Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hannes lék allan leikinn með Stoke Hannes Sigurðsson lék allan leikinn með Stoke sem tapaði útileik fyrir Derby 1-0 í ensku 1. deildinni í fótbolta í dag. Jóhannes Karl Guðjónsson kom inn á af varamannabekknum á 71. mínútu í liði Leicester sem vann 2-1 útisigur á Watford. Bjarni Guðjónsson kom ekkert við sögu hjá Plymouth sem tapaði á heimavelli, 0-1 fyrir Sheffield Wednesday. 15.10.2005 00:01
Enn tapar Notts County Notts County, lið Guðjóns Þórðarsonar í ensku 2. deildinni tapaði 3-0 fyrir Rochdale í dag. Notts County er nú fallið niður í 14. sæti deildarinnar með 18 stig og hefur nú ekki unnið sigur í 8 leikjum í röð og markatalan 2-10. 15.10.2005 00:01
Fyrsti sigur FH í DHL deildinni FH vann sinn fyrsta sigur í DHL-deild karla í handbolta í kvöld þegar KA var lagt að velli í Kaplakrika, 25-27. FH er þó enn neðst en nú með 2 stig, einu stigi á eftir Víkingi/Fjölni og HK sem eru fyrir ofan með 3 stig hvor. Afturelding vann óvæntan sigur á ÍR, 30:26 og þá unnu Selfyssingar 8 marka útisigur á Víking/Fjölni, 22-30. 15.10.2005 00:01
Arnar skoraði í sigri Lokeren Arnar Grétarsson lék síðustu 10 mínúturnar og skoraði síðasta mark Lokeren sem vann Charleroi 4-2 í belgísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Grétar Rafn Steinsson sat allan tímann á varamannabekk AZ Alkmaar sem tapaði fyrir PSV Eindhoven 3-0 í hollensku úrvalsdeildinni. 15.10.2005 00:01
Leikmaður Atlanta Hawks lést Miðherjinn Jason Collier hjá Atlanta Hawks í NBA deildinni lést í sjúkrabifreið í dag eftir að hafa átt erfitt með andardrátt og hnigið niður á heimili sínu. Hann var 28 ára gamall og lætur eftir sig eiginkonu og unga dóttur, en dánarorsök er enn óljós. 15.10.2005 00:01
Borgin neitar Rush um partí Þátttakendur á Ian Rush Icelandair Masters knattspyrnumótinu sem fer fram í Egilshöll í byrjun nóvember fá ekki móttöku á vegum Reykjavíkurborgar. Á mótið sem er fyrir "lengra komna knattspyrnumenn" koma nokkrir af frægustu knattspyrnumönnum Englands á fyrri árum úr liðum Liverpool, Manchester United og Arsenal. 14.10.2005 00:01
Hargreaves samdi við Bayern Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hefur framlengt samning sinn við þýsku meistarana Bayern Munchen um fjögur ár og slekkur þar með í þeim orðrómi um að hann snúi til heimalandsins og spili í úrvalsdeildinni ensku. 14.10.2005 00:01
Dregið í umspil fyrir HM Nú rétt áðan var ljóst hvaða lið mætast í umspili um laust sæti á HM í knattspyrnu í Þýskalandi næsta sumar. Spánverjar mæta Slóvenum og verður fyrri leikur liðanna á Spáni þann 12. nóvember. Norðmenn fá það erfiða verkefni að mæta Tékkum og Svisslendingar fá Tyrki í heimsókn, en þessir leikir fara allir fram sama dag og æfingaleikur Englendinga og Argentínu. 14.10.2005 00:01
McLaren fljótastir á æfingum Ökumenn McLaren höfðu mikla yfirburði á æfingum fyrir Kínakappaksturinn í Formúlu 1 í morgun, en það var æfingaökumaður þeirra Pedro de la Rosa sem náði besta tímanum. Ökumenn McLaren áttu þrjá af fimm bestu tímunum á æfingunum, en Ricardo Zonta hjá Toyota átti næst besta tímann og Fernando Alonso varð fjórði. 14.10.2005 00:01
Mido vill fara til Spurs Framherjinn Mido, sem verið hefur í láni hjá Tottenham Hotspurs frá Roma síðan í janúar í fyrra, segir að hann vilji ganga formlega í raðir Lundúnaliðsins þegar leiktíðinni lýkur í vor. 14.10.2005 00:01
Glogovac semur við Víking Víkingur hefur gert tveggja ára samning við varnarmanninn Milos Glogovac sem lék með liðinu í sumar. Hann var valinn í úrvalslið fyrstu deildar eftir sumarið, en Víkingur leikur sem kunnugt er í Landsbankadeildinni í sumar. Milos er 25 ára gamall og kemur frá Serbíu. 14.10.2005 00:01
