Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Segja dularfullt andlát átta ára barns hræðilegt slys Átta ára gamalt barn búsett í Sydney í Ástralíu lést á Fídjí á fimmtudag í kjölfar þess að það fannst meðvitundarlaust í gróðurbeði í hótelgarði. Lögregla segir að um sé að ræða hræðilegt slys. 13.2.2023 10:18
Sýrlendingar örvæntingarfullir og enn berst lítil aðstoð Sýrlendingar sem lifðu tvo stóra jarðskjálfta, sem riðu yfir norðurhluta Sýrlands og suðurhluta Tyrklands í síðustu viku, af eru örvæntingarfullir. Lítil aðstoð hefur borist, enda landsvæði þeirra undir stjórn uppreisnarmanna, en þeir sem lifðu hryllinginn af glíma nú við sult og kulda. 13.2.2023 08:18
Vita ekki hvernig fljúgandi furðuhlutirnir haldast á lofti Mikið hefur gengið á í lofthelgi Bandaríkjanna undanfarna daga. Bandaríkjaher hefur skotið niður fjóra fljúgandi hluti á átta dögum, síðast í gær. Að sögn talsmanna hefur svona ekki gerst innan bandarískrar lofthelgi á friðartímum. 13.2.2023 07:23
Hátt í fimmtíu þúsund heimili rafmagnslaus í Nýja-Sjálandi Tæplega fimmtíu þúsund heimili eru rafmagnslaus í Nýja-Sjálandi vegna fellibyljarins Gabríellu sem gengur yfir norðurhluta landsins. Yfirvöld í eyríkinu hafa gefið út viðvaranir vegna vinda og rigninga og hundruð flugferða hafa fallið niður vegna veðursins. 13.2.2023 06:28
Óttast að dánartalan tvöfaldist Yfir þrjátíu þúsund eru nú látin eftir gríðarlegan jarðskjálfta í Tyrklandi og Sýrlandi fyrir tæpri viku. Sameinuðu þjóðirnar óttast að dánartalan muni tvöfaldast. Tyrkir eru nú byrjaðir að handtaka verktaka vegna húsa sem hrundu en umdeilt er hvar ábyrgðin raunverulega liggur. Neyðarsöfnun Rauða kross Íslands hefur gengið vel og verða 30 milljónir sendar til Rauða krossins í Tyrklandi og Sýrlandi. 12.2.2023 23:50
Fjórði fljúgandi hluturinn skotinn niður af Bandaríkjaher Bandaríkjaher skaut fyrir skömmu niður enn annan fljúgandi hlutinn í mikilli hæð yfir stöðuvatninu Huron í Michican fylki í Bandaríkjunum, skammt frá landamærum Kanada. Um er að ræða fjórða hlutinn sem skotinn er niður í þessum mánuði í Norður-Ameríku. 12.2.2023 21:50
Bandaríkjamenn óskuðu eftir frekari aðstoð íslenska hópsins Stjórnstöð íslenska hópsins sem sinnir björgunarstarfi á jarðskjálftasvæðum í Tyrklandi var í dag flutt að ósk Bandaríkjamanna, frá borginni Antakya til Adiyaman. Óskað var eftir því að Íslendingar myndu fylgja með til að tryggja áfram samfellu í störfum alþjóðlegra björgunarsveita. Fjórir aðgerðarstjórnendur voru því sóttir af þyrlu bandaríska hópsins en hinn hluti hópsins hefur lagt af stað heim til Íslands. 12.2.2023 20:07
Stoltenberg lætur af embætti í október Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri NATO hyggst láta af embætti í október líkt og stóð til. Fjölmiðlar höfðu undanfarið greint frá því að framlenging á hans samningi væri í kortunum. 12.2.2023 18:02
Frakkar vilja ekki hækka eftirlaunaaldurinn Forseti Frakklands er ákveðinn í að hækka eftirlaunaaldur Frakka úr 62 árum í 64. 70% þjóðarinnar er andsnúinn þeim áformum og komið hefur til harðra mótmæla. Hækkun eftirlaunaaldursins gæti styrkt stöðu franskra þjóðernissinna. 12.2.2023 16:31
Saka Kínverja um lygar sem vísa ásökunum á bug Bandarísk yfirvöld halda að óþekktir hlutir sem skotnir voru á flugi yfir Norður-Ameríku í gær og á föstudag hafi verið einhvers konar blöðrur. Bandaríkjamenn saka Kínverja um lygar en vika er síðan Bandaríkjamenn skutu niður meintan njósnabelg Kínverja. 12.2.2023 16:02
