Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sigurganga Vals heldur áfram Valsstúlkur halda áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni í Landsbankadeild kvenna og í kvöld valtaði liðið yfir KA/Þór fyrir norðan 7-0. Á sama tíma lögðu Blikastúlkur Keflavík 3-0 í Kópavogi. Valur er í efsta sæti deildarinnar með fullt hús, 27 stig úr 9 leikjum og Blikar í öðru sæti með 24 stig úr 10 leikjum. 11.7.2006 21:34
Hugsaði alvarlega um að hætta Enski markvörðurinn Chris Kirkland hefur viðurkennt að hann hafi verið kominn á fremsta hlunn með að hætta knattspyrnuiðkun eftir langa og erfiða baráttu við meiðsli. Kirkland gekk nýverið í raðir Wigan á sex mánaða lánssamningi frá Liverpool og ætlar að leitast við að rétta feril sinn við. 11.7.2006 20:18
Fulham kaupir Zakuani Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham hefur fest kaup á varnarmanninum Gabriel Zakuani frá Leyton Orient fyrir upphæð sem gæti numið allt að 1,5 milljónum punda. Zakuani hefur lengi verið undir smásjánni hjá Chris Coleman knattspyrnustjóra Fulham og hefur sá látið í veðri vaka að hann ætli að taka hressilega til í herbúðum sínum í sumar. 11.7.2006 19:56
Beenhakker ráðinn landsliðsþjálfari Pólverja Pólska knattspyrnusambandið gekk í dag frá ráðningu Leo Beenhakker í stöðu landsliðsþjálfara. Hinn hollenski Beenhakker er 64 ára gamall og stýrði liði Trínídad og Tóbagó alla leið á HM eins og frægt varð. Hann er fyrsti útlendingurinn sem ráðinn er landsliðsþjálfari í Póllandi. 11.7.2006 19:48
Heimsmetið í 110 m grindahlaupi tvíbætt Kínverski spretthlauparinn Liu Xiang setti í dag nýtt heimsmet í 110 m grindahlaupi þegar hann hljóp vegalengdina á 12,88 sekúndum á móti í Lausanne í Sviss. Bandaríkjamaðurinn Dominique Arnold varð annar á tímanum 12,90 sekúndum og sá tími er einnig betri en eldra heimsmetið upp á 12,91 sem þeir Xiang og Colin Jackson deildu með sér. 11.7.2006 19:29
Keppnisbannið stytt um sex mánuði Portúgalski varnarmaðurinn Abel Xavier sem síðast lék með Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni, hefur fengið keppnisbann sitt stytt úr 18 mánuðum í 12 mánuði fyrir rétti. Xavier varð á síðasta ári fyrsti leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni sem dæmdur var í keppnisbann fyrir að nota stera, þegar hann féll á lyfjaprófi eftir Evrópuleik liðsins. Samningi hans við Boro var rift í kjölfar þess að hann var dæmdur í bann. 11.7.2006 17:15
„Fólk á að minnast Zidane sem töframanns“ David Trezeguet, leikmaður Franska landsliðsins segir að fólk eigi að minnast Zinedine Zidane sem leikmanni sem kom með töfra í fótbolann ekki fyrir að hafa verið sendur útaf í úrslitaleikinn á sunnudaginn á HM. 11.7.2006 17:09
Frækinn sigur FH í Tallin Íslandsmeistarar FH unnu í dag frækinn útisigur á eistneska liðinu TVMK Tallin í forkeppni meistaradeildar Evrópu 3-2 og eru því í góðri stöðu fyrir síðari leikinn hér heima. Tryggvi Guðmundsson og Sigurvin Ólafsson komu FH í 2-0 en heimamenn jöfnuðu metin á skömmum tíma þegar um stundarfjórðungur var eftir. Það var svo Atli Guðnason sem tryggði FH sigurinn með góðu einstaklingsframtaki þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. 11.7.2006 16:55
