Fleiri fréttir Orðinn gagnkynhneigður á ný Ted Haggard, bandaríski presturinn sem komst í heimsfréttirnar fyrir þremur mánuðum fyrir að hafa átt í sambandi við karlmann og neytt eiturlyfja, losnaði í dag úr meðferð og segist hann nú vera algjörlega gagnkynhneigður. 6.2.2007 21:08 Apple segir Vista skemma iPod tónlistarspilarana Hið nýja stjórnkerfi Microsoft, Windows Vista, getur skemmt iPod tónlistarspilarana vinsælu. Þetta kom fram í fréttatilkynningu frá Apple í dag. Microsoft kynnti Vista til sögunnar í síðustu viku. 6.2.2007 20:45 Rússar vara Evrópusambandið við Rússar vöruðu Evrópusambandið við því í dag að blanda sér ekki of mikið í mál innan áhrifasvæðis Rússlands. Evrópusambandið hefur undanfarið verið að beita sér í Moldavíu, Georgíu og Azerbaídsjan en Rússar hafa lengi miðlað í þeim deilum sem þar eru. 6.2.2007 20:36 Deildi fimm lögum og verður sóttur til saka Scott Hinds, 23 ára, var nýverið ákærður fyrir ólöglega dreifingu á tónlist á internetinu. Hann er einn af sex sakborningum í Maine ríki í Bandaríkjunum. Það skrýtna er hins vegar að hann dreifði aðeins fimm lögum. 6.2.2007 19:58 Olmert segir samningaleiðina færa Forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, sagði í dag að Íranir væru ekki búnir að ná þeim árangri í kjarnorkumálum sem þeir segjast hafa náð. Hann sagði líka enn hægt að beita Írana þrýstingi til þess að fá þá hætta við kjarnorkuáætlun sína. 6.2.2007 19:48 Átök í Betlehem Til átaka kom á milli Palestínumanna og ísraelskra hermanna í Betlehem í dag vegna endurbóta Ísraela á vegspotta að Musterishæðinni í Jerúsalem. Þar nærri er einn helgasti staður múslima og óttast þeir að skemmdir verði unnar á honum. 6.2.2007 19:15 Geimfari reyndi að ræna keppinaut Ástir í geimnum urðu kveikjan að mannránstilraun í Bandaríkjunum í gær. Geimfarinn Lisa Nowak lagði á sig langferð frá Houston til Orlando svo hún gæti rænt konu sem hún óttaðist að hefði stolið elskunni sinni frá sér. Nowak gæti átt yfir höfði sér lífstíðar fangelsi. 6.2.2007 19:00 Upptaka af loftárás á bandamenn Breskir fjölmiðlar birtu í dag myndband sem er sagt sýna bandaríska hermenn fella breskan bandamann sinn í loftárás í Írak fyrir tæpum 4 árum. Myndbandið hefur valdið miklu fjaðrafoki í Bretlandi. 6.2.2007 18:45 Nowak kærð fyrir morðtilraun Lögreglan í Orlando í Flórída hefur ákært geimfara vegna tilraunar til morðs. Geimfarinn, Lisa Nowak, reyndi að ræna konu sem hún hélt að væri samkeppnisaðili um ástir annars geimfara, William A. Oefelein. Nowak var handtekin fyrir líkamsárás í gær og átti að sleppa henni gegn tryggingu í dag. 6.2.2007 18:01 Æsispennandi sjónvarp 6.2.2007 17:10 Morðingi Önnu Lindh fær ekki að fara heim Hinn serbneski morðingi Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, fær ekki að afplána lífstíðar fangelsisdóm sinn í Serbíu. Sænsk fangelsisyfirvöld höfnuðu beiðni þar um, eftir að hafa fengið þau svör frá Serbíu að óljóst væri hvort refsing hans yrði stytt þar. 6.2.2007 16:51 Mótmæla í rúminu Bandarískt par mótmælir nú í rúminu heima hjá sér að hætti Johns Lennons og Yoko Ono, gegn stríðinu í Írak. Ernie og Lynn Seewer frá Mobile í Alabama hafa fært rúmið sitt inn í stofu og vilja að aðrir fylgi fordæmi sínu. Ernie sagði Press-Register að eins og John Lennon væri honum sama að gera sig að fífli, ef skilaboðin kæmust áfram. Ernie kennir fjölmiðlaframleiðslu í háskólanum í suður Alabama. 