Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vopnahlésloforð nægir ekki Stjórnvöld á Spáni gefa lítið fyrir vopnahlésyfirlýsingu sem aðskilnaðarsamtök Baska, ETA, sendu frá sér í gær. 11.1.2011 05:00
Átta létust í flóði í Ástralíu Að minnsta kosti átta létu lífið þegar skyndilegt flóð skall á bænum Toowoomba í Ástralíu í gær. Ellefu til viðbótar er saknað. Vatnsflaumurinn var svo sterkur að hann sópaði með sér bílum um götur bæjarins. 11.1.2011 04:00
Læknar segjast vera bjartsýnir Átta manns eru enn á sjúkrahúsi eftir skotárásina í Tucson í Arizona á laugardag. Þingkonan Gabrielle Giffords er enn í lífshættu og fimm aðrir eru þungt haldnir. 11.1.2011 03:30
Láti Austur-Jerúsalem eiga sig Sendiherrar 25 aðildarríkja Evrópusambandsins í Jerúsalem og Ramallah skora á leiðtoga Evrópusambandsins að líta á Austur-Jerúsalem sem framtíðarhöfuðborg Palestínuríkis. 11.1.2011 03:15
Varð milli fyrir misskilning Sænskur maður varð um helgina 200 milljónum íslenskum krónum ríkari fyrir misskilning. Hann hefur um margra ára skeið keypt veðhlaupamiða á laugardögum og ætlaði að halda þeim sið á laugardaginn. 10.1.2011 20:45
Fjórir fórust í flóði í Ástralíu Að minnsta kosti fjórir létu lífið þegar skyndilegt flóð skall á bænum Toowoomba í Ástralíu í dag. Vatnsflaumurinn var svo sterkur að hann sópaði með sér bílum um götur bæjarins. Björgunarmenn unnu mörg afrek við að bjarga fólki af húsþökum. Sumum þurfti að bjarga af þökum bíla sinna. Mestu flóð í fimmtíu ár hafa hrjáð Ástrala undanfarna daga. Flóðasvæðið hefur verið stærra en Frakkland og Þýskaland samanlagt. 10.1.2011 18:16
Hóta verkfalli á brúðkaupsdaginn Stjórnendur neðarnjarðarlesta í Lundúnum hafa hótað því að fara í verkfall á brúðkaupsdegi þeirra Vilhjálms prins og Kate Middleton. Þau gifta sig 29. apríl næstkomandi. 10.1.2011 15:01
Hópdauði dýra algengur í náttúrunni Það er alvanalegt að fuglar og dýr drepist í stórum hópum og þar er ekkert samhengi á milli, segja líffræðingar sem Associated Press fréttastofan hefur leitað til. 10.1.2011 14:07
ETA lýsa yfir endanlegu vopnahléi á Spáni Aðskilnaðarsamtök Baska á Spáni, ETA, hafa lýst yfir endanlegu vopnahléi í baráttu sinni fyrir sjálfstæðu ríki Baska. 10.1.2011 12:25
Farþegarnir höfðu það verulega skítt Skemmtiferðaskipið Radiance of the Seas varð að snúa aftur til Tampa í Florida í síðustu viku eftir að yfir 150 farþegar fengu svo alvarlega magakveisu að þeir héldu að mestu til á klósettinu. 10.1.2011 10:46
Sarah Palin fjarlægir dauðalistann af heimasíðu sinni Sarah Palin hefur fjarlægt riffilsigti sem beindist að Arizona á landakorti á heimasíðu hennar. Þingkonan Grabrielle Gifford sem var skotin í höfuðið um helgina var þingmaður demokrata í Arizona. 10.1.2011 10:18
Komu til þess að ræna gamalmenni Fjórir Rúmenar eru fyrir rétti í Noregi sakaðir um að hafa komið gagngert til landsins til þess að ræna gamalt fólk. Þeir beittu oft hrottalegu ofbeldi við ránin. 10.1.2011 10:03