Johansson gefur kost á sér áfram Lennart Johansson, forseti evrópska knattspyrnusambandsins, ætlar að gefa áfram kost á sér í embættið eftir að hafa hugsað málið vandlega. Hinn sænski Johansson er 76 ára gamall og hefur verið forseti Uefa síðan árið 1990. Johansson nýtur stuðnings manna eins og Franz Beckenbauer, sem segjast aðeins muni bjóða sig fram ef Johansson lætur af störfum en hingað til hefur aðeins Michel Platini gefið út að hann sækist eftir embættinu. 11.7.2006 16:45
Cannavaro á leið til Real Madrid? Yfirmaður knattspyrnumála hjá Real Madrid segir að það sé aðeins dagaspursmál hvenær félagið landi varnarjaxlinum og fyrirliða ítalska landsliðsins, Fabio Cannavaro. Nýráðinn þjálfari Real þekkir Cannavaro vel frá dögum sínum hjá Juventus og eru menn í herbúðum Real bjartsýnir á að landa hinum smáa en knáa 32 ára gamla miðverði fljótlega. 11.7.2006 16:40
FH hefur yfir 2-1 FH-ingar eru í ágætum málum úti í Eistlandi gegn Tallin í fyrri leik liðanna í forkeppni meistaradeildarinnar. Tryggvi Guðmundsson kom FH yfir í fyrri hálfleik og Sigurvin Ólafsson kom FH í 2-0 á 69. mínútu. Aðeins mínútu síðar minnkuðu heimamenn muninn og nú þegar rúmar tíu mínútur eru eftir af leiknum hafa Hafnfirðingar því forystu og eru í ágætum málum fyrir síðari leikinn á heimavelli. 11.7.2006 16:33
Poborsky hættur Tékkneski landsliðsmaðurinn Karel Poborsky hefur tilkynnt að hann sé hættur að spila með landsliðinu. Poborsky er 34 ára gamall og lék 118 landsleiki fyrir hönd Tékka, sem er met. Hann spilaði sinn fyrsta landsleik fyrir tékkneska landsliðið árið 1994 og lék um tíma með enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United. Hann leikur nú með liði Ceske Budejovice í heimalandinu. 11.7.2006 16:07
FH yfir í hálfleik í Tallin Íslandsmeistarar FH hafa yfir 1-0 í leikhléi í fyrri leik sínum gegn eistneska liðinu Tallin, en leikið er ytra. Tryggvi Guðmundsson skoraði mark Hafnfirðinga eftir um hálftíma leik og stendur FH því ágætlega að vígi. 11.7.2006 16:04
FIFA hefur rannsókn á máli Zidane Alþjóða knattspyrnusambandið hefur nú hrundið af stað rannsókn á atburðarásinni í kring um rauða spjaldið sem Zinedine Zidane fékk að líta í úrslitaleiknum á HM. Zidane skallaði þá Marco Materazzi frá Ítalíu og hefur sá verið sakaður um kynþáttaníð í kjölfarið, en heldur alfarið fram sakleysi sínu. 11.7.2006 14:50
Samningur Domenech framlengdur Franska knattspyrnusambandið hefur gefið það út að samningur landsliðsþjálfarans Raymond Domenech verði framlengdur síðar í sumar og að það sé einróma álit sambandsins að hann verði áfram við stjórnvölinn hjá liðinu. Domenech er 54 ára gamall og hefur stýrt liðinu frá því árið 2004. 11.7.2006 14:45
Nadal slapp vel eftir umferðaróhapp Tenniskappinn Rafael Nadal þótti sleppa vel í gær þegar bíll sem hann var í fór út af veginum og hafnaði á staur. Nadal var á heimleið til Mallorca á Spáni eftir að hafa tapað í úrslitaleik Wimbledon-mótsins, en ekki er vitað hvort hann ók bílnum sjálfur eða var farþegi. Nadal slapp alveg ómeiddur frá óhappinu. 11.7.2006 14:40