Arne Treholt látinn Norski njósnarinn Arne Treholt er látinn, áttatíu ára gamall. Hann lést á heimili sínu á Moskvu þar sem hann hefur verið búsettur síðustu ár. Hann lætur eftir sig son og tvö barnabörn. 12.2.2023 14:42
Íslenski hópurinn í Tyrklandi: „Þetta er mjög slæmt ástand“ Erlendur Birgisson verkfræðingur, meðlimur íslenska hópsins í Antayka í Tyrklandi, aðstoðaði svissnesku björgunarsveitina fyrir helgi við leit að einstakling í rústum í borginni. Fregnir höfðu borist af því að heyrst hefði í manni í rústunum en leit bar ekki árangur. Sjúkraflutningamaður segir ástandið mjög slæmt. 12.2.2023 10:24
Skutu niður „óþekktan hlut“ yfir Kanada Óþekktur hlutur var skotinn niður í kanadískri lofthelgi nú í kvöld. Vika er liðin frá því að Bandaríkjaher skaut niður loftbelg sem þeir töldu vera kínverskan njósnabelg. 11.2.2023 23:25
Bara tvö eftir Fimm manna fjölskylda og sextán ára piltur eru á meðal þeirra sem fundust á lífi í Tyrklandi í dag, heilum fimm dögum eftir gríðarlegan jarðskjálfta á mánudag. Þúsundir barna hafa orðið munaðarlaus í hamförunum, þar á meðal sýrlensk systkini sem upplifðu ólýsanlegan hrylling. 11.2.2023 20:01
Borgarstjóri Toronto segir af sér vegna framhjáhalds John Tory, borgarstjóri kanadísku borgarinnar Toronto, hefur sagt af sér vegna framhjáhalds. Hann segist hafa haldið fram hjá eiginkonu sinni með 31 árs gamalli samstarfskonu. 11.2.2023 16:24
Skutu niður óþekktan hlut í fjörutíu þúsund feta hæð yfir Alaska Bandarísk yfirvöld skutu niður óþekktan hlut í um fjörutíu þúsund feta hæð yfir Alaska. Hluturinn er sagður hafa verið á stærð við lítinn bíl. 10.2.2023 20:18
Færri bjargað í dag og eyðileggingin algjör Ríflega 22 þúsund eru nú sagðir látnir eftir skjálftana í Tyrklandi og Sýrlandi en einhverjum hefur verið bjargað úr rústum bygginga í dag eftir meira en hundrað klukkustundir. Björgunarstarf er þó að renna út á tíma en aðgerðarstjórnandi íslenska teymisins segir töluvert færri finnast á lífi. 10.2.2023 16:56
Vilja stofnan nýjan gjaldmiðil fyrir S-Ameríku Forsetar tveggja stærstu ríkja Suður-Ameríku, Argentínu og Brasilíu, hafa lýst yfir vilja sínum til að stofna til sameiginlegs gjaldmiðils ríkjanna. Síðar meir, segja þeir, geti önnur ríki álfunnar slegist í hópinn. 10.2.2023 15:01
Tíu daga barni bjargað úr rústunum Björgunarsveitir í Tyrklandi björguðu í dag tíu daga gömlu barni og móður þess úr rústum húsnæðis sem hrundi í jarðskjálftunum miklu í vikunni. 10.2.2023 14:12
Telja mann hafa myrt tvo í Þrándheimi áður en hann svipti sig lífi Lögreglan í Þrándheimi hefur til rannsóknar andlát þriggja sem fundust látin í heimahúsi í Þrándheimi í gærkvöldi. Ein af kenningunum sem lögregla er að vinna með er að einn hinna látnu hafi myrt hina tvo áður en hann svipti sig lífi. 10.2.2023 10:20
Loftvarnaflautur hljóma og íbúum um allt land sagt að leita skjóls Loftvarnaflautur hafa hljómað út um alla Úkraínu í morgun og íbúar hvattir til að leita skjóls. Yfirvöld hafa varað við því að Rússar hyggist gera umfangsmiklar loftárásir á landið í dag. 10.2.2023 08:34
Banna kannabis á götum rauða hverfisins í Amsterdam Borgaryfirvöld í Amsterdam í Hollandi hafa lagt bann við kannabisreykingum á götum „rauða hverfisins“ og sömuleiðis hert reglur um aðsókn að skemmtistöðum og veitingastöðum. 10.2.2023 07:54
