum í Laugardalshöllinni og hafa 71-67 forystu þegar fjórði og síðasti leikhlutinn er að hefjast. Brenton Birmingham er stigahæstur í íslenska liðinu með 17 stig.

Þjóverjar niðurlægðu San Marino

Þjóðverjar hreint út sagt niðurlægðu smálið San Marino í undankeppni EM í kvöld og sigruðu 13-0 á útivelli. Lukas Podolski skoraði fjögur mörk í leiknum, Miroslav Klose, Bastian Schweinsteiger og Thomas Hitzlsperger skoruðu tvö hver og þeir Michael Ballack, Arne Friedrich og Bernd Schneider gerðu eitt mark hver.

Frækinn sigur Norður-Íra

Norður-Írar virðast hafa jafnað sig eftir áfallið á heimavelli gegn Íslendingum um síðustu helgi, en liðið skellti Spánverjum 3-2 í undankeppni EM í Belfast í kvöld. David Healy skoraði þrennu fyrir írska liðið, en þeir Xavi og David Villa skoruðu mörk Spánverja.

Ísland yfir í hálfleik

Íslenska karlalandsliðið í körfubolta hefur yfir 57-46 gegn Finnum þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign þjóðanna í B-deild Evrópumótsins í körfuknattleik. Brenton Birmingham er stigahæstur í íslenska liðinu með 16 stig, Logi Gunnarsson er með 10 stig, Hlynur Bæringsson 9 stig og 7 fráköst og Páll Axel Vilbergsson hefur skorað 8 stig. Leikurinn er bráðfjörugur og spilast undir föstum takti Pumasveitarinnar frá Keflavík.

Crouch bjargaði Englendingum

Peter Crouch skoraði eina mark leiksins þegar Englendingar lögðu Makedóna 1-0 á útivelli í undankeppni EM í kvöld. Crouch hefur verið sjóðandi heitur upp á síðkastið, en þó enska liðið hafi vissulega fengið fleiri færi til að skora í kvöld, hefðu heimamenn að sama skapi geta tryggt sér stig með smá heppni. Englendingar eru því enn með fullt hús stiga eftir tvo leiki í riðlakeppninni.

Góð byrjun Íslendinga gegn Finnum

Íslenska landsliðið í körfubolta byrjar vel gegn Finnum í viðureign þjóðanna í B-deild Evrópukeppninnar. Ísland hefur yfir 31-21 eftir fyrsta leikhlutann, þar sem Brenton Birmingham hefur skorað 9 stig fyrir íslenska liðið og þeir Logi Gunnarsson go Páll Axl Vilbergsson 8 hvor. Leikurinn fer fram í Laugardalshöll, þar sem trommusveit Keflvíkinga fer fremst í flokki við að hvetja íslenska liðið.

Danir númeri of stórir

Íslenska landsliðið í knattspyrnu þurfti að sætta sig við 2-0 tap fyrir Dönum á Laugardalsvelli í kvöld í undankeppni EM. Danska liðið hafði sterk tök á leiknum frá upphafi og eftir að þeir Dennis Rommendahl og Jon Dahl Tomasson höfðu komið liðinu í 2-0 eftir rúman hálftíma, var sigur Dana aldrei í hættu.

Danir leiða í hálfleik

Nú er búið að flauta til leikhlés í viðureign Íslendinga og Dana á Laugardalsvelli í undankeppni EM í knattspyrnu. Skemmst er frá því að segja að Danir hafa verið miklu betri í fyrri hálfleiknum og leiða verðskuldað 2-0. Það voru Dennis Rommendahl og Jon Dahl Tomasson sem skoruðu mörk danska liðsins á 5. og 33. mínútu.

2-0 fyrir Dani

Danir eru komnir í 2-0 gegn Íslendingum eftir 33 mínútur á Laugardalsvelli. Það var Jon Dahl Tomasson sem skoraði markið eftir snarpa skyndisókn danska liðsins, en skömmu áður hafði Eiður Smári Guðjohnsen fengið dauðafæri á hinum enda vallarins.

