Fleiri fréttir

Tekur Krzyzewski við liði USA?

Körfuboltaþjálfarinn góðkunni, Mike Krzyzewski, sem þjálfað hefur lið Duke-háskólans við góðan orðstír síðustu ár, verður næsti aðalþjálfari bandaríska landsliðsins í körfubolta, ef marka má frétt í USA Today. >

Mark dæmt af Svíum

Leikurinn í Svíþjóð byrjar fjörlega og eftir um tíu mínútna leik náði Freddy Ljungberg að skora fyrir sænska liðið eftir frábæra spilamennsku, en markið var réttilega sæmt af vegna rangstöðu. >

Ísland komið yfir 1-0

Íslendingar voru nú rétt í þessu að ná forystu gegn Svíum á Rasunda. Það var Kári Árnason sem skoraði sannkallað draumamark á 23. mínútu af hátt í 40 metra færi með þrumuskoti sem markvörður Svía náði ekki að verja. Staðan 1-0 og byrjun íslenska liðsins því aldeilis góð.>

Zlatan jafnaði undir eins

Það tók Svía ekki nema um fjórar mínútur að jafna leikinn gegn Íslendingum, en þar var að verki snillingurinn Zlatan Ibrahimovic sem skoraði með viðstöðulausu skoti eftir að Auðun Helgason átti misheppnaða hreinsun frá íslenska markinu. Hann nældi sér þvínæst í gult spjald fyrir fólskulegt brot strax í kjölfarið.>

Svíar komnir yfir

Svíar hafa náð forystu 2-1 gegn Íslendingum. Það var markahrókurinn Henrik Larsson sem skoraði mark sænska liðsins á 42. mínútu eftir sendingu frá Zlatan Ibrahimovic. Markið var stórkostlega útfært og Svíarnir fara á kostum þessa stundina.>

Artest eins og dýr í búri

Ron Artest hefur gefið það út að þó hann hafi lofað bót og betrun eftir leikbannið sitt langa síðasta vetur, muni hann ekki verða eins og engill inni á vellinum á komandi leiktíð, heldur spila eins og "villidýr sem ætti að vera lokað inni í búri.">

Ísland tapaði fyrir Svíum

Íslenska landsliðið í knattspyrnu tapaði 3-1 fyrir Svíum í lokaleik sínum í undankeppni HM í Svíþjóð nú áðan. Íslenska liðið komst yfir í leiknum með glæsilegu marki Kára Árnasonar í fyrri hálfleik, en þeir Zlatan Ibrahimovic, Henrik Larsson og Kim Kallström gerðu vonir íslenska liðsins að engu.>

Englendingar unnu Pólverja

Enska landsliðið lagði það pólska 2-1 í lokaleik sínum í undankeppni HM í kvöld og tryggði sér þar með sigurinn í riðlinum. Michael Owen og Frank Lampard skoruðu mörk enska liðsins, sem hafði nokkra yfirburði í leiknum.>

Valur lagði FH

Valsmenn unnu dramatískan sigur á FHingum í Kaplakrika í DHL-deild karla í handbolta í kvöld, en það var Baldvin Þorsteinsson sem skoraði sigurmark Vals úr vítakasti þegar leiktíminn var liðinn, lokastaðan 29-28.>

Írar sátu eftir með sárt ennið

Í gærkvöldi varð ljóst að Írum tækist ekki að vinna sær sæti á HM í Þýskalandi næsta sumar, því liðið náði aðeins markalausu jafntefli á heimavelli sínum gegn Svisslendingum, sem með stiginu fá sæti í umspili. Frakkar tryggðu sér beint sæti á HM með auðveldum sigri á Kýpur.>

Blikastúlkur burstuðu KR

Nýliðar Breiðabliks unnu auðveldan sigur á KRingum í úrvalsdeild kvenna í körfuknattleik í gærkvöldi, 89-58, en leikið var í DHL-Höllinni í Vesturbænum. Staðan í hálfleik var jöfn 31-31, en Blikastúlkur unnu síðari hálfleikinn 58-27.>

