Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Langþráðir nashyrningsungar Fjórir Jövu-nashyrningsungar sem fæddust nýverið í Indónesíu vekja vonir um að stofn Jövu-nashyrninga geti verið á uppleið. Einungis lifa á bilinu 28 til 56 nashyrningar af þessum stofni í Indónesíu og átta til viðbótar í Víetnam og er tegundin því í einna mestri útrýmingarhættu allra spendýra. 1.9.2006 13:30
Áttatíu látnir eftir flugslys í Íran Að minnsta kosti 80 manns létust eftir að eldur kom upp í flugvél sem var að lenda í borginni Mashhad í norðausturhluta Írans í morgun. Eftir því sem ríkissjónvarp Írans greinir frá kviknaði í vélinni eftir að eitt af dekkjum vélarinnar sprakk í lendingu. 1.9.2006 13:09
Læknuðu sortuæxli með erfðabreyttum blóðkornum Tveir menn læknuðust af alvarlegu sortuæxli eftir að læknar í Bandaríkjunum gáfu þeim erfðabreytt hvít blóðkorn sem átu upp æxlin. Ekki var búist við því fyrir tilraunina að mennirnir lifðu lengur en þrjá til sex mánuði til viðbótar, svo langt var krabbameinið komið. 1.9.2006 13:00
Umsátursins í Beslan minnst Grátandi foreldrar og þungbúnir embættismenn minntust þess í dag að tvö ár eru liðin frá einni blóðugustu hryðjuverkaárás í Rússlandi þegar 333 manns létu lífið í umsátrinu um barnaskólann í Beslan. 1.9.2006 12:30
Næsta kynslóð tunglfara mun ferðast með Óríon Næsta kynslóð tunglfara frá bandarísku geimferðastofnuninni munu ferðast í nýju geimskipi með nafninu Óríon. NASA tilkynnti í gær samning sinn við bandaríska geimskipaframleiðandann Lockheed Martin sem yfirleitt hefur framleitt ómönnuð geimför. 1.9.2006 09:45
Söfnun fyrir Líbanon gekk vonum framar Söfnunarráðstefna fyrir Líbanon gekk það vel í Stokkhólmi í gær að fulltrúar 48 ríkja og fjölmargra hjálparstofnana ákváðu að endurtaka leikinn og safna fyrir uppbyggingu í Palestínu. 1.9.2006 09:00
Frestur Írana runninn út Frestur Írana til að hætta auðgun úrans rann út í gær en skýrsla Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar sem birt var í gær segir að allt fram í síðustu viku hafi auðgun úrans haldið áfram. Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans sagði Írana hins vegar myndu halda sínu striki eins og hann hefur margítrekað lýst yfir. 1.9.2006 08:45
Réðust inn í breska sendiráðið í Tel Aviv Ísraelskir lögregluþjónar réðust inn í breska sendiráðið í Tel Aviv í gærkvöldi og handtóku palestínskan mann sem hafði verið umkringdur í átta tíma. 1.9.2006 08:30
Súdönsk yfirvöld hafna ályktun Öryggisráðsins Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti í dag ályktun um að friðargæslulið Sameinuðu Þjóðanna verði sent til Darfur-héraðs í Súdan. Súdönsk yfirvöld hafna hinsvegar ályktuninni. 31.8.2006 22:19
Fellibylurinn Jón nálgast Mexikó Fellibylurinn Jón þokast nú norður með Kyrrahafsströnd Mexíkós og hefur íbúum við ströndina verið ráðlagt að búa sig undir óveðrið og jafnvel flytja sig upp til fjalla meðan fellibylurinn gengur hjá. 31.8.2006 17:21
