Fleiri fréttir Velflestir gíslar fengu frelsi Velflestir þeirra sem rænt var í menntamálaráðuneytinu í Bagdad í gær hafa nú verið látnir lausir eða frelsaðir af lögreglu. Ekki hefur fengist staðfest að allir gíslarnir hafi fengið frelsi. 15.11.2006 12:40 Flóðbylgjuviðvörun fyrir Japan og Rússland Íbúar á Hokkaido- og Honshu-eyja í Japan hafa verið hvattir til að flýja frá ströndinni þar sem búist er við flóðbylgju eftir að jarðskjálfti upp á 8,1 á Richter varð neðjansjávar undan ströndum Chijima-eyja fyrir stundu. Varað er við að a.m.k. tveggja metra háar öldur geti skollið á norður- og austurströnd Japans, einnig gætu Rússar verið í hættu. 15.11.2006 11:51 Ekki hægt að útiloka fyrirbyggjandi árásir Bandaríkin eða aðrar þjóðir verða að íhuga möguleikann á fyrirbyggjandi árás ef Íran eða Norður-Kórea halda áfram að sækjast eftir kjarnorkuvopnum. Þessu skýrði háttsettur embættismaður innan bandarísku stjórnarinnar frá í kvöld. 14.11.2006 23:35 Neyðarástand í ríkinu Tsjad í Afríku Ríkisstjórnin í Tsjad ákvað í dag að banna óskráð skotvopn í landinu til þess að reyna að koma í veg fyrir ofbeldi milli þjóðarbrota í landinu. Lýsti hún yfir neyðarástandi á miðnætti á mánudaginn vegna árása uppreisnarmanna á þorp í austurhluta landsins. Talið er líklegt að alþjóðlegt friðargæslulið verði sent á staðinn ef ástandið heldur áfram að versna. 14.11.2006 23:03 Búið að frelsa flesta gísla í Írak Búið að frelsa flesta gísla sem var rænt í mannráni í Bagdad í dag. Gíslarnir voru frelsaðir í aðgerðum víðsvegar um Bagdad, í kringum miðnætti að staðartíma, samkvæmt tilkynningu frá talsmanni írösku stjórnarinnar. 14.11.2006 22:43 Íslendingur dregst inn í hneykslismál í Las Vegas Vestur-Íslendingurinn Sig Rogich, sem var sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi 1992 og 1993, hefur dregist inn í hneykslismál sem skekur stjórnmálalíf í Las Vegas. Nýkjörinn ríkisstjóri Nevada er sakaður um að hafa ráðist á gengilbeinu fyrir utan veitingastað í borginni og síðan hafi hann og Rogich reynt að hylma yfir málið. 14.11.2006 20:22 Bolur til loftgítarspils Ástralskur vísindamaður hefur búið til þarfaþing fyrir þá sem hafa gaman af því að leika á loftgítar. Um er að ræða bol sem þarf að smeygja sér í áður en framkallaðir eru fagrir tónar. 14.11.2006 19:30 Tilbúinn til viðræðna gegn breyttri stefnu Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, sagðist í dag tilbúinn til viðræðna við Bandaríkjamenn um kjarnorkuáætlun stjórnvalda í Teheran ef bandarísk stjórnvöld breyti stefnu sinni gagnvart Íran. Hann sagði Bandaríkjamenn fara gegn Írönum með yfirgangi. Skýringar á stefnu Íransstjórnar væri að vænta. 14.11.2006 19:15 Öryggi á frönskum flugvöllum ábótavant Stéttarfélag flugvallarstarfsmanna í París sýndi í dag sviðsettar myndir af manni smygla leirklumpi um borð í flugvél. Myndin á að sýna fram á hversu einfalt sé fyrir hryðjuverkamenn að koma plastsprengiefnum um borð í flugvélar. Myndin var tekin um nótt á Charles de Gaulle flugvellinum. 