Giggs skoraði tvö fyrir Wales

Ryan Giggs, leikmaður Manchester United er heldur betur á skotskónum hjá landsliði sínu þessa dagana. Wales lauk keppni í gærkvöld með 2-0 sigri á Azerum, þar sem Giggs skoraði bæði mörk liðsins og skoraði þar með þrjú mörk í síðustu tveimur leikjum liðsins.>

Eriksson ánægður

Sven-Göran Eriksson, landsliðsþjálfari Englendinga var afar ánægður með frammistöðu sinna manna eftir sigurinn á Pólverjum í lokaleik undankeppni HM í gær, en sigurinn tryggði enskum efsta sætið í riðlinum.>

NBA leikmenn söfnuðu milljón

Miami Heat og San Antonio Spurs mættust í gærkvöld í sérstökum fjáröflunarleik fyrir fórnarlömb fellibylsins Katrínar. Miami hafði betur 103-101, en leikurinn var einnig liður í æfingatímabili liðanna tveggja. Yfir ein milljón Bandaríkjadala safnaðist í kjölfar leiksins.

Parlour fór í uppskurð

Ray Parlour, leikmaður Middlesbrough, hefur gengist undir aðgerð vegna hnémeiðsla sem hafa hrjáð hann síðan í september og verður líklega frá keppni fram í desember.

Fær Pleat stöðuhækkun?

David Pleat hefur strax verið sterklega orðaður við stöðu yfirmanns knattspyrnumála hjá Portsmouth, eftir að Velimir Zajec sagði starfi sínu lausu eftir aðeins ellefu mánuði í starfi.

Henry verður boðinn risasamningur

Peter Hill-Wood, stjórnarformaður Arsenal, segir að félagið hafi í hyggju að bjóða Thierry Henry stærsta samning í sögu félagsins ef hann fellst á að vera áfram hjá félaginu. Samningurinn myndi hljóða upp á fjögur ár og 100 þúsund pund á viku.

Finnan ekki ákærður

Varnarmaðurinn Steve Finnan verður ekki ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir að mál hans hefur verið tekið fyrir af saksóknara. Finnan lenti í árekstri við áttræðan mann í janúar á þessu ári, með þeim afleiðingum að maðurinn lést á sjúkrahúsi skömmu síðar.

Sérfræðingar óttast enskar bullur

Hollenskur sérfræðingur sem hefur að atvinnu að rannsaka fótboltabullur, segir að þrátt fyrir þokkalega hegðun stuðningsmanna enska landsliðsins í knattspyrnu á síðustu tveimur stórmótum, stafi enn hætta af enskum fótboltabullum og bendir á að þær verði undir smásjánni á HM í Þýskalandi næsta sumar.

Djetou til Bolton

Fyrrum franski landsliðsmaðurinn Martin Djetou hefur gengið til liðs við Bolton í ensku úrvalsdeildinni, en hann hafði verið samningslaus síðan hann fór frá franska liðinu Nice á síðustu leiktíð. Djetou er 31 árs og lék áður hjá Fulham á árunum 2002-04.

Potsdam hefur áhuga á Margréti

Þýska liðið Potsdam átti ekki í teljandi vandræðum með að vinna Val í Evrópukeppninni um helgina, en þjálfari liðsins sagðist hafa hrifist mjög af leik Margrétar Láru Viðarsdóttur og sagðist vilja fá hana til liðs við Potsdam. Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag.

United fylgist með Ballack

Þýski landsliðsmaðurinn Michael Ballack mun funda með forráðamönnum Bayern Munchen síðar í þessum mánuði, þar sem nýr samningur verður aðalumræðuefnið. Ekki er búist við að Ballack semji áfram við Bayern, en samningur hans rennur út í sumar.

Valur mætir Skövde

Í dag var dregið í Evrópukeppnunum  í handbolta. Valur mætir sænska liðinu Skövde í Evrópukeppni félagsliða, KA fær Mamuli Tblisi frá Georgíu og kvennalið Hauka mætir króatíska liðinu Podravka Koprivnica.

Svíar yfirspila Íslendinga

Eftir 20 mínútna leik er enn markalaust hjá Svíþjóð og Ísland í leik liðanna í undankeppni HM. Svíar verða að vinna til þess að tryggja sér 2. sætið í riðlinum og komst í umspil um sæti á HM. Íslendingar fengu fyrsta færið...