Danir komnir yfir

Það tók Dani ekki nema um fimm mínútur að ná forystu gegn Íslendingum í leik liðanna í undankeppni EM á Laugardalsvelli. Það var Dennis Rommendahl sem skoraði mark Dana eftir að hafa fengið langa sendingu inn fyrir íslensku vörnina. Nokkur rangstöðufnykur var af markinu, en línuvörðurinn sá ekki ástæðu til að flagga.

Lokaútkall á Ísland - Finnland

Rétt er að minna enn og aftur á landsleik Íslendinga og Finna í körfubolta sem fram fer í Laugardalshöllinni í kvöld klukkan 20:30 og hefst hann svo að segja um leið og leik Dana og Íslendinga í knattspyrnunni lýkur. Finnska liðið er mjög sterkt og því er rétt að hvetja alla sem vettlingi geta valdið til að mæta í Höllina og styðja við bakið á íslensku strákunum.

Tveir stórleikir í beinni í kvöld

Það verða tveir frábærir leikir í beinni útsendingu á Sýn og Sýn Extra í undankeppni EM í kvöld. Á Sýn verður stórleikur liðanna sem mættust í úrslitaleik HM fyrir tveimur mánuðum þegar Frakkar og Ítalir mætast í París og þá verður leikur Makedóna og Englendinga í beinni á Sýn Extra. Leikirnir hefjast klukkan 18.

Hef lært mikið af Jose Mourinho

John Terry, fyrirliði Chelsea og enska landsliðsins, segir að Jose Mourinho hafi kennt sér mikið um það að vera fyrirliði þann tíma sem hann hefur verið hjá Chelsea og þessir hlutir hafi komið sér vel eftir að hann tók við fyrirliðabandinu hjá enska liðinu.

Hjálmar í byrjunarliðið

Eyjólfur Sverrisson hefur gert eina breytingu á byrjunarliði sínu fyrir leikinn gegn Dönum í undankeppni EM á Laugardalsvelli í kvöld, en hann hefur kallað Hjálmar Jónsson inn í liðið í stað Hannesar Þ Sigurðssonar. Annars er byrjunarliðið það sama og lagði Norður-Íra um helgina.

Væri kominn með landsleik ef ég spilaði fyrir stórlið

Kevin Nolan segist viss um að sú staðreynd að hann spili með smáliði Bolton hafi hindrað að hann fái tækifæri til að spreyta sig með enska landsliðinu. Nolan hefur oft verið rómaður fyrir frammistöðu sína með Bolton, en hann segist viss um ef hann spilaði með Liverpool eða Manchester United, hefði hann fengið að spila landsleik fyrir löngu.

300 aukamiðar til sölu á miði.is

Knattspyrnusamband Íslands hefur nú boðið 300 aukamiða til sölu á leik Íslands og Danmerkur í undankeppni EM sem hefst klukkan 18:05 í kvöld og þar er á ferðinni kjörið tækifæri fyrir þá sem enn hafa ekki náð að tryggja sér miða á þennan stórleik. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.

Thuram býður heimilislausum á völlinn

Franski landsliðsmaðurinn Lilian Thuram hefur valdið nokkru fjaðrafoki í heimalandi sínu með því að bjóða 80 heimilislausum innflytjendum á leik Frakka og Ítala í París í kvöld, en leikurinn verður sýndur beint á Sýn og leikur Makedóníu og Englands verður sýndur beint á Sýn Extra klukkan 20.

Aaron Lennon bankar á dyrnar

Steve McClaren hefur aðvarað byrjunarliðsmenn enska landsliðsins og segir að Aaron Lennon geri kröfur á að fá sæti í byrjunarliðinu með frábærum innkomum sínum í leiki liðsins. Lennon lagði upp mark gegn Andorra um helgina og McClaren segir bindur miklar vonir við þennan unga leikmann.