14.11.2006 19:10 Heimilislausum fjölgar í Lundúnum Góðgerðarsamtök í Bretlandi segja mikla hættu á því að Búlgarir og Rúmenar, sem leiti betra lífs í Bretlandi, endi á götunni. Löndin tvö ganga í Evrópusambandið í janúar á næsta ári. Heimilislausum í Bretlandi, úr hópi Austur-Evrópubúa, hefur fjölgað um tæp fjögur þúsund það sem af er þessu ári. 14.11.2006 19:00 Annar frambjóðenda hafnar kosningatölum í Kongó Jean-Pierre Bemba, forsetaframbjóðandi í Kongó, hefur hafnað úrslitum úr lokaumferð forsetakosninganna þar í landi sem gefa í skyn að Joseph Kabila, núverandi forseti landsins hafi unnið hana. Öruggt er talið að spenna í höfuðborg Kongó, Kinshasa, eigi eftir að aukast í kjölfarið en 4 létust í byssubardögum á milli stuðningsmanna forseta frambjóðendanna á laugardaginn var. 14.11.2006 18:55 5 lögreglumenn handteknir vegna mannrána Allt bendir nú til þess að 50 starfsmönnum og gestum rannsóknarstofu á vegum menntamálaráðuneytisins í Írak hafi verið rænt í morgun en ekki rúmlega hundrað eins og var sagt í fyrstu. 20 hefur verið sleppt. 5 lögreglumenn hafa verið handteknir og búið er umkringja hús þar sem talið er að gíslar séu í haldi. 14.11.2006 18:45 Skýrsla Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar staðfestir að Íranir séu að auðga úran Sérfræðingar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) hafa uppgötvað plútóníum sem er ekki hægt að gera grein fyrir og leifar af auðguðu úrani. Úranleifarnar sem fundust voru af hárri gráðu en þó ekki nógu hárri til þess að hægt hafi verið að nota það í kjarnorkusprengjur. 14.11.2006 18:03 Fimm háttsettir lögreglumenn handteknir vegna mannránanna í Írak Fimm háttsettir lögreglumenn hafa verið handteknir í tengslum við mannránið sem var framið í Írak í dag. Rúmlega 100 karlmönnum var þá rænt við rannsóknardeild íraska menntamálaráðuneytisins en ekki er vitað hver nákvæmur fjöldi þeirra er. Þremur hefur verið sleppt nú þegar og samkvæmt nýjustu fréttum gæti tólf hafa verið sleppt í viðbót. 14.11.2006 17:48 Ný Bítlaplata kemur eftir viku Ný plata með Bítlunum kemur út eftir viku. Reyndar með gömlum upptökum úr Abbey Road stúdíóinu. Þetta eru rúmlega 25, lög sem hljóðblönduð voru upp á nýtt af George Martin upptökumeistara Bítlanna og syni hans, Giles Martin, svo og alls konar lagabútar og hljóðbrot úr sýningu Cirque du Soleil fjölleikahópsins Love. 14.11.2006 17:09 S-Afríka leyfir hjónabönd samkynhneigðra 14.11.2006 16:48 Málfrelsi á undanhaldi 14.11.2006 16:46 Rússar sagðir vera að ná undir sig gasmarkaði Evrópu Efnahagssérfræðingar NATO hafa varað við því að Rússar kunni að vera að búa til bandalag gasframleiðsluríkja allt frá Alsír til Mið-Asíu, sem noti gasið sem pólitískt vopn gegn Evrópu. 14.11.2006 16:21 Berrassaðir nágrannar Í Svíþjóð er leyfilegt að mynda nágranna sína berrassaða, jafnvel í ástarleikjum, bara ef þeir vita ekki af því. Þetta er niðurstaða sem kemur eftir tveggja ára vangaveltur. 14.11.2006 16:04 Tugir teknir vegna lóðabrasks á sólarströndum Spánar Tugir embættismanna hafa verið handteknir fyrir lóðabrask á Miðjarðarhafsströnd Spánar, þar sem fjölmargir Íslendingar eiga hús. Meðal hinna handteknu eru borgarstjórar og borgarfulltrúar sem eru grunaðir um mútuþægni. 