Hughes fékk óblíðar móttökur

Larry Hughes, fyrrum leikmaður Washington Wizards og núverandi leikmaður Cleveland Cavaliers, fékk óblíðar móttökur í gærkvöldi  þegar hann lék sinn fyrsta leik með nýja liðinu sínu í MCI Center í Washington.

Ísland yfir 2-0 gegn Svíum

Íslenska U-21 árs landsliðið í knattspyrnu hefur 2-0 forystu í hálfleik gegn Svíum í Eskilstuna í Svíþjóð í undankeppni EM. Hörður Sveinsson skoraði bæði mörk liðsins á fjórum mínútum undir lok fyrri hálfleiksins.

Njarðvík spáð sigri í körfunni

Njarðvíkingum er spáð efsta sætinu í IcelandExpress deildinni í körfubolta karla í vetur, en Keflvíkingum í kvennaflokki. Þetta kom fram á blaðamannafundi í dag, þar sem þjálfarar og leikmenn kunngerðu spá sína um niðurröðun liða í efstu deild í vetur.

Spáin kom Einari á óvart

Einar Árni Jóhannsson, þjálfari Njarðvíkur í úrvalsdeildinni í körfubolta, segir að nýútkomin spá forráðamanna, þjálfara og leikmanna hafi komið sér nokkuð á óvart, en eins og greint var frá hér á Vísi í dag, var Njarðvíkingum spáð efsta sæti í deildinni í vetur.

Ísland komið í 3-0 í Svíþjóð

Íslenska U-21 árs landsliðið er komið í 3-0 gegn Svíum í Eskilstuna í undankeppni EM og það var Bjarni Þór Viðarsson sem skoraði þriðja markið um stundarfjórðungi fyrir leikslok. Bjarni skoraði með glæsilegum skalla eftir hornspyrnu Emils Hallfreðssonar, sem hefur lagt upp tvö af mörkum Íslands í leiknum. Hörður Sveinsson skoraði hin tvö mörkin í fyrri hálfleik.

Ísland lagði Svía 4-1

Íslenska U-21 árs landsliðið lagði Svía 4-1 í Eskilstuna í Svíþjóð í dag og hafnaði því í fjórða sæti riðils síns í undankeppni EM. Hörður Sveinsson skoraði tvö marka íslenska liðsins í fyrri hálfleik og þeir Bjarni Þór Viðarsson og Garðar Gunnlaugsson bættu við sitt hvoru markinu í þeim síðari. Emil Hallfreðsson lagði upp þrjú marka íslenska liðsins.

Stoudemire frá í fjóra mánuði

Lið Phoenix Suns varð fyrir gríðarlegu áfalli í dag þegar í ljós kom að lykilmaður liðsins, Amare Stoudemire, verði frá í allt að fjóra mánuði eftir að hann gekkst undir uppskurð á hné. Stoudemire er ein skærasta stjarnan í NBA deildinni í dag og skemmst er að minnast tilþrifa hans í úrslitakeppninni í vor.

Raikkönen stal sigrinum í Japan

Kimi Raikkönen stal senunni á Suzuka brautinni í Japan í nótt þegar hann tryggði sér sigur með því að skjótast fram úr Giancarlo Fisichella á síðasta hringnum, en Raikkönen ræsti aðeins í sautjánda sæti á ráslínu. Renault náði þó að komast upp fyrir McLaren í stigakeppni bílasmiða, eftir að Juan Pablo Montoya féll úr keppni á fyrsta hring.

Castillo kom fram hefndum

Mexíkóski boxarinn Jose Luis Castillo kom fram hefndum gegn Diego Corrales í nótt, þegar dómarinn stöðvaði annan bardaga þeirra í fjórðu lotu eftir að Castillo hafði lumbrað duglega á Corrales og slegið hann í gólfið.

Meiðsli í herbúðum Englendinga

Nú hefur verið staðfest að Steven Gerrard mun ekki verða með Englendingum í leiknum gegn Pólverjum um efsta sætið í sjötta riðlinum í undankeppni HM, en auk hans verða þeir Ashley Cole, Sol Campell og David Beckham frá vegna meiðsla og leikbanns.

