Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bara útlendingafrumvarp á dagskrá: „Alveg ljóst að margir hyggjast taka til máls“ Útlendingafrumvarp dómsmálaráðherra er eina málið á dagskrá á fyrsta þingfundi ársins í dag og forseti Alþingis gerir jafnvel ráð fyrir að þannig verði það áfram í vikunni. Það stefnir í mikil átök en þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa sagt að frumvarpið megi ekki samþykkja óbreytt. 23.1.2023 12:01
Hefðu ekki getað komið í veg fyrir lokun Reykjanesbrautar Starfshópur hefur komist að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið hægt að koma í veg fyrir að loka varð Reykjanesbraut vegna veðurs í desember. Fleiri tiltækar vinnuvélar hefðu þó getað stytt tímann sem var lokað og betur hefði mátt standa að snjómokstri. Innviðaráðherra mun veita Vegagerðinni heimild til að færa ökutæki við snjómokstur. 23.1.2023 11:31
Hádegisfréttir Bylgjunnar Nýtt þing, gosafmæli, vottorðafargan og vandræðagangur á Keflavíkurvelli verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 23.1.2023 11:23
Erlendum burðardýrum sleppt með engan pening eða síma Dæmi er um að einstaklingum sem dæmdir hafa verið fyrir fíkniefnainnflutning sé sleppt eftir afplánun með engan pening eða síma. Formaður félags fanga kallar eftir breytingum á kerfinu og vill að þessir einstaklingar fái að afplána dóm sinn með samfélagsþjónustu. Fangarnir séu fórnarlömb mansals en engir höfuðpaurar. 23.1.2023 11:05
Hundrað kíló af kókaíni eða tíu? Aðalmeðferð í einu stærsta fíkniefnamáli Íslandssögunnar heldur áfram í dag þegar lögreglumenn sem komu að rannsókn málsins og hollenskir tollverðir gefa skýrslu. Verjendur munu leggja áherslu á að ekki sé hægt að færa sönnur á að lagt hafi verið hald á hundrað kíló af kókaíni. 23.1.2023 10:36
Eyjamenn minnast hálfrar aldar afmælis eldgossins Hálf öld er í dag, 23. janúar, liðin frá upphafi eldgossins á Heimaey árið 1973. Gosafmælisins er minnst með margvíslegum hætti í Vestmannaeyjum og Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, og Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra heimsækja Eyjamenn. 23.1.2023 09:39
„Þetta er Golíat sem við erum að berjast á móti“ Gróft kynferðislegt orðalag, hómófóbía og illar áeggjanir grassera meðal unglinga í skjóli nafnleyndar á samfélagsmiðlum, að sögn tíundu bekkinga og starfsmanns félagsmiðstöðvar. Hann segir krakka leita mikið til starfsmanna vegna óheilbrigðra netsamskipta en starfsfólk eigi við ofurefli að etja. 23.1.2023 07:00
Útlendingafrumvarpið eina þingmálið á dagskrá Alþingi kemur saman á ný í dag og hefst þingfundur klukkan 15. Á dagskrá er óundirbúinn fyrirspurnartími og önnur umræða um útlendingafrumvarp Jóns Gunnarssonar dómsmálaráðherra. 23.1.2023 06:54
Braut rúðu á hóteli Lögregla á höfuðborgarsvæðinu var kölluð út eftir að tilkynnt var um að rúða á hóteli í hverfi 105 í Reykjavík hefði verið brotin. 23.1.2023 06:11
Sitja föst eftir skíðaferð en láta það ekki spilla gleðinni Hópur fjörutíu laganema frá Háskóla Íslands hefur ekki komist frá Sauðárkróki eftir skíðaferð í dag vegna veðurs og færðar. Þau halda nú til í skíðaskála í Tindastóli og segja vel hugsað um sig en hópurinn telur sig geta komist heim á morgun. 22.1.2023 23:55
