Fleiri fréttir

Hafna nýrri stjórnarskrá

Tillögu fyrrverandi ríkisstjórnar Ítalíu að víðtækum stjórnarskrárbreytingum var hafnað í þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fór í gær og fyrradag.

Dönsuðu af fögnuði

Forsætisráðherrann Alkatiri lét undan þrýstingi og sagði af sér. Nóbelsverðlaunahafinn Jose Ramos-Horta segir stutt í nýja ríkisstjórn.

Útilokar með öllu að semja

Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, útilokar allar samningaviðræður við herskáa Palestínumenn sem hafa ungan ísraelskan hermann í haldi sínu.

Reynt að smygla hreisturdýrum frá Taílandi

245 hreisturdýr fundust í dag í flugfarmi á alþjóðaflugvellinum í Bangkok í Taílandi. Dýrin eru í útrýmingarhættu en eru álitin hollt og gott sælgæti í Kína og í Víetnam og afurðir úr þeim þykja hafa lækningamátt.

Mona Lisa fær rödd

Síðustu fimm hundruð árin hefur Móna Lísa brosað sínu leyndardómsfulla brosi án þess að mæla orð af munni. Þangað til nú.

Vísuðu ólöglegum Kínverjum á brott

Yfirvöld í Úkraínu vísuðu í dag 87 Kínverjum úr landi er upp komst um tilraun þeirra til að fara ólöglega yfir landamærin við Ungverjaland og Slóvakíu á leið sinni til Ítalíu. Ítalía er lokaáfangastaður margra ólöglegra innflytjenda frá Kína.

Sprengjan var ekta

Norðmaðurinn, sem fannst gyrtur sprengjubelti á bílastæði í einu af úthverfum Stokkhólms í gær, kom til Svíþjóðar fyrir helgi til að innheimta fíkniefnaskuld.

Skógarbjörninn skotinn

Björninn Bruno, sem þvælst hefur um fjallahéruð Bæjaralands undanfarnar vikur, var felldur í dag.

Skæruliðarnir setja fram kröfur

Ísraelsk stjórnvöld undirbúa víðtækar hernaðaraðgerðir gegn palestínskum skæruliðum sem í gær tóku ísraelskan hermann í gíslingu. Þeir segja að engar upplýsingar verði gefnar um afdrif hans fyrr en palestínskar konur og börn verði látin laus úr fangelsum Ísraela

Flóð og aurskriður urðu 18 til viðbótar að bana í Kína

Ekkert lát er á miklum rigningum og flóðum í Kína. Í gær létust minnst átján manns og átján til viðbótar er saknað eftir að 250 millimetra úrkomu á einum degi, sem olli skyndiflóðum og aurskriðum sem ruddu niður húsum og öðrum mannvirkjum.

Brenndu 60 tonn af eiturlyfjum

Í tilefni af alþjóðadeginum gegn eiturlyfjum sýndu yfirvöld í Íran afstöðu sína gegn eiturlyfjum í verki með því að brenna rúmlega 60 tonn af eiturlyfjum á almannafæri í Tehran í dag. Efnin voru úr vörslu lögreglunnar sem hún hafði gert upptæk í ýmsum eiturlyfjaáhlaupum.

Tveir drengir særðust í sprengjuárás

Tveir drengir særðust þegar sprengjuárás var gerð á bílalest nálægt bandrískri herstöð í Bagram, norður af Kabúl, höfuðborg Afganistans, í morgun. Að sögn afganskra stjórnvalda var um sjálfsvígssprengjuárás að ræða og árásarmaðurinn sá eini sem lést.

Alkatiri segir af sér

Miri Alkatiri, forsætisráðherra Austur-Tímor, hefur sagt af sér embætti svo hægt verði að tryggja frið í landinu. Þetta tilkynnti hann óvænt á blaðamannafundi í höfuðborginni Dili í morgun. Forsætisráðherrann fráfarandi hefur verið gerður ábyrgur fyrir mannskæðum átökum í landinu síðustu vikur.

