Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Suðurríkjaþingmenn á móti lögum um kosningarétt Þingmenn úr suðurríkjunum standa gegn frumvarpi um kosningarétt á Bandaríska þinginu. Til stendur að framlengja lögin um kosningarétt frá 1965, en þau renna út á næsta ári. Samstaða var milli repúblikana og demókrata um nýtt frumvarp en tvö atriði í því eru ekki að skapi suðurríkjaþingmannanna. 21.6.2006 20:32
Kjálki græddur á kornabarn Kínverskir læknar græddu í morgun kjálka á eins árs gamlan dreng sem var bitinn heiftarlega af asna fyrir hálfum mánuði. Þótt enn sé of snemmt að segja til um batahorfurnar virðist aðgerðin hafa heppnast ágætlega. 21.6.2006 20:00
Lögmaður Saddams myrtur Einum af aðallögfræðingum Saddams Hussein var rænt í morgun og hann myrtur. Hann er sá þriðji í verjendaliðinu sem fellur fyrir hendi morðingja. 21.6.2006 19:15
Bush vill loka Guantanamo-fangelsinu George Bush Bandaríkjaforseti vill láta loka fangabúðunum í Guantanamo á Kúbu. Á fundi með leiðtogum Evrópusambandsins í Vín í dag sagði hann að sumir fanganna yrðu sendir aftur til síns heima en réttað yrði yfir öðrum í Bandaríkjunum. 21.6.2006 18:45
Bush vill loka Guantanamo Bush Bandaríkjaforseti lýsti því yfir í dag að hann vilji loka fangelsinu í Guantanamo og senda flesta fangana þar til síns heima. Nokkrir verði þó leiddir fyrir rétt í Bandaríkjunum, þeir fangar sem forsetinn skilgreinir sem "kaldrifjaða morðingja". Bush lét þessi orð falla á fundi sínum með leiðtogum Evrópusambandsríkjanna í Vín í dag. 21.6.2006 13:48
Barnung fórnarlömb sprengju borin til grafar Tvö palestínsk börn og einn unglingur sem létust í loftárás Ísraelsmanna í gær voru borin til grafar í dag með hundruða manna líkfylgd. Forsætisráðherra Palestínu sakaði Ísraela um handahófskennd raðmorð á saklausum palestínskum borgurum. 21.6.2006 13:00
Mótmæli í Vín Þrjúhundruð námsmenn mótmæltu komu Bush Bandaríkjaforseta til Austurríkis á götum Vínarborgar í dag. Bush kom til Austurríkis gærkvöld til fundar með leiðtogum Evrópusambandsins 21.6.2006 12:02
112 látnir í Indóníesíu Að minnsta kosti 112 manns eru látnir og hundrað er saknað á eyjunni Sulawesi á Indónesíu eftir miklar rigningar og aurskriður síðustu tvo sólarhringa. Talið er að margir séu grafnir í leðju. 21.6.2006 10:17
Mega banna stúlkum að bera blæjur í skólum Oslóarborg hefur fengið heimild til þess að banna stúlkum í grunnskólum að bera blæjur sem hylja andlit stúlknanna frá komandi hausti, eftir því sem Aftenposten greinir frá. 21.6.2006 09:30
Stofnfrumurannsóknir vekja vonir Stofnfrumurannsóknir bandarískra vísindamanna gefa von um að vinna megi á móti lömun með því að rækta úr stofnfrumum taugar og annað sem upp á vantar til að lamaðir vöðvar geti hreyfst á ný. 21.6.2006 08:45
Tilgreinir hver tuttugasti flugræninginn átti að vera Al-Qaida hryðjuverkasamtökin hafa tilgreint hver var tuttugasti maðurinn sem taka átti að taka þátt í flugránunum 11. september 2001. 21.6.2006 08:15
Einn af aðalverjendum Husseins drepinn Einn af aðallögfræðingum Saddams Husseins, fyrrverandi Íraksforseta, hefur verið drepinn. Þetta hefur íröksk lögregla staðfest. Manninum, Khamis al-Obaidi, mun hafa verið rænt í Bagdad og hann skotinn skömmu síðar en líkið af honum fannst í höfuðborginni. 21.6.2006 07:45