Sungu fyrir farþega sem sátu fastir í vél Icelandair Hljómsveit sem var um borð í vél Icelandair á leið til Keflavíkur frá Toronto söng fyrir farþega sem voru fastir með þeim í vélinni. Flugstjórinn segir alla hafa gengið úr vélinni með bros á vör. 22.1.2023 21:46
„Ég hætti þegar ég er dauður” – Segir 86 ára prentari á Egilsstöðum Á sama tíma og prentsmiðjum landsins fækkar og fækkar þá hefur sjaldan eða aldrei verið eins mikið að gera eins og hjá Héraðsprenti á Egilsstöðum. Eigandinn og prentsmiðjustjórinn, sem stendur vaktina alla daga verður 86 ára á árinu og gefur ekki tommu eftir við að stýra fyrirtækinu. 22.1.2023 21:00
Samninganefnd Eflingar fundaði og segir tilkynningu væntanlega Samninganefnd Eflingar fundar nú en búast má við að þar séu verkfallsboðanir ræddar. 22.1.2023 20:55
Hvalur flæktist í hengingaról Hræ af hvalskálfi vakti athygli vegfaranda við ströndina við Innri Njarðvík í gær. Hvalurinn virðist hafa hafa flækst í línu af veiðarfærum og hlotið slæman dauðdaga. 22.1.2023 19:31
Læstur úti léttklæddur, fjúkandi ljósastaurar og útköll björgunarsveita Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur staðið í ströngu en 62 mál voru skráð í dag. Veðrið virðist hafa verið í aðalhlutverki en stór hluti verkefna tengdust veðri og færð. Lögreglan þurft til dæmis að fjarlægja fokna ljósastaura og kalla til björgunarsveitir. Þá gistu níu manns í fangageymslum eftir nóttina. 22.1.2023 18:32
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttatíma okkar á Stöð 2 og Bylgjunni klukkan hálf sjö segjum við frá veðurhvellinum sem varð á suðvesturhorninu í dag þar sem næstum þúsund farþegar voru strandaglópar í flugvélum á Keflavíkurflugvelli. 22.1.2023 18:01
Viðgerð um borð í Hrafni Sveinbjarnarsyni lokið Viðgerð um borð í togaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni tókst síðdegis og siglir skipið nú fyrir eigin vélarafli. Togarinn heldur til Hafnarfjarðar þar sem gert er ráð fyrir að ný veiðarfæri verði sótt. 22.1.2023 17:51
Fötluð kona föst í flugvél með stífluðu klósetti Fötluð kona hefur setið föst í vél Icelandair í rúmlega tíu klukkutíma. Vinir hennar sem komust úr vélinni segja klósettin í vélinni vera stífluð og að enginn matur sé þar. Það virðist sem fáir á flugvellinum nái einhverju sambandi við Icelandair til að nálgast upplýsingar um stöðu mála. 22.1.2023 16:59
Segir ummæli Skúla undarleg og fyrirslátt Dóttir konu sem lést eftir að hafa verið sett í lífslokameðferð á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja segir ummæli Skúla Tómasar Gunnlaugssonar, sem grunaður er um að hafa sett sjúklinga í lífslokameðferð án tilefnis, vera undarleg og fyrirslátt. Hún segir svo virðast að Skúli Tómas sé ekki í tengslum við raunveruleikann. 22.1.2023 16:56
Guðni var með er Hrafn Sveinbjarnarson var dreginn til hafnar Varðskipið Freyja er lögð af stað með togarann Hrafn Sveinbjarnarson áleiðis til hafnar. Togarinn varð vélarvana um klukkan fjögur í nótt um fimmtíu sjómílur norðnorðvestur af Straumnesi. Forseti Íslands er um borð í skipinu. 22.1.2023 16:12
Flugvél hringsnerist og rakst í landgang Flugvél Icelandair snerist á staðnum á Keflavíkurflugvelli vegna hálku og vinds. Vinstri vængur vélarinnar rakst í landgang við flugstöðina. Vélin var blessunarlega tóm og engan sakaði. 22.1.2023 15:04