6.2.2007 16:39 Tuttugu og fimm ára rútuferð Jaeyaena Beuraheng er múslimi af malaiskum uppruna sem hvorki kann að tala eða skrifa taílensku. Hún bjó í einu af þrem múslimahéruðum syðst í Thaílandi, sem voru innlimuð í Taíland fyrir meira en eitthundrað árum. Þau hafa hinsvegar aldrei runnið saman við Taíland og tungumál og siðir eru allt aðrir. 6.2.2007 16:25 Bandarísk herstjórn fyrir Afríku 6.2.2007 15:23 Brúðarmeyjar til leigu Kínversk stúlka hefur stofnað fyrirtæki sem séhæfir sig í leigu á brúðarmeyjum. Xu Lisha er nemandi í Tækniskólanum í Tianjin. Í auglýsingu á internetinu leitar hún að grönnum háskólanemum, glæsilegum í útliti, sem hafi hæfileika til að bregðast fljótt og vel við atvikum í brúðkaupum. 6.2.2007 15:00 Bandaríkjamenn skutu á Breta Breska götublaðið Sun og AP fréttastofan hafa komist yfir upptökur úr stjórnklefa bandarískrar orustuþotu sem skaut á bílalest breskra hermanna í Basra í Írak fyrir tæpum fjórum árum. 6.2.2007 12:00 Börn sjá klám á netinu Nærri sex af hverjum tíu breskum börnum hafa fyrir slysni rambað inn á klámsíður á netinu. Prófessor í geðlækningum við London School of Economics sem gerði rannsókn með þessum niðurstöðum segir engan sýnilegan árangur af forritum og netvörnum sem eiga að sía út óæskilegt efni. 6.2.2007 11:52 Önnur bréfsprengja í Englandi Tveir særðust þegar bréfsprengja sprakk í skrifstofubyggingu í Berkshire í suðurhluta Englands í morgun. Í gær slasaðist ein kona þegar önnur bréfsprengja sprakk á skrifstofu í London. Byggingin í Berkshire var rýmd eftir sprenginguna í morgun. Lögregla segir of snemmt að segja til um það hvort sprengingin í dag og sú í gær tengist. 6.2.2007 11:13 Stjórn mynduð í Hollandi Kristilegir demókratar, Verkamannaflokkurinn og Kristilegi flokkurinn virðast vera að ná saman um samsteypustjórn í Hollandi. Tveir mánuðir eru frá þingkosningum í landinu. 6.2.2007 10:40 Indverjar ræða við Google Google á nú í viðræðum við indversku ríkisstjórnina vegna Google Earth forritsins. Indversk yfirvöld eru hrædd um að of mikið sjáist á myndunum sem eru í Google Earth og að öfgamenn geti notað þær sem teikningar. 5.2.2007 23:25 Öldungadeildin styður Bush Öldungadeild bandaríska þingsins hafnaði í kvöld tillögu sem hefði lýst yfir óánægju þingsins með aukningu hermanna í Írak. Frumvarpið var ekki bindandi fyrir George W. Bush, forseta Bandaríkjanna. Það var hugsað sem opinber yfirlýsing um andstöðu við áætlanir Bush. 5.2.2007 23:16 Íranar segja frá framförum 11. febrúar FARS, fréttastofa íranska ríkisins, sagði frá því á laugardaginn var, að 11. febrúar yrði sagt frá stórkostlegum framförum í kjarnorkuáætlun landsins. 11. febrúar er lokadagur hátíðahalda sem minnast uppreisnarinnar í Íran árið 1979. 