Gallas vill fara frá Chelsea

Franski varnarmaðurinn William Gallas hjá Chelsea hefur gefið það út að hann muni jafnvel fara frá liðnu þegar samningur hans rennur út eftir næsta keppnistímabil, því hann segist þurfa nýja áskorun áður en hann leggur skóna á hilluna.

Potsdam leiðir 2-1 í hálfleik

Þýska stórliðið Potsdam hefur 2-1 forystu gegn Val í fyrri leik liðanna í 8 liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða á Laugardalsvelli, en nú er hálfleikur í viðureigninni. Fyrsta mark leiksins var sjálfsmark Valsstúlkna, en Guðný Óðinsdóttir náði að jafna metin á 36. mínútu. Þær þýsku komust svo yfir rétt fyrir lok hálfleiksins með glæsilegu marki.

Pudzianowski sterkasti maður heims

Pólska tröllið Mariusz Pudzianowski tryggði sér í nótt titilinn Sterkasti maður heims í Chengdu í Kína. Í öðru sæti hafnaði Jessie Marunde og Dominic Filiou varð þriðji. Mikil stemming var fyrir keppninni í Kína, þar sem milljónir fylgdust með í sjónvarpi. Pudzianowski hlaut samanlagt um 140.000 dollara í verðlaun fyrir sigurinn.

Grátlegt tap hjá Stjörnustúlkum

Stjörnustúlkur þurftu að sætta sig við að falla úr keppni í Evrópukeppni bikarhafa með minnsta mögulega mun í dag, þegar þær töpuðu 33-27 fyrir tyrkneska liðinu Anadolu í síðari leik liðanna í Ásgarði. Tyrkneska liðið fer því áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli, því Stjarnan vann fyrri leik liðanna með sama mun á föstudag, en þar skoraði Tyrkneska liðið fleiri mörk.

Valsstúlkur kjöldregnar af Potsdam

Kvennalið Vals var tekið í kennslustund af Evrópumeisturum félagsliða, Potsdam frá Þýskalandi, á Laugardalsvelli í dag. Eftir að leikurinn var nokkuð jafn í fyrri hálfleik, opnaðist fyrir allar flóðgáttir hjá Val í þeim síðari og niðurstaðan 8-1 sigur þýska liðsins.

Haukar töpuðu stórt

Karlalið Hauka tapaði 38-25 fyrir slóvenska liðinu Gorenje Velenja í Meistaradeildinni í handknattleik í dag. Staðan í hálfleik var 18-13 fyrir Gorenje.

Frakkland sigraði í A1 í dag

Frakkar höfðu tvöfaldan sigur í A1 kappakstrinum á Lausitzring í Þýskalandi í dag, þar sem Nicolas Lapierre vann bæði hraðakeppnina og kappaksturinn. Robbie Kerr frá Bretlandi varð annar í keppninni í dag.

Golfið á Sýn í kvöld

Nú stendur keppni á World Golf Championship í San Francisco sem hæst og áskrifendur Sýnar geta barið marga af bestu kylfingum heims augum þegar útsending frá mótinu hefst klukkan 18:20 í dag. John Daly tók forystu á mótinu í gær þegar hann lék þriðja hring sinn í röð á 67 höggum og var á níu höggum undir pari.

Keflavík yfir gegn Haukum

Keflavíkurstúlkur fara á kostum í fyrri hálfleik gegn Haukum í meistarakeppni KKÍ í keflavík, en staðan er 38-19 í hálfleik fyrir Keflavík. Keflavíkurliðið er til að mynda með jafn marga stolna bolta (19) og Haukarnir stig í fyrri hálfleik.

Þær þýsku nýttu færi sín

Þýsku Evrópumeistararnir í Potsdam sigrðu Valsstúlkur á Laugardalsvelli 8-1 í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða. Margrét Lára Viðarsdóttir átti stórleik í framlínu Vals.

Aðalsteinn svekktur og sár

Kvennalið Stjörnunnar féll úr leik í Áskorendakeppni Evrópu í gær með því að tapa með sex marka mun, 27-33, fyrir tyrkneska liðinu Anadolu University. Fimm marka sigur Stjörnunnar í fyrri leiknum dugði ekki til.

Sjá næstu 50 fréttir