Sammi vill leggja Chelsea Sam Allardyce vill að Bolton verði fyrsta liðið til að leggja Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í vetur og varar leikmenn sína við því að þeir verði að nýta hvert einasta færi sem þeir kunna að fá í leiknum um helgina, ef þeir ætli sér að vinna meistarana. 14.10.2005 00:01
Sex æfingaleikir í NBA í nótt Æfingatímabilið í NBA deildinni í körfubolta er nú komið á fullan skrið og í nótt voru sex leikir á dagskrá. Golden State burstaði Los Angeles Lakers á Hawaii og meistarar San Antonio töpuðu öðrum leiknum í röð, nú gegn Washington. 14.10.2005 00:01
Eyjólfur næsti landsliðsþjálfari Eyjólfur Sverrisson verður kynntur sem næsti A-landsliðsþjálfari Íslands í knattspyrnu á blaðamannafundi hjá Knattspyrnusambandinu á eftir. Samningurinn við þá Ásgeir Sigurvinsson og Loga Ólafsson verður ekki endurnýjaður og þeir því hættir. 14.10.2005 00:01
Pardew í samningaviðræðum Alan Pardew, stjóri West Ham í ensku úrvalsdeildinni, er nú í samningaviðræðum við félagið um framlengingu á samningi sínum. Pardew hefur verið við stjórnvölinn hjá liðinu í tvö ár og fastlega er búist við að hann skrifi brátt undir nýjan samning. 14.10.2005 00:01
Benitez ræðir við leikmenn sína Djibril Cissé barmaði sér í fjölmiðlum þegar hann var á ferðalagi með franska landsliðinu í vikunni og sagði að hann hefði hug á að fara frá Liverpool ef honum tækist ekki að vinna sér fast sæti í liðinu á næstu tveimur mánuðum. Benitez tók franska sóknarmanninn inn á teppi og ræddi við hann og heldur því fram að málið sé leyst. 14.10.2005 00:01
Enn eitt áfallið fyrir Arsenal Arsenal hefur orðið fyrir enn einu áfallinu því nú er ljóst að Hvít-Rússinn Alexander Hleb verður frá keppni í sex til átta vikur vegna hnémeiðsla sem hann varð fyrir í landsleik í vikunni. 14.10.2005 00:01
Lyfti mestu þyngd sögunnar Heljarmennið Benedikt "Tarfur" Magnússon er nú í óðaönn að undirbúa sig undir Evrópumeistaramótið í kraftlyftingum í Finnlandi í næsta mánuði og í dag hitaði hann upp með því að lyfta 426 kílóum í réttstöðulyftu á æfingu, en það er mesta þyngd sem lyft hefur verið í sögunni svo vitað sé. 14.10.2005 00:01
Keane hættur með írska landsliðinu Roy Keane hefur ákveðið að hætta að spila með írska landsliðinu í knattspyrnu í kjölfar þess að liðinu mistókst að vinna sér sæti á HM í Þýskalandi í sumar. Keane, sem er 34 ára gamall, segist ætla að einbeita sér að því að spila með Manchester United það sem eftir er af ferlinum. 14.10.2005 00:01
Jewell og Murphy bestir Danny Murphy var í dag kosinn leikmaður septembermánaðar í ensku úrvalsdeildinni og Paul Jewell var valinn knattspyrnustjóri mánaðarins. Murphy var lykilmaður í liði Charlton sem hefur komið mjög á óvart það sem af er leiktíðinni, eins og reyndar stjórinn Paul Jewell hjá Wigan, sem hefur náð ævintýralegum árangri með nýliðana, sem voru taplausir í mánuðinum. 14.10.2005 00:01
Valur vann Fylki Valsmenn unnu góðan sigur á Fylki í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld, eftir að staðan hafði verið 13-12 fyrir heimamenn í hálfleik. Mohamadi Loutoufi skoraði 10 mörk fyrir Val, en Arnar Þór Sævarsson var atkvæðamestur hjá Fylki með 7 mörk. 14.10.2005 00:01
HK sigraði Þór HK vann góðan sigur á Þór frá Akureyri í Digranesi í kvöld, 32-26. Valdimar Þórsson var markahæstur hjá heimamönnum með 13 mörk, þar af 9 úr vítaköstum, en hjá Þórsurum var Rúnar Sigtryggsson markahæstur með 9 mörk. 14.10.2005 00:01
