Fleiri fréttir

Fram í góðri stöðu

Fram styrkti stöðu sína á toppi DHL-deildar karla í dag þegar liðið lagði Selfoss örugglega á heimavelli sínum í dag 34-25. Valsmenn lögðu KA 30-26 og Afturelding sigraði ÍBV 31-25.

James fór á kostum í 4. leikhluta

LeBron James var heldur betur í stuði í 4. leikhlutanum á leik Cleveland og Boston, en hann skoraði þá 19 af 36 stigum sínum í leiknum og tryggði Cleveland sigur 94-82. Paul Pierce var stigahæstur í liði Boston með 24 stig.

Fylkir burstaði Stjörnuna

Tveir leikir fóru fram í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. Fylkir burstaði Stjörnuna á heimavelli sínum 24-17 og FH lagði Þór frá Akureyri í Kaplakrika 29-26. Fylkir komst með sigrinum upp fyrir Stjörnuna í fjórða sæti deildarinnar.

Keflavík í úrslitin

Keflavík leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í körfuknattleik kvenna eftir að hafa burstað granna sína í Grindavík 97-72 í öðrum leik liðanna í Keflavík í kvöld. Keflavík vann því samanlagt 2-0 og mætir annað hvort Haukum eða ÍS í úrslitum.

Gæti misst af Masters-mótinu

Stigahæsti kylfingur heims, Tiger Woods, gæti misst af Masters-mótinu í golfi í næsta mánuði vegna veikinda föður hans sem berst við krabbamein. Woods var ekki með á æfingum fyrir Players-mótinu sem nú stendur yfir til að vera með föður sínum og útilokar ekki að draga sig í hlé á næstunni til að vera með veikum föður sínum.

Mourning frá í 2-4 vikur

Miðherjinn Alonzo Mourning hjá Miami Heat verður frá keppni í tvær til fjórar vikur eftir að hann reif vöðva í kálfa í leik með liðinu á miðvikudagskvöldið. Mourning hefur verið lykilmaður í liði Miami í vetur og fyllti hann skarð Shaquille O´Neal vel þegar hann meiddist í haust. Mourning hefur skorað 7,8 stig, hirt 5,5 fráköst og varið 2,66 skot að meðaltali í leik í vetur.

Vill leikara í leikbönn

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, segir einfalda lausn vera til svo bregðast megi við auknum vandamálum í kring um leikaraskap á knattspyrnuvellinum, en mörgum er í fersku minni þegar Shaun Wright-Phillips hjá Chelsea fiskaði leikmann Newcastle útaf í leik á dögunum.

Chelsea og Liverpool leika á Old Trafford

Nú hefur verið ákveðið að leikur Chelsea og Liverpool í undanúrslitum enska bikarsins muni fara fram á Old Trafford, heimavelli Manchester United, laugardaginn 22. apríl en undanúrslitaleikirnir og úrslitaleikurinn í keppninni eru jafnan haldnir á hlutlausum völlum. West Ham mætir svo annað hvort Charlton eða Middlesbrough á Villa Park í Birmingham daginn eftir.

Defoe er ekki til sölu

Eins og búast mátti við varð Daniel Levy, stjórnarformaður Tottenham Hotspurs, ekki sérlega ánægður með ummæli Rafa Benitez hjá Liverpool í dag, en stjórinn sagði að Lundúnaliðið væri að reyna allt sem það gæti til að selja framherja sinn Jermain Defoe.

Tveir leikir í kvöld

Tveir leikir fara fram í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld og hefjast þeir báðir klukkan 19:15. Fylkir tekur á móti Stjörnunni í Árbænum en það verður væntanlega hörkuleikur þar sem liðin eru í fjórða og fimmta sæti deildarinnar. Þá mætast FH og Þór frá Akureyri í Kaplakrika í Hafnarfirði.

Ekki í viðræðum við Notthingham Forest

Umboðsmaður miðjumannsins Roy Keane hefur neitað orðrómi um að hann sé í viðræðum við gamla félagið sitt Nottingham Forest um að taka við knattspyrnustjórastöðunni þar á bæ.

Aðstoðarökumaður lét lífið

Þýski aðstoðarökumaðurinn Jorg Basturk lét lífið í Katalóníurallinu í dag þegar hann varð fyrir öðrum keppnisbíl sem fór út af veginum á sama stað og bíll Basturk og félaga hans Aaron Burkhart. Þeir voru að skipta um dekk á bíl sínum þegar óhappið varð, en Basturk lést af meiðslum sínum um borð í þyrlu sem flutti hann á sjúkrahús.

Fer Keflavík í úrslitin?