5.2.2007 22:26 Bítlarnir og Apple ná sáttum Tæknifyrirtækið Apple hefur loksins náð sátt í deilum sínum við Bítlana en þeir eiga útgáfufyrirtæki sem heitir Apple Corps. Allt síðan 1981 hafa Bítlarnir og Apple deilt um réttinn á vörumerkinu Apple. 5.2.2007 22:20 Hraðstefnumót þeirra ríku og fallegu Sumir segja að án peninga geti rómantíkin aldrei blómstrað. Það orðatiltæki varð til þess að ný tegund af svokölluðum hraðstefnumótum varð til. Á þeim eru aðeins ríkir karlmenn og aðeins fallegar konur. Þau hittast síðan öll og finna, ef allt gengur að óskum, ástina. 5.2.2007 21:57 Khodorkovsky ákærður á ný Rússneskir saksóknarar lögðu fram í dag nýjar ákærur á hendur Mikhail Khodorkovsky, fyrrum olíujöfri sem nú situr í fangelsi fyrir skattsvik. 5.2.2007 21:30 Hertar reglur um knattspyrnuleiki á Ítalíu Fótboltavellir á Ítalíu munu ekki opna á ný fyrr en öryggiskröfum hefur verið framfylgt og gæsla á leikjum hert. Þetta sagði innanríkisráðherra Ítalíu, Giuliano Amato, í dag eftir neyðarfund með knattspyrnuyfirvöldum þar í landi. 5.2.2007 21:00 Egypsk stúlka lést úr fuglaflensu 17 ára egypsk stúlka lést í dag af völdum fuglaflensu, eða H5N1 vírusins. Hún er tólfti Egyptinn sem lætur lífið af völdum hennar. Þetta kom fram í fréttum frá ríkisfréttastöð Egyptalands í dag. 5.2.2007 20:30 Róbótar finna sennilega ekki líf á Mars Ef það er líf á Mars, er það sennilega of langt undir yfirborði plánetunnar til að vélmenni geti fundið það og greint. Þetta er niðurstaða sérfræðinga á vegum Evrópsku geimferðastofnunarinnar. Ástæðan er sú að hafi nokkurn tímann verið líf á borð við einfrumunga eða bakteríur á Mars þá hefur geimgeislun fyrir löngu eytt um það öllum ummerkjum. 5.2.2007 19:56 Krókódíll í lauginni Saklausum gestum, sem ætluðu að fá sér sundsprett í almenningslaug í Darwin í Ástralíu, brá heldur betur í brún í morgun. Í þann mund sem ljós laugarinnar voru kveikt, svo þeir gætu dýft sér ofan í, skaust tæplega tveggja metra langur ósakrókódíll úr trjáþykkninu og ofan í laugina á undan þeim. 5.2.2007 19:45 Giuliani færist nær framboði Rudy Giuliani, fyrrum borgarstjóri New York borgar, hefur færst skrefi nær því að tilkynna framboð sitt til forsetaembættis Bandaríkjanna. Giuliani var rétt í þessu að skila inn blöðum þar sem hann lýsir yfir framboði sínu. 5.2.2007 19:15 Skipulögðu rán og nauðganir á stúlkum Breskur dómstóll hefur dæmt þrjá menn til langrar fangelsisvistar fyrir að áforma að ræna tveimur stúlkum og nauðga þeim. Mennirnir skipulögðu illvirkið á spjallrás á internetinu. 5.2.2007 19:00 Framlög til varnarmála aukin George Bush lagði fjárlagafrumvarp sitt fyrir Bandaríkjaþing í dag en það hljóðar upp á tæplega tvö hundruð þúsund milljarða íslenskra króna. Fjórðungur þeirra upphæðar rennur til hermála en skorið verður niður á heilbrigðissviðinu. 5.2.2007 18:45 Fjöldamorð í Neðra-Saxlandi Lögreglan í Neðra-Saxlandi í Þýskalandi rannsakar nú morð á sex manns en lík þeirra fundust á kínverskum veitingastað í bænum Sittensen í morgun. 