Fleiri fréttir

Indiana sigraði LA Clippers

Indiana sigraði LA Clippers í nótt 97-75 á heimavelli sínum og færði Clippers fjórða tap sitt í síðustu fimm leikjum sínum. Stephen Jackson var stigahæstur í liði Indiana Pacers með 24 stig, en Elton Brand skoraði 29 stig hjá Clippers.

Enn tapar Real Madrid

Real Madrid tapaði enn einum leiknum í spænsku úrvalsdeildinni í gær og þeim fjórða á heimavelli í vetur, þegar liðið lá 2-1 fyrir Racing Santander. Leikmenn Real gengu af velli undir blístri og bauli áhorfenda eins og svo oft áður í vetur, en liðið á litla von um að veita erkifjendum sínum í Barcelona samkeppni um meistaratitlinn ef svo fer sem horfir.

Mætast erkifjendurnir í úrslitum á ný?

Í gærkvöld var dregið um hvaða lið mætast í undanúrslitum enska deildarbikarsins á næsta ári, en Arsenal og Blackburn tryggðu sér bæði sæti í undanúrslitunum með dramatískum hætti í gærkvöld. Ljóst er að stórliðin og erkifjendurnir Manchester United og Arsenal gætu mæst í úrslitum keppninar, því þau sluppu við hvort annað í undanúrslitunum.

Haukar fóru létt með HK

Haukar báru sigurorð af HK 32-24 í síðasta leik ársins í DHL-deild karla í handknattleik í gærkvöldi, eftir að hafa verið yfir 13-12 í hálfleik. Haukar sitja í öðru sæti deildarinnar ásamt Val, en Fram er í toppsætinu. Deildin hefst ekki að nýju fyrr en í byrjun febrúar, því sem kunnugt er fer Evrópumót landsliða fram í Sviss í janúar.

Tottenham kaupir Ron Vlaar frá AZ Alkmaar

Úrvalsdeildarlið Tottenham Hotspurs hefur gengið frá kaupum á hollenska varnarmanninum Ron Vlaar, félaga Grétars Rafns Steinssonar hjá AZ Alkmaar. Vlaar þessi hefur aðeins spilað 11 leiki með AZ það sem af er í vetur, en á að baki tvo landsleiki þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur að aldri. Kaupverðið er 1,7 milljón punda.

Arsenal áfram eftir vítakeppni

Arsenal er komið í undanúrslit enska deildarbikarsins eftir að hafa lagt spútniklið Doncaster að velli 5-3 eftir vítakeppni. Almunia markvörður Arsenal tók til sinna ráða í vítakeppninni og varði tvær spyrnur og kom Arsenal áfram. Það eru því Arsenal, Manchester United, Blackburn og Wigan sem eru komin áfram í undanúrslitin, en dregið verður um hvaða lið mætast síðar í kvöld.

Gilberto jafnaði á elleftu stundu

Brasilíumaðurinn Gilberto tryggði Arsenal vítaspyrnukeppni gegn Doncaster með því að jafna leikinn í 2-2 þegar komið var í uppbótartíma í framlengingu og forðaði þar með liðinu frá skammarlegu tapi, en nú er aðeins vítakeppnin eftir í leiknum, sem sýndur er beint á Sýn

Doncaster komið yfir

Doncaster var rétt í þessu að ná 2-1 forystu gegn Arsenal undir lok fyrri hálfleiks framlengingar. Það var Paul Green sem skoraði mark Doncaster eftir fáránleg varnarmistök Senderos í vörn Arsenal.

Framlenging hjá Doncaster og Arsenal

Leikur Doncaster og Arsenal er kominn í framlengingu, en Arsenal náði að jafna leikinn á 63. mínútu, þar sem skot liðsins hrökk af varnarmanni og í netið. Paul Dickov skaut Blackburn í undanúrslitin með því að skora sigurmark liðsins gegn Middlesbrough á lokamínútu leiksins.

Mark Fish leggur skóna á hilluna

Suður-Afríski varnarmaðurinn Mark Fish hjá Charlton hefur ákveðið að leggja knattspyrnuskóna á hilluna aðeins 31 árs gamall vegna þrálátra hnémeiðsla. Fish byrjaði ferilinn í heimalandinu, en fór þaðan til Bandaríkjanna, Ítalíu og endaði svo ferilinn á Englandi. Hann á að baki 62 landsleiki fyrir þjóð sína.

Doncaster leiðir í hálfleik gegn Arsenal

Kraftaverkalið Doncaster hefur svo sannarlega ekki sagt sitt síðasta í enska deildarbikarnum og liðið hafði yfir 1-0 í hálfleik gegn Arsenal á heimavelli sínum. Staðan í leik Middlesbrough og Blackburn er markalaus í hálfleik.