14.11.2006 14:47 "Jihad" er ekki heilagt stríð Islamskur heimspekingur sem átti fund með Benedikt páfa segir að hann sé enginn sérfræðingur í trúfræðum múslima, en þyrsti í meiri fróðleik um trúna og vilji eiga einlægar viðræður við fylgjendur hennar. 14.11.2006 14:06 Danir vilja hermenn sína heim frá Írak Meirihluti Dana er andvígur því að hafa danska hermenn áfram í Írak, samkvæmt skoðanakönnun sem birt var í Jótlandspóstinum í dag. Um 470 danskir hermenn eru í Írak. 14.11.2006 13:11 Rúmlega 100 rænt Vopnaðir uppreisnarmenn rændu í morgun rúmlega hundrað starfsmönnum menntamálaráðuneytisins í Bagdad, höfuðborg Íraks. Aðeins karlmönnum var rænt. 14.11.2006 12:31 Giuliani stígur fyrstu skrefin til forsetaframboðs Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri í New York, hefur tekið fyrstu skrefin til framboðs í forsetakosningunum sem fara fram árið 2008. Hann hefur skráð sig fyrir svokallaðri könnunarnefnd sem heimilar honum að safna fé til að ferðast um landið, til þess að kanna stuðning við hugsanlegt framboð. 14.11.2006 12:08 Skógar að stækka á ný Ný skýrsla heldur því fram að skógar séu aftur að sækja í sig veðrið. Skýrslan komst að því að aukning á skógum sé fyrir hendi í nærri öllum löndum þar sem einstaklingar hafa meira en 4.600 dollara, eða 318.000 krónur, í árstekjur hafi skógar stækkað. 13.11.2006 23:40 Minnismerki reist til heiðurs Martin Luthers King Jr. Mannréttindafrömuðir í Bandaríkjunum tóku í dag fyrstu skóflustungu að minnismerki um Martin Luther King Jr. Alls höfðu um 5.000 manns safnast saman og voru þau hvött af fyrrum aðstoðarmanni Martin Luther Kings Jr. til þess að hafa hugsjónir hans í heiðri um ókomna tíð. 13.11.2006 23:27 Bandarískir ráðamenn segja dómsyfirvöld ekki hafa lögsögu yfir Guantanamo fangelsinu Talsmenn ríkisstjórnar George W. Bush sögðu í dag að vísa yrði frá þeim málum sem fangar í Guantanamo hafa höfðað gegn bandarískum stjórnvöldum. Föngunum hefur flestum verið haldið þar án þess að þeir hafi verið ákærðir fyrir nokkuð. 13.11.2006 23:06 Ítalska ríkisstjórnin slakar á lögum um eiturlyf Ítalska ríkisstjórnin hækkaði í dag það magn af kannabisi sem löglegt er að vera með á sér án þess að vera handtekinn um helming. Samkvæmt nýju lögunum verður löglegt að vera með allt að 40 kannabisvindlinga á sér. 13.11.2006 22:30 Tony Blair hvetur til samvinnu í málefnum Mið-Austurlanda Í mikilvægri ræðu um utanríkismál sagði Tony Blair að mikilvægt væri að vinna með öllum löndum í Mið-Austurlöndum að friði og að það þýddi samstarf með Írönum og Sýrlandi. Talsmaður Blairs sagði hins vegar eftir ræðuna að þetta þýddi ekki að gefið yrði eftir í stefnu Bretlands varðandi þessi tvö ríki. 13.11.2006 22:13 Náttúrulegt verkjalyf sem er sterkara en morfín Vísindamenn hafa komist að því að mannslíkaminn framleiðir verkjalyf sem er talið töluvert sterkara en morfín. Vísindamennirnir fundu efnið, sem heitir opiorphin, í munnvatni. 13.11.2006 22:06 Utanríkisráðherra Georgíu líkir Rússum við nasista Utanríkisráðherra Georgíu, Giorgi Baramidze, bætti í dag olíu á eldinn í samskiptum þeirra við Rússa þegar hann bar meðferð Rússa á Georgíumönnum í Rússlandi við meðferð nasista á gyðingum á fjórða áratug tuttugustu aldarinnar. 