Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hefur áhyggjur af Jermain Defoe Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga, segist hafa áhyggjur af því að löng seta framherjans Jermain Defoe á varamannabekk Tottenham undanfarið, gæti kostað hann sæti í enska landsliðinu á HM í sumar. Framherjinn ungi hefur verið á bekknum hjá Tottenham lengst af á þessu ári eftir að Robbie Keane vann sér fast sæti í byrjunarliði Lundúnaliðsins. 17.3.2006 16:54
Ísland í 19. sæti Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu stendur í stað á styrkleikalista FIFA sem birtur var í dag og er sem fyrr í 19. sæti listans. Þjóðverjar halda efsta sætinu, Bandaríkjamenn eru í öðru og Norðmenn í því þriðja. 17.3.2006 16:45
Nistelrooy er okkur ómetanlegur Aðstoðarknattspyrnustjóri Manchester United segir að Ruud Van Nistelrooy sé liðinu afar mikilvægur þrátt fyrir að framherjinn hafi verið á varamannabekk liðsins í undanförnum leikjum. Þetta hefur orðið til þess að orðrómur hefur komist á kreik um að Hollendingurinn sé á förum frá Manchester United. 17.3.2006 16:00
Bayern vantar leiðtoga Fyrrum landsliðsmaðurinn Lothar Matthaus er ekki í vafa um hvað lið Bayern Munchen þarf að gera til að fylla skarð Michael Ballack sem að öllum líkindum gengur í raðir Chelsea í sumar. Matthaus telur að Bayern eigi að leita sér að leiðtoga - ekki hæfileikamanni. 17.3.2006 14:51
Enn vinnur Miami Miami Heat er á mikilli sigurgöngu í NBA deildinni þessa dagana og í nótt vann liðið 13. leik sinn af síðustu 14 þegar það skellti Boston 107-104. Sigurinn var þó fjarri því að vera sannfærandi, því Miami lenti á tíma 25 stigum undir í fyrri hálfleiknum. Leikurinn var sýndur beint á NBA TV. 17.3.2006 14:30
Middlesbrough mætir Basel Í hádeginu var dregið í átta liða úrslit Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Fulltrúar Englendinga í keppninni, Middlesbrough, mæta svissneska liðinu Basel sem leikur undir stjórn knattspyrnustjórans Christian Gross sem eitt sinn stýrði Tottenham Hotspurs. 17.3.2006 14:14
Snæfell lagði KR Snæfell vann í kvöld sigur á KR í úrslitakeppni Iceland Express deildar karla í kvöld í rafmögnuðum spennuleik sem sýndur var beint á Sýn. Snæfell var yfir allan leikinn, en KRingar náðu að jafna leikinn undir lokin. Það voru þó gestirnir sem héldu haus í restina og tryggðu sér dýrmætan sigur 71-68. Snæfell er því með pálmann í höndunum og geta slegið KR út í næsta leik á heimavelli sínum. 16.3.2006 21:39
Öruggur sigur Keflvíkinga Keflvíkingar eru komnir með 1-0 forystu í einvígi sínu gegn Fjölni í úrslitakeppni Iceland Express deildinni í körfubolta eftir auðveldan 94-78 sigur á heimavelli sínum Sláturhúsinu í kvöld. 16.3.2006 20:58
Snæfell yfir gegn KR Nú er kominn hálfleikur í leik KR og Snæfells í úrslitakeppninni í Iceland Express deild karla og hafa gestirnir góða forystu í hálfleik 43-35. Snæfell hefur byrjað mun betur í leiknum og er liðið mun ákveðnara í öllum sínum aðgerðum. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn. 16.3.2006 20:40
Keflavík með mikla yfirburði Lið Keflavíkur virðist ekki ætla að verða í vandræðum með lið Fjölnis í fyrsta leik liðanna í úrslitakeppninni. Keflvíkingar hafa forystu 59-36 í hálfleik á heimavelli sínum og hafa þeir AJ Moye og Vlad Boeriu skorað 14 stig hvor fyrir lið heimamanna. 16.3.2006 20:14
