Fleiri fréttir

Young Boys

Skagamaðurinn fyrrverandi Grétar Rafn Steinsson lék allann leikinn með Youngs Boys þegar liðið vann Neuchatel Xamax 3-1 í fyrsta leik  svissnesku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í gær.

Sænska úrvalsdeildin

Gunnar Heiðar Þorvaldsson skoraði eina mark Halmstad þegar liðið tapaði fyrir Gais 2-1 í sænsku bikarkeppninni í gær. Ásthildur Helgadóttir lék í 75.mínútu þegar lið hennar malmö bar sigurorð af AIK 2-0 í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Malmö og Umea eru efst í deildinni með 25 stig.

Evrópukeppni félagsliða í kvöld

ÍBV og Keflavík verða í eldlínunni í dag í forkeppni Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Eyjamenn leika á heimavelli fyrri leik sinn gegn Færeyska liðinu B-36 og hefst leikurinn á Hásteinsvelli klukkan sex. Keflvíkingar leika gegn Etzella frá Luxembourg á útivelli og verður flautað til leiks klukkan 16.30.

Fyrsta deild karla í kvöld

Þrír leikir eru í fyrstu deild karla í fótbolta í kvöld og flautað verður til leiks klukkan 20. Fjölnir tekur á móti Víkingi Reykjavík. Haukar og Breiðablik eigast við og Völsungar mæta KA á Húsavík. Leiknir og ÍR leika í annarri deild og Selfoss og Tindastóll.

Vieira á förum til Juventus

Arsenal hefur staðfest að félagið hefur tekið tilboði frá ítalska stórliðinu Juventus í fyrirliða sinn Patrick Vieira. Tilboðið hljóðar upp á 13,75 milljónir punda í þennan 29 ára miðjumann.

Hörður kemur Keflavík yfir

Hörður Sveinsson er búinn að koma Keflavík í 0-1 gegn FC Etzella í Lúxemborg í 1.umferð forkeppni Evrópukeppni félagsliða en leikurinn er nýhafinn í Lúxemborg. Leikur VISA-bikarmeistara Keflavíkur fer fram á Stade du Deich leikvanginum í Ettelbrück, sem tekur 650 manns í sæti, og hófst kl. 16:30 að íslenskum tíma.

Keflavík yfir í hálfleik

Keflvíkingar eru 0-1 yfir í hálfleik gegn Etzella frá Luxembourg í hálfleik en nú stendur yfir ytra fyrri leikur liðanna í 1. umferð Evrópukeppni félagsliða í knattspyrnu. Leikurinn hófst kl. 16.30. Hörður Sveinsson skoraði mark Keflavík strax á 10. mínútu leiksins. Eyjamenn leika gegn Færeyska liðinu B-36 klukkan 18.00.

Birgir Leifur í 32. sæti

Birgir Leifur Hafþórsson er í 32.sæti þegar öðrum degi er lokið á opna Texbond mótinu við Garda vatn á Ítalíu í Áskorendamótaröð Evrópu. 153 keppendur hófu keppni. Birgir Leifur var á þremur höggum yfir pari eftir níu holur í morgun en lék stórkostlega seinni níu á 31 höggi.

Ferna hjá Herði í Lúxemborg

Keflvíkingar unnu stórsigur gegn FC Etzella í Lúxemborg í 1.umferð forkeppni Evrópukeppni félagsliða en leikurinn fór fram í Lúxemborg. VISA-bikarmeistarar Keflavíkur unnu leikinn 0-4 og skoraði Hörður Sveinsson öll fjögur mörkin í leiknum.

Eyjamenn standa í ströngu gegn B36

Staðan er jöfn, 1-1, í leik ÍBV og B36 frá Færeyjum en nú stendur yfir fyrri leikur liðanna í 1. umferð Evrópukeppni félagsliða á Hásteinsvelli í Ejum. Leikurinn hófst kl. 18.00.

Jafnt í hálfleik í Eyjum

Það er jafnt í hálfleik, 1-1, hjá ÍBV og B36 í fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppni Evrópukeppni félagsliða en leikur fer nú fram á Hásteinsvellinum í Eyjum. Færeyska liðið skoraði strax á 7. mínútu en Pétur Óskar Sigurðsson jafnaði á 25. mínútu.