Facebook floppar í Japan Þrátt fyrir að Mark Zuckerberg, hinn 26 ára gamli stofnandi Facebook samskiptasíðunnar sé maður ársins hjá Time, og þrátt fyrir að bróðurpartur tæknivæddra jarðarbúa sé með Facebook-síðu, eru Japanir ekki að kaupa hugmyndina að Facebook. 10.1.2011 08:58
Loughner ákærður fyrir banatilræði Bandarísk alríkisyfirvöld hafa ákært manninn sem skaut sex til bana í Túson í Arizóna á laugardag. Hinn 22 ára gamli Jared Loughner hefur verið ákærður fyrir að reyna að myrða þingkonuna Gabrielle Giffords og fyrir að myrða tvo aðra opinbera starfsmenn. 10.1.2011 08:41
Virgin neitar að borga gjöld á Heathrow Breska flugfélagið Virgin Atlantic, sem er að mestu í eigu auðkýfingsins Richard Branson, ætlar ekki að greiða rekstraraðilum Heathrow flugvallar þau gjöld sem það skuldar þeim. Félagið segir ástæðuna vera hve illa flugvallaryfirvöld stóðu sig þegar frosthörkur gengu yfir Bretland fyrir jól, sem orsakaði gríðarlegar tafir hjá flugfélögum og mikið tap. Forstjóri Virgin segir félagið hafa tapað milljónum punda og því verði lendingargjöld og önnur gjöld ekki greidd fyrr en ítarleg rannsókn hafi farið fram á málinu. 10.1.2011 08:02
Að minnsta kosti 77 fórust í flugslysi Að minnsta kosti sjötíu og sjö fórust þegar farþegaflugvél með rúmlega hundrað manns hrapaði í norðvesturhluta Írans í gær. Vélin var af gerðinni Boeing 727 og var að koma frá höfuðborginni Teheran þegar hún hrapaði. 10.1.2011 07:12
Dásamlegur dagur Kaupmannahöfn, AP Dönsku konungshjónin eru að vonum himinlifandi yfir fæðingu tvíburanna, stráks og stelpu, sem krónprinsparið María og Friðrik eignaðist á laugardag. 10.1.2011 03:00
Danskur hermaður fórst Kaupmannahöfn, AP Danskur hermaður fórst eftir að vegasprengja sprakk í suðurhluta Afganistans í gær. 10.1.2011 02:00
Baskar mótmæla fangaflutningum Um fjörtíu þúsund manns komu saman í Bilbaó í Baskalandi á Spáni í morgun til að mótmæla flutningi baskneskra fanga í fangelsi fjarri heimilum þeirra. Um er að ræða liðsmenn ETA hreyfingarinnar sem sitja inni fyrir andóf og hryðjuverk. 9.1.2011 22:00
Kjósa um sjálfstæði landsins Milljónir manna hafa mætt á kjörstað í Suður-Súdan í dag og greitt atkvæði í þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði landsins frá norðurhluta landsins. Langar biðraðir hafa myndast í morgun fyrir framan kjörstaði í höfuðborg landsins, Juba. 9.1.2011 14:49
Drottningin: Þetta er dásamlegur dagur Dönsku konungshjónin eru himinlifandi yfir fæðingu tvíburanna sem krónprinsparið eignaðist í gær. Margrét Þórhildur drottning heimsótti tengadóttur sína Maríu og soninn Friðrik á Ríkisspítalanum í Kaupmannahöfn í gær. 9.1.2011 14:30
Skotárás í Bandaríkjunum: Leita að vitorðsmanni Gabrielle Giffords þingmaður Arizona á Bandaríkjaþingi liggur mikið særð á sjúkrahúsi í Tuscon í Arizona eftir skotárásina í gærdag. Bænavaka var haldin fyrir utan skrifstofu Giffords í borginni í gærkvöldi til að minnast þeirra sem misstu lífið í skotárásinni og fyrir bata þeirra sem særðust. 9.1.2011 12:05
Síðasta afmælið sem alþýðustúlka Katrín Middelton væntanleg prinsessa af Bretlandi heldur í dag í síðasta skipti upp á afmæli sitt sem venjuleg alþýðustúlka, en hún mun ganga að eiga Vilhjálm prins hinn 29. apríl næst komandi. 9.1.2011 09:47
