Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Biðja nemendur afsökunar Stjórn Menntaskólans við Hamrahlíð harmar að núverandi og fyrrverandi nemendur hafi upplifað vanlíðan vegna kynferðislegs ofbeldis. Ekki hafi verið tekið á þeim málum með viðeigandi hætti en stjórnendur biðjast afsökunar á viðbrgögðum í opnu bréfi til nemenda. 5.10.2022 18:53
Tæplega áratugsgömul sýkna í Exeter-máli endurreist með frávísun Hæstaréttar Hluta svonefnds Exeter-máls sem endurupptökudómur úrskurðaði að skyldi tekið upp aftur var vísað frá Hæstarétti í dag. Niðurstaðan þýðir að sýknudómur í héraði yfir fyrrverandi forstjóra MP bank stendur óhaggaður. 5.10.2022 18:25
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Greiðslubyrði margra fasteignalána hefur næstum tvöfaldast frá því að Seðlabankinn hóf að hækka stýrivexti í maí í fyrra. Bankinn hækkaði stýrivexti í níunda skipti á tímabilinu í morgun. Seðlabankastjóri vonar að hækkunin sé sú síðasta, nú þurfi vinnumarkaðurinn og stjórnvöld að taka við boltanum. Við fjöllum um málið í kvöldfréttum Stöðvar 2 og ræðum við hagfræðing BSRB í beinni útsendingu. 5.10.2022 18:11
Boðar skólastjórnendur á fund vegna umræðu um kynferðisbrot Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra hefur boðað skólastjórnendur á fund um viðbrögð við kynferðisofbeldi í framhaldsskólum. Á fundinum verður farið yfir stöðuna á innleiðingu viðbragðsáætlana og kynningu þeirra í skólunum. 5.10.2022 17:47
Ekkert sáttatilboð lagt fram í talningarmálinu Ríkislögmaður segir að ríkið hafi ekki lagt fram neitt sáttatilboð eða viðurkennt brot á mannréttindasáttmála Evrópu vegna kæru tveggja frambjóðenda í Alþingiskosningunum í fyrra. Frambjóðendurnir kærðu ákvörðun Alþingis að staðfesta kosningaúrslitin til mannréttindadómstólsins. 5.10.2022 17:36
Jökull strandaður í innsiglingunni á Raufarhöfn Fiskiskipið Jökull SÞ strandaði í innsiglu á Raufarhöfn síðdegis í dag. Unnið er að því að draga skipið á flot. 5.10.2022 17:28
Rafmagnslaust í hluta Vesturbæjar og heitavatnslaust í Skerjafirði Rafmagnslaust er í hluta Vesturbæjar vegna háspennubilunar. Unnið er að viðgerð og eru vonir bundnar við að rafmagn verði komið aftur á fyrir klukkan 17. 5.10.2022 15:38
Þjóðvegurinn lokaður við Núpsvötn vegna umferðarslyss Þjóðveginum hefur verið lokað við Lómagnúp við Núpsvötn vegna umferðarslyss. Þetta kemur fram á vef Vegagerðarinnar. 5.10.2022 14:53
Segist aldrei hafa haft samband við Brynjólf til að hóta brottrekstri Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist hvorki hafa hótað því að rekja Brynjólf Ingvarsson, fyrrverandi bæjarfulltrúa flokksins á Akureyri, úr flokknum né að draga slíka hótun til baka. 5.10.2022 14:04
Stefna á að fimm smáhús rísi í Laugardal í desember Framkvæmdir eru nú hafnar í Laugardal þar sem til stendur að reisa fimm smáhús að Engjavegi 40 fyrir heimilislausa. Einhverjir íbúar hafa gagnrýnt áformin en formaður velferðarráðs Reykjavíkurborgar segir að hlustað hafi verið á allar athugasemdir. 5.10.2022 13:59
Vill senda flóttafólk til Rúanda Formaður Miðflokksins segist ekki trúa því að nýopnuð fjöldahjálparmiðstöð fyrir flóttafólk verði tímabundið úrræði. Opnunin sé til marks um stjórnleysi í málefnum flóttafólks. Ísland hafi ranglega verið auglýst sem áfangastaður fyrir þá sem skipuleggi fólksflutninga. 5.10.2022 13:44
