Fleiri fréttir

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum fjöllum við um krapaflóð sem féll á Patreksfirði í morgun, í sama farvegi og mannskætt flóð sem féll í bænum fyrir rétt rúmum fjörutíu árum. Hættustigi hefur verið lýst yfir í bænum.

Setur miðlunartillögu í atkvæðagreiðslu
Aðalsteinn Leifsson, ríkissáttasemjari, hefur lagt fram miðlunartillögu, í kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Tillagan felur í sér að félagsmenn Eflingar og aðildarfélög SA munu greiða atkvæði um sams konar samning og gerður var við Starfsgreinasambandið fyrir áramót.

Aldrei fleiri tilkynningar um heimilisofbeldi en árið 2022
Lögreglunni á landsvísu bárust 2.374 tilkynningar um heimilisofbeldi og ágreining milli skyldra/tengdra aðila árið 2022. Jafngildir það að meðaltali tæplega 7 slíkum tilkynningum á dag eða 198 tilkynningum á mánuði. Nær 70 prósent heimilisofbeldismála eru gegn maka eða fyrrverandi maka.

Tók dæmi af bankaráni til að útskýra ákæruna í hryðjuverkamálinu
Saksóknari og verjendur í hryðjuverkamálinu svokallaða takast nú um það fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur hvort tilefni sé til að vísa frá þeim hluta ákærunnar sem snýr að tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í brotinu. Saksóknari segir ekki unnt að lýsa ætluðum brotum ákærðu með nákvæmari hætti en gert sé í ákærunni. Hann tók sem dæmi ímyndað bankarán til að styðja þá skoðun sína að ákæran ætti að fá efnislega meðferð fyrir dómi.

Krapaflóð féll á Patreksfirði
Krapaflóð féll á Patreksfirði á tíunda tímanum í dag. Engin hús eða manneskjur urðu fyrir flóðinu en það féll niður sama farveg og flóðið sem féll á Patreksfirði árið 1983.

Fengu loksins vistir í fyrsta sinn síðan 15. desember: „Forréttindi að fá að búa á svona stað“
Mæðgur sem búa á austasta býli landsins fengu loksins sendar til sín vistir á mánudag. Þær höfðu ekki fengið sendingu til sín síðan 15. desember síðastliðinn.

Halda sektinni til streitu og segja stöðukortið falsað
Vilberg Rambau Guðnason er niðurbrotinn maður eftir að hafa farið bónleiður til búðar frá Bílastæðasjóði. Vilberg, sem er öryrki, gerði athugasemd við sekt sem hann fékk fyrir að leggja í stæði ætlað hreyfihömluðum.

Hvetja 60 ára og eldri til að „láta hendur standa fram úr ermum“
„Við erum bara að reyna að halda fólki vakandi,“ segir Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir, framkvæmdastjóri hjúkrunar hjá Heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, um auglýsingar sem meðal annars má finna á Vísi.

Eitt fjölmennasta bridgemót Íslandssögunnar
Yfir sjö hundruð manns eru skráðir til þátttöku á Reykjavík Bridgefestival sem hefst í Hörpu í dag. Um er að ræða eitt fjölmennasta bridgemót sem haldið hefur verið á Íslandi.

Segja Ísland geta gegnt lykilhlutverki í matvælaöryggi í Evrópu
Ísland gæti séð milljónum Evrópubúa fyrir öruggum, sjálfbærum og staðbundið framleiddum próteingjöfum á næstu áratugum. Á sama tíma væri hægt að draga úr losun yfir 700 milljóna tonnum af kolefnisútblæstri.

Girðingarnar fjarlægðar en lóðir stækkaðar
Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi Vesturbæjarlaugar við Sundlaugartúnið, sem felur í sér lausn á Sundlaugartúnsmálinu svokallaða. Tillagan nær fram að ganga samþykki borgarráð deiliskipulagið.