Ópið og Madonna Munks fundin Norska lögreglan hefur fundið bæði málverkin eftir Edvard Munk, sem vopnaðir menn rændu af Munk listasafninu í Osló fyrir tveimur árum. Málverkin eru Ópið og Madonna. Ópið er metið á fimm milljarða króna, og Madonnan á einn milljarð. Norska lögreglan hefur boðað til blaðamannafundar síðdegis, þar sem frekari upplýsingar verða veittar. 31.8.2006 15:47
Á móti fóstureyðingum Háttsettur kardináli í Kólombíu er sakaður um að hafa hótað læknum, sem framkvæmdu nýlega fyrstu löglegu fóstureyðinguna í landinu, að Vatíkanið myndi beita sér fyrir því að svipta þá starfsréttindum. 31.8.2006 15:16
Stýrivextir hugsanlega hækkaðir í október Forseti Seðlabanka Evrópu, Jean-Claude Trichet, tilkynnti í dag að stýrivextir bankans yrðu ekki hækkaðir í þetta skiptið. Hann hvatti þó til varkárni og túlka fjármálasérfræðingar það sem svo að stýrivextirnir verði hækkaðir í október. 31.8.2006 15:06
Fögnuðu eins árs afmæli risapöndu Afmælisgestir hvaðanæva að úr heiminum söfnuðust saman í Chengdu í Kína í dag. Afmælisbarnið er þó ekki nema eins árs. 31.8.2006 13:30
Funda vegna uppbyggingarstarfs í Líbanon Milljarða króna þarf til að koma Líbanon aftur á réttan kjöl. Hjálparstofnanir sem funda nú í Stokkhólmi ákalla þjóðir heims um að láta fé af hendi rakna til uppbyggingarstarfs í landinu. 31.8.2006 13:00
Minnsti drengur í heimi? Lágvaxnasti drengur í Nepal bíður nú eftir að heyra frá yfirmönnum heimsmetabókar Guinness um það hvort þeir viðurkenna hann sem lágvaxnasta dreng í heimi. 31.8.2006 10:45
Hægt að hlaða niður klassískum verkum á Google Bókaunnendur geta nú slegið upp bókum á bókaþjónustu Google, hlaðið þeim niður endurgjaldslaust og prentað út ef þeim hentar. Þetta á reyndar aðeins við um bækur sem ákvæði höfundarréttar ná ekki til, aðallega eftir eldri höfunda svo sem Dante og Esóp sem samdi dæmisögurnar 31.8.2006 10:30
Dregur úr styrk Ernestos Hitabeltisstormurinn Ernesto gekk yfir Flórída í gær. Heldur hafði dregið úr honum í gærkvöld en vindhraðinn hafði þá farið úr 55 km á klukkustund í 24 kílómetra á klukkustund. 31.8.2006 10:00
Neitar að hafa hótað bannfæringu Kardináli í Kólumbíu neitaði í gær fréttum um að hann hefði hótað læknum bannfæringu kaþólsku kirkjunnar fyrir að eyða fóstri hjá ellefu ára stúlku sem hafði verið nauðgað af stjúpföður hennar. 31.8.2006 09:30
Ekki krafist dauðadóms vegna morðs á írökskum borgara Saksóknarar ætla ekki að krefjast dauðadóms yfir manni sem er meðal átta hermanna sem ákærðir eru fyrir morð og aðra glæpi meðan á herþjónustu þeirra stóð í Írak. 31.8.2006 09:15
30. ágúst helgaður minningu horfinna Chile-búa Forseti Chile, Michelle Bachelet, lýsti í gær yfir að 30. ágúst yrði framvegis helgaður minningu þeirra sem hurfu sporlaust á árunum 1973 til 1990, meðan herforingjastjórn Augustos Pinochet var við völd. 31.8.2006 08:45
Kínverskur blaðamaður fangelsaður fyrir njósnir Kínverskur dómstóll dæmdi blaðamann frá Hong Kong í fimm ára fangelsi fyrir njósnir. Ching Cheong hafði verið í haldi frá því í apríl á síðasta ári. Kínverskur fréttavefur segir að hann hafi játað á sig að hafa selt Taívönum leynilegar upplýsingar frá kínverska hernum en stuðningsmenn hans segja hann saklausan. 31.8.2006 08:30