Kortleggja eignatengsl í sjávarútvegi Forsvarsmenn Samkeppniseftirlitsins hafa ákveðið að kortleggja stjórnunar- og eignatengsl sjávarútvegsfyrirtækja. Er það liður í heildarstefnumótun í sjávarútvegi á vegum matvælaráðuneytisins. 5.10.2022 13:40
Dæmd fyrir hundruð þúsunda króna strikamerkjasvindl Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konu og karl í sextíu daga og þrjátíu daga fangelsi fyrir að hafa stolið vörum úr verslun Ikea í Garðabæ með því að hafa tekið strikamerki af ódýrari vörum og sett á dýrari vörur. 5.10.2022 13:01
Fékk afsökunarbeiðni frá rektor í morgunsárið Rektor Menntaskólans í Hamrahlíð hefur beðið fyrrverandi nemenda afsökunar á því hvernig tekið var á málinu þegar henni var nauðgað af samnemanda fyrir áratug. Henni hefur verið boðið á fund með skólastjórnendum til að ræða hvað megi betur fara en hún segir dýrmætt að henni sé loksins trúað og að skólinn viðurkenni að það hafi ekki verið brugðist rétt við á sínum tíma. 5.10.2022 13:00
Krefjast áframhaldandi gæsluvarðhalds yfir mönnunum tveimur Farið verður fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir tveimur mönnum sem eru í varðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á meintri skipulagningu hryðjuverka. 5.10.2022 11:55
Með fimm kíló af amfetamíni í frystikistu á heimili sínu Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann, Garðar Ingvar Þormar, í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot og vopnalagabrot. 5.10.2022 11:07
Fjórtán ára flúði lögreglu á ofsahraða á Holtavörðuheiði Fjórtán ára unglingur er grunaður um að hafa ekið á ofsahraða yfir Holtavörðuheiði á föstudag. Málið var tilkynnt til barnaverndar. 5.10.2022 10:16
Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Umhverfisdagur atvinnulífsins fer fram í dag í Norðurljósasal Hörpu í Reykjavík undir yfirskriftinni Auðlind vex af auðlind. 5.10.2022 08:32
Hefja gjaldtöku vegna bíla sem standa óhreyfðir dögum saman Rangárþing ytra hyggst hefja gjaldtöku á langtímabílastæðum við verslunar- og skrifstofukjarnann Miðjuna á Hellu á næsta ári. 5.10.2022 08:00
Lá á dyrabjöllunum í vitlausu húsi Lögregla á höfuðborgarsvæðinu hafði í ýmsu að snúast í gærkvöldi og í nótt og var meðal annars kölluð út vegna tveggja manna á hóteli í miðborg Reykjavíkur sem neitaðu að yfirgefa hótelið. Lögreglan fylgdi þeim út eftir að hún mætti á vettvang. 5.10.2022 06:54
Ríkið reyndi að ná fram sáttum í talningamálinu Ríkið hefur boðið fram sáttir í máli tveggja frambjóðanda er varðar umdeilda talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi í síðustu Alþingiskosningum. Málið verður tekið fyrir hjá Mannréttindadómstól Evrópu á næstunni. 5.10.2022 06:28
Telur sér bolað út úr kirkjunni fyrir að standa með þolendum Fyrrverandi starfsmaður Digraneskirkju telur að sóknarnefnd kirkjunnar hafi sagt henni upp störfum vegna þess að hún stóð með þolendum Gunnars Sigurjónssonar, fyrrverandi sóknarprests. Biskup vék Gunnari úr starfi vegna kynferðislegrar og kynbundinnar áreitni. 4.10.2022 23:14