Fletcher og O´Shea skrifa undir John O´Shea og Darren Fletcher skrifuðu í gær undir nýja samninga við lið Manchester United og því á aðeins einn maður í ungliðasveit liðsins eftir að framlengja samning sinn við félagið, en það er Portúgalinn Cristiano Ronaldo. 14.10.2005 00:01
LeBron James laus af spítala Undrabarnið LeBron James hjá Cleveland Cavaliers losnaði af sjúkrahúsi í gærkvöldi eftir að hafa gengist undir fjölda rannsókna vegna sársauka sem hann hafði fyrir brjósti. Skelfing greip um sig meðal forráðamanna liðsins þegar tíðindin bárust, en James hefur nú verið að fullu útskrifaður. 14.10.2005 00:01
Hætt við byggingu spilavítis Eigendur Manchester United hafa hætt við að byggja spilavíti á heimavelli liðsins Old Trafford eins og til stóð, vegna erfiðleika við að fá tilskilin leyfi. Félagið hefur lagt ríka áherslu á að þessi niðurstaða hafi ekkert með Malcom Glazer og syni hans að gera, en margir vildu meina að þeir hefðu runnið á rassinn með að fjármagna fyrirtækið vegna skuldsetningar félagsins. 13.10.2005 00:01
Chelsea skoðar Andrade Ensku meistararnir Chelsea eru nú sagðir ætla að festa kaup á portúgalska varnarmanninum Jorge Andrade hjá Deportivo La Corunia í janúar og er talið að hann muni kosta félagið um 16 milljónir punda. 13.10.2005 00:01
Þrír nýliðar í hópnum hjá Viggó Viggó Sigurðsson landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik hefur valið landsliðshópinn sem tekur þátt í æfingamótinu í Póllandi síðar í þessum mánuði. Liðið fer fyrst í æfingabúðir til Magdeburg og leikur þvínæst við Pólverja, Dani og Norðmenn. 13.10.2005 00:01
Cisse setur sér markmið Framherjinn Djibril Cissé hjá Liverpool hefur sett sér skýr markmið varðandi framtíð sína hjá félaginu og segir að nái hann ekki að vinna sér fast sæti í liðinu á næstu tveimur mánuðum, muni hann róa á önnur mið á nýja árinu. Þetta segir hann að sé nauðsynleg ráðstöfun fyrir sig til að vinna sér sæti í franska landsliðinu fyrir HM næsta sumar. 13.10.2005 00:01
Fjórir enskir tilnefndir Fjórir enskir landsliðsmenn hafa verið tilnefndir í 30 manna úrtak fyrir valið á knattspyrnumanni ársins hjá FIFA, Alþjóða knattspyrnusambandinu. Þetta eru þeir Wayne Rooney, Frank Lampard, David Beckham og Steven Gerrard. 13.10.2005 00:01
Mourinho vill ekki Andrade Jose Mourinho hefur vísað því á bug að Chelsea sé á höttunum eftir portúgalska varnarmanninum Jorge Andrade í janúar og hellti sér yfir blaðamenn sem spurðu hann út í málið. 13.10.2005 00:01
Sex æfingaleikir í NBA í nótt Sex æfingaleikir voru á dagskrá í NBA deildinni í nótt. Andrew Bogut skoraði 9 stig og hirti 9 fráköst í fyrsta leik sínum með Milwaukee Bucks og Allen Iverson skoraði 27 stig í góðum sigri Philadelphia á meisturum San Antonio Spurs. 13.10.2005 00:01
King meiddist með landsliðinu Varnarjaxlinn Ledley King hjá Tottenham Hotspurs gæti misst af leik liðsins gegn Everton um helgina vegna meiðsla sem hann hlaut í landsleiknum gegn Pólverjum í gær. Þetta eru ekki góð tíðindi fyrir aðdáendur liðsins hér heima, því stuðningsmannaklúbbur Tottenham er nú á leið til London að sjá leik Tottenham og Everton um helgina. 13.10.2005 00:01
Sjö leikir í körfunni í kvöld Iceland Express deildin, eða úrvalsdeild karla í körfubolta hefst í kvöld þar sem spiluð verður heil umferð, eða sex leikir. Þá verður einn leikur í úrvalsdeild kvenna. Haukar taka á móti Grindavík á Ásvöllum. Allir leikir kvöldsins hefjast klukkan 19:15. 13.10.2005 00:01