13.11.2006 21:47 Líkur aukast á þátttöku SÞ í friðargæslu í Darfur Forsetinn í Súdan, Omar Hassan al-Bashir, hefur lagt fram tillögur sem útiloka ekki þáttöku friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í úrlausn mála í Darfur. Þetta fullyrti forseti Senegal, Abdoulaye Wade, í dag. 13.11.2006 20:56 Íranir virða hótanir um efnahagsþvinganir að vettugi Íranir ætla sér að halda áfram að auðga úran þrátt fyrir hugsanlegar refsiaðgerðir af hálfu alþjóðasamfélagsins. Þeir hafa heldur ekki enn veitt eftirlitsmönnum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) leyfi til þess að grennslast fyrir í kjarnorkumálum þeirra. 13.11.2006 19:57 Búist við að sátt náist um tilvonandi forsætisráðherra Palestínu bráðlega Maðurinn sem Palestínumenn hafa sæst á að tilnefna sem forsætisráðherra landsins í kjölfar yfirlýsingar núverandi forsætisráðherra, Ismail Haniyeh, hefur sagt að enn hafi ekki verið talað við hann um að taka að sér embættið. 13.11.2006 19:42 Forseti danska þingsins fer fram á lögreglurannsókn Forseti danska þingsins hefur óskað eftir lögreglurannsókn vegna frétta danskra fjölmiðla um að kókaínleifar hafi fundist á þremur salernum danskra þingmanna í Kristjánsborgarhöll. Hann segir málið allt hið alvarlegasta. 13.11.2006 19:15 Bush vill beita efnahagsþvingunum gegn Írönum George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að alþjóðasamfélagið þyrfti að beita Íran efnahagslegum þvingunum ef þeir héldu áfram að auðga úran gegn vilja þess. 13.11.2006 17:41 Nýr forsætisráðherra Hamas 13.11.2006 16:54 Kræsingar frá því 100 eftir Krist Spænskir fornleifafræðingar eru að skoða skipsflak á hafsbotni, af skipi sem notað var til þess að flytja kræsingar til auðmanna í Rómaveldi, árið eitthundrað eftir Krist. 13.11.2006 16:34 Bush fundar með íraksnefndinni um leiðir til friðar George Bush, forseti Bandaríkjanna, átti í dag fund með formönnum nefndar sem skipuð var til þess að leita leiða til að koma á friði í Írak. Nefndin var raunar skipuð fyrir sigur Demokrata í þingkosningunum í síðustu viku. Hún stefnir að því að skila skýrslu sinni til forsetans og þingsins, í næsta mánuði. 13.11.2006 15:56 Palestinskur sáttmáli undirritaður í Kaíró 13.11.2006 15:25 Bretar minnast stríðsins um Falklandseyjar Bretar ætla að efna til fjögurra daga minningarhátíðar á næsta ári í tilefni af því að tuttugu og fimm ár verða liðin frá Falklandseyjastsríðinu. Þeir segja þó að ekki verði hrósað sigri yfir Argentínumönnum, sem töpuðu stríðinu. 13.11.2006 14:51 Biður Saddam griða 13.11.2006 14:31 Pólverjar beittu Rússa neitunarvaldi hjá ESB Pólverjar beittu í dag neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að Evrópusambandið hæfi viðræður við Rússa um breiðari samvinnu, sérstaklega í orkumálum. Vonast var til að viðræðurnar gætu hafist á fundi í Helsinki hinn 24. þessa mánaðar. 13.11.2006 14:19 Yfir 8000 ólöglegir innflytjendur stöðvaðir 13.11.2006 13:40 Áströlsk plastglös ónýt sem vopn Stærstu diskótek Danmerkur eru að taka í notkun nýja tegund af plastglösum, sem ekki er hægt að brjóta og því ekki hægt að nota sem vopn. Þau eru talsvert dýrari en glerglös, en endast margfallt betur. Bæði gestir og starfsfólk veitingastaða hafa tekið þessum glösum með fögnuði. 13.11.2006 12:52 Sjá næstu 50 fréttir
