Fleiri fréttir

Guðmundur Norður-Evrópumeistari í borðtennis

Guðmundur Stephensen varði titil sinn á Norður-Evrópumótinu í borðtennis sem fram fór hér á landi um Hvítasunnuhelgina. Guðmundur vann félaga sinn í tvíliðaleik Lukas Ryden frá Svíþjóð 4-1 í úrslitaleiknum sem saman unnu þeir félagar bronsverðlaun í tvíliðaleiknum. Það sáust frábær tilþrif um helgina og fengu áhorfendur í TBR húsinu mikið fyrir sinn snúð.

Kvennalandsliðið komst ekki inn á EM

Íslenska kvennalandsliðið í handbolta tapaði með þremur mörkum fyrir Makedóníu, 27-24, í síðari umspilsleik liðanna um sæti í Evrópumótinu í desember. Makedónía vann fyrri leikinn með fimm mörkum í Laugardalshöllinni, 28-23, og einvígið því með átta marka mun. Hrafnhildur Skúladóttir var markahæst í íslenska liðinu með sex mörk og skoraði því 15 mörk í leikjunum tveimur.

Cahill skoraði í endurkomunni

Tim Cahill gladdi Guus Hiddink þjálfara Ástralíu er hann skoraði í sínum fyrsta leik eftir meiðsli í 1-1 jafnteflisleik gegn Hollendingum. Cahill hefur verið meiddur frá því að hann skaddaði hné gegn Birmingham í apríl og Everton hafa hvatt ástralska landsliðið til að fara varlega með hann.

Brasilíumenn skoruðu fjögur mörk gegn Nýja-Sjálandi

Brasilía vann Nýja-Sjáland 4-0 í æfingaleik í Genf í Sviss í dag en þetta var lokaleikur heimsmeistaranna fyrir HM sem hefst á föstudaginn. Ronaldo, Adriano, Kaka og Juninho skoruðu mörkin en staðan var 1-0 í hálfleik. Þetta var viðburðarríkur dagur fyrir Che Bunce, fyrrum leikmann Breiðabliks, en hann kom inn á sem varamaður í fyrri hálfleik og var síðan borin alblóðugur af velli í þeim seinni.

Dallas Mavericks er loksins komið í NBA-úrslitin

Dallas Mavericks er loksins komið í NBA-úrslitin í körfubolta eftir 102-93 sigur á Phoenix í sjötta leik liðanna í úrslitum Vesturdeildarinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem Dallas-liðið kemst svo langt en liðið hefur margoft verið líklegt til afreka á undanförnum árum. Dallas vann seinni hálfleikinn 63-42 og í fyrsta sinn í 35 ár munu tveir nýliðar því berjast um NBA-titilinn því bæði Dallas og mótherjar þeirra Miami eru komin í úrslitin í fyrsta sinn.

Crouch byrjar inn á

Sven-Göran Eirksson, landsliðsþjálfari Englands segir að hann muni láta Peter Crouch byrja inná í fyrsta leik liðsins á HM sem verður gegn Paragvæ 10 júní n.k. Eriksson var ánægðir með frammistöðu leikmannsins sem gerði 3 mörk í 6-0 sigri á Jamaíka í gær.

„Við viljum hefna fyrir HM 2002“

David Beckham, fyrirliði Englendinga, segir að enska liðið þrái að ná fram hefndum gegn heimsmeisturum Brasilíu í sumar. Englendingar töpuðu fyrir Brasilíumönnum 2-1 á HM fyrir fjórum árum og segir Beckham að enska liðið sé tilbúið til að hefna ófaranna.

Terry og Cole ekki illa meiddir

Meiðsli varnarmannana John Terry og Ashley Cole í 6-0 sigri Englendinga á Jamaica í gær eru ekki talin alvarleg. Ashley Cole þurfti að yfirgefa völlinn eftir að hafa fundið til í lærinu en eftir skoðun hjá læknum enska liðsins kom í ljós að aðeins var um að ræða smá tognun.

