Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kastró lét ekki sjá sig Fidel Kastró, leiðtogi Kúbu, var fjarverandi þegar haldið var upp á baráttudag verkalýðsins í höfuðborg landsins, Havana, í dag. Kastró hefur verið fjarri opinberu sviðsljósi allt frá því að hann fór í uppskurð vegna veikinda fyrir níu mánuðum. 1.5.2007 12:24
Margir mótmælendur handteknir í Istanbúl Tyrkneska lögreglan hefur handtekið mörg hundruð mótmælendur eftir að til átaka kom í miðborg Istanbúl í morgun. Vinstrimenn höfuð komið þar saman til að minnast blóðbaðs í borginni þann fyrsta maí fyrir þrjátíu árum. 1.5.2007 12:10
Líklegt að Tony Blair tilkynni afsögn í næstu viku Miklar líkur benda til þess að Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, muni tilkynna afsögn sína í næstu viku. Þetta kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. 1.5.2007 11:12
Landsstjórn Grænlands sprungin Landsstjórnin á Grænlandi sprakk í gær. Deilur um rækjukvóta urðu til þess að vinstriflokkurinn Inuit Ataqatigiit klauf sig út úr henni. Jafnaðarmenn í Siumut flokknum og hægrimenn í Atassut, sem einnig sátu í stjórninni, reyna nú að mynda nýja. 1.5.2007 11:00
Leiðtogi al-Kaída í Írak fallinn Abu Ayyub al-Masri, leiðtogi al-Kaída hryðjuverkasamtakanna í Írak, féll í innbyrgðis átökum andspyrnumanna í smáþorpi norður af Bagdad í morgun. Íraska innanríkisráðuneytið greinir frá þessu. Al-Masri tók við stjórn samtakanna eftir að Abu Musab al-Zarkawi féll í loftárás Bandaríkjahers í júní í fyrra. 1.5.2007 10:08
Opinberir starfsmenn í Bretlandi í verkfall Þúsundir opinberra starfsmanna í Bretlandi munu á morgun taka þátt í eins dags verkfalli til þess að krefjast hærri launa og aukins starfsöryggis. Talið er að allt að 200.000 á rúmlega 200 starfsstöðum muni starfsmenn leggja niður störf á morgun. Stéttarfélagið segir að verkfallið sé tilkomið vegna þess að ríkisstjórnin sé að nota starfsmenn sína til þess að reyna að hafa stjórn á verðbólgunni. 30.4.2007 23:46
Lífslíkur örvhentra kvenna lægri Ný rannsókn gefur til kynna að líklegra sé að örvhentar konur láti lífið fyrr en rétthentar konur, sérstaklega úr krabbameini eða æðasjúkdómum. Vísindamennirnir benda á hugsanlega sé um að ræða tilviljun og að sannanirnar séu langt í frá fullnægjandi. Engu að síður benda margar rannsóknir til tengsla á milli þess að vera örvhentur og að vera með hina ýmsu kvilla sem síðan lækka lífslíkur. 30.4.2007 23:29
Ætla að lýsa verkfall ólöglegt Atvinnumálaráðherra Perú, Susana Pinilla sagði í dag að stjórnvöld þar í landi ætli síðar í vikunni að lýsa verkfall námuverkamanna þar í landi ólöglegt. Hún tók fram að aðeins fimm prósent námuverkamanna hefði tekið þátt í verkfallinu. 30.4.2007 22:55
Sögulegt samkomulag um flugsamgöngur í höfn Bandaríkin og Evrópusambandið skrifuðu í dag undir tímamótasamning í flugmálum. Hann leyfir flugfélögum að fljúga frá hvaða flugvelli sem er í Evrópu til hvaða flugvallar sem er í Bandaríkjunum og öfugt. Engar takmarkanir verða á fjölda flugferða, hvers konar flugvélar verða notaðar eða hvaða leiðir verður flogið. 30.4.2007 21:26
