Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Þrír látnir í sprengingu á Indlandi Að minnsta kosti þrír eru látnir og 20 slasaðir eftir sprengju við mosku í Rajasthan héraði á Indlandi. Sprengjan sprakk fyrir utan Dargah Sharif helgiskrínið í Amjer borg rétt eftir að daglegt hlé var gert á föstu Ramadan mánaðar sem senn er á enda. Að minnsta kosti 500 manns voru inni í helgidómnum þegar sprengjan sprakk samkvæmt heimildum CNN. 11.10.2007 16:43
Kviðdómur sér myndir af dauða Díönu Ljósmyndir paparazzi ljósmyndara af Díönu prinsessu deyjandi í bílflaki voru lagðar fyrir kviðdóm réttarransóknarinnar yfir láti hennar í dag. Myndirnar voru að hluta ruglaðar en hár prinsessunnar og hliðarsvipur sáust. 11.10.2007 15:18
Eins árs fangelsi fyrir ölvunarakstur Karlmaður var í dag dæmdur í eins árs fangelsi í Árósum í Danmörku fyrir ítrekaðan ölvunarakstur. Um er að ræða einn þyngsta dóm sem fallið hefur í landinu fyrir brot sem þetta. 11.10.2007 15:05
Gerry segist líffræðilegur faðir Madeleine Það á ekki af foreldrum Madeleine McCann að ganga. Nú hefur Gerry McCann séð sig knúinn til að staðhæfa að hann sé líffræðilegur faðir stúlkunnar eftir getgátur í portúgölskum fjölmiðlum. Gerry sem er hjartasérfræðingur sendi frá sér yfirlýsingu vegna greinar í dagblaðinu 24 Horas. 11.10.2007 14:57
Forseti Armeníu fagnar ályktun Bandaríkjaþings Forseti Armeníu fagnar ályktun Bandaríkjaþings um að skilgreina fjöldamorð Ottoman Tyrkja á Armenum sem þjóðarrmorð. Allt að ein og hálf milljón Armana voru drepnir í morðunum sem fræðimenn skilgreina sem fyrstu þjóðarmorð tuttugustu aldarinnar. Tyrkir hafa neitað að morðin hafi jafnast á við þjóðarmorð og segja fjölda látinna ýktan. 11.10.2007 14:38
Frjósamar nektardansmeyjar þéna meira Nektardansmeyjar sem eru á hátindi frjósemi sinnar í tíðahringnum fá að jafnaði meira í þjórfé en starfssystur þeirra sem eru á pillunni. Þetta sýna niðurstöður vísindamanna við háskólann í New Mexico í Bandaríkjunum. 11.10.2007 13:47
Doris Lessing hlýtur bókmenntaverðlaun Nóbels í ár Breski rithöfundurinn Doris Lessing er handhafi bókmenntaverðlauna Nóbels í ár. Frá þessu greindi sænska akademían í dag. Lessing, sem er 87 ára, er elsta manneskja sem hlotið hefur þennan heiður og ellefta konan. 11.10.2007 11:40
Kína mótmælir verðlaunum Dalai Lama Stjórnvöld í Peking andmæltu í dag áformum Bandaríkjaþings um að heiðra búddaleiðtogann Dalai Lama. Tíbeska útlaganum verður í þessum mánuði veitt gullmedalía bandaríska þingsins, en það er æðsta borgaralega viðurkenning landsins. Kína lítur á Dalai Lama sem aðskilnaðarsinna. 11.10.2007 11:30
Bhutto hvött til að fresta heimför Pervez Musharraf forseti Pakistan hefur óskað eftir því að Benazir Bhutto fyrrverrandi forsætisráðherra fresti heimkomu sinni þar til Hæstiréttur úrskurðar um lögmæti endurkjörs hans í forsetaembættið. 11.10.2007 11:05
Stríð í Afríku kostar jafnmikið og þróunaraðstoð Ný skýrsla um stríðsátök í Afríku greinir frá því að þróunarmál síðustu 15 ár hafi kostað álfuna 300 milljarða bandaríkjadala. Kostnaðurinn er jafnhár fjárhæðum sem bárust á tímabilinu í þróunaraðstoð. Það var hópur sjálfstæðra samtaka sem stóðu að rannsókninni, þar á meðal Oxfam, alþjóðasamtakin sem berjast gegn fátækt. 11.10.2007 10:40
