Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bandamenn deila um hvað eigi að gerast næst Sprungur virðast vera að myndast í samstöðu Vesturlanda gegn innrás Rússa í Úkraínu og eru ráðamenn sagðir deila um hvaða leiðir eigi að fara til að binda enda á átökin. Meðal þeirra spurninga sem eru til skoðunar eru hvort halda eigi áfram að einangra Rússlands og senda fleiri vopn til Úkraínu eða það hvort Úkraínumenn þurfi mögulega að sætta sig við að tapa landsvæði. 14.6.2022 10:55
Í lífstíðarfangelsi eftir að hún lét skáldsögu sína verða að veruleika Höfundur sögu sem titluð er Hvernig á að myrða eiginmann þinn var í gær dæmd í lífstíðarfangelsi með möguleika á reynslulausn fyrir að drepa eiginmann sinn í Portland í Bandaríkjunum fyrir fjórum árum. 14.6.2022 09:24
Telja að fimmtán þúsund auðkýfingar muni flýja Rússland Talið er að um fimmtán þúsund auðkýfingar með auðæfi metin á yfir milljón dollara, 130 milljónir íslenskra króna, muni flýja Rússland á þessu ári. Um hundrað þúsund einstaklingar í Rússlandi eru milljónamæringar. 14.6.2022 07:59
Vaktin: Segja Pútín enn vilja meira af Úkraínu Vladimír Pútín, forseti Rússlands, vill enn ná tökum á meirihluta Úkraínu, ef ekki öllu ríkinu, þá þær áætlanir hafi misheppnast í upphafi innrásar Rússa. Þetta telja Bandaríkjamenn stöðuna en þeir segja ólíklegt að Rússar hafi burði til að ná þessum markmiðum. 14.6.2022 07:27
Trump hunsaði ráðgjafa og var „aftengdur raunveruleikanum“ Nokkrir af nánustu ráðgjöfum Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, sögðu að hann hefði hunsað ráð þeirra um að játa ósigur í forsetakosningunum árið 2020. Fyrrverandi dómsmálaráðherra Trump sagði hann hafa verið „aftengdan raunveruleikanum“. 13.6.2022 23:35
Fjöldamorðinginn í Toronto í lífstíðarfangelsi Karlmaður sem ók sendiferðabíl inn í mannþröng og drap ellefu manns í Toronto árið 2018 var dæmdur í lífstíðarfangelsi í dag. Hann getur þó óskað eftir reynslulausn eftir aldarfjórðung. 13.6.2022 22:04
Spacey fyrir dómara á fimmtudag Bandaríski leikarinn Kevin Spacey á að mæta fyrir dómara í Westminster í Bretlandi á fimmtudag. Þar á hann að svara til saka fyrir fjórar ákærur vegna kynferðisbrota gegn þremur karlmönnum. 13.6.2022 19:06
Bresk stjórnvöld eyddu háum fjárhæðum í gallaðan hlífðarbúnað Bresk stjórnvöld ætluðu að brenna hlífðarbúnað að andvirði fjögurra milljarða punda sem var ýmist gallaður eða stóðst ekki kröfur stjórnvalda. Þetta segir eftirlitsnefnd breska þingsins um ríkisútgjöld sem kannar nú hvernig stendur á því að ríkið hafi eytt eins miklu og raun ber vitni í ónothæfan búnað. 13.6.2022 16:30
Segir umræðuna á samfélagsmiðlum ósanngjarna Leikkonan Amber Heard segir að samfélagsmiðlar hafi leikið sig grátt varðandi réttarhöld í meiðyrðamáli Johnny Depps, fyrrverandi eiginmanns hennar, gegn henni. Hún var nýverið dæmd til að greiða Depp tæpa tvo milljarða króna í skaðabætur. 13.6.2022 14:32
Volkswagen sótt til saka fyrir þrælahald í Brasilíu Stjórnvöld í Brasilíu hafa gefið út ákæru á hendur þýska bílaframleiðandandum Volkswagen fyrir að hafa um langt árabil haldið fólki í þrælkun á stórum búgarði sem fyrirtækið átti og rak í Brasilíu. Þeir sem reyndu að flýja þrælkunina voru oft og iðulega drepnir. 13.6.2022 14:31
Bolsonaro fetar slóðir Trumps Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, hefur ítrekað mælst með minna fylgi en mótframbjóðandi sinn í komandi kosningum. Þrátt fyrir það hefur hann ítrekað haldið því fram að muni hann tapa kosningunum í október, verði það vegna umfangsmikils kosningasvindls. Nú virðist forsetinn hafa fengið herinn með sér í lið. 13.6.2022 13:58