Wolfowitz ætlar ekki að segja af sér Paul Wolfowitz, forseti Alþjóðabankans, hefur neitað að segja af sér. Forseti Bandaríkjanna, George W. Bush, lýsti í dag yfir stuðningi við hann. 30.4.2007 21:11
Stjórnarherinn heitir hefndum Stjórnarherinn í Súdan hét því í dag að berja niður bandalag uppreisnarhópa í Darfúr-héraði landsins þar sem þeir drápu herforingja sem hafði lent þyrlu sinni á svæðinu vegna vélarbilunar. „Herinn, sem fordæmir þessa grimmu og svikulu árás, heitir því að svara henni með enn þyngri árásum... og mun brjóta þessa uppreisnarmenn á bak aftur.“ Þetta hafði ríkisfréttastöð Súdan eftir herforingja í súdanska hernum í dag. 30.4.2007 20:34
Evrópusambandið og Bandaríkin funda Evrópusambandið og Bandaríkin voru á einu máli um að loftslagsbreytingar væru forgangsmál og George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði að hann þyrfti að sannfæra Vladimir Putin, forseta Rússlands, um nauðsyn eldflaugavarnarkerfis í Evrópu. Þetta kom fram á fundi í Hvíta húsinu í dag. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og George W. Bush sátu fundinn. 30.4.2007 20:03
Herskip mögulega við landið til lengri tíma Yfirmaður norska hersins segir afar mikilvægt að herinn geti stundað æfingar á Íslandi eins og nýtt varnarsamkomulag landanna geri ráð fyrir. Hann segir að til greina komi að hafa herskip við landið til lengri tíma. Formaður varnarmálanefndar norska Stórþingsins segir varnasamstarf við Ísland fela í sér mikla möguleika en gagnrýnir norsk stjórnvöld fyrir að hafi teygt fulllangt í samningum við Ísland. 30.4.2007 18:54
Sprengingar heyrast frá Græna svæðinu Allt að tólf háværar sprengingar heyrðust í miðborg Bagdad í kvöld og reykur sást stíga upp frá Græna svæðinu svokallaða. Talið er að reykurinn hafi komið frá svæði írakskra stjórnvalda. Enn hafa engar fregnir borist af mannfalli eða skemmdum. 30.4.2007 18:25
Olmert segir ekki af sér Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði í sjónvarpsávarpi í kvöld að hann myndi ekki segja af sér. Hann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir 30 daga stríðið í Líbanon í fyrra. Olmert sagðist þó ætla að vinna að því að leiðrétta þau mistök sem gerð hefðu verið. 30.4.2007 18:12
Erdogan hvetur til samstöðu og stillingar Forsætisráðherra Tyrklands, Tayyip Erdogan, skoraði í dag á tyrknesku þjóðina til þess að sýna samstöðu. Ávarpið var tekið upp á laugardaginn og var sýnt í sjónvarpi í Tyrklandi í dag. Er því ætlað að slá á spennuna milli þeirra sem vilja aðskilja trú- og stjórnmál annars vegar og stuðningsmanna íslamista hins vegar. Mikill óróleiki hefur verið í landinu vegna þess að nýr forseti landsins mun líklega koma úr röðum íslamista. 30.4.2007 17:57
Neitaði að fjalla um forsjárdeilu lesbía Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur neitað að taka upp mál tveggja kvenna sem eiga í forræðisdeilu út af barni sem önnur þeirra eignaðist meðan þær voru í lesbískri sambúð. Konurnar bjuggu í Virginíufylki, en fóru til Vermont árið 2000, þar sem þar eru leyfð borgaraleg hjónabönd samkynhneigðra. Árið 2002 var önnur þeirra gervifrjóvguð og eignaðist dóttur. 30.4.2007 16:42
