Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Herinn rænir völdum í Búrkína Fasó Herinn í Búrkína Fasó tilkynnti í gærkvöldi að hann hafi komið Roch Kabore, forseta landsis frá stóli, fellt stjórnarskrána úr gildi, leyst upp ríkisstjórnina og þingið og lokað landamærum ríkisins. 25.1.2022 07:49
Ógilti grímuskyldu sem ríkisstjóri hafði sett upp á sitt eindæmi Dómari í New York ríki ógilti í gærkvöldi grímuskyldu sem ríkistjórinn hafði sett upp á sitt eindæmi og gilti víða um ríkið. 25.1.2022 06:59
Bandaríkjaher í startholunum vegna stöðunnar við Úkraínu Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur sett 8.500 hermenn í viðbragðsstöðu vegna hernaðaruppbyggingar Rússa við landamæri Úkraínu. 24.1.2022 23:24
James Webb kominn á áfangastað James Webb geimsjónaukinn er nú kominn á lokaáfangastað sinn, svokallaðan Lagrange-punkt 2. „Velkominn heim, Webb“ sagði yfirmaður bandarísku geimferðarstofnunarinnar, NASA, við tilefnið. 24.1.2022 21:47
Óvænt afmælisveisla í Downingstræti enn eitt höggið fyrir Johnson Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, er sagður hafa verið viðstaddur afmælisviðburð í Downingstræti í júní 2020 þegar harðar samkomutakmarkanir voru í gildi. Johnson hefur verið harðlega gagnrýndur undanfarið fyrir önnur veisluhöld vorið 2020 og hafa þingmenn jafnvel kallað eftir afsögn hans. 24.1.2022 20:47
Engar sýnatökur fyrir fullbólusetta ferðalanga Frá 11. febrúar munu fullbólusettir einstaklingar ekki þurfa að fara í sýnatöku við komuna til Englands. Fyrr í mánuðinum var ákveðið að hverfa frá kröfu um sýnatöku fyrir komuna til landsins. Samgönguráðherra Bretlands segir breytinguna stórt skref. 24.1.2022 19:00
Einn látinn eftir skotárásina í Þýskalandi Einn er látinn eftir að skotárás var gerð á háskólann í Heidelberg í Þýskalandi fyrr í dag og þrír til viðbótar særðust. Árásarmaðurinn tók sitt eigið líf eftir að hann skaut nemendur á færi inni í skólastofu. 24.1.2022 15:58
Danir losna nú úr einangrun þegar þeir eru einkennalausir Dönsk heilbrigðisyfirvöld hafa ákveðið að breyta reglum um einangrun vegna kórónuveirusmita á þann veg að smitaðir einstaklingar losna nú úr einangrun þegar þeir eru einkennalausir. 24.1.2022 14:23
Nokkrir særðir eftir skotárás í þýskum háskóla Mikill viðbúnaður er við háskólann í Heidelberg í Þýskalandi eftir að maður vopnaður skotvopni skaut á hóp nemenda í fyrirlestrarsal í skólanum. Nokkrir eru særðir að sögn lögreglu. 24.1.2022 13:17
Finnskur þingmaður sóttur til saka vegna ummæla um samkynhneigða Finnskur þingmaður og fyrrverandi innanríkisráðherra mætti fyrir dóm í dag, ákærður fyrir hatursorðræðu gegn samkynhneigðum. Málið snýst um athugasemdir sem þingmaðurinn lét falla um að samkynhneigð væri þroskaröskun og synd. 24.1.2022 13:08
Vill að hetjan úr Hótel Rúanda verði dæmd í lífstíðarfangelsi Saksóknari í Rúanda hefur farið fram á að dómur yfir Paul Rusesabagina, hetjunni úr kvikmyndinni Hótel Rúanda, verði þyngdur í lífstíðardóm. Rusesabagina var dæmdur í 25 ára fangelsi í september fyrir hryðjuverk. 24.1.2022 11:06
Játaði að hafa rænt fjögurra ára ástralskri stúlku Ástralskur karlmauður á fertugsaldri hefur játað að hafa rænt fjögurra ára gamalli stúlku og halda henni fanginni í átján daga síðasta haust. 24.1.2022 10:39