5.2.2007 18:45 Breskir fuglar bannaðir 5.2.2007 16:05 Karlmenn við stýrið Tveir vinir í Kentucky ákváðu að ræna hraðbanka með hraði, svo þeir kæmust örugglega undan. Þeir bundu keðju í stuðarann á pallbínum sem þeir áttu, og vöfðu svo keðjunni utan um hraðbankann. Svo gáfu þeir allt í botn til þess að rífa hraðbankann út úr veggnum. 5.2.2007 15:35 Rússar gegn Serbum í Kosovo Rússar hafa óvænt tekið afstöðu gegn Serbum varðandi sjálfstæði Kosovo héraðs. Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt til að Kosovo verði aðskilið frá Serbíu og fái aðild að alþjóðastofnunum. Það verði hinsvegar undir alþjóðlegu eftirliti áfram, og NATO sjái um friðargæslu. 5.2.2007 14:37 Börnum enn rænt til hernaðar Hundruð þúsunda barna eru enn neydd til þess að berjast í herjum og skæruliðasamtökum víðsvegar í heiminum. Bresku samtökin Björgum börnunum segja að haldið sé áfram að ræna börnum til hernaðar í að minnsta kosti þrettán löndum, frá Afganistan til Úganda. 5.2.2007 14:22 Dýragarður sýnir manneskjur Kínverskur dýragarður leitar nú að sex sjálfboðaliðum til að búa á apasvæði garðsins í fimm daga. Garðurinn sem er í Xi'an borg leitar eftir þremur konum og þremur mönnum sem munu búa við sömu skilyrði og aparnir. Fólkið mun keppa um val á þvi hver sýnir dýrunum mesta alúð og eru 53 þúsund íslenskar krónur í verðlaun. 5.2.2007 13:58 Kona við stýrið 5.2.2007 13:45 Hinn fullkomni glæpur ? 5.2.2007 13:30 Fanga meinaður aðgangur að fangelsi Maður sem strauk úr fangelsi í Belgíu reyndi að gefa sig fram, en var vísað frá fangelsinu þar sem hann framvísaði ekki persónuskilríkjum. Hakim Ghazouani, 24 ára, strauk úr fangelsi í Ghent í síðasta mánuði eftir að hafa fengið leyfi til að fara til læknis. Lögreglan lýsti eftir manninum og varaði almenning við, en Ghazouani var dæmdur fyrir rán og fíkniefnasölu. 5.2.2007 13:25 Smástirni á leiðinni Vísindamenn fylgjast nú grannt með smástirninu Apophis sem talið er að muni koma óþægilega nálægt jörðu, fyrst árið 2029 og svo aftur 2036. Smástirnið verður þær nær jörðu en tunglið, og margir fjarskiptagervihnettir og það mun sjást greinilega með berum augum. Líkur á að Apophis lendi á jörðinni eru þó ekki taldir nema 1:24000. 5.2.2007 13:11 Varað við afleiðingum árásar á Íran Hópur breskra góðgerðarsamtaka, trúfélaga og verkalýðssambanda hafa varað Tony Blair forsætisráðherra við afleiðingum þess að ráðist verði á Íran. Í bréfi samtakanna segir að hernaðaraðgerðir gegn landinu muni hafa hrikalegar afleiðingar og skora því á Blair að þrýsta á George Bush Bandaríkjaforseta um að hefja viðræður við stjórnvöld í Teheran þegar í stað. Ríkisstjórnir á Vesturlöndum grunar að kjarnorkuáætlun Írana sé ekki í friðsamlegum tilgangi og því hafa Bandaríkjamenn ekki útilokað hernað gegn þeim. 5.2.2007 12:15 Páfi fordæmir boltaofbeldi Benedikt sextándi páfi hefur fordæmt ofbeldið sem hann segir setja ljótan blett á knattspyrnu, eftir að ítalskur lögreglumaður lést í óeirðum eftir fótboltaleik á Sikiley á föstudaginn. Páfi hvatti íþróttayfirvöld til að koma á lögum og reglu. Páfagarður sendi ekkju lögreglumannsins samúðarkveðjur. 5.2.2007 11:37 Ein særðist í bréfsprengingu í London Bréfsprengja sprakk á skrifstofu í miðborg Lundúna fyrir hádegi og særði einn starfsmann. Lögregla segir að svæðinu í kringum Victoria Street hafi verið lokað eftir að ábending barst um grunsamlegan pakka. 5.2.2007 11:17 Sjá næstu 50 fréttir