Skima milljónir eftir hópsmit á skemmtistað Allir íbúar Chaoyang-hverfisins í Peking verða skimaðir eftir að Covid-19 hópsmit kom upp á skemmtistað í hverfinu. Íbúar hverfisins eru rúmlega þrjár milljónir talsins. 13.6.2022 12:47
Vilja stöðva Rússa í Donbas Baráttan um Donbas gæti haft gífurleg áhrif á framvindu innrásar Rússa í Úkraínu. Harðir bardagar hafa geisað þar frá því innrásin hófst í febrúar en Rússar vonast til að brjóta varnir Úkraínumanna á bak aftur og Úkraínumenn reyna að draga máttinn úr hermönnum Rússlands. 13.6.2022 12:17
MeToo-bylgja skellur á skipverjum í Danmörku og Svíþjóð Fjöldi kvenna sem vinna á sjó í Danmörku og Svíþjóð hafa greint frá kynferðislegu ofbeldi sem þær hafa orðið fyrir við störf sín. Starfsmaður Maersk í Danmörku var beðin um að ræða sjálf við meintan geranda sinn til að leysa mál þeirra. 13.6.2022 10:42
Sterkt bandalag vinstriflokka ógnar meirihluta Macron Miðjubandalag Emmanuels Macron Frakklandsforseta og bandalag vinstri flokka sem leitt er af Jean-Luc Mélenchon virðast nær hnífjöfn eftir fyrstu umferð frönsku þingkosninganna sem fram fóru í gær. 13.6.2022 08:01
Vaktin: Stórskotalið Rússa tíu sinnum öflugara Úkraínumenn hafa náð að opna tvær leiðir, í gegnum Rúmeníu og Pólland, þar sem þeir flytja korn sem hefur setið í höfnum landsins síðan innrás Rússa hófst. 13.6.2022 07:45
Hefur nú setið á valdastóli næstlengst allra þjóðhöfðingja Elísabet II Englandsdrottning hefur nú setið á valdastóli næstlengst allra þjóðhöfðingja í mannkynssögunni. Frá og með deginum í dag hefur nú verið drottning í sjötíu ár og 127 daga, en einungis Loðvík XIV, konungur Frakklands á sautjándu og átjándu öld, sat lengur á valdastóli eftir að hafa tekið við krúnunni fjögurra ára gamall. 13.6.2022 07:37
Aðeins ein brú eftir inn í Severodonetsk Harðir bardagar hafa haldið áfram í úkraínsku borginni Severodonetsk og segir héraðsstjórinn Serhiy Haidai ljóst að Rússar séu nú að reyna að einangra borgina að fullu og ná þar yfirráðum. Volodomir Selenskí Úkraínuforseti segir að nú sé barist um hvern einasta metra í borginni. 13.6.2022 07:13
Miðjubandalag Macrons með flest þingsæti eftir fyrstu tölur Fyrri umferð þingkosninga fór fram í Frakklandi í dag. Miðjubandalag Emmanuels Macron Frakklandsforseta leiðir eftir fyrstu tölur með 25,2 prósent atkvæða en flest spáð þingsæti. Bandalag vinstri flokka fylgir fast á hæla miðjuflokkanna með 25,6 prósent atkvæða en öllu færri spáð þingsæti en bandalag Macrons. 12.6.2022 23:50
Komust að samkomulagi um herta byssulöggjöf Hópur öldungadeildarþingmanna úr báðum flokkum Bandaríkjaþings hafa komist að samkomulagi um drög að nýju frumvarpi varðandi byssueign. Enn á eftir að skrifa frumvarpið en líklegt þykir að stuðningur sé við samkomulagið í öldungadeildinni. 12.6.2022 15:52
„Við munum ekki hika við að berjast“ Wei Fenghe, varnarmálaráðherra Kína, gagnrýndi Bandaríkin harkalega í ræðu sem hann hélt á öryggisráðstefnu Asíu- og Kyrrahafsríkja í Singapúr í morgun. Hann sakaði Bandaríkin um að reyna að halda aftur af framþróun Kína og einangra landið. 12.6.2022 15:01
Ætla að leyfa kannabis í lækningaskyni Allt bendir til þess að notkun kannabis í lækningaskyni verði innan skamms leyfð á Spáni, en það er nú þegar leyft í tæplega helming ríkja Evrópusambandsins. Læknir sem styður lögleiðingu slíkra lyfja segir algerlega fáránlegt að afstaða fólks til þessa lyfs skuli fara eftir því hvort það sé hægri- eða vinstrisinnað. 12.6.2022 14:30