Davies segist betri en Crouch Framherjinn Kevin Davies hjá Bolton segist geta gert betri hluti með enska landsliðinu en hin hávaxni Peter Crouch hjá Liverpool og bendir á að þó hann sjálfur muni líklega ekki fá landsleik úr þessu, gæti hann skilað stöðunni betur en Crouch þegar enska liðið spilar svipaðan stíl og Bolton. 13.10.2005 00:01
Campbell klár í Meistaradeildina Arsene Wenger, stjóri Arsenal, á í nokkrum vandræðum með þau miklu meiðsli sem hrjá leikmenn liðsins þessa dagana, en hann hefur nú fengið þær gleðifréttir að Sol Campbell verði líklega klár í slaginn þegar liðið fer til Prag í Meistaradeildinni í næstu viku. 13.10.2005 00:01
Keflvíkingar lögðu ÍR Íslandsmeistarar Keflavíkur áttu ekki í teljandi vandræðum með ÍRinga í Seljaskóla í fyrsta leiknum í úrvalsdeild karla í körfuknattleik í kvöld. ÍRingar höfðu reyndar forystu eftir fyrsta leikhlutann, 25-23, en eftir það var leikurinn eign Íslandsmeistaranna, sem sigruðu 98-81. 13.10.2005 00:01
Tvöfaldur sigur Grindvíkinga Karla og kvennalið Grindavíkur unnu bæði leiki sína gegn Haukum í Iceland Express deildinni í kvöld. Kvennaliðið lagði Hauka að Ásvöllum 82-70, en karlaliðið vann Haukana 103-73. Þá voru nokkrir aðrir leikir á dagskrá í karlaflokki. 13.10.2005 00:01
Stjórarnir verða að aga Rooney Sepp Blatter, forseti FIFA, liggur ekki á skoðunum sínum þegar kemur að hinum skapheita Wayne Rooney og segir að það sé á ábyrgð knattspyrnustjóranna að halda aftur af drengnum. 13.10.2005 00:01
Sögulegur sigur Úrugvæ Úrúgvæ vann frækinn sigur á Argentínumönnum í undankeppni HM í gærkvöld, 1-0 með marki frá Alvaro Recoba og tryggði sig í umspil gegn Áströlum um laust sæti á HM í Þýskalandi á næsta ári. 13.10.2005 00:01
Beckham farinn til Spánar David Beckham fær ekki að horfa á leik Englendinga og Pólverja af varamannabekk liðsins eins og til stóð, því hann hefur verið kallaður aftur til Spánar til að æfa með Real Madrid. Þar sem Beckham var í banni í leiknum, ákvað Sven-Göran Eriksson að leyfa honum að fara.> 12.10.2005 00:01
Enska U-21 liðið vann Pólverja Enska U-21 árs landsliðið vann auðveldan 4-1 heimasigur á Pólverjum í gærkvöldi. Steven Taylor skoraði tvö marka enska liðsins og Carlton Cole og Jerome Thomas skoruðu sitt markið hvor.> 12.10.2005 00:01
Keflavíkurstúlkur lögðu ÍS Íslandsmeistarar Keflavíkur hófu titilvörnina með sigri í Iceland Express deildinni í körfuknattleik kvenna í gærkvöld, þegar liðið lagði Stúdínur með 77 stigum gegn 61. Reshea Bristol var stigahæst í liði Keflavíkur með 16 stig og Signý Hermannsdóttir skoraði sömuleiðis 16 fyrir ÍS.> 12.10.2005 00:01
Woodgate skoraði aftur sjálfsmark Varnarmaðurin Jonathan Woodgate varð aftur fyrir því óláni að skora sjálfsmark fyrir lið sitt Real Madrid í gærkvöldi, þegar það tapaði vináttuleik við Real Zaragoza í vítaspyrnukeppni í gær. Þetta var annað sjálfsmark Woodgate í þremur leikjum fyrir liðið.> 12.10.2005 00:01
Svíþjóð - Ísland í beinni á Vísi Landsleikur Svíþjóðar og Íslands sem fram fer í Svíþjóð í dag verður sýndur beint á Vísi VefTV. Útsending Sýnar hefst klukkan 17:00 en flautað verður til leiks klukkan 17:30. Svíar virðist ekki hafa miklar áhyggjur af íslenska landsliðinu miðað við blaðamannafund sænska landsliðsins í Stokkhólmi í gær sem Þorsteinn Gunnarsson fylgdist með.> 12.10.2005 00:01
Svíar áhyggjulausir fyrir leikinn Íslenska landsliðið í knattspyrnu mætir Svíum í kvöld í undankeppni heimsmeistaramótsins á Rasunda leikvanginum í Stokkhólmi. Sænskir fjölmiðlamenn hafa litlar áhyggjur af leiknum gegn Íslendingm og eiga von á öruggum sigri Svía enda sæti sænska landsliðsins á heimsmeistaramótinu í Þýskalandi þegar tryggt.> 12.10.2005 00:01