Orðinn gagnkynhneigður á ný Ted Haggard, bandaríski presturinn sem komst í heimsfréttirnar fyrir þremur mánuðum fyrir að hafa átt í sambandi við karlmann og neytt eiturlyfja, losnaði í dag úr meðferð og segist hann nú vera algjörlega gagnkynhneigður. 6.2.2007 21:08
Apple segir Vista skemma iPod tónlistarspilarana Hið nýja stjórnkerfi Microsoft, Windows Vista, getur skemmt iPod tónlistarspilarana vinsælu. Þetta kom fram í fréttatilkynningu frá Apple í dag. Microsoft kynnti Vista til sögunnar í síðustu viku. 6.2.2007 20:45
Rússar vara Evrópusambandið við Rússar vöruðu Evrópusambandið við því í dag að blanda sér ekki of mikið í mál innan áhrifasvæðis Rússlands. Evrópusambandið hefur undanfarið verið að beita sér í Moldavíu, Georgíu og Azerbaídsjan en Rússar hafa lengi miðlað í þeim deilum sem þar eru. 6.2.2007 20:36
Deildi fimm lögum og verður sóttur til saka Scott Hinds, 23 ára, var nýverið ákærður fyrir ólöglega dreifingu á tónlist á internetinu. Hann er einn af sex sakborningum í Maine ríki í Bandaríkjunum. Það skrýtna er hins vegar að hann dreifði aðeins fimm lögum. 6.2.2007 19:58
Olmert segir samningaleiðina færa Forsætisráðherra Ísraels, Ehud Olmert, sagði í dag að Íranir væru ekki búnir að ná þeim árangri í kjarnorkumálum sem þeir segjast hafa náð. Hann sagði líka enn hægt að beita Írana þrýstingi til þess að fá þá hætta við kjarnorkuáætlun sína. 6.2.2007 19:48
Átök í Betlehem Til átaka kom á milli Palestínumanna og ísraelskra hermanna í Betlehem í dag vegna endurbóta Ísraela á vegspotta að Musterishæðinni í Jerúsalem. Þar nærri er einn helgasti staður múslima og óttast þeir að skemmdir verði unnar á honum. 6.2.2007 19:15
Geimfari reyndi að ræna keppinaut Ástir í geimnum urðu kveikjan að mannránstilraun í Bandaríkjunum í gær. Geimfarinn Lisa Nowak lagði á sig langferð frá Houston til Orlando svo hún gæti rænt konu sem hún óttaðist að hefði stolið elskunni sinni frá sér. Nowak gæti átt yfir höfði sér lífstíðar fangelsi. 6.2.2007 19:00
Upptaka af loftárás á bandamenn Breskir fjölmiðlar birtu í dag myndband sem er sagt sýna bandaríska hermenn fella breskan bandamann sinn í loftárás í Írak fyrir tæpum 4 árum. Myndbandið hefur valdið miklu fjaðrafoki í Bretlandi. 6.2.2007 18:45
Nowak kærð fyrir morðtilraun Lögreglan í Orlando í Flórída hefur ákært geimfara vegna tilraunar til morðs. Geimfarinn, Lisa Nowak, reyndi að ræna konu sem hún hélt að væri samkeppnisaðili um ástir annars geimfara, William A. Oefelein. Nowak var handtekin fyrir líkamsárás í gær og átti að sleppa henni gegn tryggingu í dag. 6.2.2007 18:01
Morðingi Önnu Lindh fær ekki að fara heim Hinn serbneski morðingi Önnu Lindh, utanríkisráðherra Svíþjóðar, fær ekki að afplána lífstíðar fangelsisdóm sinn í Serbíu. Sænsk fangelsisyfirvöld höfnuðu beiðni þar um, eftir að hafa fengið þau svör frá Serbíu að óljóst væri hvort refsing hans yrði stytt þar. 6.2.2007 16:51
