Fleiri fréttir

Finni vann með 89 metra kasti

Sjöunda óformlega heimsmeistaramótið í farsímakasti fór fram í Savonlinna í Finnlandi um helgina. Með 89 metra löngu kasti tryggði Finninn Lassi Eteläaho sér heimsmeistaratitilinn í ár. Nýtt heimsmet var sett í kvennaflokki.

Seldi hass með pylsum og gosi

Lögreglan í Frederiks­værk á Norður-Sjálandi lét til skarar skríða gegn pylsusala á föstudag. Samkvæmt frétt Politiken hafði lögreglan fylgst með pylsuvagni mannsins í nokkurn tíma enda lék grunur á að fleira en pylsur, remúlaði og gos væri á boðstólum.

Engan Íslending sakaði í sprengjuárásum í Tyrklandi

Á þriðja tug manna særðust í fjórum sprengjutilræðum í Tyrklandi í gær. Ein sprengjan sprakk í Istanbúl en hinar þrjár á Marmaris, þar af ein um tvö hundruð metra frá einu helsta Íslendingahóteli þar. Um þrjú hundruð Íslendingar eru þar á um fimmtán hótelum. Enginn týndi lífi en nokkrir særðust.

Ernesto - fellibylur eða stormur?

Hitabeltisstormurinn Ernesto sem náði fellibylsstyrk um hríð í gær var aftur lækkaður niður í storm í gærkvöldi. Mikill viðbúnaður er samt enn á eyjum í Karíbahafinu, Kúbu, Haítí og Cayman-eyjum, auk þess sem ferðamenn voru í gær fluttir frá Keys-eyjunum undan strönd Flórída. Mikil óvissa er enn í spálíkönum fyrir fellibylinn en enn er ekki útilokað að hann nái vindstyrk fellibyls á ný. Ekki er heldur víst hvert leið hans liggur eftir að hann fer yfir Kúbu fyrripartinn í dag.

Vill ekki sjá foreldrana

Austurríska stúlkan sem fannst í síðustu viku eftir að hafa verið í haldi mannræningja í átta og hálft ár, hefur rétt á að vera látin í friði. Þetta sögðu talsmenn austurrísku lögreglunnar í gær, eftir að foreldrar stúlkunnar kvörtuðu yfir því í fjölmiðlaviðtölum að vera meinað að hitta dótturina endurfundnu.

Gíslar lausir á Gaza

Tveir fréttamenn Fox-sjónvarpsstöðvarinnar voru í gær látnir lausir úr hálfs mánaðar langri gíslingu herskárra Palestínumanna. Enginn hefur verið handtekinn.

Einn komst af en 49 fórust í flugslysi

Þota sem var nýlögð af stað til Atlanta frá Blue Grass-flugvelli í Lexington í Kentucky, hrapaði rétt utan við flugbrautina í gær. Einn úr áhöfn vélarinnar komst af, mikið slasaður, en allir aðrir sem í vélinni voru, 49 manns, fórust.

Ortega sigur-stranglegur

Leiðtogi sandinista, Daniel Ortega, er líklegastur til sigurs í fyrstu umferð forsetakosninga sem framundan eru í Níkaragva, samkvæmt nýlegri skoðanakönnun.

Murkowski tapar fyrir Palin

Ríkisstjóri Alaska, Frank Murkowski, fær ekki að bjóða sig fram til starfans á ný. Flokkssystur- og bræður hans í Repúblikanaflokknum kusu Söruh Palin, fyrrum borgarstýru Wasilla, með 51 prósenti atkvæða á þriðjudagskvöld.

Átökin ekki borgarastríð

Bylgja sprengju- og skotárása gekk yfir Írak þvert og endilangt í gær. Að minnsta kosti 51 maður lét lífið í árásunum, þrátt fyrir að gripið hafi verið til umfangsmikilla aðgerða til að auka öryggi borgaranna í höfuðborginni Bagdad og áskoranir frá forsætisráðherranum Nouri al-Maliki, sem er sjía-múslimi, um að landar hans úr ólíkum trúarhópum hætti gagnkvæmum árásum.