Lífstíðar fangelsi fyrir hryðjuverk Fimm breskir islamistar voru dæmdir í lífstíðar fangelsi í dag, fyrir að undirbúa stórfelld hryðjuverk í landinu. Ætlan þeirra var að búa til sprengiefni úr 600 kílóum af ammoníum nítrat áburði, til þess að hefna fyrir stuðning Breta við Bandaríkjamenn eftir 11. september árásirnar. Mennirnir fimm voru í tengslum við þá sem myrtu 52 í sjálfsmorðsárásunum í Lundúnum árið 2005. 30.4.2007 16:24
Enn í sjokki Þegar starfsmenn líkhúss á sjúkrahúsi í Dublin komu til þess að sækja mann sem hafði látist á einni deild sjúkrahússins byrjuðu þeir á að breiða lak fyrir andlit hans. Svo ýttu þeir rúminu á undan sér út af sjúkrastofnunni. Þá vaknaði líkið og settist upp. 30.4.2007 16:03
Illa ígrundað stríð Forsætisráðherra Ísraels er harkalega gagnrýndur í skýrslu rannsóknarnefndar sem fjallaði um stríðið gegn Hisbolla í Líbanon, á síðasta ári. Ehud Olmert er sagður hafa hrundið stríðinu af stað án þess að hafa nokkra ígrundaða áætlun um framgang þess. Olmert hefur enga reynslu sem hershöfðingi, og það sem Ísraelum finnst jafnvel enn verra; það hefur varnarmálaráðherrann ekki heldur. Ísraelskir fjölmiðlar segja að þar leiði haltur blindan. 30.4.2007 14:33
Skjalda -hættu að prumpa Metan er einna sterkust af þeim gastegundum sem teljast til gróðurhúsalofttegunda. Það er 23 sinnum öflugra við að binda hita í gufuhvolfinu en kol-díoxíð. Vísindamenn segja ef hægt yrði að hafa stjórn á útblæstri metans væri það risastórt skref í því að draga úr loftslagsbreyttingum. 30.4.2007 13:53
Scotty er kominn upp "Beam me up Scotty," er líklega ein af frægustu setningum kvikmyndasögunnar, þótt hún hafi í raun aldrei verið sögð í Star Trek þáttunum sem hún var hermd uppá. Scotty var Montgomery Scott, yfirvélstjóri á geimfarinu Enterprise. Réttu nafni hét hann James Doohan. 30.4.2007 13:20
Tískudrósin Björk slær í gegn Gallinn sem Björk var í á tónleikum sem hún tók þátt í í Kaliforníu á föstudag (sjá mynd) , þótti slaga hátt upp í svanadressið sem vakti hvað mesta athygli á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 2001. Á hátíðinni í Kaliforníu voru saman komin þrjátíu og sjö bönd og plötusnúðar, sem drógu að sér yfir 50 þúsund áhorfendur. Björk var tekið með drynjandi fögnuði. 30.4.2007 13:15
Ísraelsk stjórnvöld gagnrýnd Búist er við að stuðningsmenn jafnt sem andstæðingar krefjist afsagnar Ehuds Olmerts, forsætisráðherra Ísraels, eftir að skýrsla rannsóknarnefndar um stríðsrekstur Ísraela í Líbanon í fyrra verður birt í dag. Olmert og Amir Peretz, varnarmálaráðherra, eru harðlega gagnrýndir fyrir mistök í starfi. 30.4.2007 12:48
Umdeild kosning til Tyrklandsforseta fyrir dóm Umdeilt fyrirkomulag til forsetakosninga í Tyrklandi mun koma til kasta stjórnskipulegs dómstóls í landinu. Fyrirkomulagið er sagt etja veraldarsinnum gegn ráðandi stjórnmálaflokki Íslamista. Rétturinn er nú að skoða málamiðlun frá stjórnarandstöðunni um að hætta við forsetakosninguna. 30.4.2007 11:46
