Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Neyðarástand í Sómalíu vegna flóða Sameinuðu þjóðirnar báðu aðildarþjóðir í dag um styrk að verðmæti 18 milljónum dollara, eða 1.3 milljarða íslenskra króna, til þess að hjálpa þeim sem hafa orðið heimilislausir vegna hinna gríðarlegu flóða í Sómalíu undanfarið. 6.12.2006 13:42
Bush segist ætla fara eftir ráðleggingum George W. Bush Bandaríkjaforseti lofaði því í dag að taka ráðleggingar nefndar um stefnuna í Írak mjög alvarlega. 6.12.2006 13:09
Neyðarlög sett á Fídjieyjum Neyðarlög eru í gildi á Fídjieyjum eftir að her landsins rændi þar völdum í gær. Leiðtogar valdaránsins hafa haft hraðar hendur undanfarinn sólarhring, meðal annars leyst upp þingið, sett nýjan forsætisráðherra í embætti til bráðabirgða og rekið lögreglustjóra ríkisins. 6.12.2006 12:56
Farsímanotkun ekki skaðleg Danskir vísindamenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að ekkert bendi til að notkun farsíma geti valdið krabbameini. 6.12.2006 12:46
Búist við tillögum um aukið samstarf við Sýrlendinga og Írana Nefnd á vegum Bandaríkjaþings sem gera á tillögur um breytingar á stefnunni í Írak skilar niðurstöðum sínum í dag. Aukið samstarf við Sýrlendinga og Írana og heimkvaðning herliðsins í áföngum er á meðal þess sem búist er við að nefndin leggi til. 6.12.2006 12:15
Lugovoi mun tala við breska lögregluþjóna Andrei Lugovoi, lykilvitni í morðinu á rússneska fyrrum njósnaranum Alexander Litvinenko, mun hitta breska lögreglumenn í dag en frá þessu skýrði rússneska ITAR-Tass fréttastofan í dag. 6.12.2006 11:48
Leyniskjöl gerð opinber í tengslum við heimildarmynd í Danmörku Sören Gade, varnarmálaráðherra Danmerkur, hefur ákveðið að birta leynileg skjöl í tengslum við störf danskra hermanna í Afganistan. Í heimildarmynd sem frumsýnd var á mánudag og nefnist Hið leynilega stríð eru danskir hermenn sakaðir um að hafa afhent bandarískum starfsbræðrum sínum 31 stríðsfanga sem síðan sætti pyntingum af hálfu Bandaríkjamanna. 6.12.2006 11:37
Trúverðugleika Sameinuðu þjóðanna stefnt í voða Frakkar sögðu í dag að heimsveldin sem nú funda í París, til þess að reyna að ná samkomulagi vegna kjarnorkuáætlana Írans, yrðu að hraða verkinu því annars væri trúverðugleika Sameinuðu þjóðanna stefnt í voða. 6.12.2006 11:34
Ísraelsher skýtur á Palestínumenn Ísraelskir hermenn skutu á og særðu tvo Palestínumenn sem nálguðust landamæri Ísraels við Gaza svæðið. Palestínskir sjúkraflutningamenn sögðu að mennirnir hefðu verið óvopnaðir en þetta er fyrsta árásin sem ísraelski herinn gerir á svæðinu síðan sæst var á vopnahlé þann 26. nóvember síðastliðinn. 6.12.2006 11:08
Kabila settur í embætti Joseph Kabila, sigurvegari í forsetakosningum í Austur-Kongó, verður settur í embætti í dag. Kabila bar sigur af Jean-Pierre Bemba í einum mikilvægustu kosningum í Afríku undanfarna áratugi. Búist er við fyrirmönnum frá fjölmörgum löndum vegna athafnarinnar en Bemba hefur þó sagt að hann muni ekki vera viðstaddur. 6.12.2006 10:49
