Fleiri fréttir

Real Madrid náði ekki að sigra

Real Madrid og Villareal gerðu markalaust jafntefli í fyrsta leik liðanna í spænsku deildinni. Miklar væntingar eru gerðar til Real Madrid í vetur enda eru þeir búnir að eyða miklum peningum fyrir tímabilið.

Sigurhátíðinni slegið á frest

FH og Breiðablik gerðu 1-1 jafntefli í Kaplakrika í dag. Leikurinn var frekar slakur en það verður ekki tekið af Breiðabliksmönnum að þeir börðust eins og ljón í leiknum. Það var Olgeir Sigurgeirsson sem skoraði fyrir Breiðablik í fyrri hálfleik en Allan Dyring jafnaði leikinn í uppbótartíma. Blikar eru nú komnir úr fallsæti með 18 stig og eru einu stigi á undan ÍA, þessi lið mætast í næstu umferð. FH- verða að slá sigurhátíðinni á frest því þeir eru ekki búnir að tryggja sér titilinn

Breiðablik yfir í hálfleik

Blikar eru 1-0 yfir í hálfleik gegn FH-ingum á Kapalkrikavelli. Leikurinn hefur verið frekar daufur og ekki mikið markvert gerst. Það var Olgeir Sigurgeirsson sem skoraði markið á 39. mínútu.

FH getur tryggt sér titilinn

Nú var að hefjast leikur FH og Breiðabliks í landsbankadeildinni. Það lítur úr fyrir að Marel Baldvinsson hafi leikið sinn síðasta leik á Íslandi í bili. Því hann er ekki í leikmannahópi Breiðabliks í dag en hann er nýbúinn að skrifa undir samning við Molde í Noregi. Boltavakt Vísis er að sjálfsögðu á vellinum með líflega lýsingu. Leikurinn er einnig í beinni á Sýn.

Alfreð byrjar með sigri

Alfreð Gíslason fer vel af stað með Gummersbach í þýska handboltanum. Gummersbach sigraði Eintracht Hildesheim 35:32 í gær þar sem Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 9 mörk og Róbert Gunnarsson 3 mörk. Sverre Jakobsson skoraði ekki í leiknum.

Braut tá gegn Watford

Enski landsliðsmiðvörðurinn Rio Ferdinand verður líklega að draga sig út úr enska landsliðshópnum þar sem hann er væntanlega með brotna tá eftir leikinn gegn Watford. Hversu alvarleg meiðslin eru kemur í ljós í dag en Sir Alex Ferguson, stjóri Man. Utd, sagði við blaðamenn í gær að hann byggist ekki við því að Rio spilaði landsleikina sem eru framundan.

Chelsea vann 2-0

Eftir frekar slakan fyrri hálfleik rifu meistararnir sig upp á rassgatinu og lönduðu 2-0 sigri á Blackburn. Frank Lampard skoraði úr vítaspyrnu á 50. mínútu en Mark Hughes var sturlaður á hliðarlínunni vegna dómsins. Drogba skoraði annað markið á 82. mínútu eftir sendingu frá Essien. Hann hristi af sér Ooijer og skoraði. Ooijer lék sinn fyrsta leik í deildinni fyrir Blackburn og fann heldur betur fyrir því, dæmt á hann víti og missti Drogba framhjá sér.

Everton kom mér aftur í landsliðið

Andrew Johnson, sem keyptur var fyrir metfé til Everton í sumar, hefur heldur betur komið sér vel fyrir í nýja liðinu. Hann hefur skorað tvö mörk í þremur leikjum fyrir Everton og átti frábæran leik gegn Tottenham í gær. Hann var nýlega kallaður aftur í enska landsliðið fyrir Evrópuleikina gegn Andorra og Makedóniu.

Felipe Massa í fyrsta sinn á ráspól

Formúla 1 Ferrrari-ökumaðurinn Felipe Massa tryggði sér sinn fyrsta ráspól á ferlinum í gær þegar tímatakan fyrir Tyrklandskappaksturinn fór fram. Massa náði frábærum hring undir lok tímatökunnar og skaut um leið félaga sínum, Michael Schumacher, í annað sætið. Heimsmeistarinn Fernando Alonso náði þriðja besta tímanum og félagi hans, Fisichella, mun ræsa fjórði.

O´Neill enn ósigraður

Martin O´Neill og hans menn í Aston Villa lögðu Newcastle 2-0 í dag. Luke Moore og Juan Pablo Angel skoruðu mörkinn. Miljarðamæringurinn Randi Lerner flaug frá Bandaríkjunum til þess að verða viðstaddur leikinn, en hann hefur nýverið fest kaup á Aston Villa. Obafemi Martins þurfti að fara meiddur af leikvelli en Newcastle var að kaupa hann á 10 miljón pund.