Keflavíkurstúlkur geta unnið sér sæti í úrslitaeinvíginu í úrslitakeppni Iceland Express deildar kvenna í kvöld þegar liðið tekur á móti Grindvíkingum á heimavelli sínum í kvöld. Keflavík náði að vinna fyrsta leikinn í Grindavík í fyrrakvöld og getur því klárað dæmið í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 19:15.

Tottenham vill losna við Defoe

Rafa Benitez heldur því fram að forráðamenn Tottenham séu að reyna allt sem í þeirra valdi stendur til að losa sig við framherjann Jermain Defoe og telur það líklegustu skýringuna á því að félagið hafi verið orðað við Djibril Cisse hjá Liverpool.

Kirkland frá út leiktíðina

Markvörðurinn Chris Kirkland mun að öllum líkindum ekki spila meira með liði sínum West Brom á lokasprettinum í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa fingurbrotnað. Þetta eru slæm tíðindi fyrir lærisveina Bryan Robson sem eru í mikilli fallbaráttu í deildinni líkt og í fyrra.

Enskir framherjar eru eins og hnefaleikamenn

Spænski markvörðurinn Jose Reina hjá Liverpool stefnir óðfluga á að verða fyrsti markvörðurinn í sögu Liverpool til að halda hreinu í fleiri en 34 leikjum á einu keppnistímabili, en sá árangur hefur þrisvar náðst í sögu félagsins. Reina segir það hafa verið hálfgert áfall fyrir sig þegar hann kynntist hörkunni í ensku úrvalsdeildinni eftir að hafa leikið á Spáni áður.

Heinze snýr hugsanlega aftur í vor

Aðstoðarknattspyrnustjóri Manchester United telur ekki loku fyrir það skotið að Argentíumaðurinn Gabriel Heinze muni koma eitthvað við sögu í síðustu leikjum liðsins á tímabilinu í vor, en að sögn Carlos Queiroz gengur varnarmanninum mjög vel í endurhæfingu sinni eftir hnémeiðslin sem hann hlaut í meistaradeildinni í haust.

Þetta verður erfiður leikur

Rafa Benitez, stjóri Liverpool, segir að hann eigi von á mjög erfiðum leik gegn Englandsmeisturum Chelsea eftir að í ljós kom að liðin mætast í undanúrslitum enska bikarins í næsta mánuði.

Alfreð velur fyrsta landsliðshóp sinn

Alfreð Gíslason hefur nú valið sinn fyrsta landsliðshóp síðan hann tók við íslenska landsliðinu í handknattleik á dögunum, en hópurinn mun fara til Þýskalands í æfingabúðir um páskana. Leikirnir verða liður í undirbúningi liðsins fyrir umspilsleikina mikilvægu við Svía í sumar.

Hættir hjá PSV í vor

Orðrómur um að hollenski þjálfarinn Guus Hiddink verði næsti landsliðsþjálfari Englendinga hefur nú öðlast nýtt líf þar í landi eftir að Hiddink lýsti því yfir í dag að hann yrði alveg örugglega ekki stjóri hollenska liðsins PSV Eindhoven á næsta ári.

Chelsea og Liverpool mætast

Nú er búið að draga um hvaða lið mætast í undanúrslitum enska bikarsins. Chelsea og Liverpool mætast annarsvegar og þá leikur annað hvort Middlesbrough eða Charlton við West Ham. Leikirnir fara fram helgina 22-23. apríl nk.

Stytta af Karl Malone afhjúpuð í Salt Lake City

Sérstök athöfn var haldin fyrir leik Utah Jazz og Washington Wizards í nótt til að heiðra Karl Malone sem lék með liði Utah í 18 af þeim 19 árum sem hann spilaði í NBA deildinni á ferlinum. Treyja Malone var hengd upp í rjáfur í Delta Center og stytta úr bronsi afhjúpuð af honum fyrir utan höllina, við hlið styttunnar sem fyrir skömmu var afhjúpuð af félaga hans John Stockton.

Stoudemire sneri aftur

Framherjinn Amare Stoudemire sneri aftur til leiks með liði Phoenix Suns í nótt þegar það burstaði Portland 125-108. Stoudemire náði sér vel á strik í fyrsta leik sínum í langan tíma, skoraði 20 stig og hirti 9 fráköst og á eflaust eftir að styrkja lið sitt gríðarlega á lokasprettinum í vor. Viktor Khryapa skoraði 22 stig og hirti 12 fráköst fyrir Portland.

Charlton og Boro þurfa að mætast aftur

Charlton og Middlesbrough þurfa að mætast öðru sinni í 8-liða úrslitum enska bikarsins en liðin gerðu markalaust jafntefli á The Valley, heimavelli Charlton í kvöld. Liðin verða því bæði í hattinum þegar dregið verður í undanúrslitin á morgun, en þau munu leika til þrautar á heimavelli Boro þann 12. apríl nk.