Segir orð Royal ekki samræmast kjarnorkusáttmálanum Utanríkisráðherra Frakka, Philippe Douste-Blazy gagnrýndi í kvöld Ségolène Royal, forsetaframbjóðanda sósíalista fyrir að orð sem hún lét falla í Ísrael í dag, þess efnis að ef hún verði forseti muni hún beita sér gegn því að kjarnorkuáætlun Írana fái fram haldið, jafnvel í friðsamlegum tilgangi. 5.12.2006 23:30
Farsímar valda ekki heilaæxli Ekkert bendir til þess að farsímanotkun hafi í för með sér aukna hættu á heilaæxli eöa öðru krabbameini. Þetta kemur fram í nýjum rannsóknarniðurstöðum danska Krabbameinsfélagsins á farsímanotendum. Vísindamenn á vegum félagsins hafa fylgst með farsímanotendum í allt að 21 ár og sjá engin markverð tengsl á milli farsímanotkunar og krabbameins. 5.12.2006 23:15
Engin niðurstaða í Íransviðræðum Viðræður sex valdamikilla ríkja um viðbrögð við kjarnorkuáætlun Írans enduðu í dag í París án þess að diplómatarnir kæmust að endanlegri niðurstöðu um viðskiptahindranir gegn Írönum, samkvæmt upplýsingum frá franska utanríkisráðuneytinu. Fulltrúar ríkjanna koma næst saman til fundar í New York til að reka smiðshöggið á tillögu sína. 5.12.2006 22:34
Varnarmálanefndin samþykkti Gates Varnarmálanefnd Bandaríkjaþings samþykkti einróma tilnefningu Robert Gates sem varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Gates kom fyrir nefndina í dag og svaraði spurningum hennar. Öldungadeildin mun í framhaldinu greiða atkvæði um tilnefningu Gates og ræður það því hvort hann taki við embættinu af Donald Rumsfeld. 5.12.2006 22:13
Eiður tryggði Barcelona sæti í undanúrslitum Eiður Smári Guðjohnsen átti seinna markið í 2-0 sigri Barcelona á Werder Bremen á heimavelli í Barcelona í kvöld. Börsungar eru því komnir áfram í 16 liða úrslit meistaradeildar Evrópu, ásamt fyrrverandi félögum Eiðs í Chelsea, en þeir unnu riðilinn. Ronaldinho átti leifturskot á mark á þrettándu mínútu og kom liðinu yfir og Eiður gulltryggði síðan sigurinn. 5.12.2006 22:01
Forsætisráðherra Fiji flýr landið Forsætisráðherrahjónin á Fiji flúðu eyríkið flugleiðis fyrir sólarupprás að þarlendum tíma, - Fiji-eyjar eru 12 tímabeltum á undan Íslandi, að sögn þarlendrar útvarpsstöðvar. Ekki hefur verið gefið upp opinberlega hvort, og þá hvert, hjónin flúðu. Hermenn stjórnarhersins höfðu lokuðu Qarase inni á heimili sínu í gærkvöldi. Bainimarama hershöfðingi lýsti því yfir í morgun að herinn hefði tekið völdin á eyjunum. 5.12.2006 21:41
Yuschenko býður þinginu byrginn Viktor Yuschenko, forseti Úkraínu, ætlar að bjóða þinginu byrginn, og fyrirskipa að utanríkisráðherra landsins sitji sem fastast eftir að þingið samþykkti vantrauststillögu á hendur honum og innanríkisráðherra Úkraínu í síðustu viku , sem báðir eru hollvinir forsetanum og appelsínugulu byltingunni sem kom honum til valda. 5.12.2006 21:22
Bretar afhenda Alþjóðabankanum 50 milljón pund Bretar sögðust í dag ætla að greiða Alþjóðabankanum 50 milljón pund, jafnvirði tæplega 6,75 milljarða íslenskra króna, sem Bretar höfðu neitað að greiða bankanum nema stefnu hans gagnvart þróunarlöndum yrði breytt. Bankinn hefur síðan sagst munu breyta stefnu sinni að skilyrða þróunaraðstoð við efnahagsbreytingar í hjálparþurfi landi. 5.12.2006 20:50