Velflestir gíslar fengu frelsi Velflestir þeirra sem rænt var í menntamálaráðuneytinu í Bagdad í gær hafa nú verið látnir lausir eða frelsaðir af lögreglu. Ekki hefur fengist staðfest að allir gíslarnir hafi fengið frelsi. 15.11.2006 12:40
Flóðbylgjuviðvörun fyrir Japan og Rússland Íbúar á Hokkaido- og Honshu-eyja í Japan hafa verið hvattir til að flýja frá ströndinni þar sem búist er við flóðbylgju eftir að jarðskjálfti upp á 8,1 á Richter varð neðjansjávar undan ströndum Chijima-eyja fyrir stundu. Varað er við að a.m.k. tveggja metra háar öldur geti skollið á norður- og austurströnd Japans, einnig gætu Rússar verið í hættu. 15.11.2006 11:51
Ekki hægt að útiloka fyrirbyggjandi árásir Bandaríkin eða aðrar þjóðir verða að íhuga möguleikann á fyrirbyggjandi árás ef Íran eða Norður-Kórea halda áfram að sækjast eftir kjarnorkuvopnum. Þessu skýrði háttsettur embættismaður innan bandarísku stjórnarinnar frá í kvöld. 14.11.2006 23:35
Neyðarástand í ríkinu Tsjad í Afríku Ríkisstjórnin í Tsjad ákvað í dag að banna óskráð skotvopn í landinu til þess að reyna að koma í veg fyrir ofbeldi milli þjóðarbrota í landinu. Lýsti hún yfir neyðarástandi á miðnætti á mánudaginn vegna árása uppreisnarmanna á þorp í austurhluta landsins. Talið er líklegt að alþjóðlegt friðargæslulið verði sent á staðinn ef ástandið heldur áfram að versna. 14.11.2006 23:03
Búið að frelsa flesta gísla í Írak Búið að frelsa flesta gísla sem var rænt í mannráni í Bagdad í dag. Gíslarnir voru frelsaðir í aðgerðum víðsvegar um Bagdad, í kringum miðnætti að staðartíma, samkvæmt tilkynningu frá talsmanni írösku stjórnarinnar. 14.11.2006 22:43
Íslendingur dregst inn í hneykslismál í Las Vegas Vestur-Íslendingurinn Sig Rogich, sem var sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi 1992 og 1993, hefur dregist inn í hneykslismál sem skekur stjórnmálalíf í Las Vegas. Nýkjörinn ríkisstjóri Nevada er sakaður um að hafa ráðist á gengilbeinu fyrir utan veitingastað í borginni og síðan hafi hann og Rogich reynt að hylma yfir málið. 14.11.2006 20:22
Bolur til loftgítarspils Ástralskur vísindamaður hefur búið til þarfaþing fyrir þá sem hafa gaman af því að leika á loftgítar. Um er að ræða bol sem þarf að smeygja sér í áður en framkallaðir eru fagrir tónar. 14.11.2006 19:30
Tilbúinn til viðræðna gegn breyttri stefnu Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, sagðist í dag tilbúinn til viðræðna við Bandaríkjamenn um kjarnorkuáætlun stjórnvalda í Teheran ef bandarísk stjórnvöld breyti stefnu sinni gagnvart Íran. Hann sagði Bandaríkjamenn fara gegn Írönum með yfirgangi. Skýringar á stefnu Íransstjórnar væri að vænta. 14.11.2006 19:15
Öryggi á frönskum flugvöllum ábótavant Stéttarfélag flugvallarstarfsmanna í París sýndi í dag sviðsettar myndir af manni smygla leirklumpi um borð í flugvél. Myndin á að sýna fram á hversu einfalt sé fyrir hryðjuverkamenn að koma plastsprengiefnum um borð í flugvélar. Myndin var tekin um nótt á Charles de Gaulle flugvellinum. 14.11.2006 19:10