Hamann fer ekki til Bolton Þýski miðjumaðurinn Dietmar Hamann hjá Liverpool hefur nokkuð óvænt hætt við að ganga í raðir Bolton. Liverpool hafði gefið grænt ljós á að leikmaðurinn færi og aðeins átti eftir að ganga frá formsatriðum í nýjum samningi hans við Bolton, en nú hefur félagið gefið það út að ekkert verði af félagaskiptunum því Þjóðverjinn hafi skipt um skoðun. 11.7.2006 14:35
Hasselbaink kominn til Charlton Enska úrvalsdeildarfélagið Charlton hefur gengið frá samningi við hollenska framherjann Jimmy Floyd Hasselbaink frá Middlesbrough, en hann var með lausa samninga. Hasselbaink er 34 ára gamall og er sjöundi markahæsti leikmaðurinn í sögu ensku úrvaldseildarinnar með 125 mörk í 263 leikjum hjá Leeds, Chelsea og Middlesbrough. 11.7.2006 14:29
Herra HM reyndi sjálfsvíg Jurgen Kiessling, einn af aðalskipuleggjendum HM í Þýskalandi, liggur nú mjög þungt haldinn á sjúkrahúsi eftir að hafa reynt að stytta sér aldur á heimili sínu skömmu eftir að keppninni lauk. Kiessling var kallaður "Herra HM" í Þýskalandi og þótti keppnin í alla staði heppnast með miklum ágætum. Ekki er vitað hvers vegna Kiessling greip til þessa örþrifaráðs. 11.7.2006 14:18
Fylkir lagði Víking Lið Fylkis er komið í annað sæti Landsbankadeildarinnar eftir 1-0 sigur á Víkingi á heimavelli sínum í Árbænum í kvöld. Leikurinn var hnífjafn, en Sævar Þór Gíslason skoraði eina mark leiksins með sinni fyrstu snertingu eftir að hann kom inn sem varamaður á 70. mínútu. Fylkir er því í í öðru sæti deildarinnar með 16 stig, en Víkingur í þriðja með 14 stig. 10.7.2006 21:54
Ég er fáfróður Marco Materazzi hefur þvertekið fyrir að hafa kallað Zinedine Zidane hryðjuverkamann í úrslitaleiknum á HM í gær eins og komið hefur fram í fréttum. Materazzi segist vera svo vitlaus að hann viti ekki einu sinni hvað orðið hryðjuverkamaður þýði. 10.7.2006 21:10
Jafnt í Árbænum í hálfleik Ekkert mark hefur enn litið dagsins ljós í viðureign Fylkis og Víkings í Landsbankadeild karla í knattspyrnu, en leikið er í Árbænum. Hvort lið hefur átt fjögur markskot í fyrri hálfleiknum. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. 10.7.2006 20:52
Lehmann á að spila áfram Markvörðurinn snjalli Oliver Kahn segir að Jens Lehmann eigi að halda áfram að spila með Þýskalandsliðinu. Kahn lék sem kunnugt kveðjuleik sinn fyrir Þjóðverja á HM er liðið sigraði Portúgal 3-1 um bronsverðlaunin. 10.7.2006 19:12
Makelele hættur með landsliðinu Claude Makelele er hættur að leika með franska landsliðinu en hann tilkynnti þetta í dag. Fyrirfram var búist við að HM yrði hans síðasta mót og svo varð raunin. Makelele er 34 ára gamall og hefur leikið 50 landsleiki fyrir Frakka. 10.7.2006 19:00
Hneykslið keyrði okkur áfram Harðjaxlinn Gennaro Gattuso hjá ítalska landsliðinu segir að knattspyrnuhneykslið heima á Ítalíu hafi gefið liðinu aukinn styrk og þjappað því saman á HM. Nú í vikunni fá fjögur af stórliðunum á Ítalíu að vita örlög sín í kjölfar spillingarmálsins stóra og mun dómurinn hafa úrslitaþýðingu fyrir framtíð margra af leikmönnum landsliðsins. 10.7.2006 18:58