Gagnrýnir valdaleysið og segir af sér sem forseti Armen Sarkissian, forseti Armeníu, sagði af sér embætti gær. Hann gagnrýndi meðal annars valdaleysi embættisins og óánægju með ákvarðanir teknar í tengslum við deilur landsins og Aserbaídsjans. 24.1.2022 10:38
Danski þjóðarflokkurinn kominn með nýjan formann Danski þingmaðurinn Morten Messerschmidt var í gær kjörinn formaður Danska þjóðarflokksins (d. Dansk Folkeparti). Hann tekur við stöðunni af Kristian Thulesen Dahl sem hætti í kjölfar bágrar niðurstöðu flokksins í sveitarstjórnarkosningunum í nóvember. 24.1.2022 08:04
Hefja réttarhöld yfir hinum lögreglumönnunum í máli George Floyd Búist er við því að réttarhöld yfir þremur bandarískum lögreglumönnum, sem ákærðir eru fyrir að hafa svipt George Floyd borgaralegum réttindum sínum daginn sem hann var myrtur af fjórða lögreglumanninum, hefjist í dag. 24.1.2022 07:46
Stjórnvöld segja valdarán ekki yfirvofandi Skothvellir heyrðust víða í nótt í Afríkuríkinu Búrkína Fasó. Meðal annars hefur skotum verið hleypt af í grennd við forsetahöll landsins en ríkisstjórnin segir þó að valdarán sé ekki yfirvofandi. 24.1.2022 07:14
Laumufarþegi lifði af langt ferðalag í lendingarbúnaði Lögreglan í Hollandi fann í gær laumufarþega um borð í flutningaþotu frá Cargolux sem hafði flogið frá Suður-Afríku til Schiphol flugvallar í Amsterdam með millilendingu í Nairóbí í Kenýa. 24.1.2022 07:00
Skipa fjölskyldum sendiráðsstarfsfólks að yfirgefa Úkraínu Bandaríkjamenn hafa fyrirskipað fjölskyldum þeirra sem starfa í sendiráði Bandaríkjanna í Úkraínu að yfirgefa landið. 24.1.2022 06:45
Banna drónaflug eftir banvæna árás Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum hafa bannað drónaflug til afþreyingar í landinu eftir að litlir drónar voru notaðir til að sprengja þrjá olíubíla í loft upp á dögunum. 23.1.2022 22:03
Farga milljónum bóluefnaskammta þrátt fyrir lágt bólusetningarhlutfall Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin varar við því að ríki heims einblíni á að tryggja ríkisborgurum sínum örvunarskammta af bóluefninu gegn Covid-19. Frekar eigi að einblína á að tryggja öllum heimsbúum grunnbólusetningu til að stemma stigu við frekari þróun veirunnar. 23.1.2022 21:56
Endalok faraldursins í Evrópu séu í nánd Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin telur að í mars muni sex af hverjum tíu Evrópubúum hafa smitast af kórónuveirunni. Því nálgist endalok faraldurs hennar í álfunni. 23.1.2022 19:42
Harðir bardagar eftir flótta ISIS-liða Harðir bardagar hafa geisað í norðausturhluta Sýrlands eftir að fjölda ISIS-liða tókst að strjúka úr fangelsi sem sýrlenskir Kúrdar hafa rekið. Fangelsið hýsti um það bil 3.500 ISIS-liða og hefur gert lengi en meðal fanganna voru nokkrir af leiðtogum Íslamska ríkisins. 23.1.2022 17:07
Forsætisráðherrann frestaði brúðkaupinu vegna Covid-19 Jacinda Arden, forsætisráðherra Nýja-Sjálands, hefur frestað brúðkaupi sínu í aðdraganda þess að ríkisstjórn hennar herðir sóttvarnarreglur. Ómíkron afbrigði kórónuveirunnar er í töluverðri dreifingu á Nýja-Sjálandi þessa dagana. 23.1.2022 15:50
