Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Íslensku stelpurnar marki undir Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu er undir 1-0 í hálfleik gegn Tékkum ytra, en mark þeirra kom eftir átta mínútna leik. Leikurinn er í undankeppni HM, en íslenska liðið var í efsta sæti riðils síns fyrir leikinn. 24.9.2005 00:01
Hálfleikur á Laugardalsvelli Nú er hálfleikur í bikarúrslitaviðureign Vals og Fram á Laugardalsvelli og skemmst frá því að segja að leikurinn er hundleiðinlegur. Hvorugt lið hefur þorað að taka áhættu í leiknum eða sækja af neinu viti og því hafa áhorfendur ekki fengið mikið fyrir sinn snúð. 24.9.2005 00:01
Hálfleikur á Englandi Nú er hálfleikur í leikjunum sex sem standa yfir í ensku knattspyrnunni, en hægt er að fylgjast með gangi mála í leikjunum á Boltavaktinni hér á Vísi. Það vekur athygli að Manchester United er undir á heimavelli sínum gegn Blackburn og Chelsea hefur fengið á sig fyrsta markið á tímabilinu á heimavelli gegn Aston Villa. 24.9.2005 00:01
Baldur kemur Val yfir Síðari hálfleikurinn hjá Fram og Val byrjar mun betur en sá fyrri og nú hafa Valsmenn náð forystunni með marki Baldurs Aðalsteinssonar, sem skoraði með góðu skoti á 52. mínútu leiksins. Fylgst er með gangi mála á Boltavaktinni. 24.9.2005 00:01
Ísland tapaði fyrir Tékkum Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu tapaði 1-0 fyrir Tékkum í undankeppni HM nú áðan. Þetta var fyrsta tap íslenska liðsins í riðlinum og mark tékkneska liðsins kom eftir átta mínútur. 24.9.2005 00:01
Valur bikarmeistari Valur er bikarmeistari árið 2005 eftir sigur á Fram 1-0 í úrslitaleik sem lauk nú rétt í þessu. Það var Baldur Aðalsteinsson sem skoraði eina mark leiksins á 52. mínútu og eru Valsmenn vel að sigrinum komnir eftir frábært sumar, þar sem þeir höfnuðu í öðru sæti Landsbankadeildarinnar sem nýliðar í deildinni. 24.9.2005 00:01
Leikjum lokið á Englandi Leikjunum sex í ensku úrvalsdeildinni er lokið, en þar ber hæst að Manchester United tapaði á heimavelli fyrir Blackburn og Chelsea hélt sigurgöngu sinn áfram með sigri á Aston Villa á heimavelli sínum. 24.9.2005 00:01
HK lagði ÍBV HK vann auðveldan sigur á ÍBV, 35-22 í DHL deild karla í handknattleik, eftir að staðan hafði verið 16-8 í hálfleik, heimamönnum í vil. Vilhelm Bergsveinsson var atkvæðamestur heimamanna og skoraði 8 mörk, en Mladen Cacic skoraði sömuleiðis 8 fyrir Eyjamenn. 24.9.2005 00:01
Þór vann góðan sigur á Stjörnunni Þór frá Akureyri gerði sér lítið fyrir og lagði Stjörnuna úr Garðabæ fyrir norðan nú áðan, lokatölur 25-24, eftir að gestirnir höfðu verið yfir í hálfleik 14-12. 24.9.2005 00:01
Þýski handboltinn í dag Nokkrum leikjum er lokið í þýska handboltanum í dag. Guðjón Valur Sigurðsson varð markahæstur í liði sínu Gummersbach sem sigraði Melsungen örugglega 38-21 á útivelli, en Guðjón skoraði 7 mörk í leiknum og Róbert Gunnarsson skoraði tvö. 24.9.2005 00:01
Loksins tapaði Bayern Þýsku meistararnir í Bayern Munchen töpuðu loks sínum fyrsta leik í Bundesligunni í dag þegar liðið sótti sprækt lið Hamburger heim og tapaði 2-0. Sigur HSV var síst of stór og aðeins góður leikur Oliver Kahn í marki heimamanna bjargaði meisturunum frá stærra tapi. 24.9.2005 00:01
Jafntefli í Mosfellsbæ Afturelding og Selfoss gerðu jafntefli 30-30 í síðasta leik dagsins í DHL deild karla í handbolta í dag, eftir að gestirnir höfðu yfir 15-14 í hálfleik. Hrafn Ingvarsson var markahæstur í liði heimamanna með 6 mörk og Daníel Jónsson skoraði 4. 24.9.2005 00:01