Hensby á hælum Tiger

Ástralinn Mark Hensby var senuþjófurinn í lok fyrsta dags á opna breska meistaramótinu í golfi í dag en hann læddi sér í 2. sætið og er á 5 höggum undir pari, einu á eftir Tiger Woods. Hann hóf keppni með þeim síðustu og er nú nýkominn af braut eftir að ljúka 18. holu.

Ólöf á tveimur yfir pari

Ólöf María Jónsdóttir endaði á tveimur höggum yfir pari í dag á fyrsta hring sínum á Opna ungverska mótinu í golfi og er sem stendur í 58.-75. sæti. Mótið sem hófst í dag fer fram á Old Lake Golf Country Club vellinum í Ungverjalandi og er hluti af Evrópumótaröð kvenna.

ÍBV náði ekki að sigra heima

ÍBV og B36 frá Færeyjum gerðu 1-1 jafntefli í fyrri leik liðanna í 1. umferð forkeppni Evrópukeppni félagsliða en leiknum var að ljúka á Hásteinsvellinum í Eyjum. Færeyska liðið skoraði strax á 7. mínútu en Pétur Óskar Sigurðsson jafnaði á 25. mínútu.

Það er mikill klassi yfir Atla

Klæðnaður Atla Eðvaldssonar, nýráðins þjálfara Þróttar í Landsbankadeild karla, vakti mikla kátínu á meðal Köttaranna, stuðningsmannahóps Þróttar, í leiknum gegn ÍA í fyrradag. Minnti Atli um margt á Jose Mourinho hjá Chelsea, klæddur í dökkan og síðan frakka yfir jakkafötin.

Brian er samningsbundinn Keflavík

Brian O'Callaghan, Írinn sem samdi við Keflavík fyrir Íslandsmótið í knattspyrnu í vor, æfir nú með Notts County á Englandi en hefur ekki enn fengið leikheimild, þar sem forráðamenn Keflvíkinga vilja ekki leysa hann undan samningi.

Draumur að spila með aðalliðinu

Bjarni Þór Viðarsson, knattspyrnumaðurinn ungi, lék sinn fyrsta leik með aðalliði enska liðsins Everton á miðvikudagskvöld þegar hann kom inn sem varamaður í æfingaleik gegn skoska liðinu Dundee United.

Toppliðin unnu í 1. deild

Öll toppliðin þrjú unnu leiki sína í 1. deild karla í knattspyrnu í kvöld en þá fóru fram þrír leikir í 11. umferð. Topplið Breiðabliks vann nauman sigur á Haukum að Ásvöllum, 0-1 og það var dramatík á Fjölnisvelli þar sem annað efsta lið deildarinnar, Víkingur tryggði sér 1-2 sigur á Fjölni á lokamínútu leiksins. KA vann 0-1 útisigur á Völsungi.

Selfoss saxaði á Leikni

Tveir leikir fóru fram í 2. deild karla í kvöld. Topplið Leiknis gerði 1-1 jafntefli í nágrannaslagnum gegn ÍR og Selfoss vann Tindastól 3-0. Leiknir er efst með 22 stig eftir 10 leiki en Selfoss komst í 2. sætið með sigrinum og hafa 19 stig eftir 10 leiki. ÍR komst úr fallsæti með jafnteflisstiginu og eru í 7. sæti með 10 stig.

Mourinho barmar sér

Jose Mourinho segir að það sé ekki tekið út með sældinni að eltast við góða leikmenn ef maður er knattspyrnustjóri Chelsea, því lið séu fljót að rísa upp á afturlappirnar ef einhver af leikmönnum þess er orðaður við ensku meistarana.

Liverpool bauð í Milito

Spænska liðið Real Zaragoza hefur staðfest að Liverpool hafi komið með tilboð í varnarmanninn Gabriel Milito en segja að leikmaðurinn sé ekki til sölu.

Wright-Phillips einbeittur

Stuart Pearce, knattpyrnustjóri Manchester City, segist vera orðinn dauðleiður á orðrómi um að Shaun Wright-Phillips sé á leið frá félaginu, en segir jafnframt að leikmaðurinn ungi hafi sýnt mikinn þroska með því að láta orðróminn ekki hafa áhrif á sig við æfingar.