Bonera verður áfram með Ítölum

Ítalski þjálfarinn Marcello Lippi hefur ákveðið að halda Daniele Bonera í hópnum þar sem að Gianluca Zambrotta hefur átt við meiðsli að stríða undanfarið. Upphaflega komst Bonera ekki í 23-manna hópinn sem Lippi valdi fyrir Heimsmeistarakeppnina, nema þá bara í varahópinn.

Kemst Dallas í NBA-úrslitin í fyrsta sinn í kvöld?

Dallas Mavericks getur komist í NBA-úrslitin í fyrsta sinn í kvöld vinni liðið sjötta undanúrslitaleik Vesturdeildarinnar gegn Phoenix. Þjóðverjinn Dirk Nowitzki skoraði 50 stig í síðasta leik liðanna sem Dallas vann 117-101 en hann skoraði þá tveimur stigum meira en allt Suns-liðið í fjórða leikhlutanum. Leikurinn í kvöld fer fram á heimavelli Phoenix, hefst klukkan hálf eitt og verður í beinni útsendingu á Sýn.

Valsstelpur unnu toppslaginn stórt

Valur vann toppslag Landsbankadeild kvenna gegn Breiðabliki 4-1 á Valbjarnarvelli í dag og er því áfram með fullt hús á toppnum. Þetta er fyrsta tap Breiðabliks í deildinni síðan í september 2004 en Blikastúlkur höfðu fyrir leikinn spilað 17 deildarleiki í röð án þess að tapa. Rakel Logadóttir skoraði tvö mörk fyrir Val og þær Málfríður Sigurðardóttir og Margrét Lára Viðarsdóttir skoruðu hin mörkin.

Rakel búin að skora tvö mörk í toppslagnum

Rakel Logadóttir er búin að koma Valsstúlkum í 2-0 í toppslag Landsbankadeildar kvenna milli Vals og Breiðabliks sem fram fer þessa stundina á Valbjarnarvelli í Laugardal. Rakel skoraði fyrra markið á 13. mínútu leiksins eftir góðan undirbúning Violu Odebrecht sem er að leika sinn fyrsta leik með Valsliðinu og seinna markið skoraði Rakel síðan á 30. mínútu eftir sendingu Dóru Maríu Lárusdóttur.

KR-konur burstuðu botnlið FH

KR-konur unnu sinn annan leik í röð í Landsbankadeild kvenna þegar þeir unnu stórsigur á botnliði FH, 0-9 í Kaplakrika í dag. KR-liðið sem tapaði tveimur fyrstu leikjum sínum í mótinu hefur þar með unnið tvo leiki í röð, en FH-liðið hefur tapað öllum fjórum leikjum sínum með markatölunni 1-24. Olga Færseth skoraði þrennu fyrir KR-liðið í leiknum og þær Hólmfríður Magnúsdóttir og Katrín Ómarsdóttir skoruðu tvö mörk hvor. Öll mörk Olgu komu á síðasta hálftímanum í leiknum.

Mourinho spáir Brasilíumönnum HM-titlinum

Jose Mourinho, portúgalski knattspyrnustjóri Englandsmeistara Chelsea, spáir því að Brasilíumenn verji heimsmeistaratitilinn sinn á HM sem hefst um næstu helgi. Það yrði því í sjötta sinn sem Brasilíumenn yrðu heimsmeistarar. Mourinho vildi einnig vekja athygli landa sinna í Portúgal á því að Íranir gætu reynst erfiðir en þeir mæta einnig Mexíkó og Angóla í riðlakeppninni.