Þingmaðurinn alvarlega særður Gabrielle Giffords þingmaður demókrata frá Arizona í Bandaríkjunum er alvarlega særð á sjúkrahúsi eftir skotárás í gærkvöldi. 9.1.2011 09:28
Fundu 15 hauslaus lík í Mexíkó Lík fimmtán karlmanna á aldrinum 15 til 25 ára fundust í morgun nærri verslunarmiðstöð í ferðamannabænum Acapulco í Mexíkó. Höfuðin af mönnum höfðu öll verið skorin af. Málið er í rannsókn en talið er að það tengist eiturlyfjaheiminum. Þúsundir hafa látist síðustu ár í ofbeldi tengdu eiturlyfjum sem hefur verið stórt vandamál í landinu. 8.1.2011 15:22
Skotinn til bana á Vesturbakkanum: „Guð er almáttugur“ Ísraelski herinn skaut palestínskan mann við landamæri á Vesturbakkanum í morgun. Talsmaður hersins segir að leigubíll hafi komið upp að landamærasvæðinu og út hafi stigið maður sem gekk rösklega að hermönnum. Hann hafi öskrað: „Guð er almáttugur“ á arabísku og hafi verið með „grunsamlegan hlut“ í hendinni. 8.1.2011 14:28
„Elvis prins“ fæddur í Danmörku María krónprinsessa af Danmörku eignaðist tvíbura í morgun, dreng og stúlku. Hún var lögð inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn í gær og í morgun komu börnin svo í heiminn. 8.1.2011 11:50
Drottning amfetamínsins framseld Kólumbísk stjórnvöld hafa framselt konu, sem er þekkt sem ,,drottning amfetamínsins," til Bandaríkjanna. Konan, sem heitir Beatriz Elena Henao var meðal þeirra tíu efstu á lista Interpol yfir eftirlýstar konur. 8.1.2011 10:30
Falsaði eigin mannrán Brasílíski fótboltamaðurinn Somalia hefur verið ákærður fyrir að tilkynna lögreglu um mannrán sitt sem aldrei átti sér stað. Somalia hélt því fram að vopnaðir menn hefðu numið hann á brott klukkan sjö að morgni á leið sinni á fótboltaæfingu. 8.1.2011 10:02
Þrjátíu og fimm ríki eru rekin með halla Þrjátíu og fimm af fimmtíu ríkjum Bandaríkjanna eru rekin með halla á þessu ári. Samanlagður fjárlagahalli þeirra er talinn nema um 16.500 milljörðum íslenskra króna, eða um 140 milljörðum Bandaríkjadala. Næst á eftir hruni húsnæðismarkaðarins er fjárhagsvandi ríkjanna talinn mesti efnahagsvandi sem Bandaríkin eiga nú við að etja. 8.1.2011 08:00
Sprengdi sig í loft upp til að drepa lögregluforingja Sautján manns í það minnsta fórust þegar að maður sprengdi sig í loft upp í bænum Spin Boldak í Afganistan í dag. Á meðal þeirra látnu er lögregluforingi, en svo virðist sem árásinni hafi verið beint að honum. 7.1.2011 23:00
Ætlar að henda sjálfsvígsmanninum út Leigusali Vangelis Angelo Kapatos, sem stökk út úr íbúð sinni á níundu hæð í New York um jólin, til þess eins að lenda í ruslabing fyrir neðan og lifa fallið af, ætlar að henda Vangelis út úr íbúðinni vegna vangoldinnar leigu. 7.1.2011 22:00
80 Elvis eftirhermur keppa um Evróputitil Elvis lifir, að minnsta kosti í Birmingham um helgina, en þar keppa 80 snillingar sem hafa sérhæft sig í því að herma eftir goðsögninni. Keppnin stendur yfir í þrjá daga og eru eftirhermurnar af öllum stærðum og gerðum og sérhæfa þær sig í mismunandi tímabilum á ferli kappans. Yngsti þáttakandinn er tólf ára gamall. 7.1.2011 21:30