Beretta tekinn við Parma

Mario Beretta hefur verið ráðinn nýr þjálfari ítalska liðsins Parma. Beretta var rekinn frá Chievo seint á síðasta tímabili eftir að liðið var komið niður í fallsvæðið. Það stoppaði þó ekki Parma.

Beretta tekinn við Parma

Mario Beretta hefur verið ráðinn nýr þjálfari ítalska liðsins Parma. Beretta var rekinn frá Chievo seint á síðasta tímabili eftir að liðið var komið niður í fallsvæðið. Það stoppaði þó ekki Parma.

Forseti Barcelona strippar

Forseti spænsku meistaranna í Barcelona, Joan Laporta, reif sig úr görmunum fyrir framan flugvallarstafsmenn í Madrid í gær. Öryggishlið sem Laporta þurfti að fara í gegnum, bjallaði í þrígang og þegar forsetinn reyndi í fjórða skiptið missti hann stjórn á skapi sínu.

Sir Alex á eftir markverði Stoke

Manchester United hafa gert 130 milljóna króna kauptilboð í varamarkvörð Stoke City, Ben Forster. Forster sem er 22 ára hefur enn ekki spilað leik með Stoke en markvarðarmál Stoke eru í öruggum höndum Steve Simonsen sem á sínum tíma var dýrasti markvörðurinn í enska boltanum.

Ólöglegur með Notts County

Varnarmaðurinn Brian O´Callaghan er enn samningsbundinn Keflavík í Landsbankadeildinni í fótbolta. O´Callaghan hefur þegar skrifað undir samning við Guðjón Þórðarson hjá Notts County þrátt fyrir að vera samningsbundinn hjá Suðurnesjaliðinu.

Simon Samuelsson til Keflavíkur

Eftir helgi kemur færeyski landsliðsmaðurinn Simon Samuelsson til reynslu hjá Keflavík. Hann hefur leikið með Vogi í Færeyjum og þykir mjög efnilegur framliggjandi miðjumaður. Móðir hans er íslensk og er úr Keflavík en Simon hefur búið í Færeyjum í ellefu ár.

Úrslit Landsbankadeildar 12. júlí

Aðeins eitt mark var skorað í tveimur síðustu leikjum tíundu umferðar Landsbankadeildar karla í knattspyrnu í gærkvöld. Matthías Guðmundsson skoraði sigurmark Vals á 75. mínútu gegn Grindavík á Grindavíkurvelli.

Efstu sætin í Visa bikar kvenna

KR, Fjölnir og Breiðablik tryggðu sér sæti í undanúrslitum Visa bikars kvenna í knattspyrnu í gær. KR lagði Stjörnuna að velli 1-3.Hrefna Jóhannesdóttir skoraði tvívegis fyrir KR.

Mæta Serbíu í janúar

Karlalandsliðið í handbolta leikur fyrsta leik sinn á Evrópumótinu í Sviss í 26. janúar á næsta ári gegn Serbíu og Svartfjallalandi en leikjadagskrá mótsins kom út í gær. Þeir leika einnig gegn Dönum og Ungverjum í C-riðli en þrjár efstu þjóðirnar komast áfram í milliriðla.

Mathias Jonson til Djugardern

Sænski sóknarmaðurinn Mathias Jonson sem leikið hefur með Norwich City er á leiðinni til Djurgarden en með liðinu leika íslendingarnir Kári Árnason og Sölvi Geir Ottesen. Félögin hafa komist að samkomulagi um kaupverð en Jonson á eftir að semja um launaliði.

Liverpool og TNS í kvöld

Liverpool mætir Welska liðinu TNS í 1. umferð forkeppni meistaradeildarinnar í knattspyrnu í  kvöld.  Leikurinn verður sýndur beint á Sýn en hann hann hefst klukkan 18:45.  Margir leikmenn í TNS-liðinu eru gallharðir stuðningsmenn Liverpool. 

Zidane hvetur Viera til að fara

Franska goðsögnin, Zinedine Zidane, leikmaður Real Madrid hvetur landa sinn Patrick Viera til að róa á önnur mið. Bæði Juventus og Real Madrid hafa sýnt Viera, sem er 29 ára gamall miðjumaður, mikinn áhuga.