Mótstaða við breytingar ekki vegna eigin hagsmuna heldur faglegs mats
Inga Lilý Gunnarsdóttir, formaður Lyfjafræðingafélags Íslands, segir mótstöðu Lyfjafræðingafélags Íslands við frumvarp um að heimila lausasölu lyfja í almennum verslunum ekki sprottna út frá hagsmunum lyfjafræðinga, heldur faglegum forsendum.

Játa aðild en segja þætti sína veigalitla í stóra kókaínmálinu
Tveir sakborningar í stóra kókaínmálinu játa aðkomu að málinu en segja sína þætti hafa verið veigalitla. Þeir segjast aðeins hafa haft afmörkuð hlutverk en ekki komið að skipulagningu málsins á neinn hátt.

Nokkrir liggja undir grun vegna þjófnaðar úr verslun í gær
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning í gær þar sem tilkynnt var um vinnuslys í Hafnarfirði en þar hafi frosin jarðvegur hrunið ofan í holu, ofan á fót starfsmanns verktakafyrirtækis.

Borgin boðar breytingar í Skeifunni: „Auðvitað þarf að laga þetta“
Reykjavíkurborg ætlar að ráðast í breytingar á samgönguleiðum í Skeifunni þar sem allir þvælast fyrir öllum og gangandi vegfarendur eiga erfitt með að komast leiðar sinnar. Varaborgarfulltrúi Viðreisnar segir svæðið eftir að breytast mikið á næstu árum. Vegfarendur eru ekki par sáttir með stöðuna í dag og einn segist beinlínis hata Skeifuna.

Segir Sólveigu aldrei tilbúna í samtal
Ólöfu Helgu Adolfsdóttur ritara Eflingar líst illa á fyrirhuguð verkföll og vill greiða atkvæði um kjarasamning sambærilegan þeim sem önnur stéttarfélög hafa samþykkt. Hana grunar að öðrum hópi félagsfólks innan Eflingar verði boðið að fara í verkfall hafni starfsfólk Íslandshótela að leggja niður störf.

Heimaspítali á Selfossi - Nýjung í heilbrigðiskerfinu
Heimaspítali er ný þjónusta fyrir aldraða á vegum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands þar sem læknir og hjúkrunarfræðingur heimsækja skjólstæðinga sína með stuðningsmeðferð í heimahúsi. Tilgangurinn er að fækka innlögnum á bráðamóttöku og sjúkrahús.

Um óhappatilvik að ræða
„Þegar fólk lendir í tjóni þá er um að gera að leita upplýsinga hvort að það sé réttur fyrir hendi eð ekki,“ segir Óðinn Elísson, framkvæmdastjóri Fulltingis og sérfræðingur í skaðabótarétti í viðtali við Reykjavík síðdegis fyrr í dag.

Börn hætt komin á ís í Garðabæ
Síðdegis í dag var tilkynnt um nokkur börn sem voru hætt komin á ís úti á sjö norður af Norðurbrú í Garðabæ.

Augljóst að verið sé að hræða starfsfólkið
Formaður Eflingar segir reynt að hræða starfsfólk Íslandshótela frá því að fara í verkfall sem hún hafi fulla trú á að félagsmenn samþykki. Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir að afturvirkar launahækkanir standi starfsfólki Eflingar til boða þar til verkfall skelli á.

Kvöldfréttir Stöðvar 2
Í kvöldfréttum förum við yfir ákvörðun Þjóðverja sem loks tóku af skarið í dag um að senda öfluga skriðdreka til Úkraínu. Hann fundaði einnig í dag með Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra og við heyrum í henni í fréttatímanum.

Segir ráðgjafa og eftirlitsaðila axla ábyrgð á lekanum í Fossvogsskóla
Reykjavíkurborg hefur nú farið ítarlega yfir lekann sem varð í Fossvogsskóla þann 20.janúar síðastliðinn. Lekinn kom ekki frá þakinu heldur frá stóru rennunum sem eru áfastar þakkanti. Þetta kemur fram í bréfi sem Ámundi Brynjólfsson skrifstofustjóri framkvæmda og viðhalds hjá Reykjavíkurborg sendi á foreldra barna og starfsmenn Fossvogsskóla fyrr í dag.