Mörgæs í selahoppi slær í gegn á YouTube Á meðfylgjandi YouTube myndskeiði sést mörgæs á ferð yfir hrjóstrugt landslan. Hún hoppar af einum steini til annars þangað til hún stöðvar fyrir framan einn mjög stóran stein. Hún lætur þó vaða og hoppar á steininn sem lifnar snarlega við, enda um stærðar sel að ræða. Sjón er sögu ríkari. 7.1.2011 21:00
Hafðu púff þetta púff púff ódámurinn þinn Mál tveggja eftirlaunaþega í Svíþjóð er til rannsóknar hjá lögreglunni eftir að þeir börðust með snjóskóflum svo blóðið flaut. 7.1.2011 14:51
Stal öllu steini léttara Þegar danskir lögreglumenn stöðvuðu bíl í Hróarskeldu vegna þess að það vantaði á hann aðra númeraplötuna fannst þeim konan sem ók honum eitthvað taugastrekkt. Hún hafði ástæðu til. Hún hafði stolið bílnum. 7.1.2011 11:39
Hópnauðganir á Haiti Vopnuð gengi glæpamanna fara um flóttamannabúðir á Haiti og hópnauðga konum án þess að nokkuð sé að gert, að sögn Amnesty International. 7.1.2011 11:33
Rannsaka dauða tveggja milljóna fiska í Maryland Yfirvöld í Maryland í Bandaríkjunum eru nú að rannsaka dauða um tveggja milljóna fiska í Chesapeake flóanum. 7.1.2011 07:49
Aukinn viðbúnaður í London vegna hryðjuverkaógnar Lögreglan í London hefur fjölgað lögreglumönnum á vakt við þá staði í borgarinni sem mest umferð er um sem og við Heathrow flugvöll. 7.1.2011 07:42
Danir bíða spenntir eftir fæðingu konunglegra tvíbura Danska þjóðin fylgist nú spennt með hverju fótmáli Mary krónprinsessu og Friðriks krónprins en Mary gengur með tvíbura undir belti og fæðing þeirra er á næsta leyti. 7.1.2011 07:40
Banna sölu á afurðum frá 4.700 svínabúum Þýska landbúnaðarráðuneytið hefur bannað sölu á afurðum frá yfir 4700 búum vítt og breitt um landið vegna díoxínmengunar í fóðri. Flest þessara búa eru svínabú sem staðsett eru í Neðra Saxlandi. 7.1.2011 07:28
Telur fugladauða stafa af óhappi við flutning á eiturgasi Leyniþjónusta rússneska hersins GRU telur að fugladauðinn í Bandarikjunum stafi af óhappi í flutningi á eiturgasi á vegum bandaríska hersins. 7.1.2011 07:25
Íbúar í Suður-Súdan kjósa um sjálfstæði Allt bendir til þess að ríkjum heims fjölgi um eitt í kjölfar þjóðaratkvæðagreiðslu í Suður-Súdan, sem hefst nú um helgina og stendur í viku. Valkostirnir hafa verið settir fram fyrir kjósendur með myndrænum hætti. Á kjörseðlunum eru tvær myndir og eiga kjósendur að merkja við aðra þeirra. 7.1.2011 05:00
Sneri aftur til Íraks úr útlegð Muqtada al-Sadr, einn helsti leiðtogi sjíamúslima í Írak, hefur snúið aftur til landsins eftir fjögurra ára sjálfskipaða útlegð í Íran. Hann var leiðtogi Mahdi-hersins, sem barðist ákaft gegn bandaríska hernum í Írak, og nýtur enn mikils fylgis í landinu, meðal annars á þinginu. 7.1.2011 04:00
Vilja ekki fýlupúka í trúnaðarstörfum Hvíta húsið í Washington hefur fyrirskipað að gerðar verði áætlanir til að meta hugsanlega hættu innanhúss í opinberri þjónustu. Að sögn BBC er markmiðið að finna þá óánægðu starfsmenn sem gætu lekið ríkisleyndarmálum. 7.1.2011 04:00