Tiger Woods kylfingur ársins hjá PGA

Sigur Tiger Woods á Deutsche Bank mótinu um helgina tryggði það að hann vann sér nafnbótina kylfingur ársins á PGA enn eitt árið, en titilinn hlýtur sá kylfingur sem rakað hefur inn flestum stigum á mótum ársins. Þetta er í áttunda skipti á tíu árum Woods á mótaröðinni sem hann vinnur stigatitilinn, en aðeins þeir Mark O'Meara árið 1998 og Vijay Singh árið 2004 hafa náð að skáka snillingnum á þeim tíma.

Lisa Leslie verðmætasti leikmaðurinn

Lisa Leslie var á sunnudag valin verðmætasti leikmaðurinn í amerísku kvennadeildinni í körfubolta í þriðja sinn á ferlinum. Leslie leikur með Los Angeles Sparks og var þetta í þriðja sinn á ferlinum sem hún vinnur þessi verðlaun, en aðeins Sheryl Swoopes hjá Houston Comets hefur unnið verðlaunin jafn oft. Leslie skoraði 20 stig að meðaltali í leik í sumar og leiddi deildina í stigum og fráköstum.

Ég gæti notað mann eins og Giggs

Dunga, landsliðsþjálfari Brasilíu, var mjög hrifinn af Ryan Giggs í gærkvöldi þegar Brassar lögðu Wales í æfingaleik á White Hart Lane. Brassar höfðu 2-0 sigur, en Dunga þótti Ryan Giggs fara á kostum í þær 45 mínútur sem hann spilaði í gær.

Kovalainen leysir Alonso af hólmi

Keppnislið Renault í Formúlu 1 tilkynnti í dag að finnski ökuþórinn Heikki Kovalainen muni leysa Spánverjann Fernando Alonso af hólmi sem aðalökumaður liðsins á næsta keppnistímabili þegar heimsmeistarinn gengur í raðir McLaren. Giancarlo Fisichella verður áfram ökumaður hjá liðinu, en hann framlengdi samning sinn um eitt ár á dögunum.

Raikkönnen klár í slaginn

Finnski ökuþórinn Kimi Raikkönen hjá McLaren hefur nú gefið það út að hann sé við hestaheilsu og búinn að jafna sig af bakmeiðslum sem höfðu verið að angra hann síðan hann lenti í óhappi í Tyrklandskappakstrinum á dögunum. Raikkönen segist í toppstandi og tilbúinn í Ítalíukappaksturinn á Monza um næstu helgi.

Brassar lögðu Wales

Brasilíumenn lögðu Wales 2-0 í æfingaleik þjóðanna á White Hart Lane í Lundúnum í kvöld, en leikurinn var sýndur beint á Sýn. Junior Marcelo skoraði fyrra mark Brassa á 60. mínútu með þrumuskoti og framherjinn Wagner Love gerði út um leikinn um stundarfjórðungi síðar með laglegu skallamarki.

Jafnt á White Hart Lane í hálfleik

Nú hefur verið flautað til leikhlés í vináttuleik Brasilíumanna og Walesverja sem fram fer á White Hart Lane í Lundúnum. Hvorugu liðinu hefur enn tekist að skora, en mark hefur verið dæmt af Brössum vegna rangstöðu og þá átti Robert Earnshaw dauðafæri fyrir Wales en náði ekki að nýta það. Leikurinn er sýndur beint á Sýn.

Við hlæjum að Chelsea

Raymond Domenech hefur nú komið landsliðsmanninum William Gallas til varnar og segir leikmenn franska landsliðsins hlæja að yfirlýsingu sem enska úrvalsdeildarliðið Chelsea gaf út í gær, þar sem því var haldið fram að Gallas hefði hótað að skora sjálfsmark ef hann yrði látinn spila með liði Chelsea.

Brasilía - Wales að hefjast

Vináttuleikur Brasilíumanna og Walesverja er nú að hefjast í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Leikurinn átti að hefjast klukkan 18:30 en hefur verið seinkað til klukkan 18:45. Leikurinn fer fram á White Hart Lane í Lundúnum, heimavelli Tottenham Hotspur. Byrjunarliðin má sjá hér fyrir neðan.