Skutu nýrri gerð flugskeytis

Nýrri gerð af íranskri sprengiflaug var í gær skotið frá kafbát á Persaflóa. Tilraunaskotið var liður í umfangsmiklum heræfingum Írana á Persaflóa, sem virðast vera haldnar til að sýna Vesturlöndum hernaðarmáttinn sem Íransstjórn ræður yfir.

Jafnaðarmenn í kjörfylgi

Fylgi við danska Jafnaðarmannaflokkinn mælist nú örlítið meira en flokkurinn fékk í kosningunum í fyrra samkvæmt nýrri skoðanakönnun Berlingske tidende. Er þetta mjög mikill viðsnúningur frá því í byrjun árs. Þá mældist stuðningur við Jafnaðarmannaflokkinn minni en hann hafði verið í rúm hundrað ár.

Vinstrimaður vann í Chiapas

Frambjóðandi stærsta vinstriflokksins í Mexíkó, Juan Sabines, vann kosningar til ríkisstjóra í Chiapas í suðurhluta landsins. Hlaut hann samkvæmt opinberum úrsitum 6.300 fleiri atkvæði en aðalkeppinauturinn, Jose Antonio Aguilar, sem var frambjóðandi borgaralegu flokkanna.

Ernesto orðinn fellibylur

Hitabeltislægðin Ernesto hefur stigmagnast í fyrsta stigs fellibyl. Vindhraði í fellibylnum er orðinn rúmir 34 m/sek. Búist er við að bylurinn nái suð-vestur odda Haítí í kvöld og skelli svo á strönd Kúbu í fyrramálið.

Slapp lifandi undan lest

Það þykir ganga kraftaverki næst að 26 ára gamall heimilislaus Íslendingur hafi sloppið lifandi þegar honum var hrint fyrir lest á Nörreport-stöðinni í Kaupmannahöfn í gær.Það varð honum til happs að hann lenti milli brautarteina þannig að lestin keyrði ekki beint yfir hann.

Einn lifði flugslysið af

Einn komst lífs af þegar flugvél frá Delta flugfélaginu með fimmtíu manns innanborðs hrapaði í Kentucky í Bandaríkjunum í dag. Flugvélin hrapaði skömmu eftir flugtak frá flugvellinum í Lexington. Ekkert er sagt benda til þess að um hryðjuverk hafi verið að ræða.

Flugslys í Kentucky

Flugvél frá Delta flugfélaginu með 50 manns innanborðs hrapaði í Kentucy í Bandaríkjunum fyrr í dag. Óstaðfestar fréttir herma að minnsta kosti einn maður hafi komist lífs af í slysinu og er hann sagður mikið slasaður.

Skutu flugskeytum á bíl Reuters-fréttastofunnar

Ísraelsher skaut tveimur flugskeytum á brynvarinn bíl Reuters-fréttastofunnar í Gaza-borg í nótt. Fimm særðust, þar af tveir myndatökumenn. Herskár Hamas-liði féll í annarri árás Ísraela skammt frá.

Fréttmenn Fox látnir lausir

Mannræningjar á Gaza-svæðinu hafa látið tvo starfsmenn Fox fréttastöðvarinnar bandarísku lausa. Þeir hafa verið í haldi mannræningja síðan um miðjan mánuðinn

Starfsmenn Fox fréttastöðvarinnar látnir lausir

Mannræningjar á Gaza-svæðinu hafa látið tvo starfsmenn Fox fréttastöðvarinnar bandarísku lausa. Þeir hafa verið í haldi mannræningja síðan um miðjan mánuðinn. Myndband með mönnunum var birt snemma í morgun, skömmu áður en þeir voru látnir lausir.

Frelsið kostar 2,5 milljónir

Hlynur Sigurðarson, 23 ára Íslendingur sem situr í fangelsi í Brasilíu vegna kókaínsmygls, segist hafa fengið tilboð frá lögfræðingi sínum um að hann geti keypt sér frelsi fyrir tæpar 2,5 milljónir króna. „Það er víst hægt að gera allt í þessu landi með peningum,“ segir Hlynur. „Þetta er ekki óalgengt hér, dómarinn myndi þá skrifa undir plagg sem segði að ég hefði afplánað mína refsingu í fylkinu og ég gæti þá fengið að fara heim.“

Þungavatnsverk-smiðja vígð í Íran

Forseti Írans ætlar ekki að hætta við kjarnorkuáætlunina og segir að engri þjóð standi ógn af íranskri kjarnorku. Ísraelskur þingmaður segir þjóð sína þurfa að bregðast við kjarnorkutilburðum Írana.