Bush fundar með leiðtogum ESB í dag George Bush Bandaríkjaforseti kom í gærkvöld til Vínar í Austurríki þar sem hann mun funda með leiðtogum Evrópusambandsins. 21.6.2006 07:45
Boða vinnustöðvun á sunnudag vegna launadeilu Farþegar geta búist við töluverðri röskun á flugi til og frá landinu á sunnudagsmorguninn ef af vinnustöðvun starfsfólks Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli verður. Trúnaðarmenn starfsfólks hafa staðið í árangurslausum viðræðum við stjórnendur Icelandair í tvo mánuði og upp úr sauð á fundi starfsfólks í gærkvöldi. Framkvæmdastjóri Flugþjónustunnar segir málið í skoðun. 21.6.2006 07:14
Ótryggt ástand í Sri Lanka Ástandið í Sri Lanka er ótryggt eftir þá óöld sem þar hefur ríkt. Á annað hundrað manns hafa látið lífið í árásum Tamíl-tígra og stjórnarhersins síðustu daga. 20.6.2006 23:00
Mikil öryggisgæsla í Vín vegna heimsóknar Bush Mikil öryggisgæsla verður í Vín í Austurríki í kvöld og og á morgun en Bush Bandaríkjaforseti kom til borgarinnar í kvöld til fundar við fulltrúa Evrópusambandsins sem verður á morgun. Þrjú þúsund lögreglumenn verða að störfum í borginni næsta sólahring en búist er við mótmælum vegna heimsóknar forsetans. 20.6.2006 22:45
Charles Taylor kominn til Hollands Charles Taylor, fyrrverandi forseti Líberíu, kom til Hollands í kvöld þar sem réttað verður yfir honum en hann er ákærður fyrir stríðsglæpi í 10 ára borgarastríði í Sierra Leone. 20.6.2006 22:30
Listasafn opnað með viðhöfn í París Jacques Chirac, Frakklandsforseti, opnaði í dag nýtt listasafn í París. Þetta mun vera fyrsta stóra safnið sem tekið er í notkun þar í borg í frá því 1977 þegar Pompidou safnið var opnað. 20.6.2006 18:30
Einn stofnenda ETA handtekinn Einn stofnenda ETA, aðskilnaðarsamtaka Baska, var meðal þeirra 12 sem handteknir voru í Frakklandi og á Spáni í dag þegar áhlaup var gert á höfuðstöðvar glæpasamtaka í löndunum tveimur. 20.6.2006 18:15
Þjóðvarðliðar sendir til New Orleans Borgarstjórinn í New Orleans í Bandaríkjunum kallaði eftir aðstoð þjóðvarðliða í gær svo hægt yrði að stöðva öldu ofbeldis í borginni. Fimm ungmenni voru skotnir til bana við bifreið sína um liðna helgi og er árásin sú mannskæðasta í New Orleans í 11 ár. 20.6.2006 18:00
Ástandið í Sómalíu Sameinuðu þjóðirnar kanna hvort ástandið í Sómalíu sé tryggt eftir mannskæð átök undanfarið. Fulltrúar Sameinuðu þjóðanna halda til höfuðborgarinnar, Mogadishu, seinna í vikunni til að ræða við fulltrúa íslömsku dómstólanna sem náðu völdum í borginni fyrr í mánuðinum. 20.6.2006 17:00
Tamíltígrar segjast vilja virða vopnahlé Tamíltígrar í Sri Lanka hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir biðja liðsmenn sína um að virða vopnahlé frá árinu 2002. Ofbeldi hefur farið stigvaxandi á eyjunni undanfarinn mánuð en nú segjast skæruliðasamtökin vilja binda enda á ofbeldi auk þess sem þau segjast munu tryggja öryggi norrænna friðargæsluliða. 20.6.2006 15:15
Leiðtogi al-Qaeda í Írak segist persónulega ábyrgur fyrir morðum Nýr leiðtogi al-Qaeda hryðjuverkasamtakanna í Írak, Abu Hamza al-Muhajer, hefur sent frá sér tilkynningu þar sem hann lýsir ábyrgð á hendur sér fyrir pyntingar og morð á tveimur bandarískum hermönnum sem rænt var af herstöð í síðustu viku. Í yfirlýsingunni segir að Muhajer hafi myrt mennina með eigin hendi. 20.6.2006 15:14