Ræður sálfræðing til að stappa stálinu í liðið

Steve McClaren hefur ráðið sálfræðing til að stappa stálinu í leikmenn enska landsliðsins. Sálfræðingurinn er fyrrum körfuboltaþjálfari og fyrirlesari og starfaði áður með McClaren hjá Manchester United og Middlesbrough. Honum er ætlað að efla sálrænan styrk enska liðsins, sem frægt er orðið fyrir að missa niður um sig buxurnar á mikilvægum augnablikum - enda hefur liðið til að mynda tapað fimm af sex síðustu vítakeppnum sínum á stórmótum frá árinu 1990.

Stíg aldrei fæti inn í Helsinki framar

Framherjinn Alexei Eremenko segist sjá eftir því að hafa gefið kost á sér í finnska landsliðið, því hann hafi komist að því að undanförnu að hann sé miklu meiri Rússi en hann gerði sér grein fyrir. Eremenko fæddist í Moskvu, en flutti til Finnlands þegar hann var sex ára og gerðist finnskur ríkisborgari. Hann segist aldrei ætla að stíga fæti til Helsinki aftur.

Eyjólfur ætlar að fara varlega

Nú rétt í þessu var að ljúka blaðamannafundi íslenska landsliðsins fyrir leikinn gegn Dönum í undankeppni EM sem fram fer annað kvöld. Fátt var um stórtíðindi á fundinum þar sem þeir Eyjólfur Sverrisson, Eiður Smári Guðjohnsen og Hermann Hreiðarsson sátu fyrir svörum í beinni útsendingu á NFS.

Útskrifaður af spítala

Fyrrum landsliðsmaðurinn Gianluca Pessotto hefur verið útskrifaður af sjúkrahúsi í Tórínó eftir meinta sjálfsvígstilraun hans í júní. Pessotto starfaði sem framkvæmdastjóri Juventus og slasaðist lífshættulega þegar hann stökk út um glugga í höfuðstöðvum liðsins. Ítalska blaðið Gazzetta dello Sport segir að Pessotto hafi brosað út að eyrum og gert að gamni sínu þegar hann var fluttur heim á leið með sjúkrabifreið í dag.

Breytingar á hóp Svía

Lars Lagerback hefur kallað þrjá nýja leikmenn inn í landsliðshóp sinn sem mætir Liechtenstein í Gautaborg annað kvöld, en þeir Zlatan Ibrahimovic, Christian Wilhelmsson og Olof Mellberg voru settir út úr hópnum fyrir að brjóta reglur um útivistartíma.

Útilokar ekki að vera lengur hjá Newcastle

Ítalski U-21 árs landsliðsmaðurinn Giuseppi Rossi hjá Manchester United, útilokar ekki að framlengja lánssamning sinn við Newcastle United, en hann verður fyrst um sinn hjá félaginu fram í janúar.

Fjölskylduveisla í Dalnum á morgun

Knattspyrnusamband Íslands hefur boðað til fjölskylduveislu á gervigrasvelli Þróttar klukkan 16 á morgun, en hún verður liður í upphitun fyrir landsleik Íslands og Danmerkur í undankeppni EM annað kvöld. Segja má að morgundagurinn sé stór dagur í boltanum hér heima, því strax að loknum leik Íslands og Danmerkur, eða klukkan 20:30, hefst landsleikur Íslendinga og Finna í körfuboltanum í Laugardalshöllinni og rétt að hvetja alla til að skokka yfir í höllina þegar fótboltanum lýkur.

Ferguson segir Keane verða að njóta starfsins

Sir Alex Ferguson segir fyrrum leikmann sinn og núverandi knattspyrnustjóra Sunderland, Roy Keane, verða að sýna þolinmæði ef hann ætli sér að valda starfinu. Keane er þekktur skaphundur og fáir þekkja hann líklega betur en Ferguson, en sá gamli segir að menn verði að læra að leiða ýmislegt misjafnt hjá sér þegar þeir setjist í stjórastólinn.

Sjá næstu 50 fréttir