Vill vera sem lengst hjá félaginu Rafa Benitez segir að fregnir spænskra blaða í gær um að hann hefði framlengt samning sinn við Liverpool séu ekki réttar, en viðurkennir að vonir standi til með að framlengja núverandi samning hans flótlega. "Ég er mjög ánægður hérna og kann vel við stjórnina, leikmennina og stuðningsmennina, svo ég vil vera hérna sem lengst og reyna að byggja upp fyrir framtíðina," sagði Spánverjinn í dag. 16.3.2006 19:45
Rahman ætlar að ganga frá Toney WBC meistarinn í þungavigt, Hasim Rahman, segist muni ganga frá áskoranda sínum Andrew Toney þegar þeir mætast í hringnum í Atlantic City á laugardagskvöldið. Bardaginn verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn. 16.3.2006 19:30
HM þjóðunum ekki veittur frestur Nokkur af landsliðunum sem taka þátt í heimsmeistaramótinu í knattspyrnu í þýskalandi í sumar höfðu farið þess á leit við FIFA að frestur til að nefna 23-manna lið yrði færður, en landsliðsþjálfararnir munu nú þurfa að tilkynna hópa sína fyrir 15. maí næstkomandi. 16.3.2006 18:45
Massa þarf að skipta um vél Ökuþórinn Felipe Massa hjá Ferrari þarf að taka út 10 sæta refsingu í keppninni í Malasíu um helgina eftir að ljóst varð að hann þarf að skipta um vél í bíl sínum. Hann náði öðrum besta tímanum í Barein um síðustu helgi, en endaði í níunda sæti í keppninni. 16.3.2006 17:45
Erum ekki dauðir og grafnir eins og Sunderland David Gold, stjórnarformaður Birmingham er bjartsýnn á að liðið hans nái að rífa sig upp úr þeirri lægð sem það hefur verið í lengst af vetri, en viðurkennir að stundum skilji hann hreinlega ekki af hverju liðið sem náði ágætum árangri í fyrra er í bullandi fallbaráttu í ár. 16.3.2006 17:30
Útilokar ekki að snúa aftur Vicente del Bosque, fyrrum stjóri Real Madrid, segist alls ekki útiloka að taka aftur við liðinu ef sá möguleiki kæmi upp á borðið, en nú stendur leitin að næsta þjálfara félagsins sem hæst. Fel Bosque náði ágætum árangri með liðið á sínum tíma, en var engu að síður rekinn eftir að hafa gert liðið að spænskum meistara árið 2003. 16.3.2006 16:45
KR - Snæfell í beinni á Sýn Úrslitakeppni úrvalsdeildar karla í körfubolta hefst í kvöld með tveimur leikjum. Keflvíkingar taka á móti Fjölni í Keflavík klukkan 19:15 og KR-ingar taka á móti Snæfelli í Vesturbænum, en sá leikur verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn og hefst útsending klukkan 19:45. 16.3.2006 16:40
Íhugar að hvíla Wayne Rooney Sir Alex Ferguson segist alvarlega vera að íhuga að hvíla ungstirnið Wayne Rooney á næstunni, en Rooney hefur spilað næstum hvern einasta leik með liðinu á leiktíðinni. "'Eg heyrði að Rafa Benitez væri að spá í að hvíla Steven Gerrard og hið sama er uppi á teningnum hjá mér með Rooney. Maður freistast til að láta svona unga menn spila of mikið, en þeir þurfa hvíld eins og aðrir," sagði Ferguson. 16.3.2006 15:59
Albertini lék kveðjuleik sinn í gær Ítalski miðjumaðurinn Demetrio Albertini reimaði á sig fótboltaskóna í síðasta sinn á San Siro í Mílanó í gærkvöld þegar spilaður var sérstakur kveðjuleikur honum til heiðurs. Margir af frægustu leikmönnum Milan í gegn um árin tóku þátt í leiknum og sýndu Albertini virðingu sína. 16.3.2006 15:49
