Loftárás á Darfur-hérað Guðjón Helgason skrifar 29. apríl 2007 15:50
Talsmaður uppreisnarmanna í Darfur-héraði í Súdan segir stjórnarherinn hafa staðið að baki loftárás á búðir uppreinsnarmanna í dag. Þar var áætlað að halda viðræður um ástandið í landinu. Fjölmargir særðust í árásinni. Talsmaður Súdönsku frelsishreyfingarinnar, sem samdi ekki um frið við stjórnvöld í landinu, segir að liðsmenn hópsins hafi skotið niður einhverjar þyrlur hersins. Talsmaður súdanska hersins sagði í yfirlýsingu að engin árás hefði verið gerð en ein þyrla hersins hefði horfið þar sem hún var á eftirlitsflugi. Nokkrir hópar skæruliða sömdu um frið við stjórnvöld fyrir tæpu ári en það hefur ekki bundið enda á skálmöld í landinu. Sameinuðu þjóðirnar segja um tvö hundruð þúsund manns hafa fallið í átökum síðan 2003 og tvær milljónir manna á vergangi. Bretar og Bandaríkjamenn vilja að stjórnvöld í Súdan hleypi liði her- og lögreglumanna frá Afríkubandalaginu og Sameinuðu þjóðunum inn í landið og á átakasvæðin. Það lið telji rúmlega tuttugu þúsund liðsmenn. Stjórnvöld í Khartoum hafa aeðins samþykkt að 3.500 manna herlið frá SÞ og fimm þúsund manna herlið frá Afríkubandalaginu fái að fara inn í landið.
Erlent Fréttir Mest lesið Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Erlent Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Erlent Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Erlent „Ég var kölluð „hryðjuverkamaður““ Innlent Komu sér fyrir í ruslageymslu og kveiktu þar eld Innlent Árásarfeðgarnir nafngreindir Erlent Skotmennirnir feðgar Erlent Ekki mótfallin Fljótagöngum en ekki með nýrri forgangsröðun Innlent Vinna að því að koma upp efnagreiningu í neyslurýmum Innlent Íslendingur í Brown-háskóla: Oftast í tímum í sömu stofu og árásin var gerð Innlent Fleiri fréttir Morðinginn í Brown gengur enn laus Heyrði byssuhvellina: Skotvopnalöggjöfin rædd á kaffistofunni Sílebúar tóku Kast Árásarfeðgarnir nafngreindir Úkraínumenn reiðubúnir til að falla frá aðild að Nató Talið að Rob Reiner og eiginkona hans hafi verið myrt Skotmennirnir feðgar Skotinn tvisvar eftir að hafa tæklað annan skotmanninn Einn í haldi í tengslum við skotárás í Brown-háskóla Rabbíni drepinn í árásinni Grunaðir um að skipuleggja hryðjuverk á jólamarkaði Tíu drepnir í skotárás á gyðingahátíð Tveir látnir eftir skotárás í háskóla Tvinn-rafmagnsflugvél sem lækka á fargjöldin Rannsókn á meintri gagnaöflun um Giuffre felld niður Þingmenn bannaðir á krám vegna skattahækkana Föngum sleppt og viðskiptaþvingunum aflétt Vopnahlé Trumps hélt í nokkrar klukkustundir Witkoff fundar með Selenskí ESB frystir rússneskar eignir ótímabundið Trump, Clinton, Gates og fleiri á nýjum Epstein-myndum Selenskí í Kúpíansk, sem Pútín sagðist hafa hernumið Segir Trump að skipta sér ekki af evrópsku lýðræði Stefna á að taka fleiri skip frá Venesúela Evrópa þurfi að vera búin undir aðra stórstyrjöld Meintur morðingi Kirk mætti fyrir dómara í gær Takmarkar getu ríkjanna til að setja gervigreindinni skorður Bandaríkjamenn vilji koma á fríverslunarsvæði í Donbas Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja Sjá meira