Stjarnan burstaði KA/Þór Stjarnan úr Garðabæ burstaði lið KA/Þórs 34-17 í opnunarleik DHL deildar kvenna í handbolta nú rétt áðan, eftir að hafa verið yfir 15-6 í hálfleik. Sólveig Lára Kjærnested var markahæst Stjörnustúlkna með sjö mörk, Elizabet Kowal skoraði sex mörk og Jóna Margrét Ragnarsdóttir. 24.9.2005 00:01
Bolton sigraði Portsmouth Bolton Wanderers lyfti sér í þriðja sæti ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu áðan, þegar liðið bar sigurorð af slöku liði Portsmouth, sem á í stökustu vandræðum í deildinni. Það var Kevin Nolan sem skoraði sigurmark Bolton á 25. mínútu leiksins og þar við sat. 24.9.2005 00:01
Alonso á ráspól í Brasilíu Spænski ökuþórinn Fernando Alonso náði besta tímanum í tímatökum fyrir brasilíska kappaksturinn sem fram fer á morgun. Juan Pablo Montoya náði öðrum besta tímanum, en félagi Alonso hjá Renault, Giancarlo Fisichella kom þriðji. 24.9.2005 00:01
Grikkir í úrslit á EM í körfu Grikkir unnu dramatískan sigur á Frökkum í undanúrslitum Evrópukeppninnar í körfuknattleik í Belgrad nú í kvöld. Það var Dimitrios Diamantids sem skoraði sigurkörfu Grikkja í blálokin með þriggja stiga skoti og tryggði sínum mönnum sigur 66-65 og farseðilinn í úrslitin. 24.9.2005 00:01
Loksins titill hjá Val eftir 13 ár Baldur Aðalsteinsson tryggði Val níunda bikarmeistaratitil félagsins þegar hann skoraði sigurmarkið gegn Fram með skoti langt utan af kanti. Framarar voru síst lakari aðilinn í leiknum en það voru nýliðar Valsmanna sem kórónuðu frábært tímabil með því að vinna bikarinn. 24.9.2005 00:01
Þetta var skot hjá mér „Þetta var skot! Ég sá að Gunnar stóð of framarlega þannig að ég tók þá ákvörðun að skjóta," sagði Húsvíkingurinn Baldur Aðalsteinsson strax eftir leik en hann skoraði eina mark bikarúrslitaleiksins í ár. 24.9.2005 00:01
Það var kominn tími á þetta „Þetta er alveg meiriháttar. Það var svo sannarlega kominn tími til að lyfta alvöru bikar. Ég er kominn með góða æfingu eftir að hafa unnið 1. deildina, Reykjavíkurmótið, Canella Cup, Íslandsmótið innan hús og ég veit ekki hvað," sagði Sigurbjörn Hreiðarsson, fyrirliði Valsmanna. 24.9.2005 00:01
Ótrúlegt að við skyldum tapa Ólafur Kristjánsson, þjálfari Fram, var mjög svekktur eftir tap liðsins gegn Val í bikarúrslitunum. „Við áttum mikið fleiri færi en þeir og svo kemur ein helvítis fyrirgjöf og hún endar í markinu. Það er alveg ótrúlegt að við skyldum tapa þessum leik." 24.9.2005 00:01
Willum Þór var í skýjunum Willum Þór Þórsson, þjálfari Vals, var í skýjunum eftir sigurinn á Fram. Kópavogsbúinn geðþekki hefur nú unnið nánast allt sem hægt er að vinna í íslenskri knattspyrnu, allar deildirnar fjórar og nú bikarinn eftirsótta. 24.9.2005 00:01
Vaxa og dafna undir góðri leiðsögn VISA Europe styður þrjá íslenska skíðamenn til keppni á vetrarólympíuleikunum og íslensku krakkarnir, Dagný Linda Kristjánsdóttir, Kristján Uni Óskarsson og Elsa Guðrún Jónsdóttir, hittu aðra verðandi Ólympíufara sem og gamla Ólympíumeistara á Ítalíu í vikunni. 24.9.2005 00:01
Slæmur fyrri hálfleikur í gær Íslenska kvennalandsliðið tapaði 0–1 fyrir Tékkum í gær en þetta var fyrsta tap íslenska liðsins í undankeppni fyrir HM í Kína 2007. Sænska landsliðið vann Hvít-Rússa 6–0 á sama tíma og er komið á toppinn í riðlinum. 24.9.2005 00:01