Kaupir ungan Tékka Úrvalsdeildarlið Tottenham Hotspurs hefur fest kaup á 16 ára gömlum leikmanni frá Slavia Prag að nafni Tomas Pekhart, sem hefur farið á kostum með yngri landsliðum Tékka og er talinn mikið efni. Pekhart hefur skrifað undir þriggja ára samning við enska liðið með möguleika á framlengingingu um tvö ár. 16.3.2006 15:25
Newcastle vill fá mig Framherjinn knái Fernando Torres hjá Atletico Madrid segir að Newcastle sé eina liðið sem hafi gert Atletico formlegt tilboð í sig, en Spánverjinn ungi er talinn muni fara frá félaginu í sumar. "Það hefur verið mikið talað um að þessi og hin félög hafi verið að bjóða í mig, en Newcastle er eina félagið sem hefur gert formlegt tilboð," sagði Torres. 16.3.2006 15:15
Minningarathöfn um George Best Sérstök minningarathöfn var haldin í Manchester í dag þar sem fjölskylda, vinir og aðdáendur knattspyrnugoðsins George Best komu saman til að heiðra minningu kappans sem lést um daginn. 16.3.2006 14:52
Anthony tryggði Denver sigur á Indiana Carmelo Anthony skoraði enn eina sigurkörfuna fyrir lið sitt Denver Nuggets í nótt þegar það bar sigurorð af Indiana Pacers á útivelli 101-99. Þetta var annar sigur Denver í röð í Indiana eftir að hafa ekki unnið þar í 9 ár. Anthony skoraði 31 stig fyrir Denver, en Peja Stojakovic skoraði 22 stig fyrir Indiana. 16.3.2006 14:23
West Ham lagði Bolton West Ham er komið áfram í 8-liða úrslit enska bikarsins eftir að liðið lagði Bolton´2-1 á heimavelli sínum Upton Park í framlengdum leik í kvöld. Það var Marlon Harewood sem skoraði sigurmark Lundúnaliðsins í framlengingunni, en liðið mætir Manchester City í næstu umferð keppninnar. 15.3.2006 22:37
Middlesbrough áfram Enska úrvalsdeildarliðið Middlesbrough er komið áfram í Evrópukeppni félagsliða þrátt fyrir 2-1 tap fyrir Roma á útivelli í keppninni í kvöld. Boro vann fyrri leikinn 1-0, en mark Jimmy Floyd Hasselbaink í kvöld reið baggamuninn fyrir liðið. Allessandro Mancini skoraði bæði mörk Rómverja, sem sitja eftir með sárt ennið þrátt fyrir góðan sigur í kvöld. 15.3.2006 22:07
Liverpool valtaði yfir Fulham Liverpool burstaði Fulham 5-1 í leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Robbie Fowler, Peter Crouch, Fernando Morientes og Steven Warnock skoruðu mörk Liverpool, en einn marka liðsins var sjálfsmark Michael Brown. Collins John skoraði mark Fulham, sem enn hefur ekki unnið leik á útivelli í ensku úrvalsdeildinni. 15.3.2006 21:55
Sævar og Árni taka við KA Nú hefur verið tilkynnt að Sævar Árnason verði næsti þjálfari KA-manna í DHL-deild karla í handbolta og honum til aðstoðar verður fyrrum aðstoðarþjálfari KA til fjölda ára, Árni Stefánsson. Þetta kemur fram á heimasíðu KA í kvöld. Þeirra bíður það erfiða verkefni að halda KA liðinu á meðal þeirra bestu, en illa hefur gengið hjá norðanmönnum að undanförnu. 15.3.2006 21:24
Grindavík lagði Keflavík Grindavíkurstúlkur tryggðu sér í kvöld annað sætið í Iceland Express deild kvenna í körfubolta þegar þær lögðu granna sína í Keflavík 77-70 í hreinum úrslitaleik um hvort liðið yrði með heimavallarréttinn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. 15.3.2006 21:15