Bandarísku hermennirnir látnir Tveir bandarískir hermenn, sem saknað hafði verið frá því á föstudag, fundust skammt suður af Bagdad í morgun. Lík mannanna báru þess merki að þeir hefðu verið pyntaðir. Uppreisnarhópur tengdur al Qaeda samtökunum sagðist hafa numið mennina á brott frá landamærastöð þar sem þeir unnu. 20.6.2006 13:52
Ítalskur saksóknari kærir bandarískan hermann Ítalskur saksóknari hefur að sögn þarlendra fjölmiðla ákveðið að ákæra bandarískan hermann fyrir að hafa myrt ítalskan leyniþjónustumann við varðstöð í Írak í fyrra. Líklegt er að réttað verði í málinu að honum fjarstöddum og hann kærður fyrir morð og tvö morðtilræði. 20.6.2006 13:29
Charles Taylor loks fyrir dómstól Charles Taylor, fyrrverandi einræðisherra í Líberíu, er nú á leið til Hollands þar sem réttað verður yfir honum. Hann er ákærður fyrir stríðsglæpi í tíu ára borgarastríði í nágrannalandinu Sierra Leone. 20.6.2006 12:00
Gervifrjóvganir borga sig Breskir tölfræðingar hafa reiknað út að kostnaðurinn við gervifrjóvganir borgi sig margfalt fyrir breska ríkið, þegar tillit er tekið til framlags barnsins uppkomins til þjóðarframleiðslu og skattborgana. 20.6.2006 11:32
Japanskar sveitir yfirgefa Írak Japanar munu draga allt herlið sitt frá Írak nú þegar Írakar hafa sagst munu taka við öryggiseftirliti í þeim héruðum þar sem Japanir hafa verið að störfum. Junichiro Koizumi, forsætisráðherra Japans, sagði í morgun að enduruppbyggingarhlutverki japanskra varnarsveita í Írak væri lokið og því engin þörf fyrir að Japanar héldu úti mannskap þar lengur. 20.6.2006 11:15
Ilmur Beckhams eitraður Ilmur Beckhams er eitraður ef marka má orð Grænfriðunga sem létu greina innihald nýs herrailmvatns sem knattspyrnuhetjan David Beckham hefur lagt nafn sitt við. 20.6.2006 10:58
Fótboltabullur handteknar í Köln Fjórir stuðningsmenn enska landsliðsins í fótbolta voru handteknir fyrir skrílslæti í Köln í nótt, þegar eftirvænting þeirra eftir leik Englendinga gegn Svíþjóð fór úr böndunum. Sextán lögreglumenn slösuðust í átökunum og þurfti einn að leggjast inn á sjúkrahús. 20.6.2006 10:36
Foreldrar á Bretlandseyjum reiðir Meðlimir foreldrafélaga barnaskóla á Bretlandseyjum eru reiðir eftir að þarlendir fréttamiðlar greindu nýverið frá því að reglur sem settar höfðu verið til að halda dæmdum kynferðisafbrotamönnum utan skólakerfisins hafi brugðist. 20.6.2006 09:19
Ofbeldi í New Orleans Borgarstjórinn í New Orleans kallaði eftir hjálp þjóðvarðliða í gær til að hefta útbreiðslu mikils ofbeldis sem verið hefur í borginni og hefur leitt til dauða sex manna nú um helgina. 20.6.2006 09:11
Skógareldar í Norður-Arizona Rýma þurfti yfir fimm hundruð heimili og fyrirtæki í Norður-Arizona í Bandaríkjunum í gær vegna mikilla skógarelda sem þar geysa. 20.6.2006 09:02
Ákærður fyrir morð á ítölskum njósnara Ítalskur saksóknari hefur að sögn þarlendra fjölmiðla ákveðið að ákæra bandarískan hermann fyrir morð á ítalska leyniþjónustumanninum Nicola Calipari við varðstöð í Írak í fyrra. Líklegt er að réttað verði í málinu að honum fjarstöddum og hann kærður fyrir morð og tvö morðtilræði. 19.6.2006 23:15