Haukar lögðu ÍS

Haukastúlkur höfðu betur í fyrsta leik sínum við ÍS í undanúrslitum Iceland Express deildar kvenna í körfubolta í kvöld 76-66. Helena Sverrisdóttir skoraði 18 stig, hirti 10 fráköst og gaf 7 stoðsendingar í liði Hauka og Megan Mahoney skoraði 18 stig og hirti 13 fráköst. Maria Conlon skoraði 25 stig og hirti 10 stig fyrir ÍS og Helga Þorvaldsdóttir skoraði 20 stig.

Jafnt á Valley í hálfleik

Nú er kominn hálfleikur í viðureign Charlton og Middlesbrough í 8-liða úrslitum enska bikarsins og er staðan 0-0. Hermann Hreiðarsson átti eitt besta færi heimamanna í fyrri hálfleik, en skot hans úr aukaspyrnu var varið af markverði Boro. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn.

Furyk og Love III í forystu

Amerísku kylfingarnir Jim Furyk og Davis Love III eru efstir og jafnir eftir fyrsta hringinn í Players-meistaramótinu í golfi sem nú er hafið í Flórída í Bandaríkjunum. Þeir eru báðir á 7 höggum undir pari. Tiger Woods er ekki að ná sér á strik og er á tveimur höggum yfir pari. Sýnt verður frá mótinu á Sýn um helgina.

Mistök að spila við Þjóðverja

Bruce Arena, landsliðsþjálfari Bandaríkjanna í knattspyrnu, viðurkennir að hann hafi gert stór mistök með því að spila æfingaleik við Þjóðverja í Bremen í gærkvöld, því ekki nema brot af hans sterkustu leikmönnum hafi verið á lausu fyrir leikinn. Bandaríska liðið steinlá 4-1 fyrir heimamönnum, sem þó höfðu ekki verið sannfærandi í síðustu leikjum.

Hefur engan áhuga á Cisse

Martin Jol, stjóri Tottenham Hotspur í ensku úrvalsdeildinni, hefur nú tekið af allan vafa um orðróm um að félagið sé á höttunum eftir Djibril Cisse hjá Liverpool. Jol viðurkennir að Tottenham hafi íhugað að fá leikmanninn að láni í janúar, en segir af og frá að hann verði keyptur til London í sumar eins og umboðsmaður hans gaf í skyn í gær.

Charlton - Middlesbrough í beinni í kvöld

Leikur Charlton og Middlesbrough í 8-liða úrslitum enska bikarsins verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:50. West Ham, Liverpool og Chelsea hafa þegar tryggt sér þáttöku í undanúrslitum keppninnar. Hermann Hreiðarsson er í leikmannahópi Charlton eins og venjulega.

Hatton mætir Collazo

Breski hnefaleikarinn Ricky Hatton ætlar upp um einn þyngdarflokk þegar hann mætir bandaríska veltivigtarmeistaranum Luis Collazo í Boston þann 13. maí næstkomandi. Hatton er handhafi IBF og WBA meistaratitlanna í léttveltivigt, en ætlar nú að þyngja sig og leitast við að bæta við sig einum titli í viðbót á bandarískri grundu.

Chelsea kært aftur

Englandsmeistarar Chelsea hafa nú verið kærðir í annað sinn á stuttum tíma fyrir ólæti á knattspyrnuvellinum og í þetta sinn fyrir óhófleg mótmæli við dómara leiksins gegn Fulham á dögunum. Chelsea var fyrir stuttu kært fyrir svipað atvik í leik gegn West Brom, en þeirri ákæru hafnaði félagið og hefur farið fram á sérstök réttarhöld í málinu.

Meirihluti stuðningsmanna vilja losna við Bruce

Í dag kom út könnun í breska dagblaðinu Birmingham Mail, þar sem stuðningsmenn úrvalsdeildarliðsins Birmingham voru spurðir hvort þeir vildu hafa Steve Bruce áfram sem knattspyrnustjóra liðsins. Í ljós kom að 52% þeirra sem tóku þátt í könnunninni vildu breytingar og að Bruce segði af sér. Það er því ljóst að Bruce á eftir að eiga verulega undir högg að sækja á næstu vikum.

Capello ekki inni í myndinni

Ítalski þjálfarinn Fabio Capello hjá Juventus segist hafa mikinn áhuga á að taka við enska landsliðinu í knattspyrnu, en þó ekki strax og því hefur hann verið afskrifaður sem eftirmaður Sven-Göran Eriksson sem hættir með liðið eftir HM í sumar.