Grimmilegum hefndaraðgerðum hótað

Ísraelsk stjórnvöld hóta grimmilegum hefndaraðgerðum verði ungur ísraelskur hermaður, sem herskáir Palestínumenn rændu í gær, ekki látinn laus þegar í stað. Spenna hefur magnast við landamærin að Gaza-svæðinu síðasta sólahringinn vegna málsins.

22 fórust í flóðum á Indónesíu

Að minnsta kosti tuttugu og tveir fórust í flóðum á Indónesíu um liðna helgi en þar hefur rignt töluvert að undanförnu. Rigningartímabil stendur nú yfir og verða þá oft aurskriður og flóð á Indónesíu.

Gefur 2.800 milljarða til góðgerðarmála

Bandaríski milljarðamæringurinn Warren Buffett, annar ríkasti maður í heimi, hefur ákveðið að gefa jafnvirði rúmlega 2.800 milljarða íslenskra króna til góðgerðarmála. Buffett hefur áður sagt að stærstum hluta auðæfa sinna yrði varið til góðra verka eftir dauða sinn.

Þrumuveður í Washington og nærliggjandi svæðum

Björgunarsveitarmenn í Washington og á nærliggjandi svæðum í Bandaríkjunum hafa haft í nógu að snúast síðasta sólarhringinn en þar hefur rignt töluvert og þrumuveður haldið vöku fyrir íbúum. Bjarga þurfti nokkrum ökumönnum ofan af bílum sínum þar sem stefndi í að þeir færu á kaf þar sem flætt hefur.

Danska ´68 kynslóðin stefnir í velferðarveislu

Danska sextíu og átta kynslóðin, oft kölluð hippakynslóðin, sem á sínum tíma hafnaði allri efnishyggju og ríkisforsjá, stefnir nú í einhverja mestu velferðarveislu í sögu Danmerkur, að mati dönsku eftirlaunastofnunarinnar.

Mannræningjar segjast hafa myrt gísla

Mannræningjar, sem rændu fjórum starfsmönnum rússneska sendiráðsins í Írak í byrjun mánaðarins, segjast hafa myrt fjórmenningana. Myndband sem birtist á Netinu í gær sýnir einn mann afhöfðaðan og annan skotinn, auk lík hins þriðja. Fjórði maðurinn er hins vegar hvergi sjáanlegur.

Mannfall í Jóhannesarborg

Tólf létust þegar skotbardagi braust út á milli lögreglumanna og búðarræningja í Jóhannesarborg í Suður-Afríku í gær. Fjórir lögreglumenn voru á meðal þeirra sem féllu í átökunum.

Herforingi féll á Sri Lanka

Herforingi í stjórnarher Srí Lanka féll í sjálfsmorðssprengjuárás nærri Kólombo, höfuðborg landsins, í morgun. (LUM) Þrír hermenn eru einnig sagðir hafa fallið í árásinni. Lögreglan í Kólombó segir árásarmennina hafa verið fleiri en einn, án þess að greina frá hversu margir þeir voru, og þeir hafi keyrt á vélhjólum upp að bifreið fórnarlambanna.

Grimmilegum hefndaraðgerðum hótað

Spenna hefur magnast við landamæri að Gaza-svæðinu síðan ungum ísraelskum hermenni var rænt þar í árás herskárra Palestínumanna á varðstöð Ísraelshers á svæðinu í gærmorgun. Hermenn streyma nú að landamærunum og með þeim vopn, skriðdrekar og annar búnaður. Ísraelar hóta árásum verði hermaðurinn ekki látinn laus.

Forsætisráðherrann reiðubúinn að segja af sér

Forsætisráðherra Austur-Tímor, Miri Alkatiri, segist reiðubúinn að segja af sér embættinu. Þetta tilkynnti hann á blaðamannafundi í morgun en tilkynningin þykir koma mjög á óvart.