Stórsigur Englendinga gefur tóninn fyrir HM

Peter Crouch skoraði tvö mörk í seinni hálfleik og innsiglaði þar með 6-0 stórsigur enska landsliðsins á Jamaíku í lokaleik sínum fyrir heimsmeistaramótið í Þýskalandi. Leikurinn fór fram á Old Trafford í dag og var kveðjuleikur Sven-Goran Eriksson á enskri grundu því hann hætti með liðið eftir HM. Fyrsti leikur Englands á HM verður gegn Paragvæ eftir nákvæmlega viku.

Fjögur ensk mörk í fyrri hálfleik gegn Jamaíku

Englendingar hafa skorað fjögur mörk í fyrri hálfleik í síðasta æfingaleik sínum fyrir HM í Þýskalandi sem hefst í næstu viku. Þeir Frank Lampard og Michael Owen skoruðu fyrsta og fjórða markið en í millitíðinni skoruðu Jamaíkamenn tvö sjálfsmörk eftir aukasppyrnu og hornspyrnu frá David Beckham. Leikurinn er í beinni á sjónvarpsstöðinni Sýn.

KA og Þór sameinuð

Viðæður eiga sér stað þessa dagana um sameiningu Þórs og KA í handboltanum. Hannes Karlsson, formaður handknattleiksdeildar KA, segir í samtali við heimasíðu félagsins að engin ákvörðun liggi fyrir en forsendan fyrir sameiningu er sú að keppt verði undir kennitölu KA enda sé KA með keppnisrétt í efri deildinni en Þór ekki.

Þjóðverjar á sigurbraut í síðasta leiknum fyrir HM

Þjóðverjar unnu Kólumbíumenn 3-0 í síðasta generalprufunni fyrir HM í Þýskalandi sem hefst á leik þeirra við Kosta Ríka á föstudaginn. Michael Ballack, Bastian Schweinsteiger og varamaðurinn Tim Borowski skoruðu mörkin í leiknum. Þjóðverjar unnu Lúxemborg 7-0, gerði 2-2 jafntefli við Japan og unnu Kolumbíu 3-0 í þremur síðustu leikjum sínum fyrir HM.

Miami Heat komið í NBA-úrslitin í fyrsta sinn

Miami Heat tryggði sér í nótt sæti í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í körfubolta í fyrsta sinn þegar liðið vann Detroit Pistons, 95-78, í sjötta leik liðanna á Flórída. Miami Heat vann þar með einvígið 4-2 en Pistons-liðið var með bestan árangur allra liða í NBA-deildinni í vetur. Shaquille O´Neal var með 28 stig, 16 fráköst og 5 varin skot í leiknum.

England – Jamaíka á Sýn í dag

Fjölmargir vináttuleikir eru á dagskrá í dag. Leikur Englands og Jamaíka verður sýndur á Sýn og hefst útsending klukkan 12.50. Sjá leiki dagsins í meira.

„Nistelrooy er að hugsa um HM núna“

Arjen Robben, landsliðsmaður Hollands og leikmaður Chelsea segir að félagi sinn hjá landsliðinu Ruud van Nistelrooy sé aðeins núna að hugsa um HM en ekki hvar hann mun leika næstu leiktíð.

Þjóðverjar unnu Kólumbíu

Nokkrir vináttulandsleikir voru háðir í gær. Þjóðverja unnu öruggan sigur á Kólumbíu. Michael Ballack kom þjóðverjum yfir á 21 mín. Bastian Schweinsteiger kom með annað mark þeirra á 38 mín og þar var svo Tim Borowski skoraði þriðja mark leiksins og það síðasta á 70 mín. Önnur úrslit voru.

Fer Defoe til Þýskalands?

Allt bentir til þess að Jermain Defoe, sóknarmaður Tottenham verði með enska landsliðinu á HM í Þýskalandi sem byrjar eftir nokkrar daga.

Baráttan um völdin á Valbjarnarvelli

Í dag klukkan 16 taka Valsstúlkur á móti stöllum sínum frá Kópavogi þegar Breiðablik mætir í heimsókn á Valbjarnarvöllinn. Liðin eru í efsta sæti Landsbankadeildarinnar og má því búast við hörkuleik.