Kirilenko meiddur

Rússneski framherjinn Andrei Kirilenko hjá Utah Jazz lék spilaði ekki með liði sínu í nótt vegna bakmeiðsla sem hann hlaut í leik gegn Milwaukee í byrjun vikunnar og verður væntanlega ekki með liðinu í næstu leikjum. Lið Utah hefur verið einstaklega óheppið með meiðsli í vetur sem og í fyrravetur, en meiðslalisti liðsins hefur verið langur síðan í fyrra haust.

Samdi við KR í dag

Sóknarmaðurinn skæði, Björgólfur Takefusa sem leikið hefur mðe Fylki síðustu tvö tímabil í Landsbankadeildinni, skrifaði í dag undir tveggja ára samning við KR. Björgólfur sagði það alltaf hafa verið draum sinn að spila með Vesturbæjarliðinu og því sé hann afar ánægður að vera kominn í KR.

Sendir Real Madrid tóninn

Brasilíski knattspyrnustjórinn Wanderlei Luxemburgo sem látinn var taka pokann sinn hjá Real Madrir á dögunum, segir að hann hefði náð frábærum árangri með liðið ef hann hefði aðeins fengið tíma til að sinna starfi sínu.

Get ekki fyrirgefið Di Canio

Markvörðurinn Shaka Hislop, fyrrum félagi Paolo di Canio hjá West Ham, segist ekki geta fyrirgefið honum fasistakveðjurnar sem hann hefur stundað í leikjum með liði sínu Lazio á Ítalíu undanfarið, en framkoma Ítalans hefur farið mjög fyrir brjóstið á forráðamönnum deildarinnar.

Laugardalsvöllur stækkaður

Í dag var undirritaður nýr samningur milli KSÍ og menntamálaráðuneytisins um 200 milljón króna styrk sem renna mun í sjóð vegna stækkunar stúku og annara mannvirkja á Laugardalsvelli, en heildarkostnaður mun nema um 1200 milljónum króna.

Fer hugsanlega til Nice í janúar

Sóknarmaðurinn Florent Sinama-Pongolle gæti verið á leið til franska liðsins Nice í janúar, en félagið er nú í viðræðum við Liverpool um að fá leikmanninn að láni þegar opnar fyrir félagaskiptagluggann eftir áramótin. Pongolle hefur ekki átt fast sæti í liði Liverpool á þessu tímabili, en hann er aðeins 21 árs gamall.

Páll Einarsson í Fylki

Páll Einarsson, fyrrum fyrirliði Þróttar, er genginn í raðir Fylkis í Árbænum og hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á heimasíðu félagsins, Fylkir.com. Þá segir á síðunni að félagið hafi einnig náð samningi við Hermann Aðalgeirsson, sem er ungur leikmaður og kemur frá Húsavík.

Ekkert að hugsa um að kaupa leikmenn

Jose Mourinho, stjóri Chelsea, segir að hann sé mjög sáttur við þá leikmenn sem hann hefur úr að moða í dag og ætlar ekki að kaupa neina leikmenn þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar, þó hann missi leikmenn í Afríkukeppnina í nokkrar vikur.

Super Aguri væntanlega með 2006

Japanska keppnisliðið Super Aguri verður væntanlega ellefta liðið í keppnum næsta árs í Formúlu 1, eftir að samþykki fékkst frá öllum tíu liðunum í mótinu fyrir þáttöku nýja liðsins. Liðið mun keppa með vélar frá Honda, en það á nú aðeins eftir að hljóta samþykki FIA til að verða með á næsta ári, en hingað til hefur ekki gengið nógu vel að ganga frá fjárhagshliðinni á málinu enda ekkert ódýrt í Formúlu 1.

Doncaster - Arsenal í beinni á Sýn

Tveir leikir eru á dagskrá í enska deildarbikarnum í kvöld. Doncaster tekur á móti Arsenal og verður sá leikur í beinni útsendingu á Sýn klukkan 19:30 og þá mætast úrvalsdeildarliðin Middlesbrough og Blackburn, en sá leikur hefst klukkan 20.

Puerta dæmdur í átta ára bann

Argentíski tennisleikarinn Mariano Puerta hefur verið dæmdur í átta ára keppnisbann eftir að hann féll á lyfjaprófi eftir opna franska meistaramótið á árinu. Í blóði hans fundust ólögleg örvandi efni, en þetta var í annað sinn á tveimur árum sem hann fellur á lyfjaprófi og því var refsingin nú jafn hörð og raun bar vitni. Puerta þarf einnig að skila öllum verðlaunum sem hann hefur unnið til síðan á mótinu.