Heiðar þarf enn að vera þolinmóður Landsliðsmaðurinn Heiðar Helguson hjá Fulham í ensku úrvalsdeildinni, þarf að vera þolinmóður enn um sinn, því hann verður áfram á varamannabekk liðsins á mánudagskvöld þegar liðið mætir Tottenham Hotspurs. 23.9.2005 00:01
Hnefaleikari lætur lífið Bandaríski hnefaleikarinn Levander Johnson lét lífið á sjúkrahúsi í gær eftir að blætt hafði inn á heila hans í bardaga gegn mexókóska boxaranum Jesus Chaves á laugardaginn. Johnson var 35 ára gamall og var fluttur í skyndi á sjúkrahús eftir að hafa tapað bardaganum í 11. lotu, en hann féll í yfirlið í búningsherbergi eftir bardagann. 23.9.2005 00:01
Woodgate þakkaði stuðningsmönnum Hrakfallabálkurinn Jonathan Woodgate þakkaði stuðningsmönnum Real Madrid fyrir að standa við bakið á sér eftir ófarir sínar í leik Real og Bilbao í gær, en þessi fyrsti leikur hans með aðalliði í nær eitt og hálft ár, snerist upp í algjöra martröð eins og áhorfendur Sýnar fengu að verða vitni að í skrautlegum leik í gærkvöld. 23.9.2005 00:01
Neville frá í sex vikur Nú er ljóst að varnarmaðurinn Gary Neville hjá Manchester United verður frá keppni í sex vikur eftir að hann fór í uppskurð vegna meiðsla í nára. Búist var við að Neville yrði klár í slaginn um helgina, en honum sló niður á æfingu og var því drifinn í uppskurð. 23.9.2005 00:01
Vieira aðvarar Arsenal Miðjumaðurinn Patrick Vieira hjá Juventus hefur gefið út aðvörunarorð til fyrrum félaga sinna í Arsenal og segir að félagið verði að bretta upp ermarnar í leikmannamálum ef það ætli sér að halda framherjanum snjalla Thierry Henry lengur í sínum röðum. 23.9.2005 00:01
Heimsúrvalið með forystu Heimsúrvalið í golfi hefur forystu að loknum fyrsta keppnisdegi í Forsetabikarnum sem hófst í gær á Robert Trent Jones vellinum í Virginíu. Heimsúrvalið hefur þrjá og hálfan vinning á móti tveimur og hálfum vinningi Bandaríkjamanna. 23.9.2005 00:01
Viktor Bjarki efstur hjá Vodafone Viktor Bjarki Arnarsson úr Fylki hafnaði í efsta sæti eftir sumarið í SMS kosningu Og Vodafone og áhorfenda í Landsbankadeildinni í sumar, eftir hörku einvígi við þá Matthías Guðmundsson í Val og Grétar Ólaf Hjartarsson úr KR. 23.9.2005 00:01
Logi farinn til Bayreuth Logi Gunnarsson, landsliðsmaður í körfuknattleik, hefur skrifað undir eins árs samning við Bayreuth frá Þýskalandi sem leikur í annari deildinni þar í landi en Logi lék á síðustu leiktíð með Giessen í efstu deild. 23.9.2005 00:01
McLaren fljótastir á æfingum Alex Wurz, æfingaökumaður McLaren, náði besta tíma allra á æfingum fyrir Brasilíukappaksturinn sem fram fóru nú áðan. Takuma Sato hjá BAR átti annan besta tímann, en verðandi heimsmeistarinn Fernando Alonso kom næstur þar á eftir. 23.9.2005 00:01
EM í körfubolta Nú er hálfleikur í viðureign Slóvena og Þjóðverja í átta liða úrslitum á Evrópumeistaramótinu í körfuknattleik sem fram fer í Serbíu. Staðan er jöfn 34-34. Dirk Nowitzki er stigahæstur í liði Þjóðverja með 12 stig og 6 fráköst, en þeir Lakovic og Brezek hafa skorað 11 stig hvor fyrir Slóvena. 23.9.2005 00:01
Þjóðverjar í undanúrslit Þjóðverjar tryggðu sér nú rétt í þessu farseðilinn í undanúrslit Evrópumótsins í körfuknattleik, þegar þeir lögðu Slóvena nokkuð örugglega, 76-62. Dirk Nowitzki var atkvæðamestur í liði Þjóðverja með 22 stig og 9 fráköst og þeir Roller og Demirel skoruðu 15 hvor. 23.9.2005 00:01