Peter Crouch verður í byrjunarliðinu

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, mun að öllum líkindum snúa aftur í leikkerfið 4-4-2 í síðasta æfingaleik enska landsliðsins fyrir HM sem verður gegn Jamaika í dag. Peter Crouch skoraði gegn Ungverjalandi í vikunni eftir að hafa komið inn sem varamaður og verður líklegast í byrjunarliðinu og mun verða við hlið Michael Owen í fremstu víglínu.

Býður á völlinn á Akureyri

Leikur Íslands og Danmerkur á þriðjudaginn fer fram á Akureyri en það er fyrir tilstilli HSÍ og Flugfélags Íslands sem býður öllum Akureyringum á leikinn. 1500 miðar eru í boði og er hægt að nálgast þá á skrifstofu flugfélagsins á Akureyrarflugvelli frá klukkan 10.00 í dag.

Drogba er ekki á förum

fótbolti Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að Didier Drogba sé ekki á förum frá félaginu eins og orðrómur hefur verið um. Margir eru að tala um að Andriy kæmi inn og Drogba færi en það var aldrei, aldrei áætlunin. Þeir eru tveir framherjar með mjög mismunandi eiginleika, sagði Mourinho.

Úkraínskur landsliðsmaður á leið í Árbæinn

Handbolti Fylkismenn ætla sér stóra hluti í handboltanum á næstu leiktíð og leggja ekki árar í bát þó þeirra besti maður á síðustu leiktíð, Heimir Örn Árnason, sé farinn til Danmerkur.

Guðmundur við hlið Alfreðs í Svíþjóð

Guðmundur Guðmundsson, þjálfari Íslandsmeistara Fram, mun aðstoða Alfreð Gíslason landsliðsþjálfara í umspilsleikjunum tveimur gegn Svíum. Alfreð segir að allir leggi sitt á vogarskálarnar til að leggja Svíana.

Musselman tekur við Sacramento

ESPN sjónvarpsstöðin greinir frá því í kvöld að Eric Musselman verði næsti þjálfari Sacramento Kings í NBA deildinni. Musselman var aðalþjálfari Golden State Warriors á árunum 2002-04 en hefur síðan verið aðstoðarþjálfari Mike Fratello hjá Memphis Grizzlies. Musselman leysir Rick Adelman af hólmi, en samningur hans var ekki endurnýjaður í vor eftir átta ára starf.

„Strákarnir vilja spila 4-4-2“

David Beckham, fyrirliði Englendinga, segir að leikmenn liðsins vilji frekar spila 4-4-2 taktík. Sven Göran Eriksson, þjálfari Englendinga, breytti um taktík í síðasta leik gegn Ungverjalandi og léku Englendingar með Frank Lampard, Steven Gerrard og Jamie Carragher á miðjunni.

Raúl ánægður með sitt hlutskipti

Raúl, leikmaður Real Madrid og fyrirliði Spánverja á HM, segist vera mjög ánægður með stöðuna sem að Luis Aragones, þjálfari spænska liðsins, ætlar að láta hann leika í á HM.

Neville er ánægður með enska liðið

Gary Neville, fyrirliði Manchester United og landsliðsmaður Englands, segir að enska landsliðið sé það besta sem að hann hafi spilað í á ferlinum.

Advocaat stefnir hátt

Dick Advocaat, fyrrum knattspyrnustjóri hjá Rangers og núverandi þjálfari landsliðs Suður-Kóreu, stefnir hátt með Suður-Kóreu menn á HM.Suður-Kóreu menn komu öllum á óvart þegar þeir komust í undanúrslit á HM 2002 í Suður-Kóreu og Advocaat vill gera eins vel núna.

