Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Greiðendum hátekjuskatts fækkar verulega í Bretlandi Þetta er í fyrsta sinn í 20 ár sem þeim skattgreiðendum sem inna þurfa af hendi hátekjuskatt til breskra skattyfirvalda fækkar en þeim hefur fram að þessu fjölgað jafnt og þétt. 2.4.2009 08:08
Netnotkun eykur afköst starfsfólks Niðurstöður rannsóknar á vegum háskólans í Melbourne koma vafalítið sem blaut tuska í andlit vinnuveitenda sem keppst hafa við að loka á notkun ýmiss konar samskipta- og myndskeiðavefja á vinnustaðnum, svo sem Facebook, Twitter og YouTube svo eitthvað sé nefnt. 2.4.2009 07:37
Íbúðaverð hríðfellur á Manhattan Verð íbúða á Manhattan í New York hefur fallið um allt að 16 prósent á fyrsta fjórðungi ársins, að sögn fasteignasala í borginni. Fram að þessu hefur verð fasteigna í þessum hluta borgarinnar verið hátt en á því hefur orðið mikil breyting með auknu atvinnuleysi og stöðugri lækkun hlutabréfa á Wall Street. Atvinnuleysi í New York-borg mælist nú 8,1 prósent og hefur ekki verið meira síðan haustið 2003. 2.4.2009 07:32
Styttist í tilraunaskot N-Kóreumanna Norður-Kóreumenn hafa nú hafist handa við að hlaða langdræga eldflaug eldsneyti, að sögn heimildamanns innan raða Bandaríkjahers. Er nú talið að það styttist í tilraunaskot, sem Norður-Kóreumenn hafa fram að þessu haldið staðfastlega fram að snúist um að koma gervitungli á braut en ekki skjóta upp eldflaug. 2.4.2009 07:28
Mótmælandi varð bráðkvaddur Maður lést í mótmælum nærri seðlabanka Englands í London í gærkvöldi en þar var fjöldi mótmælenda saman kominn í tilefni af G20-fundinum svokallaða. Maðurinn, sem var staddur í hópi mótmælenda, hneig skyndilega niður og kölluðu aðrir mótmælendur til lögreglu. 2.4.2009 07:26
Óttast að 16 hafi látist í þyrluslysi Óttast er að 16 séu látnir eftir að þyrla af gerðinni Super Puma hrapaði í sjóinn skammt undan strönd Skotlands í gær. Þegar hafa tíu lík fundist en sex manns er enn saknað. Þyrlan var á leið frá olíuborpalli með farþegana þegar hún hrapaði og er ekki enn vitað hvað olli slysinu. 2.4.2009 07:21
Þúsundir deyja á sjó ár hvert Þúsundir sjómanna farast á hverju ári vegna mannlegra mistaka, vanhæfni skipstjórnenda og lélegs skipakosts. Áætlað er að 24 þúsund farist á hverju ári af þeim fimmtán milljónum sem sækja sjó sér til lífsviðurværis. 2.4.2009 05:00
Spúla ræningjum burt Skipverjar norsks flutningaskips vörðust í gærmorgun árásum sómalskra sjóræningja í Aden-flóa. Talsmaður gríska sjóhersins segir að sjóræningjarnir hafi skotið úr byssum á tankskipið Sigloo Tor en norsku skipverjarnir hafi flæmt þá burt með vatnsgusum úr brunaslöngum. Engan sakaði í átökunum. - sh 2.4.2009 05:00
Mýkri afstaða til Palestínu Benjamin Netanyahu, verðandi forsætisráðherra Ísraels, virtist sýna Palestínumönnum meiri sáttahug en áður í ræðu á ráðstefnu um efnahagsmál í Ísrael í gær. Þar hét hann friðarviðræðum við palestínsk stjórnvöld. 2.4.2009 04:15
Bandaríkjamenn í stað Nýsjálendinga Bandaríkjamenn virðast nú eiga greiða leið inn í mannréttindanefnd Sameinuðu þjóðanna eftir að Nýsjálendingar ákváðu í gær að draga framboð sitt til baka. Nýsjálensk stjórnvöld telja að Bandaríkin geti haft meiri jákvæð áhrif í nefndinni. 2.4.2009 04:15
Umbrotsmaður laminn til bana Umbrotsmaður á úthverfadagblaði í Moskvu, sem verið hefur gagnrýnið á rússnesk stjórnvöld, lést fyrr í vikunni eftir að hafa verið barinn til óbóta nálægt heimili sínu um liðna helgi. Þetta fullyrðir ritstjóri blaðsins þrátt fyrir að lögregla reki dauðsfallið til matareitrunar. 2.4.2009 04:15
Ruddust inn í Skotlandsbanka Óeirðalögregla tókst á við mótmælendur sem streymdu til Lundúna í gær til að mótmæla fundi tuttugu helstu iðnríkja heims sem fram fer í borginni. 2.4.2009 04:00