Vill 3 milljónir punda í bætur

Lágfargjaldaflugfélagið Ryanair hefur höfðað mál gegn bresku ríkisstjórninni vegna herts öryggiseftirlits eftir að upp komst um meint hryðjuverk sem fremja átti í háloftunum.

Vopn gerð upptæk í borginni

Lögreglan í Kólombó, höfuðborg Srí Lanka, fann í gær vopnabúr í húsi nálægt alþjóðaflugvelli borgarinnar. Sautján manns voru handteknir og segir lögreglan fólkið hafa haft árás í hyggju. Lagt var hald á átta handsprengjur, tvær stærri sprengjur, riffil og skotfæri.

Klasasprengjur í íbúðahverfum

Fjöldi lítilla virkra sprengja hefur fundist víðs vegar um Suður-Líbanon, inni í görðum, úti á svölum, leikvöllum og á götum úti. Sprengjurnar eru litlu stærri en gosdósir og vitað er um tvö börn sem hafa látið lífið eftir að hafa leikið sér með þær. Einnig hafa sprengjurnar banað átta fullorðnum og sært tæplega fjörutíu manns, eftir að vopnahléi var komið á og Líbanar sneru aftur heim til sín.

Hjálmhvelfing hrundi í eldi

Mikill bruni varð í dómkirkjunni í Pétursborg í gær með þeim afleiðingum að hjálmhvelfing kirkjunnar hrundi í þessari fyrrum höfuðborg Rússlands. Eldurinn kviknaði í miðhvelfingu Kirkju heilagrar þrenningar og hrundi hvelfingin ásamt einni af fjórum minni hvelfingum.

Líbönsk börn snúa aftur til Beirút

Sextíu líbönsk börn voru flutt aftur í faðm fjölskyldna sinna í Beirút í dag eftir margra vikna fjarveru. Þau voru flutt á brott eftir að Ísraelsher fór að láta sprengjum rigna yfir suðurhluta landsins. Að vonum var um fagnaðarfundi að ræða.

Óttinn við hryðjuverk í háloftunum eykst

Nú berast nær daglega fréttir af því að flugvélum sé beint á aðra lendingarstaði en þeim voru upphaflega ætlaðir vegna þess að ótti um yfirvofandi hryðjuverk hefur vaknað. Yfirleitt hafa farþegar þá í vangá tekið bannaða hluti með sér í handfarangri eða hegðun farþega talin grunsamleg. Óttinn við hryðjuverk í háloftunum truflaði ferðir sjö flugvéla í Bandaríkjunum bæði í innanlands- og millilandaflugi í gær.

Kjarnorkuáætlun Írana ekki ógn við neinu ríki

Íransforseti segir kjarnorkuáætlun stjórnvalda þar í landi ekki ógn við nokkuð ríki í heiminum, þar með talið Ísrael. Forsetinn vígði í dag þungvatnsverksmiðju sem mun styðja við kjarnorkuframleiðslu í landinu. Íranar hafa frest til fimmtudags til að hætta auðgun úrans, ellegar grípa vesturveldin til efnahagsþvingana eða beita Írana jafnvel valdi.

Vopnahléssamkomulag undirritað í Úganda

Stjórnvöld í Úganda og uppreisnarmenn í norður hluta landsins hafa undirritað vopnahléssamkomulag. Það var gert fyrr i dag en fulltrúar þessara stríðandi fylkinga hafa setið sáttafund í Suður-Súdan.

Erlendir ríkisborgara fluttir frá Jaffna

Rauði krossinn hefur byrjað að flytja erlenda ríkisborgarar frá Jaffna í norðurhluta Srí Lanka. Margir þeirra hafa verið innlyksa þar vegna átaka milli stjórnarhersins og skæruliða Tamíltígra.

Rútuslys í Suður-Kína

Að minnsta kosti sautján létu lífið og þrjátíu og þrír slösuðust þegar rúta skall á flutningabíl í Guangdong-kantónu í Suður-Kína í morgun. Yfirvöld á svæðinu segja engan hinna slösuðu í lífshættu.