Búrma - Mótmælandi deyr í fangelsi Maður sem barðist fyrir lýðræði í Búrma og var handtekinn í mótmælum í síðasta mánuði lést við yfirheyrslur. Alþjóða mannréttindasamtök pólitískra fanga í Taílandi greindu frá því að maðurinn hefði látist af völdum pyntinga. Dauði hans vekur ugg um öryggi fjölda fanga í Búrma. 11.10.2007 10:21
Áttatíu meintir barnaníðingar handteknir í Portúgal Lögreglan í Portúgal handtók í gær áttatíu grunaða barnaníðinga og lagði hald á um 150 tölvur í stærstu lögregluaðgerð gegn barnaníðingum í sögu landsins. Hún fer nú í gegnum ógrynni barnakláms sem fannst í aðgerðinni. 11.10.2007 10:18
Múslimar biðla til Páfa um frið Rúmlega 130 íslamskir fræðimenn hafa skrifað Benedikt páfa og öðrum kristnum leiðtogum bréf þar sem hvatt er til meiri skilnings á milli trúarbragðanna tveggja. Þeir segja að heimsfriður gæti velt á bættum samskiptum á milli múslima og kristinna. 11.10.2007 09:51
Of mikið af brjóstunum á breska þinginu Jacqui Smith innanríkisráðherra Bretlands hefur viðurkennt að sennilega sýni hún of mikið af brjóstum sínum í umræðutímum á breska þinginu. 11.10.2007 08:49
Malasía eignast geimfara Malasía er nú komin í hóp þjóða sem eiga geimfara. Um borð í Soyuz eldflaug sem farin er af stað út í geiminn frá Baikonur í Kazakhstan er sheikinn Muszaphar Shukor frá Malasíu ásamt tveimur öðrum geimförum. 11.10.2007 08:20
Samskipti Tyrklands og Bandaríkjanna í uppnámi Samskipti Tyrklands og Bandaríkjanna eru í uppnámi þessa stundina og ástæðan er þjóðarmorðið á Armenum fyrir 90 árum síðan. Stjórn Tyrklands hefur fordæmt atkvæðagreiðsu þingnefndar á bandaríkjaþingi þar sem samþykkt var ályktun um að þjóðarmorð hefði verið framið á Armenum í Tyrklandi árin 1915 til 1917. 11.10.2007 07:57
Valdabarátta öryggissveita ógnar stöðugleika Rússlands Stöðugleiki hins rússneska samfélags er í hættu ef marka má opið bréf eftir Viktor Cherkesov yfirmann fíkniefnalögreglunnar þar í landi sem birtist í blaðinu Kommersant í vikunni. 11.10.2007 07:53
Á leið á árangurslausan fund Bandaríkin og Rússland virðast ekki vera neitt nærri því að leysa ágreiningsmál sín, nú þegar tveir af æðstu ráðherrum bandaríkjastjórnar halda til Moskvu til viðræðna. 10.10.2007 19:45
Hitafundur um selastofna Fjallað verður um seli í Eystrasalti og Norður-Atlantshafi á alþjóðlegri ráðstefnu í Vasa í Finnlandi dagana 16. til 18. október. 10.10.2007 19:11
Víxluðust eftir fæðingu Foreldrar tveggja tíu mánaða stúlkna búa sig nú undir að skipta á stúlkunum eftir að í ljós kom að þær víxluðust strax eftir fæðingu. 10.10.2007 19:00
Fáklæddum hjúkrunarkonum mótmælt Danskar hjúkrunarkonur eru öskureiðar yfir nýrri auglýsingaherferð undirfataframleiðandans JBS. 10.10.2007 18:25
Kíktu á sjúkraskrá Clooneys Stjórn sjúkrahússins þar sem George Clooney var til meðferðar eftir að hann slasaðist í árekstri á mótorhjóli sínu hefur sakað 40 starfsmenn, meðal annars lækna, um að hafa í óleyfi skoðað sjúkraskrá leikarans. 10.10.2007 17:26