Heimilislausum fjölgar í Lundúnum Góðgerðarsamtök í Bretlandi segja mikla hættu á því að Búlgarir og Rúmenar, sem leiti betra lífs í Bretlandi, endi á götunni. Löndin tvö ganga í Evrópusambandið í janúar á næsta ári. Heimilislausum í Bretlandi, úr hópi Austur-Evrópubúa, hefur fjölgað um tæp fjögur þúsund það sem af er þessu ári. 14.11.2006 19:00
Annar frambjóðenda hafnar kosningatölum í Kongó Jean-Pierre Bemba, forsetaframbjóðandi í Kongó, hefur hafnað úrslitum úr lokaumferð forsetakosninganna þar í landi sem gefa í skyn að Joseph Kabila, núverandi forseti landsins hafi unnið hana. Öruggt er talið að spenna í höfuðborg Kongó, Kinshasa, eigi eftir að aukast í kjölfarið en 4 létust í byssubardögum á milli stuðningsmanna forseta frambjóðendanna á laugardaginn var. 14.11.2006 18:55
5 lögreglumenn handteknir vegna mannrána Allt bendir nú til þess að 50 starfsmönnum og gestum rannsóknarstofu á vegum menntamálaráðuneytisins í Írak hafi verið rænt í morgun en ekki rúmlega hundrað eins og var sagt í fyrstu. 20 hefur verið sleppt. 5 lögreglumenn hafa verið handteknir og búið er umkringja hús þar sem talið er að gíslar séu í haldi. 14.11.2006 18:45
Skýrsla Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar staðfestir að Íranir séu að auðga úran Sérfræðingar Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) hafa uppgötvað plútóníum sem er ekki hægt að gera grein fyrir og leifar af auðguðu úrani. Úranleifarnar sem fundust voru af hárri gráðu en þó ekki nógu hárri til þess að hægt hafi verið að nota það í kjarnorkusprengjur. 14.11.2006 18:03
Fimm háttsettir lögreglumenn handteknir vegna mannránanna í Írak Fimm háttsettir lögreglumenn hafa verið handteknir í tengslum við mannránið sem var framið í Írak í dag. Rúmlega 100 karlmönnum var þá rænt við rannsóknardeild íraska menntamálaráðuneytisins en ekki er vitað hver nákvæmur fjöldi þeirra er. Þremur hefur verið sleppt nú þegar og samkvæmt nýjustu fréttum gæti tólf hafa verið sleppt í viðbót. 14.11.2006 17:48
Ný Bítlaplata kemur eftir viku Ný plata með Bítlunum kemur út eftir viku. Reyndar með gömlum upptökum úr Abbey Road stúdíóinu. Þetta eru rúmlega 25, lög sem hljóðblönduð voru upp á nýtt af George Martin upptökumeistara Bítlanna og syni hans, Giles Martin, svo og alls konar lagabútar og hljóðbrot úr sýningu Cirque du Soleil fjölleikahópsins Love. 14.11.2006 17:09
Rússar sagðir vera að ná undir sig gasmarkaði Evrópu Efnahagssérfræðingar NATO hafa varað við því að Rússar kunni að vera að búa til bandalag gasframleiðsluríkja allt frá Alsír til Mið-Asíu, sem noti gasið sem pólitískt vopn gegn Evrópu. 14.11.2006 16:21
Berrassaðir nágrannar Í Svíþjóð er leyfilegt að mynda nágranna sína berrassaða, jafnvel í ástarleikjum, bara ef þeir vita ekki af því. Þetta er niðurstaða sem kemur eftir tveggja ára vangaveltur. 14.11.2006 16:04
Tugir teknir vegna lóðabrasks á sólarströndum Spánar Tugir embættismanna hafa verið handteknir fyrir lóðabrask á Miðjarðarhafsströnd Spánar, þar sem fjölmargir Íslendingar eiga hús. Meðal hinna handteknu eru borgarstjórar og borgarfulltrúar sem eru grunaðir um mútuþægni. 14.11.2006 14:47
"Jihad" er ekki heilagt stríð Islamskur heimspekingur sem átti fund með Benedikt páfa segir að hann sé enginn sérfræðingur í trúfræðum múslima, en þyrsti í meiri fróðleik um trúna og vilji eiga einlægar viðræður við fylgjendur hennar. 14.11.2006 14:06