Vill sýna börnunum upprunaleg landamæri Ísraels Menntamálaráðherra Ísraels vill að kennslubækur sýni börnum landamæri landsins eins og þau voru fyrir árið 1967 þegar Ísrael lagði undir sig Vesturbakka Jórdanar, Gaza-ströndina, Austur-Jerúsalem og Gólan-hæðirnar. Hægrimenn hafa reiðst mjög þessari tillögu ráðherrans sem segir breytinguna nauðsynlega til að börn skilj sögu landsins. 5.12.2006 20:27
Geislavirkar skyttur á Emirates Stadium Leifar geislavirka efnisins pólons 210 fannst á heimavelli breska fótboltaliðsins Arsenal, á Emirates Stadium í Norður-London. Breskir leyniþjónustumenn reyna nú að rekja slóð morðingja rússneska njósnarans Litvinenkos, sem lést af völdum póloneitrunar. 5.12.2006 20:09
Mikið mannfall uppreisnarmanna í A-Kongó Rúmlega 150 uppreisnarmenn létust í átökum við friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna í Austur-Kongó í síðustu viku að því er embættismenn S.þ. greindu frá í dag. Þeir sögðu einnig að fjöldi uppreisnarmannanna hefði gefist upp í kjölfar mannfallsins. Þetta er mesta mannfall sem sést hefur í átökum friðargæsluliða í A-Kongó. 5.12.2006 19:46
Fjórða valdaránið á 19 árum Herinn á Fídji-eyjum rændi völdum í nótt og hneppti forsætisráðherra landsins í stofufangelsi. Þetta er fjórða valdaránið á eyjunum síðan 1987. 5.12.2006 19:15
Gildir einu hvort skilgreint sem borgarastyrjöld Tilvonandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna segir Bandaríkjamenn ekki á sigurbraut í Írak. Fráfarandi framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna segir ástandið þar verra en borgarastyrjöld. En á meðan tekist er á um hvort borgarastyrjöld geisi þar deyja fjölmargir Írakar víðsvegar um landið á degi hverjum og fyrir ættingju þeirra gildir einu hvernig átökin í Írak eru skilgreind. 5.12.2006 19:00
Serbinn Seselj í lífshættu vegna mótmælasveltis Serbíumenn báðu stríðsglæpadómstól Sameinuðu þjóðanna í dag að senda serbneska öfgaþjóðernissinnann Vojislav Seselj á sjúkrahús í Belgrad. Heilsu hans hefur hrakað gríðarlega út af mótmælasvelti. Seselj hefur verið vistaður í Haag síðan hann gaf sig fram árið 2003 en réttarhöldum yfir honum var frestað um óákveðinn tíma á föstudaginn. 5.12.2006 18:04
Nektardansinn er skattfrjáls listviðburður Dómstóll í Noregi úrskurðaði í dag að nektardansstaðir þyrftu ekki að greiða virðisaukaskatt af starfsemi sinni, því hún félli í flokk með listrænum viðburðum og starfsmennirnir væru listamenn. Skattstjóri í Noregi hafði stefnt skemmtistaðnum Blue Engel fyrir að neita að rukka viðskiptavini um 25% skatt á inngöngumiða. 5.12.2006 17:31
Gates vill ekki ráðast á Íran Bandaríkin munu ekki ráðast á Íran nema allt annað hafi verið reynt. Þetta tilkynnti Robert Gates, sem mun taka við embætti varnarmálaráðherra Bandaríkjanna af Donald Rumsfeld, í dag. Hann segist þess fullviss að Íranar séu að smíða kjarnavopn en segir að Bandaríkin ættu fyrst að reyna diplómatískar leiðir til þrautar með milligöngu samstarfsríkja. 5.12.2006 17:13