Fleiri sveitarfélög þurfa að veita flóttafólki skjól Sveitarfélög þurfa að skjóta skjólshúsi yfir flóttafólk í auknum mæli til þess að ekki þurfi að starfrækja lengi sérstaka fjöldahjálpastöð fyrir það, að sögn fulltrúa Rauða krossins á Íslandi. Unnið er að opnun fyrstu stöðvar þessarar tegundar hér á landi. 4.10.2022 22:32
Húsráðendur könnuðust ekkert við bíllyklana Íbúar í Garðabæ hringdu á lögreglu fyrr í kvöld vegna bíllykla sem látnir höfðu verið inn um bréfalúgu á húsi þeirra. 4.10.2022 22:28
MeToo bylgja framhaldsskólanema: Tímabært að rödd þeirra fái að heyrast Talskona Stígamóta telur að MeToo-bylgja framhaldsskólanema sé að hefjast. 70 prósent þeirra sem leiti til samtakanna hafi verið beitt kynferðisofbeldi fyrir 18 ára aldur. Mikilvægt sé að skólastjórnendur í framhaldsskólum hlusti á nemendur og tilbúnir með viðbragðsáætlanir. 4.10.2022 22:06
Óttast að enginn hlusti á menntaskólanema sem verði fyrir ofbeldi Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð hafa mótmælt því í dag og í gær að nemendur við skólann, sem eru þolendur kynferðisofbeldis, þurfi að mæta gerendum sínum á göngum skólans. Fyrrverandi nemandi segir lítið hafa breyst frá því að hann var í þessari sömu stöðu fyrir áratug. 4.10.2022 20:30
Fangelsismálastjóri segir Barnakot á Hrauninu viðbjóðslegt Fangelsismálastjóri segir húsnæði til að taka á móti börnum á Litla-Hrauni vera viðbjóðslegt. Velgjörðamanni blöskraði svo að hann ákvað að styrkja fangelsið. Hann segir brýnt að bæta aðstöðu barna sem eiga foreldra í fangelsum. 4.10.2022 20:01
Fjöldi umdeildra mála á málaskrá ríkisstjórnar í vetur Ríkisstjórnin fyrir hugar að leggja 178 mál fyrir Alþingi í vetur. Mörg málanna eru umdeild eins og frumvörp dómsmálaráðherra um útlendinga, fækkun sýslumannsembætta og um forvirkar rannsóknarheimildir lögreglu. 4.10.2022 19:20
Einn sakborninganna hlaut dóm fyrir líkamsárás fyrir tveimur árum Karlmaðurinn sem er í gæsluvarðhaldi og með stöðu sakbornings vegna manndráps á Ólafsfirði í gær var dæmdur í eins árs fangelsi, meðal annars fyrir tvær líkamsárásir, árið 2020. Sá látni hlaut fangelsisdóm fyrir stunguárás fyrir hátt í tuttugu árum. 4.10.2022 18:29
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Fjöldahjálparstöð fyrir flóttamenn hefur verið opnuð í fyrsta skipti á Íslandi. Aldrei hafa fleiri flóttamenn komið til landsins en í ár og hefur straumur þeirra aukist mjög síðustu vikur. Við verðum í beinni útsendingu frá fjöldahjálparstöðinni í Borgartúni og ræðum við Rauða krossinn í kvöldfréttum. 4.10.2022 18:01
Taka þurfi á upplýsingaóreiðu um hinsegin fólk: „Við verðum að fá allt samfélagið með okkur“ Starfshópur forsætisráðherra gegn hatursorðræðu kemur til með að skila niðurstöðum sínum fyrir lok árs en framkvæmdastjóri Samtakanna 78 segir upplýsingaóreiðu þeirra helsta óvin um þessar mundir. Stjórnvöld geti gert meira til að bregðast við og samfélagið allt þurfi að taka þátt. 4.10.2022 17:19
Stormasamt samband litað af neyslu fíkniefna Kona á fertugsaldri er meðal þriggja sem sæta gæsluvarðhaldi grunuð um aðild að manndrápi á Ólafsfirði aðfaranótt mánudags. Hinn látni, karlmaður á fimmtugsaldri, er eiginmaður konunnar. Samkvæmt heimildum fréttastofu höfðu þau átt í stormasömu sambandi. 4.10.2022 14:53