Danir vilja hermenn sína heim frá Írak Meirihluti Dana er andvígur því að hafa danska hermenn áfram í Írak, samkvæmt skoðanakönnun sem birt var í Jótlandspóstinum í dag. Um 470 danskir hermenn eru í Írak. 14.11.2006 13:11
Rúmlega 100 rænt Vopnaðir uppreisnarmenn rændu í morgun rúmlega hundrað starfsmönnum menntamálaráðuneytisins í Bagdad, höfuðborg Íraks. Aðeins karlmönnum var rænt. 14.11.2006 12:31
Giuliani stígur fyrstu skrefin til forsetaframboðs Rudy Giuliani, fyrrverandi borgarstjóri í New York, hefur tekið fyrstu skrefin til framboðs í forsetakosningunum sem fara fram árið 2008. Hann hefur skráð sig fyrir svokallaðri könnunarnefnd sem heimilar honum að safna fé til að ferðast um landið, til þess að kanna stuðning við hugsanlegt framboð. 14.11.2006 12:08
Skógar að stækka á ný Ný skýrsla heldur því fram að skógar séu aftur að sækja í sig veðrið. Skýrslan komst að því að aukning á skógum sé fyrir hendi í nærri öllum löndum þar sem einstaklingar hafa meira en 4.600 dollara, eða 318.000 krónur, í árstekjur hafi skógar stækkað. 13.11.2006 23:40
Minnismerki reist til heiðurs Martin Luthers King Jr. Mannréttindafrömuðir í Bandaríkjunum tóku í dag fyrstu skóflustungu að minnismerki um Martin Luther King Jr. Alls höfðu um 5.000 manns safnast saman og voru þau hvött af fyrrum aðstoðarmanni Martin Luther Kings Jr. til þess að hafa hugsjónir hans í heiðri um ókomna tíð. 13.11.2006 23:27
Bandarískir ráðamenn segja dómsyfirvöld ekki hafa lögsögu yfir Guantanamo fangelsinu Talsmenn ríkisstjórnar George W. Bush sögðu í dag að vísa yrði frá þeim málum sem fangar í Guantanamo hafa höfðað gegn bandarískum stjórnvöldum. Föngunum hefur flestum verið haldið þar án þess að þeir hafi verið ákærðir fyrir nokkuð. 13.11.2006 23:06
Ítalska ríkisstjórnin slakar á lögum um eiturlyf Ítalska ríkisstjórnin hækkaði í dag það magn af kannabisi sem löglegt er að vera með á sér án þess að vera handtekinn um helming. Samkvæmt nýju lögunum verður löglegt að vera með allt að 40 kannabisvindlinga á sér. 13.11.2006 22:30
Tony Blair hvetur til samvinnu í málefnum Mið-Austurlanda Í mikilvægri ræðu um utanríkismál sagði Tony Blair að mikilvægt væri að vinna með öllum löndum í Mið-Austurlöndum að friði og að það þýddi samstarf með Írönum og Sýrlandi. Talsmaður Blairs sagði hins vegar eftir ræðuna að þetta þýddi ekki að gefið yrði eftir í stefnu Bretlands varðandi þessi tvö ríki. 13.11.2006 22:13
Náttúrulegt verkjalyf sem er sterkara en morfín Vísindamenn hafa komist að því að mannslíkaminn framleiðir verkjalyf sem er talið töluvert sterkara en morfín. Vísindamennirnir fundu efnið, sem heitir opiorphin, í munnvatni. 13.11.2006 22:06
Utanríkisráðherra Georgíu líkir Rússum við nasista Utanríkisráðherra Georgíu, Giorgi Baramidze, bætti í dag olíu á eldinn í samskiptum þeirra við Rússa þegar hann bar meðferð Rússa á Georgíumönnum í Rússlandi við meðferð nasista á gyðingum á fjórða áratug tuttugustu aldarinnar. 13.11.2006 21:47