Rúmlega tuttugu og eitt þúsund látnir Opinberar tölur yfir dauðsföll í jarðskjálftunum í Tyrklandi og Sýrlandi standa nú í 21.719 og fjölgaði í hópi látinna um 668 í nótt. 10.2.2023 06:52
Kokkur Pútíns hættur að ráða fanga í Wagner Yevgeny Prigozhin, eigandi rússneska málaliðahópsins Wagner Group, sagði frá því í dag að hann væri hættur að ráða málaliða úr fangelsum Rússlands. Föngum hefur um nokkurra mánaða skeið boðist að ganga til liðs við Wagner og þjóna í sex mánuði í Úkraínu í skiptum fyrir frelsi. 9.2.2023 22:34
Komu höndum yfir áætlun um yfirtöku Rússa í Moldóvu Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, sagði í dag að Úkraínumenn hefðu komist á snoðir um áætlun leyniþjónusta Rússlands sem sneru að því að gera árásir á Moldóvu. Leyniþjónusta Moldóvu hefur staðfest þessar fregnir. 9.2.2023 20:06
Nýr varaformaður Íhaldsflokksins segir árangur dauðarefsingarinnar 100% „Já. Það hefur enginn framið glæp eftir að hafa verið tekinn af lífi. Þú veist það, er það ekki? Árangurinn er 100%.“ Þetta sagði nýskipaður varaformaður Íhaldsflokksins, Lee Anderson, í viðtali við Spectator sem birt var í gær. 9.2.2023 12:38
Íslenski hópurinn tekur til hendinni í Tyrklandi Hópur björgunarsveitarmanna frá Íslandi lenti í Tyrklandi í gærnótt. Hópurinn er nú búinn að koma sér fyrir við Hatay Expo svæðið í Antakya borg, þar sem yfirstjórn aðgerða á svæðinu er. 9.2.2023 10:57
Alræmdur málaliðaforingi skotinn í höfuðið á stuttu færi Hinn alræmdi herforingi og málaliði Igor Mangushev er látinn eftir að hafa verið skotinn í höfuðið af stuttu færi við varðstöð í Kadiivka. Eiginkona hans segir um aftöku að ræða og ýjað hefur verið að því að yfirmaður Wagner-hópsins hafi fyrirskipað morðið. 9.2.2023 08:58
Ástralir fjarlægja 900 öryggismyndavélar frá Kína úr opinberum byggingum Stjórnvöld í Ástralíu hafa ákveðið að fjarlægja um það bil 900 öryggismyndavélar framleiddar í Kína úr opinberum byggingum. Þau segja vélarnar, frá fyrirtækjunum Hikvision og Dahua, mögulega ógn við öryggi landsins. 9.2.2023 07:59
Litlar líkur á að fleiri finnist á lífi Tala látinna í Tyrklandi og í Sýrlandi eftir jarðskjálftana sem þar riðu yfir nálgast nú sextán þúsund manns óðfluga. 9.2.2023 07:15
Mikilvægar vikur í vændum í Úkraínu Ráðamenn í Úkraínu búast við umfangsmiklum árásum Rússa í austurhluta landsins á næstu vikum. Þeir segja Rússa hafa komið tugum og jafnvel hundruð þúsund hermönnum fyrir á svæðinu og þeir séu þegar byrjaðir að reyna að brjóta varnir Úkraínumanna á bak aftur með því að senda hermenn fram í bylgjum. 8.2.2023 23:06
Órjúfanleg vinátta þjóðanna tveggja Úkraínuforseti kom í óvænta heimsókn til Bretlands í dag og fundaði með forsætisráðherra og konungi landsins. Þá ávarpaði hann breska þingið og þakkaði því stuðning í baráttunni við Rússa. 8.2.2023 20:00
Pútín hafi ákveðið að senda eldflaugina sem notuð var gegn MH17 Alþjóðlegt teymi rannsakenda segist hafa fundið sterkar vísbendingar um að Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefði persónulega heimilað sendingu loftvarnarkerfis til aðskilnaðarsinna í Úkraínu sem notað var árið 2014 til að skjóta niður farþegaþotu frá Malasíu. Ólíklegt sé þó að hægt verði að sækja hann til saka. 8.2.2023 19:15
Stjórnvöld harðlega gagnrýnd fyrir hæg viðbrögð Tyrknesk stjórnvöld hafa verið harðlega gagnrýnd fyrir að bregðast of hægt við afleiðingum jarðskjálftanna á mánudag. Nú er talið að yfir ellefu þúsund hafi farist í skjálftunum. Íslenskt björgunarfólk er komið á hamfarasvæðið í Tyrklandi. Við vörum við myndefni í þessari frétt. 8.2.2023 19:00