Mexíkóar búa sig undir fellibyl Mikill viðbúnaður er á Kyrrahafsströnd Mexíkós vegna komu fellibyljarins Jóns. Hann hefur hingað til haldið sig úti á hafi og farið með fram ströndum landsins. 31.8.2006 08:15
Hugsanleg kúariða í Hong Kong Rúmlega tvítugur, breskur maður, sem er á ferðalagi um Hong Kong, liggur nú illa haldinn á sjúkrahúsi og leikur grunur á að hann þjáist af kúariðu. 30.8.2006 18:16
Segja stjórnarherinn hafa myrt hjálparstarfsmenn Yfirmaður norræna vopnahléseftirlitsins á Srí Lanka segir að stjórnarher landsins hafi myrt sautján alþjóðlega hjálparstarfsmenn á Sri Lanka fyrr í mánuðinum. 30.8.2006 18:15
Kofi Annan á ferð um Mið-Austurlönd Ísraelar aflétta ekki flug- og hafnbanni á Líbanon fyrr en orðið hefur verið við öllum ákvæðum vopnahlésamkomulags öryggisráðsins og 15 þúsund manna friðargæslulið komið til landsins. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, kom til fundar við forsætisráðherra Ísraels í gær. 30.8.2006 18:01
Danski pósturinn má dreifa Nyhedsavisen Danska Fréttablaðið og Pósturinn danski mega stofna saman dreifingarfyrirtæki sem dreifir Fréttablaðinu inn á öll heimili í landinu, samkvæmt úrskurði danska samkeppniseftirlitsins. Viðskiptablaðið Börsen greinir frá þessu. Dreifingarfyrirtækið mun heita Morgundreifing og mun ekki dreifa öðrum fríblöðum en Fréttablaðinu. 30.8.2006 12:51
Stjórnarhernum á Srí Lanka um að kenna Yfirmaður norræna vopnahléseftirlitsins á Srí Lanka kennir stjórnarher landsins um morð á sautján alþjóðlegum hjálparstarfsmönnum fyrr í mánuðinum. 30.8.2006 12:30
Röð sprengjuárása í Bagdad Tæplega fjörutíu hafa fallið í röð sprengjuárása í tveimur borgum í Írak í morgun. Minnst tuttugu og fjórir týndu lífi og þrjátíu og fimm særðust þegar spengja sprakk á markaði í miðborg Bagdad. Markaðurinn er sá stærsti á svæðinu og því hefur fleiri árásir verið gerðar á hann. 30.8.2006 10:30
Hitabeltisstormurinn Ernestu fer yfir Flórída Hitabeltisstormurinn Ernesto náði landi suðvestur af Miami á Flórída í nótt. Bylurinn sótti ekki í sig veðrið á leiðinni, íbúum á svæðinu til mikillar gleði. Ernesto náði í skamma stund styrk fellibyls á sunnudaginn en síðan dró úr vindhraða þegar hann fór yfir austur hluta Kúbu. 30.8.2006 08:30
Minningarathöfn í New Orleans Minningarathöfn var haldin í New Orleans í Bandaríkjunum í dag en ár er liðið síðan fellibylurinn Katrín reið yfir landsvæði Mexíkóflóa og olli 1600 dauðsföllum og mikilli eyðileggingu. 29.8.2006 21:29
Sjálfsvígsárás í Afganistan Óbreyttur borgari lét lífið þegar ráðist var á herbíla Atlantshafsbandalagsins nálægt Kandahar í Afganistan í dag. Ofbeldi færist stöðugt í aukana í Afganistan, tæpum fimm árum eftir að stjórn talibana var hrakin frá völdum. 29.8.2006 18:29
Árásarmaður handtekinn í Kaupmannahöfn Lögregla í Kaupmannahöfn handtók í dag mann sem talinn er hafa hrint íslenskum manni, Haraldi Sigurðssyni, út á lestarteina á Nörreport stöðinni á laugardag. Maðurinn gaf sig fram nú síðdegis. 29.8.2006 18:25