Málverk selt á 10 milljarða Málverk austurríska málarans Gustav Klimt sem Nasistar stálu á valdatíma sínum í Þýskalandi var selt í New York í gær, að því er talið er, fyrir jafnvirði rúmra 10 milljarða íslenskra króna. Málverkið er eitt fjögurra verka Klimt sem Nasistar hrifsuðu til sín. 19.6.2006 23:00
Varað við hryðjuverkamanni 2003 Bretar máttu vita þegar árið 2003 að einn fjögurra hryðjuverkamanna, sem átti þátt í dauða 52 í hryðjuverkaárás á Lundúnir í fyrra, væri maður sem réttast væri að hafa gætur á. Bandarísk stjórnvöld vöruðu þá bresku leyniþjónustuna við höfuðpaurnum sem þá þegar var bannað að fljúga til Bandaríkjanna. 19.6.2006 22:45
3 bandarískir hermenn ákærðir fyrir morð Þrír bandarískir hermenn hafa verið ákærðir fyrir morð á þremur Írökum sem voru í haldi hermanna vegna aðgerða hersveitar í síðasta mánuði. Hermennirnir eru einnig ákærðir fyrir að hafa reynt að koma í veg fyrir að rannsókn færi fram. 19.6.2006 22:30
al Kaída tengist mögulega mannránum á bandarískum hermönnum í Írak Hópur tengdur al Kaída hryðjuverkasamtökunum segir á vefsíðu sinni í dag að hann hafi rænt tveimur bandarískum hermönnum sem hafa verið týndir í Írak um nokkurt skeið. 19.6.2006 16:12
Stuðningsmenn Aung San Suu Kyi biðja fyrir lausn baráttukonunnar úr stofufangelsi Stuðningsmenn Aung San Suu Kyi biðja nú fyrir lausn baráttukonunnar úr stofufangelsi en hún á sextíu og eins árs afmæli í dag. 19.6.2006 13:49
Fyrsta konan kjörin biskup í bandarísku biskupakirkjunni Fyrsta konan var kjörin biskup í bandarísku biskupakirkjunni í gær. Aðeins kanadíska og nýsjálenska biskupakirkjan hafa hingað til kjörið konu til biskupsembættis og margir leiðtogar biskupakirkjunnar víða um heim telja konur ekki einu sinni eiga erindi til að gegna prestsstörfum. 19.6.2006 13:13
Þorskur aftur genginn að Grænlandsströndum Þorskur er aftur genginn að Grænlandsströndum að sögn norska blaðsins Fiskeribladet, og fékk togari umþaðbil þúsund tonn af vænum þorski á slóðum, þar sem ekki hefur sést þorskur í fimmtán ár. 19.6.2006 13:07
172 manneskjur voru fluttar út úr tíu hæða blokk í Osló 172 manneskjur voru fluttar út úr tíu hæða blokk í Osló þegar kviknaði í blokkinni í nótt. Slökkviliðið var kallað út klukkan eitt í nótt og logaði þá glatt á áttundu hæð í blokkinni. 19.6.2006 13:02
Japanir hóta hörðum viðbrögðum við eldflaugaprófunum Forsætisráðherra Japans, Junichiro Koizumi, sagði í morgun að japönsk stjórnvöld myndu í samráði við Bandaríkin bregðast hart við fyrirhuguðum eldflaugaprófunum Norður-Kóreumanna. 19.6.2006 12:51
Þokast í samkomulagsátt í Palestínu Hamas- og Fatahhreyfingarnar í Palestínu eru nálægt því að komast að samkomulagi um ýmis aðalágreiningsatriði fylkinganna, svo sem viðurkenningu Ísraelsríkis og lausn fanga úr fangelsum. 19.6.2006 10:39
Lögreglan í Kaupmannahöfn skýtur mann til bana. Lögreglan í Kaupmannahöfn skaut mann til bana í morgun, eftir að æði rann á hann í söluturni, þar sem hann braut allt og bramlaði með barefli. Þegar lögreglumenn náðu því af honum dró hann upp hníf og ógnaði nærstöddum sem lyktaði með því að lögreglumennirnir skutu á hann. Hann lést af skotsárum sínum skömmu síðar. 19.6.2006 10:27