Hann er drengur góður Umboðsmaður ítalska varnarmannsins Marco Materazzi gefur lítið fyrir ásakanir sem bornar hafa verið upp á skjólstæðing hans um að hann hafi ögrað Zidane til að skalla sig með ljótu orðbragði í úrslitaleik HM í gærkvöldi. Umboðsmaðurinn segir að Materazzi sé drengur góður. 10.7.2006 18:46
Málaferlin á Ítalíu tefjast Málaferlin í hneykslismálinu á Ítalíu munu halda áfram á morgun (þriðjudag) og verður dómur væntanlega kveðinn upp þá. Kveða átti dóminn upp í dag (mánudag) en vegna lagaflækja og lagalegs málþófs þá var málinu frestað um einn dag. 10.7.2006 18:43
Lögfræðingur Juve segir að liðið eigi hrós skilið ekki réttarhöld Fyrrum yfirmenn Juventus eiga hrós skilið fyrir að hjálpa Ítölum að sigra HM frekar en að vera ákærðir fyrir spillingu segir lögmaður Juventus. 10.7.2006 18:29
Ítölsku liðin standa ekki saman í málaferlunum Þrjú af fjórum liðunum sem að eru ákærð fyrir spillingu í ítalska boltanum héldu því fram fyrir rétti á fimmtudag að fella ætti niður ákærur á hendur þeim og að Juventus ætti að sæta ábyrgð í málinu. 10.7.2006 18:23
Fylkir - Víkingur í beinni á Sýn Leikur Fylkis og Víkings í Landsbankadeild karla í knattspyrnu verður sýndur beint á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:45. Þetta er næstsíðasti leikurinn í 10. umferðinni. Nýliðar Víkings sitja nokkuð óvænt í öðru sæti Landsbankadeildarinnar með 14 stig og Fylkir er í fimmta sæti með einu stigi minna og getur því skotist í annað sætið með sigri í Árbænum í kvöld. 10.7.2006 18:21
FIFA segir myndband ekki hafa verið notað FIFA segja að endursýningar á myndbandi hafi ekki átt neinn þátt í því þegar Zidane var rekinn út af í úrslitaleik HM á sunnudag fyrir að skalla Marco Materazzi. 10.7.2006 18:10
2.3 mörk að meðaltali í leik Alls voru skoruð 147 mörk á HM í Þýskalandi sem lauk í gær. Þetta gerir 2.3 að meðaltali í leik. Á HM árið 2002 voru skoruð 161 mark eða 2.52 að meðaltali í leik. HM árið 1998 voru skoruð 171 mark sem gerir 2.67 að meðaltali í leik. Alls voru það 110 leikmenn sem skorðuð þessi 147 mörk. Miroslav Klose var markhæstur með 5 mörk. 10.7.2006 17:42
Ítalska landsliðinu ákaft fagnað við heimkomuna Hundruðir æstra aðdáenda og stuðningsmanna ítalska landsliðsins í knattspyrnu voru samankomnir á flugvellinum þegar liðið lenti þar með HM-styttuna í farteskinu í dag. Búist er við að um hálf milljón manna verði samankomin í miðbæ Rómar í kvöld þar sem sérstök sigurhátíð verður haldin til heiðurs hetjunum. 10.7.2006 17:39
Heimsmeistararnir og heimsmet í vitleysu Berlín er þögnuð, eftir hávaðasama nótt, flugelda og öskur, er kominn nýr dagur, fyrsti dagur án HM. Ítalía tók dolluna, flott að horfa á Cannavario lyfta styttunni góðu og fögnuður Ítalanna fölskvalaus. 10.7.2006 17:35
Materazzi kallaði Zidane hryðjuverkamann Samtökin SOS, sem berjast gegn kynþáttafordómum, fullyrða eftir heimildarmönnum sínum að Zinedine Zidane hafi skallað ítalska varnarmanninn Marco Materazzi í úrslitaleiknum á HM í gær eftir að sá ítalski kallaði hann "hryðjuverkamann." 10.7.2006 16:51
Heimurinn ætti að þakka Zidane Thierry Henry, félagi Zinedine Zidane hjá franska landsliðinu, segir að heimurinn standi í þakkarskuld við hann og hvetur fólk til að einblína ekki á brottrekstur hans í úrslitaleiknum í gær, heldur skoða heldur glæstan feril hans sem knattspyrnumanns. 10.7.2006 16:37