Lítil stúlka fæddist í húsarústum Þessi nýfædda stúlka fannst í rústum í Sýrlandi en hún kom í heiminn þremur klukkutímum áður en hún fannst. Allir fjölskyldumeðlimir stúlkunnar eru látnir. 8.2.2023 14:59
Myndi stela apa aftur ef hann gæti Karlmaður sem grunaður er um að hafa stolið tveimur öpum úr dýragarðinum í Dallas segir að hann myndi stela fleiri öpum ef honum yrði sleppt úr haldi. Maðurinn er ekki talinn tengjast grunsamlegum dauðdaga hrægamms í sama dýragarði. 8.2.2023 13:12
Selenskí í óvæntri heimsókn til Bretlands í dag Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti mun í dag heimsækja Bretland í fyrsta sinn síðan Rússar réðust inn í heimaland hans fyrir tæpu ári síðan. Heimsóknin er óvænt en við því er búist að Selenskí muni á morgun ferðast til Brussel til fundar við Evrópusambandið. 8.2.2023 10:40
Talaði um mikilvægi samvinnu þvert á flokka Joe Biden Bandaríkjaforseti flutti árlega stefnuræðu sína á Bandaríkjaþingi í nótt og biðlaði meðal annars til mótherja sinna í Repúblikanaflokknum að þeir hjálpuðu til við að rétta af efnahag Bandaríkjanna. 8.2.2023 08:28
„Hvað á ég að gera? Hvert á ég að fara?“ Heildarfjöldi látinna í jarðskjálftanum í Tyrklandi og Sýrlandi stendur nú í 8.400 en raunverulegur fjöldi er talinn mun meiri. 5. 894 hafa fundist látnir í Tyrklandi og 2.470 í Sýrlandi en þúsundir eru taldar fastar undir húsarústum. 8.2.2023 06:48
Vilja eigin kjarnorkuvopn af ótta við Norður-Kóreu Sífellt fleiri íbúar Suður-Kóreu eru þeirrar skoðunar að ríkið eigi að koma upp eigin kjarnorkuvopnum, til móts við vopn nágranna þeirra í Norður-Kóreu. Þá efast margir um að ríkið geti reitt sig á að Bandaríkjamenn komi þeim til varnar komi til stríðs á Kóreuskaganum. 7.2.2023 23:56
Rússar hóta að auka árásir sínar vegna vopnasendinga Bandaríkjamenn eru byrjaðir að senda Bradley bryndreka til Úkraínu en hafa einnig lofað að senda þangað öflugri skriðdreka ásamt nokkrum ríkjum Evrópu. Varnarmálaráðherra Rússlands segir að með þessu séu bandalagsþjóðirnar að reyna að lengja í stríðinu. 7.2.2023 19:50
Samstaða borgarbúa sé ótrúleg Þúsundir hafa farist eftir öfluga jarðskjálfta í Tyrklandi og Sýrlandi í gær. Íslenskt björgunarsveitarfólk fer til Tyrklands til að aðstoða við björgunaraðgerðir. Samstaða íbúa Tyrklands er aðdáunarverð að mati íslenskrar konur sem býr á skjálftasvæðinu. 7.2.2023 19:00
Í kappi við kuldann Björgunarsveitir og aðrir leitaraðilar í Sýrlandi og Tyrklandi vinna nú hörðum höndum að því að ná fólki úr rústum húsa sem hrundu í öflugum jarðskjálftum í gær. Mikið kapp er lagt í að vinna hratt en mikill kuldi er á svæðinu. 7.2.2023 17:51
Breski raðnauðgarinn hlaut 36 lífstíðardóma Breski lögreglumaðurinn og raðnauðgarinn hefur hlotið 36 lífstíðardóma eftir að hann játaði að hafa gerst sekur um 49 kynferðisbrot, þar af 24 nauðganir, gegn tólf konum á átján ára tímabili. Hann mun þurfa að afplána að lágmarki þrjátíu ár í fangelsi. 7.2.2023 13:12
Landsbjörg aðstoðar við björgunaraðgerðir sem íbúi segir óskipulagðar Yfir fimm þúsund eru látin eftir harða jarðskjálfta í Tyrklandi og Sýrlandi í gær. Íslenskur hópur sérfræðinga fer til Tyrklands síðar í dag til þess að aðstoða við björgunaraðgerðir. Kona búsett í Gaziantep í Tyrklandi segir björgunarstarf hingað til hafa virst óskipulagt. 7.2.2023 12:46