Hreinlega óstöðvandi

Tiger Woods fer mikinn í golfheiminum þessa dagana og vinnur svo gott sem öll mót sem hann mætir á þessa dagana en hann er nýbúinn að vinna opna breska og PGA-meistaramótið.

Kemur Leifur sínum gömlu félögum til aðstoðar?

Tveir leikir fara fram í Landsbankadeild karla í dag en þá klárast 15. umferð deildarinnar. FH tekur á móti Breiðablik í Kaplakrika en Valsmenn heimsækja Fylkismenn í Árbæinn. Verði úrslit leikjanna beggja hagstæð fyrir FH þá verða þeir Íslandsmeistarar þriðja árið í röð.

Lá við slagmál-um eftir leik

Stoke tapaði óvænt fyrir Darlington, 2-1, í deildarbikarnum í vikunni þrátt fyrir að hafa verið manni fleiri frá 12. mínútu. Hannes kom inn á sem varamaður og lá við að hann og annar leikmaður Stoke, Michael Duberry, hafi lent í slagsmálum eftir leikinn.

Litháen lagði Ítalíu

Sextán liða úrslitin á heimsmeistaramótinu í körfuknattleik hófust í gær með fjórum leikjum en hinir fjórir leikirnir fara fram í dag.

Þetta er mjög svekkjandi

Mál Garðars Jóhannssonar eru komin í hnút eftir að norska knattspyrnusambandið synjaði honum um keppnisleyfi í Noregi. KSÍ hefur sótt um undanþágu fyrir Garðar til Alþjóðaknattspyrnusambandsins, FIFA.

Móðir Iversons kaupir lið

Hin mjög svo skrautlega móðir Allens Iversons, Ann Iverson, gerði sér lítið fyrir og keypti nýtt lið í ABA-deildinni. Liðið mun leika í Richmond og bera nafnið Warriors.

Íslendingar mættu ofjörlum sínum

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tapaði í gær stórt, 4-0, fyrir einu besta kvennalandsliði í heimi. Varnarleikur liðsins var góður fyrsta klukkutímann en eftir það var allur vindur úr íslenska liðinu.

Of stórt að tapa 0-4

"Mér fannst við spila þennan leik að mörgu leyti mjög vel framan af og mér finnst úrslitin full stór miðað við gang leiksins," sagði Elísabet Gunnarsdóttir, sem stýrði liðinu í fjarveru Jörundar Áka Sveinssonar sem var í banni. Elísabet sagði að bæði Ásthildur Helgadóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir hefðu átt við veikindi að stríða og það hefði haft sitt að segja fyrir liðið.

Stjörnusigur hjá konunum

Í gær lauk hinu árlega handboltamóti Reykjavík Open þegar úrslitaleikirnir voru háði í Austurbergi. Í kvennaflokki sigraði Stjarnan lið Hauka 22-21 í mjög jöfnum og spennandi leik.

HK með annan fótinn í úrvalsdeild

HK tók á móti Þór frá Akureyri í gær og vann öruggan sigur, 4-0. Með þessum sigri náði HK 5 stiga forystu á Fjölni þegar tveir leikir eru eftir. Fram hefur þegar tryggt sér sæti í efstu deild á næsta ári og HK er með pálmann í höndunum eftir sigurinn í gær.

HK með annan fótinn í úrvalsdeildinni

Leiknum er lokið, 4-0, fyrir HK á Kópavogsvelli, Ólafur V. Júlíusson bætti fjórða markinu við nýkominn inn á. Hermann Geir Þórsson skoraði þriðja markið. Stefán Eggertsson skoraði annað markið en Finnbogi Llorens það fyrsta. Leikurinn var í öruggum höndum HK-inga allan tíman. Þórsarar virkuðu andlausir og ekki að sjá að þarna færi lið sem væri að berjast fyrir lífi sínu í deildinni.

3-0 fyrir HK

Hermann Geir Þórsson bætti þriðja markinu við.

Finnbogi Llorens skorar fyrir HK

Finnbogi Llorens var að skora fyrir HK-inga í fjörugum leik gegn Þór á Kópavogsvelli og staðan því orðin 1-0 fyrir HK. HK-ingar sækja hart að marki Þórsara og leika hörku sóknarbolta.