Lögreglan lokar af hluta af Stokkhólmi

Sænska lögreglan lokaði af hluta Stokkhólms í morgun, eftir að íbúi tilkynnti henni að hann hefði séð mann gangandi um með sprengju fasta utan á sér og væri grátandi. Ekki hafa fengist frekari upplýsingar um málið en það er nú í rannsókn.

Krefjast þess að forsætisráðherrann segi af sér

Æðstu menn stjórnarflokksins í Austur-Tímor hittust í morgun til að ræða framtíð forsætisráðherrans en talið er að reynt verði að koma honum frá. Þúsundir mótmælenda komu saman við þinghúsið í gær og kröfðust þess að Alkatiri segði af sér og að þingið yrði leyst upp en átök hafa verið mikil í landinu vegna málsins. Gusmao forseti landsins, sem nýtur mikilla vinsælda, hótaði í vikunni að segja af sér ef Alkatiri forsætisráðherra gerði það ekki. Þegar Alkatiri neitaði að segja af sér dró Gusmao hótun sína hins vegar til baka. Búist er við að það kmoi í ljós seinna í dag hvað gert verður í málinu.

Japanar fara frá Írak

Japönsku herstöðinni í Írak verður lokað í dag. Enginn japanskur hermaður hefur fallið í átökum í landinu en þeir eru um sex hundruð talsins.

Þurfa tíma

Íranar krefjast þess að Bandaríkjamenn sýni þolinmæði á meðan þeir ákveða hvort þeir taki tilboði þeirra og hætti við auðgun úrans. Bush Bandaríkjaforseti vill svar strax.

64 talibanar drepnir í gær og í dag

64 herskáir talíbanar hafa verið drepnir í aðgerðum bandamanna í Afganistan í gær og í dag. Aðgerðirnar eru til komnar vegna vaxandi ofbeldis í Afganistan en það hefur ekki verið meira frá því að bandamenn steyptu stjórn Talibana af stóli árið 2001.

Framleiðandinn Aaron Spelling látinn

Sjónvarpsframleiðandinn Aaron Spelling lést í gær á heimili sínu í Los Angeles, áttatíu og þriggja ára að aldri. Spelling fékk heilablóðfall fyrr í mánuðinum. Hann var afkasta mikill framleiðandi og eftir hann liggja fjölmargar kvikmyndir og sjónvarpsþættir.

Dauðarefsing afnumin á Filippseyjum

Gloria Arroyo, forseti Filippseyja, undirritaði í morgun lög sem afnema dauðarefsingu í landinu. Dauðarefsing var afnumin á Filippseyjum 1987 en aftur leyfð með lögum sex árum síðar. Sjö hafa verið teknir af lífi síðan þá.

Lík eins námamanns af 65 fundið

Björgunarsveitarmenn fundu í gær lík námamanns sem var einn 65 sem festust í námu í Mexíkó í febrúar. Sprenging var í námunni og sátu mennirnir fastir og ekkert gekk að komast að þeim. Björgunarmenn leita nú að líku hinna.

Átök lögreglu og landtökufólks í Perú

Til átaka kom milli lögreglu og landtökumanna í útjaðri Lima, höfuðborgar Perú, í gær. Fólkið hafði reist sér bráðabirgðahúsnæði á svæðinu og var lögregla send til að reka það á brott og jafna húsin við jörðu. Ekkert leyfi hafði fengist fyrir því að byggja hús þarna en þau voru reist fyrir sex árum.

14 látnir í Bagdad í dag þrátt fyrir útgöngubann

Útgöngubann tók gildi í Bagdad strax að loknum föstudagsbænum, klukkan tvö í dag að staðartíma, og verður til dagrenningar í fyrramálið. Það hefur þó ekki virkað sem skyldi, því þegar hafa að minnsta kosti 14 manns látið lífið í sprengjuárásum í Bagdad í dag.

Bandaríkjamenn prófa eldflaugavarnir sínar

Bandarískt herskip skaut niður meðaldræga eldflaug rétt ofan við lofthjúp jarðar í gær. Bandaríkjamenn prófa nú nýjustu hlutana af eldflaugavarnarkerfi sínu, einmitt þegar Norður-Kóreumenn búa sig undir tilraunir á langdrægum eldflaugum, sem gætu náð alla leiðina til Bandaríkjanna.