Líkur aukast á þátttöku SÞ í friðargæslu í Darfur Forsetinn í Súdan, Omar Hassan al-Bashir, hefur lagt fram tillögur sem útiloka ekki þáttöku friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna (SÞ) í úrlausn mála í Darfur. Þetta fullyrti forseti Senegal, Abdoulaye Wade, í dag. 13.11.2006 20:56
Íranir virða hótanir um efnahagsþvinganir að vettugi Íranir ætla sér að halda áfram að auðga úran þrátt fyrir hugsanlegar refsiaðgerðir af hálfu alþjóðasamfélagsins. Þeir hafa heldur ekki enn veitt eftirlitsmönnum Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar (IAEA) leyfi til þess að grennslast fyrir í kjarnorkumálum þeirra. 13.11.2006 19:57
Búist við að sátt náist um tilvonandi forsætisráðherra Palestínu bráðlega Maðurinn sem Palestínumenn hafa sæst á að tilnefna sem forsætisráðherra landsins í kjölfar yfirlýsingar núverandi forsætisráðherra, Ismail Haniyeh, hefur sagt að enn hafi ekki verið talað við hann um að taka að sér embættið. 13.11.2006 19:42
Forseti danska þingsins fer fram á lögreglurannsókn Forseti danska þingsins hefur óskað eftir lögreglurannsókn vegna frétta danskra fjölmiðla um að kókaínleifar hafi fundist á þremur salernum danskra þingmanna í Kristjánsborgarhöll. Hann segir málið allt hið alvarlegasta. 13.11.2006 19:15
Bush vill beita efnahagsþvingunum gegn Írönum George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði í dag að alþjóðasamfélagið þyrfti að beita Íran efnahagslegum þvingunum ef þeir héldu áfram að auðga úran gegn vilja þess. 13.11.2006 17:41
Kræsingar frá því 100 eftir Krist Spænskir fornleifafræðingar eru að skoða skipsflak á hafsbotni, af skipi sem notað var til þess að flytja kræsingar til auðmanna í Rómaveldi, árið eitthundrað eftir Krist. 13.11.2006 16:34
Bush fundar með íraksnefndinni um leiðir til friðar George Bush, forseti Bandaríkjanna, átti í dag fund með formönnum nefndar sem skipuð var til þess að leita leiða til að koma á friði í Írak. Nefndin var raunar skipuð fyrir sigur Demokrata í þingkosningunum í síðustu viku. Hún stefnir að því að skila skýrslu sinni til forsetans og þingsins, í næsta mánuði. 13.11.2006 15:56
Bretar minnast stríðsins um Falklandseyjar Bretar ætla að efna til fjögurra daga minningarhátíðar á næsta ári í tilefni af því að tuttugu og fimm ár verða liðin frá Falklandseyjastsríðinu. Þeir segja þó að ekki verði hrósað sigri yfir Argentínumönnum, sem töpuðu stríðinu. 13.11.2006 14:51
Pólverjar beittu Rússa neitunarvaldi hjá ESB Pólverjar beittu í dag neitunarvaldi til að koma í veg fyrir að Evrópusambandið hæfi viðræður við Rússa um breiðari samvinnu, sérstaklega í orkumálum. Vonast var til að viðræðurnar gætu hafist á fundi í Helsinki hinn 24. þessa mánaðar. 13.11.2006 14:19
Áströlsk plastglös ónýt sem vopn Stærstu diskótek Danmerkur eru að taka í notkun nýja tegund af plastglösum, sem ekki er hægt að brjóta og því ekki hægt að nota sem vopn. Þau eru talsvert dýrari en glerglös, en endast margfallt betur. Bæði gestir og starfsfólk veitingastaða hafa tekið þessum glösum með fögnuði. 13.11.2006 12:52
Fékk viðurkenninguna ekki afhenta fyrr en á þriðjudeginum: „Ég var mjög hissa þegar þau hringdu í mig“ Innlent
Munaði minnstu að hún væri sjálf komin út í þegar árásin varð: „Það verður bara allt í blóði í sjónum“ Erlent