Mótmæla í rúminu Bandarískt par mótmælir nú í rúminu heima hjá sér að hætti Johns Lennons og Yoko Ono, gegn stríðinu í Írak. Ernie og Lynn Seewer frá Mobile í Alabama hafa fært rúmið sitt inn í stofu og vilja að aðrir fylgi fordæmi sínu. Ernie sagði Press-Register að eins og John Lennon væri honum sama að gera sig að fífli, ef skilaboðin kæmust áfram. Ernie kennir fjölmiðlaframleiðslu í háskólanum í suður Alabama. 6.2.2007 16:39
Tuttugu og fimm ára rútuferð Jaeyaena Beuraheng er múslimi af malaiskum uppruna sem hvorki kann að tala eða skrifa taílensku. Hún bjó í einu af þrem múslimahéruðum syðst í Thaílandi, sem voru innlimuð í Taíland fyrir meira en eitthundrað árum. Þau hafa hinsvegar aldrei runnið saman við Taíland og tungumál og siðir eru allt aðrir. 6.2.2007 16:25
Brúðarmeyjar til leigu Kínversk stúlka hefur stofnað fyrirtæki sem séhæfir sig í leigu á brúðarmeyjum. Xu Lisha er nemandi í Tækniskólanum í Tianjin. Í auglýsingu á internetinu leitar hún að grönnum háskólanemum, glæsilegum í útliti, sem hafi hæfileika til að bregðast fljótt og vel við atvikum í brúðkaupum. 6.2.2007 15:00
Bandaríkjamenn skutu á Breta Breska götublaðið Sun og AP fréttastofan hafa komist yfir upptökur úr stjórnklefa bandarískrar orustuþotu sem skaut á bílalest breskra hermanna í Basra í Írak fyrir tæpum fjórum árum. 6.2.2007 12:00
Börn sjá klám á netinu Nærri sex af hverjum tíu breskum börnum hafa fyrir slysni rambað inn á klámsíður á netinu. Prófessor í geðlækningum við London School of Economics sem gerði rannsókn með þessum niðurstöðum segir engan sýnilegan árangur af forritum og netvörnum sem eiga að sía út óæskilegt efni. 6.2.2007 11:52
Önnur bréfsprengja í Englandi Tveir særðust þegar bréfsprengja sprakk í skrifstofubyggingu í Berkshire í suðurhluta Englands í morgun. Í gær slasaðist ein kona þegar önnur bréfsprengja sprakk á skrifstofu í London. Byggingin í Berkshire var rýmd eftir sprenginguna í morgun. Lögregla segir of snemmt að segja til um það hvort sprengingin í dag og sú í gær tengist. 6.2.2007 11:13
Stjórn mynduð í Hollandi Kristilegir demókratar, Verkamannaflokkurinn og Kristilegi flokkurinn virðast vera að ná saman um samsteypustjórn í Hollandi. Tveir mánuðir eru frá þingkosningum í landinu. 6.2.2007 10:40
Indverjar ræða við Google Google á nú í viðræðum við indversku ríkisstjórnina vegna Google Earth forritsins. Indversk yfirvöld eru hrædd um að of mikið sjáist á myndunum sem eru í Google Earth og að öfgamenn geti notað þær sem teikningar. 5.2.2007 23:25
Öldungadeildin styður Bush Öldungadeild bandaríska þingsins hafnaði í kvöld tillögu sem hefði lýst yfir óánægju þingsins með aukningu hermanna í Írak. Frumvarpið var ekki bindandi fyrir George W. Bush, forseta Bandaríkjanna. Það var hugsað sem opinber yfirlýsing um andstöðu við áætlanir Bush. 5.2.2007 23:16
Íranar segja frá framförum 11. febrúar FARS, fréttastofa íranska ríkisins, sagði frá því á laugardaginn var, að 11. febrúar yrði sagt frá stórkostlegum framförum í kjarnorkuáætlun landsins. 11. febrúar er lokadagur hátíðahalda sem minnast uppreisnarinnar í Íran árið 1979. 5.2.2007 22:26