Einn hamstur reyndist með Covid Einn af 77 hömstrum sem íbúar Hong Kong skiluðu til lógunar á dögunum reyndist smitaður af Covid-19. Alls hefur rúmlega tvö þúsund hömstrum verið lógað í Hong Kong á undanförnum dögum eftir að nokkrir þeirra greindust smitaðir í gæludýrabúð. 23.1.2022 14:50
Franskur ævintýramaður fannst látinn við Asóreyjar Hinn 75 ára gamli ævintýramaður Jean-Jacques Savin fannst í gær látinn undan ströndum Asóreyja. Í byrjun árs lagði hann af stað á sérsmíðuðum bát sem hann ætlaði að róa yfir Atlantshafið. 23.1.2022 13:58
Hernaðaruppbygging Rússa heldur áfram Hernaðaruppbygging Rússa við landamæri Úkraínu heldur áfram en viðræður um spennuna í Austur-Evrópu virðast hafa skilað litlum árangri. Yfirvöld í Bretlandi saka Rússa um að ætla sér að gera innrás í Úkraínu og koma á laggirnar ríkisstjórn sem væri hliðholl Rússlandi. 23.1.2022 11:30
Drógu látinn mann inn á pósthús til að innheimta ellilífeyri hans Lögreglan á Írlandi hefur hafið rannsókn á atviki þar sem tveir menn drógu lík látins manns inn á pósthús í þeim tilgangi að fá ellilífeyri hans greiddan út. 22.1.2022 22:08
Vilja styrkja tengsl Bandaríkjanna og Íslands Bandarískir fulltrúadeildaþingmenn hafa lagt fram frumvarp sem þeir kalla Íslandsfrumvarpið. Því er ætlað að styrkja tengsl milli Bandaríkjanna og Íslands með því að heimila sérstök atvinnulandvistarleyfi fyrir Íslendinga. 22.1.2022 18:23
Vonast eftir því besta en búa sig undir það versta Íbúar borgarinnar Kharkiv, sem er sú næst stærsta í Úkraínu, vonast eftir því besta en búa sig undir það versta. Borgin er í austurhluta landsins, skammt frá landamærum Rússlands þar sem tugir þúsunda hermanna eru staddir. 22.1.2022 16:12
Færeyingar ætla að afnema allar takmarkanir Færeyska stjórnin hefur sett fram áætlun um það hvenær búast megi við afléttingu allra samkomutakmarkana vegna kórónuveirufaraldursins. Stefnt er að því að öllum takmörkunum verði aflétt fyrir 1. mars. 22.1.2022 15:01
Tongverjar staðráðnir í að klára enduruppbyggingu Hjálparstarf á Tonga er að taka á sig mynd en ríkisstjórn eyjaklasans segir drykkjarvatn í forgangi. Vika er liðin frá því að stærðarinnar sprengigos olli miklum skemmdum á eyjunum svo minnst þrír dóu og tvö þorp þurrkuðust út. 22.1.2022 11:44
Játaði að hafa myrt Petito áður en hann svipti sig lífi Þegar Brian Laundrie fannst látinn í feni í Flórída fannst skrifblokk nærri honum. Í skrifblokkina hafði hann skrifað að hann hefði myrt Gabrielle Petito, kærustu sína. Alríkislögregla Bandaríkjanna (FBI) tilkynnti þetta í gærkvöldi en Laundrie hvarf skömmu eftir að hann sneri einn úr ferðalagi sem þau höfðu bæði farið í í fyrra. 22.1.2022 09:53
Þotu snúið við vegna farþega sem neitaði að bera grímu Flugvél American Airlines á leið frá Miami til Lundúna á miðvikudaginn var snúið við eftir tæplega klukkustundar flug vegna farþega sem harðneitaði að bera grímu líkt og allir aðrir. 21.1.2022 19:09
Þrír lögregluþjónar ákærðir fyrir að skjóta átta ára stúlku til bana Þrír lögregluþjónar í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum voru ákærðir fyrir manndráp í vikunni. Það er vegna skothríðar þeirra fyrir utan leikvang framhaldsskóla í bænum Sharon Hill í ágúst þar sem átta ára stúlka varð fyrir skoti og dó. 21.1.2022 17:01