Jafnt í hálfleik hjá Roma og Middlesbrough Middlesbrough stendur vel að vígi í einvíginu við Roma á Ítalíu í Evrópukeppni félagsliða, en staðan í síðari leik liðanna er 1-1 í hálfleik. Hasselbaink kom Boro yfir á 32. mínútu, en Mancini jafnaði fyrir heimamenn. Rómverjar þurfa því að skora að minnsta kosti tvö mörk í þeim síðari til að komast áfram í keppninni. 15.3.2006 21:01
Fowler opnar markareikninginn Robbie Fowler er loksins búinn að opna markareikning sinn að nýju hjá liði Liverpool, en hann skoraði fyrsta mark liðsins í leiknum gegn Fulham sem nú stendur yfir á Anfield. Staðan í hálfleik er 2-1 fyrir Liverpool, en eftir að Collins John jafnaði metin fyrir gestina, varð Michael Brown fyrir því óláni að skora sjálfmark og koma Liverpool yfir á ný. 15.3.2006 20:55
Jafnt í hálfleik á Upton Park Staðan í leik West Ham og Bolton í enska bikarnum er jöfn 1-1 í hálfleik, en þetta er síðari leikur liðanna í 16-liða úrslitum keppninnar. Markvörðurinn Jussi Jaaskelainen kom West Ham yfir á 10. mínútu með sjálfsmarki, en Kevin Davies jafnaði metin fyrir gestina á 31. mínútu. Leikurinn er sýndur í beinni útsendingu á Sýn. 15.3.2006 20:47
Benitez búinn að framlengja? Spænska heldur því fram í dag að Rafa Benitez stjóri Liverpool sé búinn að undirrita eins árs framlengingu á núgildandi samningi sínum við félagið og verði því við stjórnvölinn í Bítlaborginni til ársins 2010. Benitez hefur verið orðaður nokkuð við lið í heimalandi sínu að undanförnu, en lítill fótur hefur verið fyrir þeim sögusögnum. 15.3.2006 20:15
Woods finnur sig vel á heimavellinum Tiger Woods ætlar sér stóra hluti á hinu árlega Bay Hill Invitational móti í golfi sem fram fer um helgina. Woods hefur þegar unnið sigur á þremur mótum það sem af er þessu ári og hefur alls fjórum sinnum unnið sigur á Bay Hill mótinu. Það er líka skiljanlegt að Woods finni sig vel á vellinum, því hann býr aðeins í tíu mínútna fjarlægð frá mótsstaðnum. 15.3.2006 19:45
Halldór í tveggja leikja bann Halldór Karlsson, fyrirliði Njarðvíkinga, var í dag úrskurðaður í tveggja leikja bann fyrir óhæfileg mótmæli af aganefnd KKÍ og því er ljóst að Halldór mun missa af fyrstu tveimur leikjum Njarðvíkinga í úrslitakeppninni gegn ÍR. Halldór var rekinn af velli í leik Njarðvíkur og Keflavíkur í lokaumferð Iceland Express deildarinnar á dögunum. 15.3.2006 18:45
Lögregla biður stuðningsmenn að róa sig Löglregluyfirvöld í Róm hafa biðlað til stuðningsmanna Roma og Middlesbrough að sýna stillingu í kvöld þegar liðin mætast í Evrópukeppni félagsliða, en fyrr í dag slösuðust þrettán enskir stuðningsmenn í árás öfgasinnaðra stuðningsmanna sem kenna sig við lið Roma. Þrír stuðningsmenn voru stungnir og liggja á sjúkrahúsi. 15.3.2006 18:35
Spilar ekki meira í vetur Framherjinn Emeka Okafor hjá Charlotte Bobcats sem kjörinn var nýliði ársins í NBA deildinni á síðasta ári, mun ekki leika meira með liðinu í vetur eftir að í ljós kom að ökklameiðslin sem hafa haldið honum frá keppni síðan í desember voru nokkuð alvarlegri en haldið var í fyrstu. 15.3.2006 18:15