Bítlarnir og Apple ná sáttum Tæknifyrirtækið Apple hefur loksins náð sátt í deilum sínum við Bítlana en þeir eiga útgáfufyrirtæki sem heitir Apple Corps. Allt síðan 1981 hafa Bítlarnir og Apple deilt um réttinn á vörumerkinu Apple. 5.2.2007 22:20
Hraðstefnumót þeirra ríku og fallegu Sumir segja að án peninga geti rómantíkin aldrei blómstrað. Það orðatiltæki varð til þess að ný tegund af svokölluðum hraðstefnumótum varð til. Á þeim eru aðeins ríkir karlmenn og aðeins fallegar konur. Þau hittast síðan öll og finna, ef allt gengur að óskum, ástina. 5.2.2007 21:57
Khodorkovsky ákærður á ný Rússneskir saksóknarar lögðu fram í dag nýjar ákærur á hendur Mikhail Khodorkovsky, fyrrum olíujöfri sem nú situr í fangelsi fyrir skattsvik. 5.2.2007 21:30
Hertar reglur um knattspyrnuleiki á Ítalíu Fótboltavellir á Ítalíu munu ekki opna á ný fyrr en öryggiskröfum hefur verið framfylgt og gæsla á leikjum hert. Þetta sagði innanríkisráðherra Ítalíu, Giuliano Amato, í dag eftir neyðarfund með knattspyrnuyfirvöldum þar í landi. 5.2.2007 21:00
Egypsk stúlka lést úr fuglaflensu 17 ára egypsk stúlka lést í dag af völdum fuglaflensu, eða H5N1 vírusins. Hún er tólfti Egyptinn sem lætur lífið af völdum hennar. Þetta kom fram í fréttum frá ríkisfréttastöð Egyptalands í dag. 5.2.2007 20:30
Róbótar finna sennilega ekki líf á Mars Ef það er líf á Mars, er það sennilega of langt undir yfirborði plánetunnar til að vélmenni geti fundið það og greint. Þetta er niðurstaða sérfræðinga á vegum Evrópsku geimferðastofnunarinnar. Ástæðan er sú að hafi nokkurn tímann verið líf á borð við einfrumunga eða bakteríur á Mars þá hefur geimgeislun fyrir löngu eytt um það öllum ummerkjum. 5.2.2007 19:56
Krókódíll í lauginni Saklausum gestum, sem ætluðu að fá sér sundsprett í almenningslaug í Darwin í Ástralíu, brá heldur betur í brún í morgun. Í þann mund sem ljós laugarinnar voru kveikt, svo þeir gætu dýft sér ofan í, skaust tæplega tveggja metra langur ósakrókódíll úr trjáþykkninu og ofan í laugina á undan þeim. 5.2.2007 19:45
Giuliani færist nær framboði Rudy Giuliani, fyrrum borgarstjóri New York borgar, hefur færst skrefi nær því að tilkynna framboð sitt til forsetaembættis Bandaríkjanna. Giuliani var rétt í þessu að skila inn blöðum þar sem hann lýsir yfir framboði sínu. 5.2.2007 19:15
Skipulögðu rán og nauðganir á stúlkum Breskur dómstóll hefur dæmt þrjá menn til langrar fangelsisvistar fyrir að áforma að ræna tveimur stúlkum og nauðga þeim. Mennirnir skipulögðu illvirkið á spjallrás á internetinu. 5.2.2007 19:00
Framlög til varnarmála aukin George Bush lagði fjárlagafrumvarp sitt fyrir Bandaríkjaþing í dag en það hljóðar upp á tæplega tvö hundruð þúsund milljarða íslenskra króna. Fjórðungur þeirra upphæðar rennur til hermála en skorið verður niður á heilbrigðissviðinu. 5.2.2007 18:45
Fjöldamorð í Neðra-Saxlandi Lögreglan í Neðra-Saxlandi í Þýskalandi rannsakar nú morð á sex manns en lík þeirra fundust á kínverskum veitingastað í bænum Sittensen í morgun. 5.2.2007 18:45