Dómurinn stendur

Abel Xavier, leikmaður Middlesbrough, þar að una 18 mánaða banninu sem hann var dæmdur í á dögunum eftir að áfrýjun hans var vísað frá í dag. Xavier féll á lyfjaprófi eftir Evrópuleik með liði Boro í haust eftir að í ljós kom að hann hafði notað steralyf.

Orðaður við Liverpool

Franski varnarmaðurinn Jonhathan Zebina hjá Juventus hefur nú verið orðaður við Liverpool, en þessi 27 ára gamli leikmaður lék áður með Roma og Cagliari. Hann hefur átt fast sæti í franska landsliðinu undanfarið, en það er löngu vitað að Rafa Benitez hjá Liverpool er að leitast við að styrkja vörn liðs síns þó það hafi ekki fengið á sig mörg mörk upp á síðkastið.

Vill fara aftur í ensku úrvalsdeildina

Varnarjaxlinn Marcel Desailly segist hafa áhuga á að snúa aftur í ensku úrvalsdeildina og ljúka ferli sínum með litlu liði. Hann hefur undanfarið spilað í Qatar, en talið er víst að Harry Redknapp, stjóri Portsmouth hafi mikinn áhuga á að fá hinn 37 ára gamla varnarmann til liðs við sig til að reyna að bjarga liðinu frá falli.

Sögulegt stórtap hjá Magdeburg

Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar hjá Magdeburg voru teknir í kennslustund af Kiel í gærkvöldi þegar liðið tapaði 54-34 fyrir toppliðinu á útivelli, en Kiel er ógnarsterkt í ljónagryfunni heimafyrir. Þetta var hæsta markaskor í leik í sögu deildarinnar. Sigfús Sigurðsson skoraði fimm mörk fyrir Magdeburg í leiknum.

Fellur um tvö sæti á styrkleikalista FIFA

Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er í 19. sæti á styrkleikalista FIFA sem birtur var í morgun og fellur því um tvö sæti síðan listinn var birtur síðast og um eitt sæti á árinu. Heims- og Evrópumeistrar Þjóðverja eru sem fyrr í toppstinu og Bandaríkjamenn í öðru sæti.

Luque er ekki á förum

Freddy Shepherd, stjórnarformaður Newcastle, hefur þvertekið fyrir þær fregnir að sóknarmaðurinn Albert Luque sé á förum aftur heim til Spánar. Hinn 27 ára gamli framherji var keyptur á 9,5 milljónir punda í sumar, en hefur aðeins spilað örfáa leiki fyrir Newcastle eftir að hann meiddist á læri snemma á leiktíðinni.

Mark Wotte orðaður við stjórastöðuna

Rupert Lowe, stjórnarformaður Southampton, leitar nú að eftirmanni Harry Redknapp til að taka við liðinu og er tiltölulega óþekktur Hollendingur, Mark Wotte hjá Willem II nú orðaður við stöðuna.

Hættið að haga ykkur eins og smákrakkar

Íþróttamálaráðherrann í bresku ríkisstjórninni hefur nú skorist í leikinn í deilu þeirra Jose Mourinho og Arsene Wenger, stjóra Chelsea og Arsenal, en um fátt annað hefur verið ritað í blöðum í Bretlandi undanfarna daga en deilu þeirra tveggja, sem ráðherra kallar réttilega sandkassaleik.

Kasper verður lánaður

Stuart Pearce, stjóri Manchester City í ensku úrvalsdeildinni, segir að Kasper Schmeichel verði að öllum líkindum lánaður frá félaginu í eitt ár þegar markvörðurinn Nicky Weaver kemur úr láni frá Sheffield Wednesday eftir áramótin. Kasper er sonur hins fræga Peter Schmeichel sem gerði garðinn frægan hjá Manchester United á árunum.

Wembley verður klár

Enska knattspyrnusambandið hefur vísað á bug svartsýnum fréttum um að nýji Wembley-leikvangurinn verði ekki tilbúinn á tilsettum tíma fyrir úrslitaleikinn í enska bikarnum í vor, þó framkvæmdin sé komin heilum 75 milljónum punda fram úr kostnaðaráætlun og hafi tafist mikið að undanförnu.

Rooney getur borið England á herðum sér á HM

Miðjumaðurinn Jermaine Jenas hjá Tottenham er viss um að félagi hans í enska landsliðinu, Wayne Rooney hjá Manchester United, hafi alla burði til að slá í gegn á HM í Þýskalandi í sumar og nefnir Rooney sem manninn til að koma Englendingum alla leið.