West Ham leitar hefnda Leikmenn West Ham hyggja á hefndir í kvöld þegar liðið mætir Bolton í fimmta sinn á leiktíðinni í síðari leik liðanna í enska bikarnum. Fyrri leikur liðanna á Reebok var markalaus, en Bolton hafði betur 4-1 þegar liðin mættust á sama stað í deildinni um síðustu helgi. 15.3.2006 17:45
Ísland niður um eitt sæti Alþjóða knattspyrnusambandið birti í dag nýja styrkleikalista og hefur íslenska landsliðið fallið um eitt sæti frá því listinn var síðast birtur og situr í því 97. í dag. Engar breytingar hafa orðið á uppröðun efstu þjóða á listanum, þar sem heimsmeistarar Brasilíu sitja enn sem fastast. 15.3.2006 17:30
Skömmumst okkar fyrir árangurinn á útivöllum Chris Coleman er afar óhress með árangur sinna manna á útivelli á leiktíðinni og þykir kominn tími til að hans menn sýni hvað í þeim býr á Anfield í kvöld þegar liðið mætir Liverpool í ensku úrvalsdeildinni. Fulham hefur tapað fimm af síðustu sjö leikjum sínum í deildinni. 15.3.2006 16:21
Smertin snýr aftur til Rússlands Rússneski miðjumaðurinn Alexei Smertin hjá Chelsea er á leið aftur til heimalands síns þar sem hann mun leika með Dynamo Moskvu. Liðið gekk í dag frá kaupum á leikmanninum fyrir um eina milljón punda, en hann hefur spilað sem lánsmaður hjá Charlton í vetur. Chelsea keypti Smertin fyrir 3,45 milljónir punda frá Bordeux árið 2003, en hann náði aldrei að festa sig í sessi hjá liðinu. 15.3.2006 16:09
Leikið um heimavallarréttinn í Grindavík Grindavík og Keflavík mætast í hreinum úrslitaleik um hvort liðið verður með heimavallarréttinn í fyrstu umferð úrslitakeppninnar í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Grindavík er í þriðja sæti deildarinnar, en Keflavíkurstúlkur geta komist upp fyrir þær með sigri í kvöld. Þá fá Haukastúlkur afhentan deildarbikarinn eftir leik sinn við Breiðablik á Ásvöllum. 15.3.2006 15:40
West Ham - Bolton í beinni Leikur West Ham og Bolton í fimmtu umferð ensku bikarkeppninnar verður í beinni útsendingu á Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:50. Sigurvegarinn í leik kvöldsins mætir Manchester City í 8-liða úrslitum keppninnar, en City sló Aston Villa úr keppninni í gærkvöldi. Þá er einn leikur á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni, Liverpool tekur á móti Heiðari Helgusyni og félögum í Fulham. 15.3.2006 15:27
Getum ekki keppt við Chelsea Uli Hoeness hefur viðurkennt að þýsku meistararnir Bayern Munchen eigi ekki möguleika á að keppa við Chelsea um Michael Ballack, en talið er víst að Ballack gangi í raðir Chelsea á næstu misserum. 15.3.2006 14:36
Keane íhugar að hætta í sumar Miðjumaðurinn Roy Keane hefur viðurkennt að hann sé að íhuga að leggja skóna á hilluna í sumar, en hann er sem kunnugt er samningsbundinn Glasgow Celtic út næsta tímabil. Keane á við erfið mjaðmarmeiðsli að stríða og segist muni íhuga málið vandlega í sumar. 15.3.2006 14:30
Englendingar stungnir í átökum í Róm Þrír stuðningsmenn enska liðsins Middlesbrough vor stungnir í gær og fleiri eru á sjúkrahúsi eftir að fótboltabullur sem kalla sig "Ultras" og kenna sig við lið Roma í höfuðborginni, réðust að fólkinu þar sem það sat við drykkju í gærkvöld. Ensku áhorfendurnir munu hafa verið hið prúðasta fólk og var margt þeirra með börn sín meðferðis. Roma og Middlesbrough mætast í Evrópukeppninni í kvöld. 15.3.2006 14:17