Karlmenn við stýrið Tveir vinir í Kentucky ákváðu að ræna hraðbanka með hraði, svo þeir kæmust örugglega undan. Þeir bundu keðju í stuðarann á pallbínum sem þeir áttu, og vöfðu svo keðjunni utan um hraðbankann. Svo gáfu þeir allt í botn til þess að rífa hraðbankann út úr veggnum. 5.2.2007 15:35
Rússar gegn Serbum í Kosovo Rússar hafa óvænt tekið afstöðu gegn Serbum varðandi sjálfstæði Kosovo héraðs. Sameinuðu þjóðirnar hafa lagt til að Kosovo verði aðskilið frá Serbíu og fái aðild að alþjóðastofnunum. Það verði hinsvegar undir alþjóðlegu eftirliti áfram, og NATO sjái um friðargæslu. 5.2.2007 14:37
Börnum enn rænt til hernaðar Hundruð þúsunda barna eru enn neydd til þess að berjast í herjum og skæruliðasamtökum víðsvegar í heiminum. Bresku samtökin Björgum börnunum segja að haldið sé áfram að ræna börnum til hernaðar í að minnsta kosti þrettán löndum, frá Afganistan til Úganda. 5.2.2007 14:22
Dýragarður sýnir manneskjur Kínverskur dýragarður leitar nú að sex sjálfboðaliðum til að búa á apasvæði garðsins í fimm daga. Garðurinn sem er í Xi'an borg leitar eftir þremur konum og þremur mönnum sem munu búa við sömu skilyrði og aparnir. Fólkið mun keppa um val á þvi hver sýnir dýrunum mesta alúð og eru 53 þúsund íslenskar krónur í verðlaun. 5.2.2007 13:58
Fanga meinaður aðgangur að fangelsi Maður sem strauk úr fangelsi í Belgíu reyndi að gefa sig fram, en var vísað frá fangelsinu þar sem hann framvísaði ekki persónuskilríkjum. Hakim Ghazouani, 24 ára, strauk úr fangelsi í Ghent í síðasta mánuði eftir að hafa fengið leyfi til að fara til læknis. Lögreglan lýsti eftir manninum og varaði almenning við, en Ghazouani var dæmdur fyrir rán og fíkniefnasölu. 5.2.2007 13:25
Smástirni á leiðinni Vísindamenn fylgjast nú grannt með smástirninu Apophis sem talið er að muni koma óþægilega nálægt jörðu, fyrst árið 2029 og svo aftur 2036. Smástirnið verður þær nær jörðu en tunglið, og margir fjarskiptagervihnettir og það mun sjást greinilega með berum augum. Líkur á að Apophis lendi á jörðinni eru þó ekki taldir nema 1:24000. 5.2.2007 13:11
Varað við afleiðingum árásar á Íran Hópur breskra góðgerðarsamtaka, trúfélaga og verkalýðssambanda hafa varað Tony Blair forsætisráðherra við afleiðingum þess að ráðist verði á Íran. Í bréfi samtakanna segir að hernaðaraðgerðir gegn landinu muni hafa hrikalegar afleiðingar og skora því á Blair að þrýsta á George Bush Bandaríkjaforseta um að hefja viðræður við stjórnvöld í Teheran þegar í stað. Ríkisstjórnir á Vesturlöndum grunar að kjarnorkuáætlun Írana sé ekki í friðsamlegum tilgangi og því hafa Bandaríkjamenn ekki útilokað hernað gegn þeim. 5.2.2007 12:15
Páfi fordæmir boltaofbeldi Benedikt sextándi páfi hefur fordæmt ofbeldið sem hann segir setja ljótan blett á knattspyrnu, eftir að ítalskur lögreglumaður lést í óeirðum eftir fótboltaleik á Sikiley á föstudaginn. Páfi hvatti íþróttayfirvöld til að koma á lögum og reglu. Páfagarður sendi ekkju lögreglumannsins samúðarkveðjur. 5.2.2007 11:37
Ein særðist í bréfsprengingu í London Bréfsprengja sprakk á skrifstofu í miðborg Lundúna fyrir hádegi og særði einn starfsmann. Lögregla segir að svæðinu í kringum Victoria Street hafi verið lokað eftir að ábending barst um grunsamlegan pakka. 5.2.2007 11:17