Zikora orðaður við Arsenal

Miðjumaðurinn Didier Zokora hjá franska liðinu St.Etienne hefur verið orðaður sterklega við Arsenal og er talið líklegt að hann fari til liðsins í sumar. Zokora er 24 ára og hefur einnig verið orðaður við Manchester United og Chelsea, en umboðsmaður hans segir Arsenal hafa sýnt honum mestan áhuga til þessa og á alveg eins von á því að samningar náist í sumar.

Kobe Bryant skoraði 62 stig í þremur leikhlutum

Kobe Bryant fór hamförum með liði LA Lakers í auðveldum 112-90 sigri á Dallas, þar sem hann skoraði 62 stig í aðeins þremur leikhlutum og setti á svið einhverja mestu skotsýningu í sögu deildarinnar. Hann skoraði 30 stig í þriðja leikhlutanum einum, en það er það mesta í einum fjórðung í sögu LA Lakers og Bryant hafði skorað fleiri stig eftir þrjá fjórðunga en allt Dallas-liðið til samans.

Eto´o skoraði tvö í sigri Barcelona

Barcelona er lið ársins 2005 á Spáni og í kvöld festi liðið sig í sessi á toppnum með 2-0 sigri á Celta Vigo, en liðið hefur verið á ótrúlegri siglingu undanfarið. Það var Samuel Eto´o sem skoraði bæði mörk liðsins í kvöld.

United og Wigan áfram

Manchester United og Wigan eru komin áfram í enska deildarbikarnum eftir góða sigra í leikjum sínum í kvöld. United vann auðveldan útisigur á Birmingham 3-1 með tveimur mörkum frá Louis Saha og einu frá Kínverjanum Park. Jiri Jarosik minnkaði muninn fyrir Birmingham. Þá vann Wigan góðan 2-0 sigur á Bolton með tveimur mörkum frá Jason Roberts.

Yao Ming verður frá í nokkrar vikur

Kínverski risinn Yao Ming hjá Houston Rockets verður frá keppni í nokkrar vikur eftir að hafa farið í aðgerð vegna sýkingar í stórutánni á vinstra fæti. Þetta er mikið áfall fyrir Houston, sem hafði þurft að vera án Tracy McGrady í nokkra leiki á dögunum og gekk vægast sagt illa án hans. Ming hafði aðeins misst úr tvo leiki á ferlinum áður en þessi meiðsli komu upp og skorar að meðaltali 20 stig og hirðir 9 fráköst í leik.

Wigan leiðir gegn Bolton

Wigan hefur yfir 2-0 forystu gegn Bolton í hálfleik í enska deildarbikarnum, en markalaust er í sjónvarpsleiknum á Sýn þar sem Manchester United og Birmingham eigast við. Það var Jason Roberts sem skoraði bæði mörk Wigan í leiknum.

Ég marka stóran þátt í sögu Newcastle

Vandræðagemlingurinn Lauren Robert, sem er í láni hjá Portsmouth frá Newcastle, segir að þó hann eigi ekki von á því að snúa aftur til félagsins, hafi hann markað djúp spor í sögu félagsins og eigi sér dygga stuðningsmenn þar.

Tveir leikir í kvöld

Leikur Manchester United og Birmingham í enska deildarbikarnum er nú hafinn, en hann er í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni Sýn. Þá eigast einnig við Wigan og Charlton, en leikirnir eru liður í fjórðungsúrslitum keppninnar.

Olisadadebe til reynslu hjá Portsmouth

Portsmouth hefur fengið pólska landsliðsframherjann Emmanuel Olisadebe til reynslu frá Pananthinaikos í Grikklandi, en hann lendir á Englandi á morgun. Harry Redknapp er að leitast við að styrkja sóknina hjá Portsmouth eftir að framherji hans Vincent Pericard meiddist um helgina og vonast til að Olisadebe geti fyllt skarð hans.

Reynir að gera góð kaup í janúar

Rafa Benitez, stjóri Liverpool, er talinn muni hafa úr þónokkrum fjármunum að spila í janúar þegar opnar fyrir félagaskiptagluggann á ný. Benitez segir þó ekki gefið að góðir leikmenn verði á lausu.

Hlakkar til að mæta Liverpool um jólin

Sóknarmaðurinn öflugi Michael Owen hjá Newcastle, segist hlakka mikið til að spila við fyrrum félaga sína í Liverpool um jólin, en tekur það fram að hann sjái alls ekki eftir því að hafa gengið í raðir Newcastle frá Real Madrid á Spáni.

Ég er ekki grófur leikmaður

Miðjumaðurinn Michael Essien vill eikki meina að hann sé grófur leikmaður, en mikið hefur verið rætt um vasklega framgöngu hans á knattspyrnuvellinum undanfarið og vilja margir meina að hann sé ruddi.

Sjá næstu 50 fréttir