Flugi aflýst og fólk enn fast í flugvélum níu tímum eftir lendingu Icelandair hefur ákveðið að aflýsa öllu flugi sínu til Norður-Ameríku og Evrópu utan flugs til Ósló og Kaupmannahafnar sem seinkað verður fram á kvöld. Aftakaveður er á flugvellinum svo ekki er talið öruggt að fara með stigabíla að flugvélum sem eru úti á vellinum. Farþegar sex véla sitja því enn fastir. 22.1.2023 14:39
Byrjað að opna vegi aftur Hið slæma veður sem herjað hefur á Íslendinga í dag er byrjað að ganga niður á suðvesturhorni landsins. Akstursskilyrði eru enn slæm víða og fjallavegir enn lokaðir. Þá gæti veður versnað frekar í öðrum landshlutum. 22.1.2023 14:29
Hurð rifnaði af flugvallarbíl Hurð rifnaði af bíl á Keflavíkurflugvelli fyrir skömmu. Vindhraði er mikill á vellinum og erfiðlega hefur gengið að ná fólki út úr flugvélum sem sitja þar fastar. 22.1.2023 14:04
Bein útsending: Minnast þeirra sem létu lífið í krapaflóðunum Fjörutíu ár eru liðin frá því tvö krapaflóð féllu á Patreksfjörð svo fjögur létust og nítján hús skemmdust. Haldin er minningarathöfn um þau sem létust en athöfnin er sýnd í beinni útsendingu. 22.1.2023 13:47
Gervigreind samdi kynningu fyrir Ísland í dag Fyrir forvitnissakir var gervigreind fengin til að semja stutta kynningu á miðvikudagsþætti Íslands í dag í vikunni. Forritið ChatGPT á vegum bandaríska fyrirtækisins OpenAI hefur vakið mikla athygli notenda, einkum fyrir glettilega færni þess við að setja saman texta. 22.1.2023 13:35
Hafa nú verið í vélinni í um tólf klukkustundir Farþegar í flugi Icelandair frá New York í nótt hafa nú varið um tólf klukkustundum um borð í flugvélinni, þar af sex á flugbraut í Keflavík. Einn farþeganna segir stemninguna í vélinni merkilega góða miðað við aðstæður. 22.1.2023 12:19
Hálfs metra landris í Öskju GPS mælingar sína að land í Öskju hefur risið um hálfan metra frá því mælingar hófust í ágúst 2021. Landrisið er talið vera vegna kvikusöfnunar á litlu dýpi í eldstöðinni. 22.1.2023 12:02
Björgunarsveitir aðstoða við að koma 800 manns úr flugvélum Björgunarsveitarfólk á Suðurnesjum hefur verið kallað út til þess að aðstoða við að koma fólki úr flugvélum á Keflavíkurflugvelli. 22.1.2023 11:13
Allt landið gult, vegum lokað og flugferðir felldar niður Appelsínugul viðvörun er í gildi á Suðvesturhorninu vegna veðurs og þá er gul viðvörun í gildi annarsstaðar á landinu. Hvassviðri er víða og eru akstursskilyrði að versna víðast á svæðinu. 22.1.2023 11:00
Hagavagninn tjónaður eftir bruna Undir morgun var Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað til vegna elds í Hagavagninum, hamborgaraveitingastað í Vesturbænum. 22.1.2023 10:01
Forsetinn í varðskipi á leið til móts við vélarvana togara Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, er um borð í varðskipinu Freyju, sem verið er að sigla til hjálpar vélarvana togara. Tilkynning barst frá togaranum Hrafni Sveinbjarnarsyni um klukkan fjögur í nótt um að togarinn væri aflvana. 22.1.2023 09:45
Uppruni Íslendinga, umfjöllun um konur og glærumálið Farið verður um víðan völl á Sprengisandi í dag, eins og svo oft áður. Þátturinn byrjar á því að Kristján Kristjánsson ræðir við Dr. Helga Þorláksson, fyrrv. próf. við HÍ í sagnfræði. Umræðuefnið er framhald á viðtal við Gísla Sigurðsson í síðustu viku um uppruna Íslendinga og kenningar þar um. 22.1.2023 09:32
Réðst á leigubílsstjóra og rændi bílnum Lögregluþjónar handtóku í nótt mann sem grunaður er um að hafa ráðist á leigubílstjóra og rænt bíl hans. Leigubílstjórinn óskaði eftir aðstoð í nótt og sagði að farþegi hefði ráðist á sig og náð að reka sig úr bílnum. Farþeginn hafi í kjölfarið ekið á brott á leigubílnum. 22.1.2023 07:24