Everton vann 2-0 á White Hart Lane

Andrew Johnson skoraði sitt annað mark fyrir Everton og Calum Davenport gerði sjálfsmark. Sigur Everton er enn merkilegri fyrir þær sakir að liðið lék einum færri lengst af í leiknum, Kevin Kilbane fékk sitt annað gula spjald á 32. mínútu. Þetta var fyrsti deildarsigur Everton á Tottenham í 21 ár. Manchester United vann Watford 2-1, Charlton vann bolton 2-0 með tveimur mörkum frá Darren Bent, Wigan vann Reading 1-0, Fulham vann Sheffield United 1-0

HK - Þór

Nú stendur yfir leikur HK og Þórs í fyrstu deildinni í knattspyrnu. Takist HK-ingum að sigra eru þeir hársbreidd frá því að tryggja liðinu sæti í úrvalsdeild í fyrsta skipti í sögu félagsins. Vísir mun fylgjast sérstaklega með þessum leik í dag.

Svíar tóku öll völd á vellinum

Leik Íslands og Svíþjóðar í kvennaboltanum var að ljúka á Laugardalsvelli, 0-4 urðu lokatölur leiksins. Íslendingar léku fyrri hálfleikinn vel og áttu ekki slikið að vera marki undir í hálfleik. Í seinni hálfleik tóku Svíar hinsvegar öll völd á vellinum og lönduðu auðveldum sigri. Hannah Ljungberg systir Freddy Ljunberg lék vel fyrir Svía en náði ekki að skora.

Liverpool lagði West Ham 2-1

Liverpool sigraði West Ham í ensku deildarkeppninni í dag. Bobby Zamora kom West Ham yfir á 12. mínútu en þeir Daniel Agger og Peter Crouch skoruðu fyrir Liverpool á 42. og 45. mínútu og þar við sat.

Dregið í enska deildarbikarnum

Wigan, Everton, Bolton, Manchester City, Aston Villa og Portsmouth þurfa öll að fara á útivöll í annarri umferð enska deildarbikarsins. Leikirnir fara fram í námunda við 18. september. Liðin sem drógust saman eru.

0-1 í hálfleik

Það er kominn hálfleikur í Laugardalnum í landsleik Íslands og Svíþjóðar í kvennaboltanum. Svíar leiða með einu marki gegn engu, Malin Monström skoraði markið úr umdeildri vítaspyrnu. Íslenska liðið hefur leikið vel það sem af er leiks og vörnin er þétt.

Bayern ræður ferðinni

Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves ítrekaði í gær þá ósk sína að hann vilji komast til Manchester United en sagði jafnframt að málið væri í höndum stjórnar Bayern Munchen. "Framkvæmdarstjórinn hefur fullan rétt á því að neita tilboðum í mig, en hann veit nákvæmlega hvað ég vil," sagði Hargreaves í gær.

Real vildi Kaka í skiptum

AC Milan-menn sögðu frá því í gær að félagið hefði misst áhugann á að kaupa brasilíska sóknarmanninn Ronaldo frá Real Madrid. Ástæðan er sú að Real Madrid vildi fá samherja Ronaldo í brasilíska landsliðinu, Kaka, í skiptum fyrir Ronaldo. Ronaldo er þessa dagana að jafna sig eftir hnéaðgerð sem hann fór í eftir heimsmeistarakeppnina í sumar.

Umboðsmaður Tevez segir hann á leið til Englands

Umboðsmaður argentínska framherjans Carlos Tevez heldur því fram að skjólstæðingur hans sé á leið til liðs við enskt úrvalsdeildarfélag í kjölfar þess að uppúr sauð milli Tevez og þjálfara brasilíska liðsins Corinthians. Tevez er einn heitasti framherji heimsins í dag og hefur verið orðaður við flest stóru félögin í Evrópu.

Venus Williams ekki með á US Open

Bandaríska tenniskonan Venus Williams verður ekki með á opna bandaríska meistaramótinu í tennis sem hefst á mánudag. Williams, sem vann mótið árin 2000 og 2001, er meidd á hendi og getur því ekki tekið þátt. Þessi frábæra tenniskona hefur átt erfitt uppdráttar síðustu misseri vegna meiðsla og er sem stendur aðeins í 30 sæti á heimslistanum.

Powell á enn möguleika á gullpottinum

Jamaíkumaðurinn Asafa Powell á enn möguleika á að tryggja sér gullpottinn eftirsótta í frjálsum íþróttum eftir að hann sigraði í 100 metra hlaupi á gullmótinu í Brussel í kvöld. Powell kom í mark á tímanum 9,99 sekúndum og náði fyrsta sæti þrátt fyrir að klúðra startinu gjörsamlega. Powell sagði að síðustu 90 metrarnir hefðu líklega verið þeir bestu hjá honum á ferlinum eftir hörmulegt startið. Powell er heimsmethafi í greininni.