Engin flóðbylgjuhætta Engin flóðbylgja myndaðist í kjölfar jarðskjálfta sem varð neðansjávar austur af Indónesíu, nánar tiltekið við Molucca-eyjar, skömmu eftir hádegi í dag. Jarðskjálftinn mældist 5,4 á Richter. 29.8.2006 15:14
Dauðarefsingar krafist Saksóknari í Líbíu hefur ákveðið að krefjast dauðadóms yfir fimm búlgörskum hjúkrunarkonum og palestínskum lækni sem eru ákærð fyrir að hafa sýkt rúmlega fjögur hundruð börn í Líbíu með HIV vírusnum sem veldur alnæmi. 29.8.2006 13:15
Annan kominn til Suður-Líbanon Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, heimsótti friðargæsluliða í Suður-Líbanon í morgun. Ítalir og Tyrkir fluttu þangað liðsmenn sína í gær en þeir verða hluti aðlþjóðlegs gæsluliðs á vegum Sameinuðu þjóðanna. 29.8.2006 13:00
Neyðarástand vegna Ernesto Neyðarástandi hefur verið lýst yfir á Flórída vegna fellibylsins Ernesto sem stefnir þangað. Bylurinn varð einum að bana á Haítí í nótt. Ár er nú liðið frá því að fellibylurinn Katrín olli miklum skemmdum og kostaði mörg mannslíf við Mexíkóflóa. 29.8.2006 12:45
Herskár hópur Kúrda segist bera ábyrgð á árásum Herskár hópur Kúrda sem kallar sig frelsishauka Kúrdistans hefur lýst sprengjuárásinni í ferðamannaborginni Antalya í Tyrklandi á hendur sér. Þrír létust og fjölmargir særðust. Hópurinn hafði áður lýst fjórum sprengjuárásum í Istanbúl og Marmaris á hendur sér. Enginn féll í þeim árásum en hátt í þrjátíu manns særðust. 29.8.2006 12:30
Sprenging í olíuleiðslu Þrjátíu og fjórir týndu lífi þegar sprenging var í olíuleiðslu í Suður-Írak í morgun. Grunur leikur á að fórnarlömbin hafi verið að soga eldsneyti úr leiðslunni á iðnaðarsvæði í Diwaniyah 29.8.2006 11:16
Einn í haldi vegna sprengju í Fredriksberg Lögreglan í Kaupmannahöfn hefur handtekið mann um þrítugt vegna gruns um að hann hafi valdið sprengingu á sólbaðsstofu við Finsenvej í Fredriksberg í Kaupmannahöfn í gærkvöldi. 29.8.2006 10:12
Vopnahlé komið á í Úganda Vopnahlé milli stjórnvalda í Úganda og uppreisnarmanna þar í landi tók gildi í morgun. Skrifað var undir vopnahléssamkomulag á laugardaginn. 29.8.2006 10:08
Ár frá fellibylnum Katrínu Bush Bandríkjaforseti telur ólíklegt að meiru verði varið en þegar hafi verið heitið til endurbyggingar þeirra svæða sem verst urðu úti í fellibylnum Katrínu í fyrra. Ár er frá því að bylurinn reið yfir Mexíkóflóa og olli mikilli eyðileggingu. 29.8.2006 09:30
Neyðarástand vegna Ernesto Yfirvöld á Flórída hafa lýst yfir neyðarástandi vegna fellibylsins Ernesto sem stefnir þangað. Íbúar hafa verið hvattir til að búa sig undir það versta. 29.8.2006 09:15
Óvænt hætt við ákæru Saksóknari í Colorado í Bandaríkjunum hefur óvænt hætt við að ákæra John Mark Karr fyrir morðið á hinni sex ára gömlu barnafegurðardrottningu JonBenet Ramsey fyrir tíu árum. Erfðaefni úr Karr passaði ekki við það sem fannst á morðstaðnum. 29.8.2006 08:30
Flóðbylgjuviðvörun vegna jarðskjálfta Jarðskjálfti sem mældist sex komma fjórir á Richter varð fyrir stundu neðasjávar við austur af Indónesíu. Yfirvöld segja hættu á flóðbylgju. 29.8.2006 14:20