Flúði land í farbanni vegna nauðgunardóms Kólumbíski fótboltamaðurinn Andrés Ramiro Escobar Diaz, sem hlaut tveggja og hálfs árs fangelsisdóm fyrir nauðgun fór af landi brott í desember síðastliðnum. Þetta gerði hann þrátt fyrir að hafa verið úrskurðaður í farbann í september síðastliðnum og bíða afplánunar í fangelsi á Íslandi. 22.1.2023 07:00
Áskrifandi níu milljónum ríkari Það greinilega borgar sig stundum að vera í áskrift af lottómiðum. Það var áskifandi sem vann níu milljónir íslenskra króna í lottópotti kvöldsins. 21.1.2023 21:40
Myndasafni Bærings í Grundarfirði komið á stafrænt form Myndasafn og myndavélar Bærings Cecilssonar í Grundarfirði vekja alltaf jafn mikla athygli en safnið og búnaðurinn er til sýnis í „Bæringsstofu“ í sögumiðstöð bæjarfélagsins. Bæring var fréttaritari í Grundarfirði til fjölda ára. Nú er unnið að því að koma öllum ljósmyndum Bærings á starfrænt form. 21.1.2023 21:05
Borgin vinnur á hraða snigilsins Móðir barns í Fossvogsskóla segir foreldra langþreytta á ítrekuðum vandamálum sem komið hafa upp í skólanum síðustu misseri, nú síðast þegar gríðarlegur leki varð í glænýju þaki skólans. Borgin vinni á hraða snigilsins, sem sé óásættanlegt. 21.1.2023 21:01
Undrandi á yfirlýsingu Skúla Sara Pálsdóttir, lögmaður og réttargæslumaður fjölskyldu konu sem lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja segir að matsgerð staðfesti að konan hafi verið sett í tilefnislausa lífslokameðferð. 21.1.2023 20:59
Hægfara bylting á Íslandi í 30 ár Íslenskt samfélag hefur gerbreyst frá því samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið tók gildi fyrir tæplega þrjátíu árum og með auknum hraða síðasta áratuginn. Fyrir gildistökuna voru erlendir íbúar aðeins um þrjú prósent þjóðarinnar en eru nú um sautján prósent. 21.1.2023 19:20
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Móðir barns í Fossvogsskóla segir foreldra langþreytta á ítrekuðum vandamálum sem komið hafa upp í skólanum síðustu misseri, nú síðast þegar gríðarlegur leki varð í glænýju þaki skólans. Borgin vinni á hraða snigilsins, sem sé óásættanlegt. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum á slaginu 18:30. 21.1.2023 18:11
Klaki af þaki olli miklum skemmdum Klaki sem runnið hafði af þaki í Þingholtsstræti í miðbæ Reykjavíkur fór beint í gegnum framrúðu bíls sem lagt var í götunni. 21.1.2023 17:23
Stóra-Laxá ruddist fram: „Þetta var mjög tæpt“ Stóra-Laxá rauf stíflu við Laxárdal um klukkan 13 í dag. Ákvörðun um að rjúfa Skeiða- og Hrunamannaveg í sundur við brúna yfir Stóru-Laxá, sem er enn í smíðum, virðist hafa bjargað brúnni. 21.1.2023 15:59
Ómar hirtur af úrskurðarnefnd: „Gegndarlaus og marklaus vitleysa“ Ómar R. Valdimarsson er lögmaðurinn sem var á dögunum hirtur af úrskurðarnefnd lögmanna fyrir að krefja konu afsökunarbeiðni vegna ummæla hennar á TikTok. Ómar segir úrskurðinn til marks um að nefndarmenn skorti tengsl við raunveruleikann. 21.1.2023 15:01
Áform um knatthús í uppnámi Framkvæmdastjóri Hauka segir mikil vonbrigði að byggingarleyfi fyrir nýju knatthúsi á Ásvöllum hafi verið fellt úr gildi. Ákvörðun úrskurðarnefndar umhverfis og auðlindamála setur áframhaldandi uppbyggingu svæðis félagsins í uppnám. 21.1.2023 14:01