Fróði og Pól á leið til landsins

ÍBV mætir B36 á morgun í Vestmannaeyjum í 1.umferð UEFA keppninnar í knattspyrnu. B36 er í efsta sæti færeysku Formúludeildarinnar ásamt Skála og HB.

Búið að velja U21 kvenna

Elísabet Gunnarsdóttir, þjálfari U21 landsliðs kvennaí knatspyrnu, hefur valið 18 manna hóp til þátttöku á Opna Norðurlandamótinu, sem fram fer í Svíþjóð síðar í mánuðinum.

Khan tilbúinn

Breski hnefaleikamaðurinn, Amir Khan, sem sló í gegn á Ólympíleikunum í Sydney í fyrra berst á laugardaginn sinn fyrsta bardaga sem atvinnumaður. Silfurverðlaunahafinn frá því í Sydney sem aðeins er 18 ára er sagður eitt mesta efni í sögu breskra hnefaleika 

Liverpool er 2 - 0 yfir

Liverpool er 2-0 yfir í hálfleik gegn Velska liðinu TSN í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Steven Gerard gerði bæði mörk liðsins en leikurinn fer fram á Anfield.

Armstong enn í gulu treyjunni

Alexandre Vinokourov frá Kasakstan sigraði í dag í 11.leið Tour de France hjólreiðakeppninnar, en hjólað var 173 kílómetra frá Courchevel til Briancon í frönsku Ölpunum. Lance Armstrong er þó enn í forystu í heildarkeppninni þegar 10 leiðir eru eftir.

Shelbourne sigraði Írlands slaginn

Shelbourne frá Írlandi sigraði Glentoran frá Norður Írlandi í 1. umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu í kvöld en leikurinn fór fram á Norður Írlandi. Þá tapaði HB frá Færeyjum fyrir Kaunas frá Litháen 4-2 í Færeyjum í sömu keppni. Þegar 63 mínútur eru liðnar af leik Liverpool og TNS er staðan 2-0 fyrir Liverpool. Þetta eru fyrri leikir liðanna.

Verkfalli lokið í NHL!

Verkfalli leikmanna í NHL íshokkídeildinni í Norður-Ameríku er lokið. Ekkert var leikið í NHL deildinni síðast liðin vetur vegna verkfallsins. Nú hefst hins vegar mikil vinna hjá forráðamönnum deildarinnar við að endurvekja á ný áhuga kandadískra og bandarískra íshokkí áhugamanna.

Gerrard með þrennu

Liverpool sigraði T.N.S. frá Wales 3-0 í 1.umferð forkeppni Meistaradeildar Evrópu. Steven Gerrard gerði öll þrjú mörk liðsins en leikurinn fór fram á Anfield í Liverpool. Þetta var fyrsta þrennan hans fyrir félagið. Liðin mætast að nýju að viku liðinni á heimavelli T.N.S.

Gustafsson farinn heim

Eric Gustafsson, framherji Fylkis, er farinn heim til Svíþjóðar eftir að hafa mistekist að festa sig í sessi hjá Árbæjarliðinu. Þá átti leikmaðurinn einnig við erfið og þrálát meiðsli að stríða.

Bjarni Þór spilaði með Everton

Bjarni Þór Viðarsson, leikmaður Everton, lék sinn fyrsta leik með aðalliði Everton í dag þegar liðið mætti skoska liðinu Dundee United í æfingaleik. Everton vann leikinn 1-0. Bjarni Þór sem einungis er 18 ára  var fastamaður í varaliði Everton á síðast liðnu tímabili.

Chelsea sigraði í æfingaleik

Chelsea sigraði lið Wycombe í æfingaleik í kvöld 5-1. Jiri Jarosik gerði tvö marka Chelsea og þeir Arjen Robben, Carlton Cole og Joe Cole eitt mark hvor. Eiður Smári lék með Chelsea en var óheppinn að skora ekki, skot hans var varið á marklínu. Asier Del Horno lék sinn fyrsta leik með ensku meisturunum.

Sjá næstu 50 fréttir