Skiljanlegt í ljósi sögunnar að Þjóðverjar hafi tekið sinn tíma
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir skiljanlegt í ljósi sögunnar að Þjóðverjar hafi tekið sér tíma í að ákveða að senda Úkraínumönnum þungavopn.

Beint streymi frá fundi Katrínar og Olaf Scholz
Olaf Scholz kanslari Þýskalands tilkynnti fyrr í dag að Þjóðverjar ætluðu að útvega Úkraínumönnum Leopard skriðdreka og heimila öðrum þjóðum að gera það einnig.

Meirihlutinn segir Íslandsbankamálið á lokametrunum
Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, segir að tillaga minnihlutans í nefndinni, þess efnis að vert sé að kalla eftir lögfræðilegu áliti á Íslandsbankasölunni, hafi komið flatt uppá sig.

Gul viðvörun vegna storms
Gular viðvaranir vegna hvassviðris eða storms taka gildi á morgun allt frá Vestfjörðum til Norðurlands eystra.

Endurráðin forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands
Kolbrún Þ. Pálsdóttir hefur verið endurráðin forseti Menntavísindasviðs Háskóla Íslands til næstu fimm ára, eða til 1. júlí 2028.

Á von á að rafbyssum verði beitt sjaldnar en tíu sinnum á ári
Yfirmaður menntamála lögreglunnar á von á að rafbyssum verði ekki oft beitt hér á landi, eða sjaldnar en tíu sinnum á ári. Mikil þjálfun lögreglumanna sé framundan.

Tamoxifen Mylan ófáanlegt að minnsta kosti fram á mitt ár
Krabbameinslyfið Tamoxifen Mylan 20 mg. hefur verið ófáanlegt á landinu síðan 25. apríl í fyrra. Lyfið er meðal annars notað við brjóstakrabbameini og til draga úr líkum á endurkomu þess en það er ekki væntanlegt aftur til landsins fyrr en mögulega um mitt ár.

66 umsækjendur af 178 sem sögðust börn metnir fullorðnir
Frá árinu 2014 hafa 178 einstaklingar sótt um alþjóðlega vernd hér á landi sem fylgdarlaus börn. Eftir gagnaöflun og aldursgreiningu voru 78 metnir sem börn en 66 sem fullorðnir.

Misnotaði litlu systur sambúðarkonu sinnar í sjö ár
Héraðsdómur Vestfjarða hefur dæmt karlmann í fjögurra ára fangelsi fyrir að misnota litlu systur sambúðarkonu sinnar í sjö ár, frá því að stúlkan var ellefu ára gömul þar til hún var átján ára. Maðurinn braut meðal annars á stúlkunni á meðan að sambúðarkona hans, systir stúlkunnar, lá í sama rúmi og þau.

Staðan á húsnæðismarkaði hrikaleg
Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR segir stöðu leigjenda hrikalega og það sé alfarið á ábyrgð Seðlabankans og stjórnvalda sem hafa algjörlega brugðist.

Segir dómsmálaráðherra bjóða upp á útvatnað ræksni
Þingmenn fluttu tæplega hundrað og fimmtíu ræður á um átta klukkustundum um útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra á Alþingi í gær. Formaður Miðflokksins kallar frumvarpið ræksni málamiðlana milli skynsemishyggju og fullkominnar vitleysu.

Spurði Jón hvort hann hyggðist láta skjóta sig með rafbyssu
Það verður að koma í ljós hvort Jón Gunnarsson, dómsmálaráðherra, hyggist prófa það að láta skjóta sig með rafbyssu. Þetta kom fram í svari hans við spurningu Arndísar Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur, þingmanns Pírata og nefndarmanns í allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis á opnum fundi nefndarinnar í gær.