Engin ógn af kjarnorkuáætlun segir Íransforseti

Mahmoud Ahmadinejad, Íransforseti, vígði í morgun verksmiðju þar sem þungavatns-kjarnaofnar verða notaðir sem hluti að kjarnorkuáætlun Írana. Forsetinn sagði þetta mikilvægan áfanga í áætluninni og lagði áherslu á að þjóðum heims, þar á meðal Ísrael, stafaði ekki ógn af kjarnorkuáætlun stjórnvalda í Teheran.

Dýnamít í farangrinum

Dýnamít og kveikiþræðir fundust í farangri bandarísks háskólanema sem var á leið með flugvél Continental flugfélagsins frá Argentínu til Texas í gær.

Fresturinn liðinn

Frestur sem mannræningar á Gaza-svæðinu hafa gefið bandarískum yfirvöldum til að láta palestínska fanga lausa, í skiptum fyrir tvo starfsmenn Fox fréttastöðvarinnar bandarísku, rann út í morgun. Frétta- og myndatökumanni Fox var rænt í Gaza-borg 14. ágúst síðastliðinn en myndband af þeim var fyrst birt á miðvikudaginn.

Hlutabréf í Sony lækka í verði vegna innköllunar

Hlutabréf í Sony lækkuðu í verði í gær eftir að Apple tölvufyrirtækið innkallaði tæpar tvær milljónir fartölvurafhlaðna. Þetta er í annað sinn á tæpum hálfum mánuði sem það gerist en í síðustu viku innkallaði Dell tölvufyrirtækið rúmar fjórar milljónir rafhlaðna. Forsvarsmenn Sony eru sagðir eiga von á því að þurfa að greiða jafnvirði rúmra tíu milljarða króna vegna innköllunarinnar.

Rannsókn á notkun klasasprengja

Bandaríska dómsmálaráðuneytið rannsakar hvort Ísraelar hafi sprengt klasasprengjur í íbúðarhverfum í Líbanon meðan á átökum Ísraela og Hizbollah-skæruliða stóð þar fyrr í þessum mánuði. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna segja slíkar sprengjur liggja sem hráviði í rústum húsa, görðum og á götum úti í Suður-Líbanon.

Hús Hamas-liða eyðilagt

Ísraelsher gerði í nótt loftárás á heimili háttsetts liðsmanns Hamas-samtakanna á Gaza-svæðinu. Enginn mun hafa fallið í árásinni en tveir vegfarendur særðust lítillega.

Töluverðar skemmdir á dómkirkjunni í Sánkti Pétursborg

Töluverðar skemmdir urðu á þaki dómkirkjunnar í Sánkti Pétursborg í Rússlandi þegar eldur kviknaði í henni í gær. Þakhvelfing kirkjunnar hrundi en við það þustu klekar af stað til að bjarga verðmætum helgimyndum. Ekkert liggur fyrir um eldsupptök. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi týnt lífi eða slasast í eldinum.

Heillaður af Íslandi

Fylkisstjóri Manitobafylkis í Kanada er á Íslandi. Hann segir samskipti Mani­toba og Íslands mikilvæg enda margir íbúar Manitoba ættaðir frá Íslandi.

Euan Blair á sjúkrahúsi

Euan Blair, elsti sonur Tonys Blair, forsætisráðherra Bretlands, var lagður inn á sjúkrahús vegna kvilla í maga í gær. Euan var í sumarfríi þegar hann veiktist, staddur á eynni Barbados í Karíbahafi ásamt fjölskyldu sinni.

Of margir friðargæsluliðar

Jacques Chirac Frakklandsforseti lýsti því yfir í gær að 15.000 friðargæsluliðar væru allt of margir fyrir Suður-Líbanon, en verið er að setja saman þann her manna samkvæmt samþykkt öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna. Jafnframt er 15.000 manna her Líbanons á svæðinu.

Flóttamenn í haldi í Taílandi

Taílenska lögreglan handtók á þriðjudag 175 norðurkóreska flóttamenn sem komið höfðu ólöglega til Taílands. Fólkinu verður þó ekki gert að snúa aftur heim, en enn er óljóst hvort það fái að vera áfram í Taílandi.

Sjá næstu 50 fréttir