Sænskur fjölmiðlamaður skotinn til bana í Mogadishu

Sænskur myndatökumaður var skotinn til bana í Mogadishu í Sómalíu í dag. Mörg þúsund manna flykktust á götur Mogadishu í morgun til að fagna friðarsamkomulag sem stríðandi fylkinga undirrituðu í gær. Ekki er ljóst hver skaut Svíann eða af hverju, en talið er að það muni grafa undan trú á íslömsku andspyrnuhreyfinguna, sem náði borginni á sitt vald fyrir tveimur vikum, en hún sagðist myndu tryggja öryggi í höfuðborginni.

Hryðjuverkamenn í Miami

Sjö voru handteknir í gærkvöldi í Miami í Bandaríkjunum, vegna gruns um að þeir legðu á ráðin um hryðjuverkaárásir í Bandaríkjunum. Talið er að ætlunin hafi verið að sprengja Sears-turninn í Chicago og aðrar byggingar í Bandaríkjunum.

Framtíð friðargæslunnar á Sri Lanka rædd í Ósló

Fulltrúar þeirra norrænu ríkja sem hafa eftirlit með vopnahlé milli stríðandi fylkinga í Sri Lanka ætla að ræða framtíð friðargæslunar á fundi í Ósló í næstu viku. Uppreisnarmenn Tamíl-tígra vilja að norrænum Evrópusambandsríkin þrjú hætti eftirlit og í dag var hlutverki Norðmanna í landinu einnig mótmælt.

Friðarsamkomulag í Sómalíu

Íslamskir skæruliðar sem ráðið hafa ríkjum í Mógadisjú, höfuðborg Sómalíu, undanfarna daga hafa samið frið við bráðabirgðaríkisstjórn landsins.

Stefnubreyting liggur í loftinu

Vel fór á með þeim Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, og Mahmoud Abbas, forseta palestínsku heimastjórnarinnar, á óformlegum fundi þeirra í Jórdaníu í dag. Teikn eru á lofti um að Hamas-samtökin muni senn viðurkenna tilverurétt Ísraelsríkis.

Kjarnorkukapphlaupinu ekki lokið

Bretar boða endurnýjun á kjarnorkuvopnabúrum sínum og Norður-Kóreumenn áforma að skjóta langdrægri tilraunaeldflaug á loft. Kjarnorkuafvopnun virðist jafn fjarlægt takmark og hún var á tímum kalda stríðsins.

Vongóður um að Íranar falli frá kjarnorkuáætlun

Kofi Annan framkvæmdarstjóri Sameinuðu Þjóðanna segist vongóður um að Íranar taki tilboði Vesturlanda gegn því að þeir falli frá kjarnorkuáætlun sinni. Annan átti í dag fund með Mottaki utanríkisráðherra Íran í Genf í Sviss.

BA sakað um brot á samkeppnislögum

Breska flugfélagið British Airways, sem hóf áætlunarflug til Íslands í vor, sætir nú rannsókn vegna meintra brota á samkeppnislögum og meintra ólöglegra olíugjalda á flugfargjöld.

Engin aldurstakmörk lengur

Nýr meirihluti í menntaráði Reykjavíkur samþykkti á fundi ráðsins í dag að fella úr gildi ákvæði um aldurshámark nemenda við úthlutun fjármagns til tónlistarnáms.

Leiðtogar Ísraels og Palestínu fallast í faðma

Forsætisráðherra Ísraels Ehud Olmert og forseti Palestínu Mahmoud Abbas féllust í faðma í Jórdaníu í dag en þetta er í fyrsta skipti sem þeir hittast síðan flokkur Olmerts vann þingkosningarnar í mars. Leiðtogarnir taka þátt í tveggja daga ráðstefnu undir heitinu Heimur í hættu en formlegur leiðtogafundur er ráðgerður innan tveggja vikna

Sjá næstu 50 fréttir