Varð fyrir geimgrjóti og skemmdist lítillega Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna, NASA, opinberuðu í vikunni að James Webb geimsjónaukinn varð nýverið fyrir smáu geimgrjóti sem skemmdi einn af speglum hans. Skemmdirnar eru þó sagðar koma lítið niður á gæðum mynda spegilsins. 12.6.2022 14:01
Vonast eftir hreinum meirihluta á þingi Þingkosningar fara fram í Frakklandi í dag þar sem Emmanuel Macron forseti vonar að flokkur hans í miðjubandalagi við aðra flokka nái hreinum meirihluta en er ógnað af bandalagi vinstri flokka. 12.6.2022 12:39
Biden segir árásina á þingið einn myrkasta atburð í sögu Bandaríkjanna Joe Biden forseti Bandaríkjanna segir árásina á bandaríska þingið hinn 6. janúar vera einn myrkasta kafla í sögu landsins. Frekari sönnunargögn um aðild Donalds Trump fyrrverandi forseta að árásinni verða gerð opinber eftir helgi. 11.6.2022 19:46
ESB staðfestir Úkraínu væntanlega sem umsóknarríki í næstu viku Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins gefur álit sitt á aðildarumsókn Úkraínu að sambandinu í lok næstu viku. Harðir bardagar geisa í austurhluta landsins þar sem Úkraínumenn er farið að skorta vopn. 11.6.2022 19:21
Nauðgunarmálsókn gegn Ronaldo vísað frá dómi Málsókn Kathryn Mayorga á hendur knattspyrnumanninum Cristiano Ronaldo hefur verið vísað frá dómi í Las Vegas í Bandaríkjunum. Mayorga sakaði Ronaldo um að hafa nauðgað henni í borginni árið 2009. Hún fór fram á 25 milljónir dollara í skaðabætur. 11.6.2022 18:01
„Forsmekkur af heimi óreiðu og ólgu sem ekkert okkar vill búa í“ Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, ítrekaði í morgun að Bandaríkin stæðu við bakið á Taívan. Hann gagnrýndi Kínverja fyrir ógnandi hegðun í garð Taívans og þar á meðal næstum daglegar flugferðir orrustuþota um lofthelgi eyríkisins. 11.6.2022 15:00
Hafa mögulega fundið líkamsleifar Lögreglan í Brasilíu segist hafa fundið mögulegar líkamsleifar við leitina að breska blaðamanninum Dom Phillips og ferðafélaga hans. 11.6.2022 14:51
Óttast um ferðamenn eftir kraftmikla aurskriðu úr mikilli hæð Lögreglan í Loen í Noregi reynir nú að komast að því hvort að ferðamenn hafi lent í mikilli aurskirði sem féll úr töluverði hæð í Kjenndalen í gær og tók með sér þónokkurn jarðveg. 11.6.2022 11:38
Sagðir nota sextíu ára gamlar og ónákvæmar eldflaugar í Úkraínu Rússar hafa líklega skotið tugum áratuga gamalla eldflauga sem hannaðar voru til að bera kjarnorkuvopn og granda flugmóðurskipum á skotmörk í Úkraínu. Þær eru sagðar ónákvæmar og líklegar til að valda dauðsföllum meðal óbreyttra borgara. 11.6.2022 11:22
Segir Rússa stefna að gjöreyðingu Donbas-héraðs Volodimír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Rússa stefna að því að eyða öllum borgum í Donbas héraði. 11.6.2022 09:20
Segir að Selenskí hafi ekki viljað hlusta í aðdraganda innrásarinnar Joe Biden, forseti Bandaríkjanna segir að Volodímir Selenskí, forseti Úkraínu, hafi ekki viljað hlusta á aðvaranir um að Rússar væru að safna liði í aðdraganda innrásarinnar í Úkraínu. 11.6.2022 08:14
Úkraínumenn segja skotfærin brátt á þrotum og setja traust sitt á Vesturlönd Yfirmaður í úkraínska hernum segir að framganga Úkraínumanna í stríðinu sé algjörlega háð því hvað Vesturlöndin láti þeim í té. Hann útilokar ekki að Rússar geri hlé á stríðinu til að reyna að sannfæra Vesturlönd um að slaka á viðskiptaþvingunum. 11.6.2022 00:00