Hádegisfréttir Bylgjunnar
Í hádegisfréttum ræðum við um kjaradeilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins en SA hafa lofað Íslandshótelum að bæta allt það tjón sem fyrirtækið verður fyrir, verði af boðuðu verkfalli hjá Eflingarstarfsmönnum.

„Ógeðslegt að verða vitni að þessu helsjúka ástandi“
Formaður Eflingar segist sannfærð um að samninganefnd Eflingar muni hafa sigur í baráttu sinni við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning. Ríka fólkið í landinu fyrirlíti ekkert meir en verkakonur íslensks vinnumarkaðar.

Þórarinn segist hafa mátt þola hrottalegt ofbeldi kennslukonu
Þórarinn Ævarsson athafnamaður opnar sig um hrottalegt ofbeldi sem hann segir umsjónarkennara sinn í barnaskóla hafa beitt sig og fleiri bekkjarfélaga sína í barnaskóla.

Greiðslur til einkarekinna fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu stóraukist síðustu ár
Greiðslur ríkisins til einkarekinna fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu jukust úr 2,2 milljörðum króna árið 2014 í 10,8 milljarða króna árið 2021. Sóltún, Læknisfræðileg myndgreining, Heilsugæslan Höfða, Læknavaktin og Heimilislæknastöðin fengu hæstu upphæðirnar.

Íslandshótel fá allt tjón bætt komi til verkfalls
Samtök atvinnulífsins munu bæta Íslandshótelum allt það tjón sem hlýst af mögulegu verkfalli Eflingarstarfsmanna.

Kannabiskökur og þreyttur námsmaður meðal verkefna lögreglu
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fór í húsleit á heimili einstaklings í miðbæ Reykjavíkur um kvöldmatarleytið í gær en í tilkynningu frá lögreglu um verkefni gærkvöldsins og næturinnar segir að viðkomandi verði kærður fyrir vörslu á „kökum“ sem grunur leikur á að innihaldi kannabis.

Leggur til afnám við sjálfkrafa skráningu barna í trúfélög
Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur lagt fram frumvarp um breytingar á lögum um skráð trú- og lífsskoðunarfélög. Breytingin felur í sér að færa ákvörðun um félagsaðild barna í trú- og lífsskoðunarfélög til foreldra og síðar til barnanna sjálfra þegar þau ná 12 ára aldri.

Verkföll komi spánskt fyrir sjónir í ljósi góðra launa
Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri samtaka ferðaþjónustunnar segir að stemning fyrir verkföllum virðist vera lítil innan ferðaþjónustunnar. Rekstraraðilar hafa leitað til samtakanna vegna starfsfólks sem vilji skrá sig úr Eflingu.

Gera ekki athugasemdir við vanhæfi Þrastar
Innviðaráðuneyti gerir ekki athugasemdir við ákvörðun sveitastjórnar Múlaþings þar sem Þröstur Jónsson, sveitastjórnarfulltrúi Miðflokksins, er talinn vanhæfur til að fjalla um leiðarval fyrirhugaðra Fjarðarheiðarganga. Þröstur kærði ákvörðun tíu af ellefu sveitastjórnarmanna til ráðuneytisins.

Mikil þjálfun framundan í notkun rafbyssa
Reglugerð varðandi heimild lögreglu til að notast við rafbyssur hefur tekið gildi. Næsta skref er að kaupa vopnin og svo þarf að þjálfa lögreglumenn til að nota þau. Í kvöldfréttum Stöðvar 2 var rætt við Ólaf Örn Bragason, yfirmann menntamála lögreglu um þá þjálfun sem framundan er.

Segja engan vilja bera ábyrgð á þrjátíu kílóa klaka sem féll á bílinn
Par sem lenti í því óhappi að þrjátíu kílóa klakaklumpur féll af brú og á bílinn þeirra á ferð segja mildi að ekki varð stórslys. Þau eru ósátt með viðbrögð Reykjavíkurborgar sem segist ekki getað borið ábyrgð á atvikinu.