Hátt í 50 létust í rútuslysi í Perú Að minnsta kosti 45 létust þegar troðfull rúta hrapaði ofan í gljúfur í Andesfjöllunum í suðurhluta Perús seint í gærkvöld. Frá þessu greindi lögregla í Perú í dag. Hún telur líklegast að bílstjóri rútunnar hafi ekið of greitt og misst stjórn á henni með þeim afleiðingum að hún steyptist ofan í 500 metra djúpt gljúfur. 5.12.2006 16:29
Segir Bandaríkjamenn ekki á sigurbraut í Írak Robert Gates, tilvonandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, sagði við yfirheyrslur fyrir varnamálanefnd öldungadeildar Bandaríkjaþings að hann teldi ekki að Bandaríkjamenn væru á sigurbraut í Írak. 5.12.2006 16:03
Maliki hyggst boða til ráðstefnu vegna ástandsins í Írak Nuri al-Maliki, forsætisráðherra Íraks, hyggst senda erindreka til nágrannaríkjanna á næstunni til þess að leita eftir samstarfi um að auka öryggi í Írak. Þá hyggst hann boða til ráðstefnu meðal ríkjanna um sama efni. 5.12.2006 15:05
Mannskæðar árásir í Bagdad 30 hafa fallið í þremur sprengjutilræðum og einni skotárás í Írak í morgun. Árás var gerð á rútu sem var að flytja sjía-múslima í norðurhluta Bagdad. 14 týndu lífi og fjórir særðust. Stuttu síðar sprungu þrjár bílsprengjur í suðurhluta Bagdad. Þar féllu sextán manns og talið að vel á þriðja tug vegfarenda hafi særst. 5.12.2006 13:45
Leita aðstoðar í Rússlandi Breskir lögreglumenn hafa formlega beðið rússneska starfsfélaga sína um aðstoð við rannsókn á dauða rússneska njósnarans Alexanders Litvinekons. Eitrað var fyrir honum með geislavirku efni. Fyrrverandi leyniþjónustumaður í Rússlandi segir stjórnvöld í Moskvu hafa myrt Litvinenko og segist hafa mikilvægar sannanir þess efnis. 5.12.2006 13:30
Heimildarmynd um fanga í Afganistan veldur deilum í Danmörku Stjórnarandstaðan í Danmörku hefur farið fram á skýringar frá ríkisstjórn landsins vegna upplýsinga sem fram koma í heimildarmynd sem frumsýnd var í Kaupmannahöfn í gær. Myndin heitir Hið leynilega stríð og þar er greint frá því að danskir hermenn í Afganistan hafi í mars árið 2002 afhent Bandaríkjaher 31 stríðsfanga sem síðan hefðu verið pyntaðir. 5.12.2006 13:21
Völdum rænt í fjórða sinn á 19 árum Herinn á Fídji-eyjum rændi völdum í nótt og hneppti forsætisráðherra landsins í stofufangelsi. Forseti Fiji-eyja segist ekki styðja valdaránsmenn. 5.12.2006 13:15
Rússar ekki samstarfsþýðir Saksóknari rússneska ríkisins, Yuri Chaika, hélt í dag fréttamannafund og sagði að ef einhverjir rússneskir ríkisborgarar verði grunaðir um græsku í eitrunarmálinu svokallaða muni rússnesk lögregla yfirheyra þá og það verði réttað yfir þeim í Rússlandi. Chaika sagði ennfremur að enginn myndi verða framseldur til Bretlands. 5.12.2006 13:11
Bandaríkin búast ekki við samkomulagi Háttsettur embættismaður Bandaríkjastjórnar sagði fyrir stórveldafund, sem fram fer í París í dag, að ekki væri búist við því að sátt myndi nást um hugsanlegar refsiaðgerðir Sameinuðu þjóðanna vegna kjarnorkuáætlunar Írans. 5.12.2006 11:46
France 24 í loftið á morgun Á morgun mun alþjóðleg frönsk fréttastöð hefja útsendingar á netinu og daginn eftir í sjónvarpi. Mun hún slást um þann hóp fólk sem horfir á CNN International, BBC World Service og ensku útgáfu Al-Jazeera. Íslensk stúlka mun starfa við ensku útgáfu stöðvarinnar. 5.12.2006 10:53