„Ofbeldið var engin tilviljun“ Donald Trump spilaði lykilhlutverk í árásinni á bandaríska þinghúsið þann 6. janúar 2021 að mati þingnefndar. Formaður nefndarinnar segir ofbeldið ekki hafa verið neina tilviljun heldur hafi verið um að ræða tilraun til valdaráns. 10.6.2022 22:00
Fundu blóð við leitina að breska blaðamanninum Lögreglan í Brasilíu hefur fundið leifar af blóði í bát veiðimanns sem handtekinn hefur verið í tengslum við leitina að breska blaðamanninum Dom Phillips og ferðafélaga hans. 10.6.2022 13:46
Féllu ofan í fullan tank af súkkulaði Tveir einstaklingar féllu í tank fullan af súkkulaði í verksmiðju M&M og Mars í Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum í gær. Mönnunum var bjargað af slökkviliðsmönnum og fluttir á sjúkrahús. 10.6.2022 12:58
Fundu steingervinga úr einu stærsta rándýri sögunnar Fornleifafræðingar á Wight-eyju í Ermarsundi fundu á dögunum steingervinga sem þeir telja vera úr þorneðlu. Þorneðlan var eitt stærsta rándýr jarðar á krítartímabilinu. 10.6.2022 11:18
Vaktin: Segir Rússa hvorki hafa vilja né getu til að ráðast gegn Finnum og Svíum Vladimir Pútín Rússlandsforseti segir rússnesk stjórnvöld ekki munu láta það gerast að „járntjald“ falli á efnahagslíf landsins líkt og þegar Sovétríkin voru og hétu. Þau mistök verða ekki endurtekin, segir hann. 10.6.2022 07:59
Ferðamönnum í pakkaferðum nú hleypt inn í landið Stjórnvöld í Japan hafa nú létt á takmörkunum fyrir erlenda ferðamenn og byrjað að staðfesta vegabréfsáritanir á nýjan leik. Það á þó einungis við ferðamenn í pakkaferðum og sem samþykkja að fylgja stífum reglum landsins um grímuskyldu og aðrar sóttvarnaaðgerðir. 10.6.2022 07:45
Sagði Pence ef til vill verðskulda að verða hengdur Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, fór með lykilhlutverk í valdaránstilraun 6. janúar 2021, þegar stuðningsmenn hans réðust inn í þinghúsið í Washington og freistuðu þess að koma í veg fyrir staðfestingu kjörs Joe Biden sem forseta. 10.6.2022 06:50
Nýtt lyf heftir vöxt krabbameinsæxla Nýtt lyf við brjóstakrabbameini eykur líftíma sjúklinga um 23,9 mánuði á meðan hefðbundin lyfjameðferð gefur sjúklingum 16,8 mánuði. Þetta kemur fram í umfjöllun New York Times um rannsókn sem kynnt var á dögunum á aðalfundi Félags klínískra krabbameinslækna í Bandaríkjunum. 9.6.2022 21:00
Ódæðið í Berlín sagt viljaverk án tengsla við hryðjuverkasamtök Lögregla telur að maður sem keyrði inn í mannfjölda í Berlín í Þýskalandi í gær með þeim afleiðingum að kona lést og 31 slasaðist hafi gert það af ásetningi. Ekki leikur grunur á því að sakborningurinn hafi tengsl við hryðjuverkasamtök. 9.6.2022 20:33
Danir og Færeyingar semja um sjö milljarða ratsjárstöð NATO Jenis av Rana, utanríkisráðherra Færeyja, og Morten Bødskov, varnarmálaráðherra Danmerkur, undirrituðu í dag viljayfirlýsingu um uppsetningu nýrrar ratsjárstöðvar á Sornfelli í Færeyjum. Yfirlýsingin var undirrituð í Þórshöfn í tengslum við ríkisfund Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, með þeim Bárði á Steig Nielsen, lögmanni Færeyja, og Muté B. Egede, forsætisráðherra Grænlands, sem undirrituðu samstarfsyfirlýsingu þjóðanna um öryggis- og varnarmál. 9.6.2022 18:59
Krabbameinið hvarf: Nýtt lyf vekur athygli og von Niðurstöður nýrrar lyfjarannsóknar hafa vakið gríðarlega athygli og von meðal lækna og krabbameinssjúklinga en allir þátttakendur rannsóknarinnar virðast hafa læknast af krabbameini eftir stutta lyfjameðferð. 9.6.2022 15:29