Brennivínið bjargaði lífi hans Læknalið á áströlsku sjúkrahúsi lenti í nokkrum vanda þegar komið var með mann sem var að deyja eftir að hafa drukkið kælivökva. 10.10.2007 16:14
Rice varar við ályktun um þjóðarmorð Condoleeza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna hvatti í dag bandaríska þingið til að hafna ályktun sem skilgreinir fjöldamorðin í Armeníu árið 1915 sem þjóðarmorð. Rice og Robert Gates varnarmálaráðherra landsins fóru fram á þetta við utanríkisnefnd þingsins nokkrum klukkutímum áður en hún kaus um málið. 10.10.2007 15:18
Rifist um hlátur Hillary Heiftarlegar deilur hafa nú brotist út í Bandaríkjunum út af hláturskasti sem Hillary Clinton fékk í viðtali við Fox sjónvarpsstöðina. 10.10.2007 14:49
Evrópa berst gegn dauðarefsingum Í dag er alþjóðlegur dagur gegn dauðarefsingum og fyrsti sérstaki dagurinn í Evrópu gegn dauðarefsingum. Evrópuráðið skipulagði daginn ásamt mannréttindasamtökum eftir tilraun Pólverja til að hindra áformin með því að beita neitunarvaldi. Pólverjar vilja að sambandið fordæmi einnig fóstureyðingar og líknardráp. 10.10.2007 14:37
Vill jarðsetja Lenin Háttsettur embættismaður í Kreml vill að lík Vladimirs Lenins verði flutt úr grafhýsi á Rauða torginu og jarðsett. Lenin var smurður eftir lát sitt árið 1924 og hefur verið í grafhýsinu síðan. Mikill fjöldi manna heimsækir það árlega til þess að berja byltingarleiðtogann augum. 10.10.2007 14:33
Barnaþrælkun á Indlandi þrátt fyrir bann Þrátt fyrir að Indversk lög hafi tekið gildi fyrir ári síðan sem banna að börn undir 14 ára starfi við heimilishjálp eða við sölu matvæla, eru milljónir barna enn í vinnu. Þetta er upplýsingar nýrrar skýrslu samtakanna Save the Children. 10.10.2007 13:07
Erkki Tuomioja verður næsti forseti Norðurlandaráðs Fyrrum utanríkisráðherra Finnlands, jafnaðarmaðurinn Erkki Tuomioja, verður forseti Norðurlandaráðs árið 2008 . Sænska fréttaþjónustan Internytt greinir frá þessu. Fréttaþjónustan segir ríkisstjórnarflokkana og jafnaðarmenn hafa orðið sammála um skipan í embættið á þriðjudag. 10.10.2007 12:44
Ferðast um í stól Bílaframleiðandinn Toyota kynnti sína nýjustu hönnun í morgun "i-Real". Um er að ræða faratæki sem er í laginu eins og stóll og kemst á allt að þrjátíu kílómetra hraða. 10.10.2007 12:20
Lennon víða minnst Þess var minnst víðar en á Íslandi í gær að bítillinn John Lennon hefði orðið sextíu og sjö ára í gær væri hann enn á lífi. Aðdáendur Lennon og Bítlanna söfnuðust saman í Central Park í New York í Bandaríkjunum í gær. 10.10.2007 12:17
Danskar hjúkrunarkonur æfar út í JBS Danskar hjúkrunarkonur eru æfar út í nýjustu auglýsingaherferð nærfataframleiðandans JBS og segja að í henni séu hjúkrunarkonur sýndar sem vændiskonur. Hefur stéttarfélag hjúkrunarkvenna nú hvatt almenning í Danmörku til að sniðganga vörur JBS í verslunum. 10.10.2007 12:10
Engar upplýsingar um kjarnorkusprengju Írana Vladimir Putin forseti Rússlands sagði í dag að engar upplýsingar væru til um að Íranar væru að reyna að smíða kjarnorkusprengju. Hann sagði að Moskva deildi áhyggjum Vesturlanda um kjarnorkuáætlun Írana, hún yrði að vera gegnsæ. 10.10.2007 11:59