Hrósar Venesúela en minnist ekki einu orði á Chavez Fulltrúi Hvíta hússins hrósaði í dag venesúelsku þjóðinni fyrir að taka þátt í lýðræðislegum forsetakosningum en minntist ekki einu orði á Hugo Chavez, forseta Venesúela, sem var endurkjörinn með yfirgnæfandi meirihluta. Chavez er svarinn óvinur Bandaríkjamanna og líkti Bush Bandaríkjaforseta við djöfulinn í frægri ræðu í fyrra. 4.12.2006 22:58
Pólonrannsóknir í breska sendiráðinu í Moskvu Breskir geislunarsérfræðingar munu rannsaka hvort einhver merki um geislavirka efnið pólon 210 finnist í sendiráði Breta í Moskvu á næstu dögum. Þetta er hluti af rannsókn bresku leyniþjónustunnar á morðinu á Alexander Litvinenko sem eitrað var fyrir með geislavirku póloni. 4.12.2006 22:41
NASA byggir á tunglinu Geimferðastofnun Bandaríkjamanna, NASA, sagðist í dag ætla að byggja varanlega geimstöð á tunglinu, að öllum líkindum á norðurpóli tunglsins. Stöðin verður miðstöð rannsókna á tunglinu auk þess að leggja grunninn að ferðalögum til Mars. Byggingin mun hefjast árið 2020, og munu þá tunglferðir verða tíðari, til þess að flytja megi byggingarefni til tunglsins. 4.12.2006 22:36
Rússneskur templaraprestur brenndur inni Rússneskur rétttrúnaðarprestur var brenndur inni ásamt þremur börnum sínum á laugardag og telja rússneskir fjölmiðlar að íkveikjan hafi verið skipulögð til að þagga niður í prestinum, sem barðist ötullega gegn ofdrykkju áfengis. Nokkrir íbúar þorpsins þar sem presturinn bjó sögðu alkóhólista hafa stolið íkonum og öðrum gripum úr kirkjunni til að eiga fyrir næsta sopa. 4.12.2006 22:31
Flutningaskipin seglum búin Vindknúin flutningaskip verða tíð sjón í framtíðinni samkvæmt framtíðarsýn fallhlífaframleiðandans Skysails. Þar á bæ segja menn að segl með formi fallhlífar geti sparað flutningaskipum allt að 70 þúsund krónur á dag ef vindáttin er hagstæð. Seglin eru allt að 320 fermetrar að stærð og verða sett í sölu á næsta ári. 4.12.2006 21:56
Ekvador hallast til vinstri með nýjum forseta Ekvador bættist í fylkingu vinstrisinnaðra Suður-Ameríkuríkja í dag þegar talningu lauk upp úr kjörkössum forsetakosninganna. Hagfræðingurinn Rafael Correa, vinur hins alræmda Hugo Chavez, forseta Venesúela, hlaut tæp 56,7% gildra atkvæða og vann óvéfengjanlegan sigur á bananakónginum hægrisinnaða Alvaro Noboa. 4.12.2006 20:01
Sprenging í flugeldaverksmiðju kostar tvo lífið Tveir slökkviliðsmenn týndu lífi og 12 brenndust illa þegar eldur kviknaði í flugeldaverksmiðju í suðurhluta Englands í gærkvöldi. 4.12.2006 19:45
Valdarán virðist í uppsiglingu Svo virðist sem valdarán sé í uppsiglingu á Fiji-eyjum. Herinn afvopnaði í dag viðbragðssveitir lögreglu og einangraði höfuðborgina. Herforingi, sem hefur hótað því að ræna völdum, segir þetta aðeins gert til að koma í veg fyrir vopnuð átök á eyjunum. 4.12.2006 19:30
Fríverslunarviðræður eftir áramótin Viljayfirlýsing um upphaf fríverslunarviðræðna milli Íslands og Kína var undirrituð í Peking í dag. Í gær var fyrsti áfangi íslenskrar hitaveitu tekinn í notkun í Kína. Miklar vonir eru bundnar við hitaveituna og er stefnt að því að hún verði sú stærsta í heimi. 4.12.2006 19:15