Fimm Bretar sakfelldir fyrir að skipuleggja sprengjuherferð Fimm Bretar voru í morgun sakfelldir fyrir að skipuleggja sprengjuárásir víðsvegar um Bretland. Lestir, verslunarmiðstöð og næturklúbbar áttu að vera skotmörk fimmennninganna. Mennirnir hugðust notast við 600 kíló af heimagerðu sprengjuefni sem framleiða átti úr áburði. 30.4.2007 11:23
Hópkynlíf stundað á steinöld Hópkynlíf, kynlífsþrælar og kynlífsleikföng eru ekkert nýtt fyrirbæri. Timothy Taylor, fornleifafræðingur við Bradford háskólann í Bretlandi, segir að forfeður okkar á steinöld hafi stundað fjölbreytt kynlíf og ekkert dregið af sér. Fram til þessa hefur verið talið að steinaldrarmenn hafi eðlað sig eins og dýr, til þess eins að viðhalda stofninum. 30.4.2007 10:59
Aftökum fjölgar í Saudi-Arabíu Tveir menn voru teknir af lífi í Saudi-Arabíu dag. Þá hafa 47 manns verið hálshöggnir það sem af er þessu ári. Á síðasta ári voru 34 teknir af lífi og 36 árið þar á undan. Aftökur í Saudi-Arabíu eru oftast með þeim hætti að menn eru hálshöggnir opinberlega. 30.4.2007 10:27
Strokufangi saknaði klefafélaganna Strokufangi sem strauk úr fangelsi í Búlgaríu sneri þangað aftur vegna þess að hann saknaði félaga sinna innan fangelsismúranna. Vassil Ivanov sagðist ekki hafa þolað frelsið án þeirra. Ivanov var dæmdur fyrir þjófnað árið 1996 og fékk 11 ára fangelsisdóm. Hann strauk úr fangelsinu eftir níu ára vist árið 2005 þegar hann fékk að fara heim í stutt páskafrí. 30.4.2007 10:13
Árás á lögreglustöð í Aþenu Handsprengju var kastað á lögreglustöð í Aþenu í morgun, og sautjan skotum skotið á hana úr skammbyssum. Enginn slasaðist en skemmdir urðu á húsinu og lögreglubílum. Talið er að árásarmennirnir tilheyri einhverjum hópi stjórnleysingja og vinstri manna, sem hafa gert margar árásir á lögreglustöðvar og banka undanfarnar vikur. 30.4.2007 10:05
Miklir eldar í Manchester Eldur logar nú í miðbæ Manchester borgar á Englandi og fimm hæða bygging er að hruni komin. Eldurinn hefur náð að læsa sig nærliggjandi hús. Rúmlega 100 slökkviliðsmenn berjast nú við eldinn. 30.4.2007 09:10
Ekki borgað fyrir eldsneyti í heilt ár Norðmaðurinn Stig Breisten hefur ekki borgað fyrir eldsneyti á bílinn sinn í heilt ár. Hann notar jurtaolíu á díselvélina sína og fær hana gefins á knæpu í næsta nágrenni við sig. 29.4.2007 19:00
Óttast heittrúaðan forseta Mörg hundruð þúsund Tyrkir tóku komu saman í miðborg Istanbúls í dag til að sýna stuðning við veraldlega stjórnarhætti í landinu. Margir Tyrkir óttast að heittrúaður múslimi verði valinn forseti og vilja allt gera til að koma í veg fyrir það. 29.4.2007 18:45
Brú hrundi í Kaliforníu Hluti umferðarbrúar í Oakland í Kaliforníu hrundi í dag og mikill eldur kviknaði þegar eldsneytisflutningabíll skall á stólpa. Ökumaður flutningabílsins slasaist aðeins lítillega og var hann fluttur á sjúkrahús. Engan annan vegfaranda sakaði. 29.4.2007 17:53
Vakin athylgi á ástandinu í Darfur-héraði Mótmælafundir voru haldnir í um þrjátíu löndum í dag til að vekja athygli á því ófremdarástandi sem nú sé í Darfur héraði í Afríkuríkinu Súdan. Fjögur ár eru um þessar mundir frá því til átaka kom á svæðinu en þau hafa kostað minnst tvö hundruð þúsund manns lífið auk þess sem tvær milljónir íbúa eru á vergangi. 29.4.2007 16:55