Óvissa með framtíð Henry Arsene Wenger hefur viðurkennt að framtíð franska framherjans Thierry Henry hjá Arsenal sé óljós og bendir á að hann sé alls ekki viss um að félagið geti haldið leikmanninum í sínum röðum. 23.9.2005 00:01
Routledge fjarri bata Miðjumaðurinn Wayne Routledge hjá Tottenham á enn langt í land með að ná sér af meiðslum sínum og Martin Jol knattspyrnustjóri liðsins óttast að hann verði frá í að minnsta kosti tvo mánuði í viðbót. 23.9.2005 00:01
Chelsea hefur heppnina með sér Arsene Wenger segir heilladísirnar hafa verið á bandi Chelsea það sem af er leiktíðinni og spáir að þegar liðið loks tapar í úrvalsdeildinni, gæti það haft í för með sér taphrinu, ekki ósvipaða þeirri sem Arsenal lenti í þegar sigurganga þeirra var stöðvuð í deildinni í fyrra. 23.9.2005 00:01
Stórsigur Íslands á Andorra Íslenska U-17 ára landsliðið í knattspyrnu vann stórsigur á Andorra í undankeppni EM í Andorra í kvöld. Staðan í hálfleik var 1-0 fyrir Ísland, en í síðari hálfleik fóru íslensku strákarnir á kostum og skoruðu fimm mörk gegn varnarsinnuðu liði heimamanna. 23.9.2005 00:01
Bjarni í byrjunarliðinu Bjarni Guðjónsson og samherjar hans í Plymouth fengu nýjan knattspyrnustjóra í gær þegar Tony Pulis tók við stjórnartaumunum. Pulis var rekinn frá Íslendingaliðinu Stoke City í sumar þrátt fyrir að ná ágætum árangri þau þrjú ár sem hann stýrði liðinu en íslensku fjárfestarnir voru ekki sáttur við hvernig Pulis meðhöndlaði íslensku leikmennina hjá Stoke, eins og t.d. Þórð Guðjónsson. 23.9.2005 00:01
Bikarúrslitin í dag Það má búast við miklum baráttuleik í dag þegar Fram og Valur mætast í úrslitaleik VISA-bikarkeppninnar. Ólafur Kristjánsson, þjálfari Fram, hefur þurft að beita öllum ráðum til þess að fá sína leikmenn til þess að einbeita sér að leiknum eftir að hafa fallið í 1.deild um síðustu helgi. 23.9.2005 00:01
Keflvíkingar vilja Andra Val Keflvíkingar eiga nú í viðræðum við Andra Val Ívarsson sem leikið hefur með Völsungi undanfarin ár. Andri hefur verið skæðasti sóknarmaður Völsungs og er búinn að vera í hópi markahæstu leikmanna 1. deildar síðustu tvö tímabil. 23.9.2005 00:01
Ísland-Tékkland í dag Íslenska kvennalandsliðið í knattspyrnu mætir í dag Tékklandi í undankeppni heimsmeistaramótsins sem fer fram í Kína árið 2007. Ísland er í efsta sæti síns riðils eins og staðan er nú og á ágæta möguleika á því að komast í lokakeppnina ef vel gengur í leikjunum sem eftir eru. 23.9.2005 00:01
Handboltinn í dag Það má reikna með hörkuleikjum í DHL-deildinni í handbolta í dag, þrír leikir fara fram í karlaflokki og einn í kvennaflokki. Fréttablaðið fékk Jóhannes Bjarnason, yfirþjálfara hjá yngri flokkum KA, til þess að spá í leikina. 23.9.2005 00:01
Keppni aflýst í Forsetabikarnum Keppni í forsetabikarnum í golfi í Bandaríkjunum hefur verið frestað um óákveðinn tíma vegna þrumuveðurs. Þegar keppnin var flautuð af var sex leikjum ólokið, en alheimsúrvalið var þá yfir í þremur leikjum, en Bandaríkjamenn í fjórum. Sýnt verður frá mótinu á sjónvarpsstöðinni Sýn um helgina. 23.9.2005 00:01
Spánverjar lögðu Króata Spánverjar urðu nú áðan síðasta liðið til að tryggja sig í undanúrslitin í Evrópukeppni landsliða í körfuknattleik, þegar þeir báru sigurorð af Króötum í æsispennandi framlengdum leik, 101-85. Spænska liðið náði á ævintýralegan hátt að tryggja sér framlengingu á lokasekúndum venjulegs leiktíma og tóku svo öll völd á vellinum í framlengingunni. 23.9.2005 00:01