Fíll drap þjálfara sinn Taugaveiklaður fíll í rússneskum dýragarði drap dýraþjálfara sinn í dag með því að lemja rananum einu sinni kröftuglega í hana. Verið var að undirbúa flutning dýrana frá dýragarðinum í Moskvu til dýragarðs á Spáni. Atvikið varð þegar þeir voru reknir um borð í sérhannaðan pallbíl. 10.10.2007 11:30
Súdanski herinn neitar árás á Darfur Súdanski herinn hefur neitað að ráðist á eina uppreisnarhóp í Darfur sem skrifaði undir friðarsamkomulag við stjórnina. Herinn segir ættbálkaerjur orsök átaka í bænum Muhajiriya þar sem 45 létust. Sudanski frelsisherinn var eini hópur uppreisnarmanna sem skrifuðu undir friðarsamkomulagið árið 2006 og varð þannig hluti af stjórn landsins. 10.10.2007 11:05
Þjóðverji fékk Nóbelsverðlaun í efnafræði Þýski vísindamaðurinn Gerhard Ertl vann Nóbelsverðlaunin í efnafræði fyrir rannsóknir á efnaferli í föstum flötum að því er Sænska vísindaakademían skýrði frá í morgun. Ertl fær 93 milljónir í verðlaun fyrir rannsóknirnar sem hjálpa vísindamönnum að skilja ýmsa ferla í föstum efnum, eins og til dæmis af hverju járn ryðgar. 10.10.2007 10:42
Talið að sjö börn hafi gist hjá Madeleine Portúgalska lögreglan telur að Madeleine og tvíburasystkyni hennar hafi ekki verið ein í íbúð McCann hjónanna í Praia da Luz kvöldið sem stúlkunni var rænt. Portúgalska blaðið 24 Horas heldur því fram að lögreglan telji að börn sjö vina þeirra hafi einnig verið í íbúðinni 3. maí síðastliðinn. 10.10.2007 10:19
Nýtt lyf gegn ofdrykkju? Rannsóknir í Bandaríkjunum hafa leitt í ljós að lyf sem upphaflega var þróað gegn mígreni geti hjálpað alkóhólistum við að ná tökum á drykkju sinni án þess að þurfa að fara í meðferð. 10.10.2007 08:09
Danir nota upplýsingar sem eru fengnar með pyntingum Forsætisráðherra Danmerkur telur allt í lagi að nota upplýsingar sem fengnar eru með pyntingum, ef þær geta komið í veg fyrir hryðjuverk í Danmörku. 9.10.2007 21:01
Heiðursmorð á strúti Tveir ungir Bandaríkjamenn hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir að skjóta til bana strút sem hafði sparkað þeim um koll. 9.10.2007 19:42
Tyrkir vilja ráðast inn í Írak Forsætisráðherra Tyrklands hefur veitt samþykki sitt fyrir meiriháttar innrás í Írak, til þess að berja á kúrdiskum uppreisnarmönnum þar. 9.10.2007 18:20
Sherry aftanfrá Tammy Jean Warner var ákærð fyrir manndráp af gáleysi eftir að hún hellti úr tveim stórum Sherry flöskum upp í endaþarm eiginmanns síns. 9.10.2007 17:38
Manndrápsbjörn skotinn til bana Bjarndýr sem talið er hafa drepið veiðimann og hund hans í Mið-Svíþjóð í gær, var skotið til bana í dag. 9.10.2007 16:46
Íslensk börn hætt komin í dönskum skólabruna Íslensk börn voru meðal nemenda í dönskum barnaskóla sem voru hætt komin þegar skólinn brann til kaldra kola í gær. Faðir íslenskrar telpu segir að hún hafi orðið að forða sér í svo miklum fllýti 9.10.2007 16:20
Ráðgátan um liti Iapetusar Vísindamenn telja sig nú vera nærri því að leysa gátuna um hina dularfullu liti Iapetusar, fylgitungls Satúrnusar. Lengi hefur það vafist fyrir mönnum að finna skýringu á því afhverju annar helmingur yfirborðs tunglsins er þakin svörtu efni en hinn hvítu. 9.10.2007 16:07