Grunaður um að hafa ráðist á 101 gamla konu Lögreglan í New York yfirheyrir nú fjörutíu og fjögurra ára mann sem er grunaður um að hafa barið og síðan rænt hundrað og eins árs gamla konu í síðasta mánuði. Árásin náðist á myndband í eftirlitsmyndavél og var sýnd í fréttum. 29.4.2007 16:15
Kastró kominn aftur Fidel Kastró er aftur tekinn við stjórnartaumunum á Kúbu. Þetta segir Hugo Chavez, forseti Venesúeal og náinn vinur forsetans aldna. Kastró hefur ekki komið fram opinberlega síðan hann veiktist síðasta sumar og afhenti Raul bróður sínum völdin í landinu. 29.4.2007 15:58
Loftárás á Darfur-hérað Talsmaður uppreisnarmanna í Darfur-héraði í Súdan segir stjórnarherinn hafa staðið að baki loftárás á búðir uppreinsnarmanna í dag. Þar var áætlað að halda viðræður um ástandið í landinu. Fjölmargir særðust í árásinni. 29.4.2007 15:50
Engin átök í Tallinn í nótt Stjórnvöld í Eistlandi kenna Rússum um þær óeirðir sem urðu í landinu fyrir helgi. Tvær nætur í röð kom til átaka milli mótmælenda og lögreglu vegna minnismerkis um fallna hermenn í seinni heimsstyrjöldinni sem stjórnvöld létu fjarlægja úr miðborg Tallinn á föstudaginn. Ekki kom til átaka í höfuðborginni í nótt. 29.4.2007 13:15
Tamíl tígrar gerðu loftárásir í nótt Uppreisnarmenn úr hópi Tamíl tígra gerðu í nótt loftárásir á eldsneytisgeymslur og bensínvinnslustöðvar í og við Colombo, höfuðborg Sri Lanka. Engar fregnir hafa borist af mannfalli í árásunum. Tígrarnir segja þetta gert vegna árás stjórnarhersins á stöðvar uppreisnarmanna fyrir helgi. 29.4.2007 13:00
Styður Brown til formanns Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, hefur ákveðið að styðja Gordon Brown, fjármálaráðherra, sem næsta leiðtoga Verkamannaflokksins og þar með í embætti forsætisráðherra fram að næstu kosningum. Þetta fullyrðir breska blaðið Sunday Times í morgun. 29.4.2007 12:45
Kviknaði í eftir að eldingu laust niður Miklir eldar loga nú í olíuvinnslustöð í Oklahóma í Bandaríkjunum eftir að eldingu laust niður í geymslustöð sem í voru 50 þúsund tunnur af ómeðhöndluðu bensíni. Eldur blossaði það upp og læsti hann sig svo í öðrum geymslutanki þar sem var að finna 30 þúsund tunnur af díselolíu. 29.4.2007 12:30
Fjölmenn mótmæli í Istanbúl Mörg þúsund Tyrkir komu saman til mótmælafundar í Istanbúl í morgun til að styðja við aðskilnað ríkis og trúarbragða í landinu. Deilt er um skipan forseta sem hefur haldið mikilli tryggð við rætur sínar í Íslam. 29.4.2007 12:15
Vísindamenn heiðraðir Guðmundur Þorgeirsson prófessor var útnefndur heiðursvísindamaður Landspítala – háskólasjúkrahúss 2007 á föstudag. Útnefningin fór fram á vísindadagskrá við upphaf Vísinda á vordögum. Við sama tækifæri var Sveinn Hákon Harðarson valinn Ungur vísindamaður ársins 2007. 29.4.2007 11:00
Tamíl tígrar gerðu loftárás Uppreisnarmenn úr hópi Tamíl tígra gerðu í nótt loftárásir á eldsneytisgeymslu og -vinnslustöð í og við Colombo, höfuðborg Sri Lanka. Engar fregnir hafa borist af mannfalli í árásunum. Tígrarnir segja þetta gert vegna árás stjórnarhersins á stöðvar uppreisnarmanna fyrir helgi. 29.4.2007 10:45
„Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Innlent