Heimsbyggðin standi saman gegn kreppu Barack Obama Bandaríkjaforseti reyndi að stappa stálinu í kreppuhrjáða heimsbyggðina á blaðamannafundi í Lundúnum í gær. Þangað er hann kominn til að sitja fund G20-hópsins svonefnda um aðgerðir gegn kreppunni. 2.4.2009 04:00
Norðmenn and-snúnir Ísrael Ísraelska dagblaðið Jerusalem Post segir að andúðin á gyðingum hafi náð nýjum hæðum í Noregi. Hatrið fari þar stöðugt vaxandi. Í Gasastríðinu í vetur hafi mótmælin gegn Ísraelsmönnum verið áberandi í Ósló, að sögn Dagbladet. 2.4.2009 04:00
Fengu velskt lamb að hætti Jamie Oliver Leiðtogar 20 helstu iðnvelda heims sem dvelja nú í London komu saman í kvöld og snæddu saman. Það var stjörnukokkurinn Jamie Oliver sem grillaði velskt lamb ofan í mannskapinn. 1.4.2009 23:45
Brown og Obama bjartsýnir á leiðtogafundi Götubardagar eru hafnir í Lundúnum og Bretar búa sig undir mikið eignatjón í mótmælum vegna ráðstefnu tuttugu helstu iðnvelda heims. Barack Obama segist sannfærður um að ráðstefnan muni skila miklum árangri. 1.4.2009 19:18
Mannskætt þyrsluslys við Skotland Óttast er að sextán manns hafi farist með þyrlu sem hrapaði í sjóinn undan strönd Skotlands í dag. Búið er að finna átta lík í sjónum en hinna er saknað. Þyrlan var af gerðinni Super Puma frá Bond þyrluþjónustunni. Hún var að flytja fólk af olíuborpalli. Önnur Super Puma þyrla fyrirtækisins hrapaði í sjóinn fyrir mánuði með átján manns innanborðs. Það var rétt hjá olíuborpalli við Nýfundnaland og í það skipti björguðust allir. 1.4.2009 19:05
Óeirðarlögreglan í Bretlandi stendur vaktina vegna G20 fundar Óeirðarlögreglan hefur verið kölluð til eftir að G20 mótmælendur, sem mótmæla við leiðtogafund 20 helstu iðnvelda heims, réðust á einkennisklæddan lögregluþjón og gerðu atlögu að Royal Bank of Scotland í miðborg Lundúna. 1.4.2009 13:52
Sjúkraflutningamenn handtóku bankaræningja Tveir sjúkraflutningamenn gerðu sér lítið fyrir og handsömuðu bankaræningja í Kaupmannahöfn í gær. Ræninginn kom hlaupandi út úr Nordea-bankanum með feng sinn og veittu sjúkraflutningamennirnir honum umsvifalaust eftirför á sjúkrabílnum. 1.4.2009 08:42
Samlokukynslóð í sjálfheldu Milljónir breskra fjölskyldna hinnar svokölluðu samlokukynslóðar eru að kikna undan álaginu af að þurfa bæði að sinna foreldrum sínum og afkvæmum. 1.4.2009 08:28
Síðasta Bráðavaktin í loftið Eftir 15 ára samfellda sigurgöngu verður lokaþáttur sjúkrahússsápunnar Bráðavaktarinnar, eða ER, sýndur á bandarísku NBC-sjónvarpsstöðinni annað kvöld. Þættirnir eru runnir undan rifjum rithöfundarins og læknisins Michaels Crichton heitins en hann skrifaði handritið að fyrsta þættinum reyndar árið 1974 og byggði það á sinni eigin reynslu frá því að hann starfaði á bráðavakt sem ungur læknanemi. 1.4.2009 08:21
Bretar undirbúa G20 Lögregla í Lundúnum býr sig nú í óða önn undir mótmæli allt að 120 mismunandi hópa meðan á G20-ráðstefnunni svokölluðu stendur en hún hefst á morgun og koma þar saman fulltrúar stærstu iðnvelda heimsins. 1.4.2009 08:09
Fundu flak skips sem sökk 1940 Flak fyrsta bandaríska skipsins, sem sökkt var í síðari heimsstyrjöldinni, er fundið, skammt undan suðurströnd Ástralíu. Um er að ræða flutningaskip sem flutti blý, ull og kopar frá Ástralíu til Bandaríkjanna. 1.4.2009 07:25
Tölvuglæpum fjölgar um 33 prósent Tilkynningum um tölvuglæpi hefur fjölgað um 33 prósent í Bandaríkjunum síðasta árið og hefur fjárhagslegt tjón vegna slíkra glæpa aukist um 11 prósent á sama tíma. 1.4.2009 07:23
Umbætur handa breskum lestarfarþegum Farþegar breskra járnbrautarlesta eiga von á miklum umbótum á lestarkerfi landsins þegar 35 milljörðum punda verður varið til að fjölga lestum og draga þannig úr seinkunum og fjölda farþega í hverri lest. 1.4.2009 07:19