Grönholm leiðir í Grikklandi

Finnski ökuþórinn Marcus Grönholm á Ford vann allar sex sérleiðirnar á öðrum keppnisdeginum í Grikklandsrallinu sem hófst í dag. Norðmaðurinn Petter Solberg er í öðru sæti 23 sekúndum á eftir Finnanum og heimsmeistarinn Sebastien Loeb frá Frakklandi er í þriðja sætinu, 35,5 sekúndum á eftir Grönholm.

Messi jafnar sig á meiðslunum

Lionel Messi hinn ungi Maradona eins og margir vilja kalla hann er mjög ánægður með hversu vel hann er að ná sér af meiðslum á læri sem hafa hrjáð hann undanfarna tvo mánuði.

Obi Mikel til Chelsea

Einhver umdeildasti knattspyrnumaður síðari ára, Nígeríumaðurinn John Obi Mikel, hefur loks skrifað undir samning við Englandsmeistara Chelsea. Mikel samþykkti á sínum tíma að ganga í raðir Manchester United, en sagði síðar að hann hefði verið neyddur til að skrifa undir samninginn. Chelsea þurfti að punga út 16 milljónum punda fyrir leikmanninn.

Dein látinn víkja

David Dein, stjórnarmaður í Arsenal, hefur verið látinn víkja úr stjórn enska knattspyrnusambandsins í kjölfar ítarlegrar rannsóknar sem hafin hefur verið á meintu peningaþvætti enska félagsins í Belgíu. David Gill, stjórnarformaður Manchester United mun taka sæti Dein í stjórn sambandsins í staðinn.

Corrales lofar öðrum sögulegum bardaga

Diego Corrales segist þess fullviss að þriðji bardagi hans við Luis Castillo annað kvöld verði jafn sögulegur á sá fyrsti, en fyrsta einvígi þeirra í fyrravor hefur verið kallað einn besti bardagi sögunnar. Þriðja bardagans er því beðið með mikilli eftirvæntingu og verður hann sýndur beint á Sýn Extra aðra nótt.

Auðveldur sigur hjá Nadal

Spænski tennisleikarinn Rafael Nadal heldur áfram ótrúlegri sigurgöngu sinni á leirnum, en í dag vann hann öruggan sigur á Kevin Kim í annari umferð opna franska meistaramótsins 6-2, 6-1 og 6-4. Þetta var 55. sigur Nadal í röð á leirvelli og á hann titil að verja á mótinu.

Luke Young fer fram á sölu

Varnarmaðurinn Luke Young hefur farið fram á að verða settur á sölulista hjá Lundúnaliði Charlton. Þó nýráðinn knattspyrnustjóri liðsins, Ian Dowie, hafi verið duglegur að taka til í herbúðum liðsins að undanförnu er ekki talið að hann vilji missa enska landsliðsmanninn - sem nú er orðaður sterkt við grannaliðið West Ham.

Neitar alfarið að ræða Manchester United

Hollenski framherjinn Ruud van Nistelrooy vill ekkert tjá sig um framtíð sína hjá Manchester United, en hann er sem stendur með hollenska landsliðinu sem leggur lokahönd á undirbúning sinn fyrir HM. Nistelrooy sagði í samtali við Sky-sjónvarpsstöðina að hann hugsaði aðeins um landsliðið núna, en benti á að átök hans við knattspyrnustjórann Alex Ferguson heyrðu nú sögunni til og tími væri kominn til að horfa fram á við.

Rooney á ágætum batavegi

Wayne Rooney er að sögn Sven-Göran Eriksson landsliðsþjálfara á ágætum batavegi og er byrjaður að æfa lítillega með enska landsliðinu. Ekki kemur í ljós fyrr en eftir viku hvort hann verður klár á HM, en Eriksson er ánægður með formið á honum. Þá gaf landsliðsþjálfarinn það upp í dag að Jermain Defoe hjá Tottenham væri líklegastur til að taka stöðu Rooney í liðinu ef allt fer á versta veg.

Sjá næstu 50 fréttir