Deschamps tekinn við Juventus Frakkinn Didier Deschamps hefur verið ráðinn næsti þjálfari ítalska stórliðsins Juventus. Deschamps varð heimsmeistari með franska landsliðinu árið 1998 og gerði garðinn frægan sem leikmaður Juventus á sínum tíma. Frekari frétta er að vænta af ráðningu Deschamps síðar í dag. 10.7.2006 16:17
Farinn aftur til Færeyja Færeyski leikmaðurinn Rógvi Jacobsen sem leikið hefur með liði KR í Landsbankadeildinni er farinn aftur til Færeyja og leikur því ekki meira með vesturbæjarliðinu. Rógvi hefur ekki átt fast sæti í liði KR í sumar og er genginn í raðir HB í Færeyjum. Þetta kemur fram á vef KR-inga í dag. 10.7.2006 16:04
Á leið til Boro á næstu dögum Breska sjónvarpið greinir frá því í dag að þýski miðvörðurinn Robert Huth sé nú í þann mund að ganga í raðir Middlesbrough frá Englandsmeisturum Chelsea, eftir að leikmaðurinn var staddur í herbúðum Boro í dag til að gangast undir læknisskoðun. Líklegt er talið að gengið verði frá málinu á næstu 24 tímum og að kaupverðið verði um 5 milljónir punda. 10.7.2006 15:57
Real og Bayern á höttunum eftir Nistelrooy Nú virðist sem Real Madrid ætli að veita Þýskalandsmeisturum Bayern Munchen samkeppni um hollenska framherjann Ruud Van Nistelrooy hjá Manchester United, en framtíð hans hjá enska félaginu virðist vera mjög óljós. 10.7.2006 15:49
Hefur hug á að halda áfram Marcello Lippi ætlar ekki að leggja árar í bát í þjálfunni og hefur látið í veðri vaka að hann muni halda áfram að þjálfa ítalska landsliðið. Lippi er 58 ára og núverandi samningur hans við ítalska knattspyrnusambandið rennur út í næsta mánuði. 10.7.2006 15:36
Zidane fékk gullknöttinn Frakkinn Zinedine Zidane fékk í gær gullknöttinn á HM, en það eru verðlaunin sem afhent eru besta leikmanni mótsins hverju sinni. Það eru blaðamenn sem standa að valinu og hlaut Zidane flest atkvæði, Fabio Cannavaro varð annar og Andrea Pirlo þriðji. Þess má geta að atkvæðin voru flest komin í hús í hálfleik úrslitaleiksins i gær og því hafði árás Zidane á Marco Materazzi lítil áhrif á útkomuna. 10.7.2006 15:11
FIFA neitar ásökunum Domenech Forráðamenn Alþjóða Knattspyrnusambandsins hafa alfarið neitað ásökunum Raymond Domenech, þjálfara Frakka, um að dómarinn í úrslitaleiknum í gær hafi stuðst við myndbandsupptökur þegar hann rak Zinedine Zidane af velli fyrir að skalla Marco Materazzi. 10.7.2006 14:14
Hvað sagði Marco Materazzi? Miklar vangaveltur hafa nú staðið yfir í allan dag um hvað það var sem varnarmaðurinn Marco Materazzi hjá ítalska landsliðinu sagði við Zinedine Zidane í úrslitaleiknum á HM í gærkvöldi, sem varð þess valdandi að Zidane réðist á hann og skallaði hann. Menn sem tengjast Zidane vilja lítið tjá sig um málið, en þó eru einhverjir sem telja sig vita hvað Materazzi sagði við hann. 10.7.2006 13:56
Niðrandi ummæli um móður Zidane orsök reiðikastsins? Talið er að niðrandi ummæli um móður Zinedine Zidane, fyrirliða franska knattspyrnulandsliðsins, hafi orðið til þess að Zidane skallaði Materazzi leikmann Ítala í leik liðanna á heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í gær. 10.7.2006 13:44