Rússar búast við svörum við kröfum sínum í næstu viku Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, segir ríkisstjórn Vladimírs Pútín, forseta Rússlands, búast við skriflegum svörum við kröfum sínum í næstu viku. Lavrov fundaði í dag með Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, um spennuna í tengslum við Úkraínu. 21.1.2022 13:19
Covid gerir hjálparstarf á Tonga flókið Skip sjóhers Nýja-Sjáland kom til hafnar í Tonga-eyjum í morgun. Þar um borð voru 250 þúsund lítrar af drykkjarvatni og öðrum nauðsynlegum birgðum. Um borð í HMNZS Aotearoa er einnig búnaður sem hægt er að nota til að eima sjötíu þúsund lítra af vatni á dag. 21.1.2022 11:27
Stjóri Sameinuðu þjóðanna segir heiminn fara versnandi Antonio Guterres, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, segir heiminn að mörgu leyti verri síðan hann hóf fyrsta kjörtímabil sitt fyrir fimm árum. Það sé vegna faraldurs kórónuveirunnar, veðurfarsbreytinga og aukinnar spennu ríkja á milli. 21.1.2022 10:23
Blinken og Lavrov funda í Genf í dag Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands, þeir Antony Blinken og Sergei Lavrov, munu hittast síðar í dag í Genf í Sviss til að ræða ástandið í Úkraínu en spennan á svæðinu fer nú vaxandi dag frá degi og óttast vesturlönd að Rússar hyggi á innrás í landið. 21.1.2022 07:07
Óttast að tugir séu látnir: Flutningabíll og mótorhjól skullu saman Talið er að tugir hafi látist þegar flutningabíll sprakk í loft upp í Gana í Vestur-Afríku fyrr í dag. Í bílnum voru sprengiefni sem nota átti við námugröft. 20.1.2022 23:08
„Það er ekkert sem kallast minniháttar innrás“ Forseti Úkraínu svaraði Bandaríkjaforseta fyrr í dag og segir að það sé ekkert sem hægt sé að kalla minniháttar árás; rétt eins og það séu engin minniháttar mannaföll eða lítilsháttar hryggð vegna ástvinamissis. 20.1.2022 21:48
Tókst ætlunarverkið: Yngsta kona sögunnar til að fljúga umhverfis hnöttinn Hin nítján ára gamla Zara Rutherford lenti í Belgíu, heimalandi sínu, í dag og er þar með yngsta kona sögunnar til þess að fljúga einsömul hringinn í kringum jörðina. 20.1.2022 17:29
Á þriðja tug látin eftir troðning í messu Minnst tuttugu og níu eru látin, þar á meðal ellefu börn og ein þunguð kona, eftir að mikil ringulreið og troðningur skapaðist í messu í Líberíu. 20.1.2022 17:02
Ríkisstjórnin sökuð um að hóta þingmönnum og jafnvel kúga þá Þingmenn Íhaldsflokks Englands, sem vilja velta Boris Johnson, forsætisráðherra, úr sessi sem leiðtogi flokksins, hafa orðið fyrir hótunum frá meðlimum úr ríkisstjórn Bretlands. Þetta segir einn þingmaður flokksins og ráðleggur hann flokksbræðrum sínum og systrum sem hafa orðið fyrir kúgunum að leita til lögreglunnar. 20.1.2022 16:45
Sakaður um aðgerðaleysi vegna kynferðisbrota presta Benedikt páfi er sakaður um að hafa sýnt af sér aðgerðaleysi í tengslum við misnotkun á fjögurra barna í biskupsdæmi hans í München op Freising frá 1977 til 1982. 20.1.2022 15:31
„Rússarnir eru að sameina NATO“ Erindrekar Bandaríkjanna og Evrópu funda nú í Berlín vegna mögulegrar innrásar Rússlands í Úkraínu. Útlit er þó fyrir að spennan í Austur-Evrópu muni mögulega endurvekja Atlantshafsbandalagið. 20.1.2022 14:15