Defoe óttast um sæti sitt

Framherjinn Jermain Defoe hjá Tottenham óttast að seta hans á varamannabekknum hjá liði sínu gæti kostað hann sæti í enska landsliðinu fyrir HM í sumar. Defoe á í harðri samkeppni við menn eins og Darren Bent, Dean Ashton og James Beattie um að verða síðasti framherjinn í hópi Sven-Göran Eriksson.

Guðmundur og félagar í úrslitin

Malmö, lið Guðmundar Stephensen í sænsku borðtennisdeildinni, komst í gærkvöld í úrslitaleik deildarinnar þegar liðið bar sigurorð af Halmstad í undanúrslitum. Í úrslitunum mætir Malmö deildarmeisturunum í Eslövs AI.

Shearer óhress með Wright-Phillips

Alan Shearer, fyrirliði Newcastle, var allt annað en ánægður með það sem hann kallaði leikræna tilburði kantmannsins Shaun Wright-Phillips hjá Chelsea í leik liðanna í enska bikarnum í gærkvöld. Phillips fiskaði þá Robbie Elliott útaf með sitt annað gula spjald.

Detroit vann uppgjörið í Austurdeildinni

Detroit Pistons vann í nótt góðan sigur á Miami Heat á heimavelli sínum 82-73 í uppgjöri toppliðanna í Austurdeildinni. Þetta var 16. heimasigur Detroit í röð, en jafnframt lægsta stigaskor Miami í allan vetur. Shaquille O´Neal skoraði 27 stig fyrir Miami, en Dwayne Wade átti ekki góðan dag og skoraði aðeins 13 stig. Chauncey Billups skoraði 24 stig og gaf 10 stoðsendingar fyrir Detroit.

Cole frá út tímabilið

Sóknarmaðurinn Andy Cole getur ekki spilað meira með liði Manchester City á þessu tímabili eftir að hann þurfti að fara í annan hnéuppskurð sitt á stuttum tíma. Cole hafði þegar misst úr sjö leiki í röð með City, en nú er ljóst að hann spilar ekki meira í vetur og setur það vonir hans um nýjan samning við félagið væntanlega eitthvað úr skorðum.

Solskjær verður boðinn nýr samningur

David Gill, stjórnarformaður Manchester United, er bjartsýnn á að norski sóknarmaðurinn Ole Gunnar Solskjær fái nýjan samning við félagið þó hann hafi verið meiddur í hátt í þrjú ár. Solskjær braut kinnbein í leik með varaliði United á dögunum. "Ole er frábær persónuleiki og hefur reynst okkur vel, svo að ég á von á að við finnum einhverja lausn á málinu," sagði Gill.

Chelsea komið áfram

Englandsmeistarar Chelsea eru komnir í undanúrslitin í enska bikarnum eftir 1-0 sigur á Newcastle á Stamford Bridge í kvöld. Það var fyrirliðinn John Terry sem skoraði sigurmark sinna manna strax á fjórðu mínútu leiksins, en það er því ljóst að síðasta tækifæri Alan Shearer til að krækja í titil með Newcastle er runnið út í sandinn.

Keflavík sigraði í Grindavík

Keflavíkurstúlkur gerðu sér lítið fyrir og lögðu granna sína í Grindavík í fyrsta leik undanúrslitanna í Iceland Express deild kvenna í körfubolta í kvöld 90-83. Keflavík getur því komst í úrslitin með sigri á heimavelli sínum í næsta leik. LaKiste Barkus skoraði 30 stig fyrir Keflavík, en Tamara Stocks skoraði 33 stig fyrir Grindavík.

Chelsea leiðir í hálfleik

Chelsea hefur yfir 1-0 gegn Newcastle í hálfleik í viðureign liðanna í enska bikarnum á Stamford Bridge. Það var John Terry sem skoraði mark heimamanna strax á fjórðu mínútu leiksins, sem er sýndur í beinni útsendingu á Sýn.

Skoski bankinn hættir að styðja úrvalsdeildina

Skoski bankinn, aðalstyrktaraðili skosku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu, hefur tilkynnt að hann muni ekki framlengja samning sinn við deildina sem rennur út á næsta ári. Bankinn hefur þá verið aðalstyrktaraðili deildarinnar í níu ár, en forráðamenn úrvalsdeildarinnar hafa ekki áhyggjur af þessu og segjast bjartsýnir á að útvega nýjan stuðningsaðila á næsta ári.

Eiður í byrjunarliði Chelsea

Jose Mourinho hefur gert margar breytingar á byrjunarliði sínu frá leiknum við Fulham á dögunum og er Eiður Smári Guðjohnsen til að mynda kominn í byrjunarliðið ásamt þeim Carlo Cudicini, Asier del Horno, Geremi, Didier Drogba, Damien Duff og Ricardo Carvalho. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn.

Sjá næstu 50 fréttir