Bein útsending hafin frá PGA á Sýn

Nú er hafin bein útsending á Sýn frá öðrum keppnisdegi á Bridgestone mótinu í Akron í Ohio sem er hluti af PGA mótaröðinni í golfi. Ástralski kylfingurinn Adam Scott er í forystu á mótinu á 7 höggum undir pari, en hinn ótrúlegi Tiger Woods var þá í fjórða sætinu. Sýn verður með beinar útsendingar frá mótinu alla helgina.

Sigur hjá Viggó og félögum

Þýska úrvalsdeildin í handknattleik hófst í kvöld með einum leik. Viggó Sigurðsson og lærisveinar hans í Flensburg unnu nokkuð öruggan sigur á Wetzlar á útivelli 32-25, eftir að vera yfir 18-11 í hálfleik. Róbert Sighvatsson kom ekki við sögu hjá Wetzlar í leiknum.

Sevilla burstaði Barcelona

Sevilla gerði sér í kvöld lítið fyirir og burstaði Evrópumeistara Barcelona 3-0 í árlegum leik um Ofurbikarinn í Evrópuboltanum. Sevilla var einfaldlega sterkara liðið á vellinum í Mónakó í kvöld og uppskar sanngjarnan sigur. Renato og Kanoute komu Sevilla í 2-0 í fyrri hálfleik og Maresca innsiglaði sigurinn með marki úr vítaspyrnu skömmu fyrir leikslok. Eiður Smári Guðjohnsen kom inn sem varamaður á 57. mínútu hjá Barcelona og spilaði ágætlega.

Viss um að verða dæmdur saklaus

Bandaríski spretthlauparinn Justin Gatlin segist viss um að hann verði dæmdur saklaus af því að hafa fallið á lyfjaprófi á dögunum, en hann var í kjölfarið dæmdur í átta ára keppnisbann. Gatlin hefur gefið út yfirlýsingu þar sem hann sver að hafa ekki vísvitandi neytt steralyfja sem urðu þess valdandi að hann féll á sínu öðru lyfjaprófi á ferlinum.

Eiður Smári mættur til leiks

Eiður Smári Guðjohnsen er kominn inná sem varamaður á 57. mínútu í lið Barcelona í leiknum gegn Sevilla í Ofurbikarnum, en Sevilla hefur enn yfir 2-0. Eiður fékk marktækifæri eftir aðeins örfáar sekúndur en hafði ekki heppnina með sér. Leikurinn er sýndur beint á Sýn.

Sevilla leiðir í hálfleik

Andalúsíumennirnir í Sevilla eru heldur betur búnir að koma Katalóníumönnunum í Barcelona í opna skjöldu í leik liðanna um Ofurbikarinn sem nú stendur yfir í Mónakó. Sevilla hefur yfir 2-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks, en þeir Renato (7.) og Freddie Kanoute (45.) skoruðu mörk Sevilla. Leikurinn er sýndur beint á Sýn.

Allir leikir Eiðs og félaga í beinni á Sýn

Sjónvarpsstöðin Sýn hefur tryggt sér áframhaldandi sýningarrétt á leikjum úr spænska boltanum í vetur og gildir nýr samningur til þriggja ára. Í vetur verða því fleiri beinar útsendingar en nokkru sinni áður úr spænska boltanum og þar af verða allir leikir Eiðs Smára Guðjohnsen og félaga í Barcelona sýndir beint.

Thatcher í bann hjá City

Varnarmaðurinn Ben Thatcher hefur verið settur í tímabundið leikbann hjá liði sínu Manchester City og hefur verið kærður af enska knattspyrnusambandinu, fyrir líkamsárás sína á Pedro Mendes hjá Portsmouth í leik á dögunum.

Eyjólfur tilkynnir landsliðshópinn

Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari hefur tilkynnt hópinn sem mætir Norður-Írum og Dönum í undankeppni EM í næstu viku. Leikurinn við Norður-Íra fer fram í Belfast 2. september og leikurinn við Dani verður hér á Laugardalsvelli fjórum dögum síðar.

Tap fyrir Hollandi

Íslenska landsliðið í körfuknattleik tapaði naumlega fyrir því hollenska í fyrsta leik sínum á æfingamóti í Hollandi í gærkvöldi. Hollendingar tryggðu sér 94-91 sigur með þriggja stiga skoti um leið og leiktíminn rann út. Brenton Birmingham var stigahæstur í íslenska liðinu með 20 stig, Magnús Þór Gunnarsson skoraði 15 stig og Jakob Sigurðarson skoraði 13 stig.

Sjá næstu 50 fréttir