Opna fjöldahjálparstöð fyrir flóttamenn í fyrsta sinn á Íslandi Rauði krossinn á Íslandi vinnur nú að því að opna fjöldahjálparstöð fyrir umsækjendur um alþjóðlega vernd en þetta er í fyrsta sinn sem slík fjöldahjálparstöð er opnuð hér á landi. Sviðstjóri alþjóðasviðs hjá Rauða krossinum ítrekar að aðeins sé um tímabundið úrræði að ræða og kallar eftir frekari aðkomu sveitarfélaganna. 4.10.2022 14:51
Sparkaði í líkama og sló ítrekað í andlit starfsmanns Krónunnar Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt karlmann í 45 daga fangelsi fyrir líkamsárás með því að hafa veist með ofbeldi að starfsmanni verslunar Krónunnar í Rofabæ í Reykjavík í janúar 2021. Maðurinn sparkaði í líkama starfsmannsins og sló hann ítrekað með krepptum hnefa í andlit. 4.10.2022 14:34
Full ástæða til að halda áfram að kortleggja hatursorðræðu á Íslandi Fulltrúar frá á þriðja tug hagsmunasamtaka hafa sótt fundi starfshóps forsætisráðherra gegn hatursorðræðu en formaður hópsins segir ljóst að ákveðnir hópar komi verr út en aðrir. Þó erfitt sé að meta hvort hatursorðræða fari beinlínis vaxandi hér á landi sé full ástæða til að halda vinnunni áfram. 4.10.2022 14:01
Skólastjórnendur MH segja fagaðila hafa verið kallaða til Skólastjórnendur Menntaskólans við Hamrahlíð hafa sent frá sér tilkynningu vegna umfjöllunar fjölmiðla um mótmæli nemenda vegna kynferðisofbeldis. Nemendurnir mótmæltu því í gær að þurfa að mæta gerendum á göngum skólans. 4.10.2022 14:00
Alvarlegt bílslys á Suðurlandsbraut Alvarlegt bílslys varð á gatnamótum Suðurlandsbrautar og Reykjavegar ofan við Laugardalinn í Reykjavík um klukkan hálf eitt í dag. Tveir voru inni í fólksbíl sem virðist hafa verið ekið upp á kant, á gönguljós og oltið með þeim afleiðingum að bíllinn er mikið skemmdur. 4.10.2022 12:40
Grettir Sterki mættur til Stykkishólms Dráttarbáturinn Grettir Sterki er kominn til Stykkishólms. Báturinn er í leigu hjá Vegagerðinni, Sæferðum og Stykkishólmsbæ en Sæferðir sjá um að manna bátinn. 4.10.2022 12:23
Bylting í MH: Vilja ekki mæta nauðgurum sínum á göngunum Nemendur í Menntaskólanum við Hamrahlíð mótmæltu því í gær að nemendur skólans sem eru þolendur kynferðisofbeldis þurfi að mæta gerendum sínum á göngum skólans. Þeir segja viðbrögð skólans vera ófullnægjandi. Fyrrverandi nemandi við skólann segir söguna vera að endurtaka sig. Fyrir tíu árum hafi henni verið nauðgað af samnemanda sínum. 4.10.2022 12:00
Bjuggust við að finna mun meiri loðnu Veiðiráðgjöf á loðnu minnkar verulega og haustmælingar voru undir væntingum að sögn sérfræðings hjá Hafrannsóknarstofnun. 4.10.2022 11:52
Fjöldi fólks hefur sótt sér áfallahjálp á Ólafsfirði Fjöldi fólks hefur nýtt sér áfallahjálp Kirkjunnar og Rauða krossins á Ólafsfirði vegna manndráps sem var framið þar í fyrrinótt. Rauði krossinn mun áfram hafa viðveru í bænum og veita bæjarbúum stuðning vegna hroðaverksins. 4.10.2022 11:50
Hádegisfréttir Bylgjunnar Manndráp á Ólafsfirði, lækkuð veiðiráðgjöf loðnu, málefni hinsegin fólks og stríðið í Úkraínu verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 4.10.2022 11:34
Kópavogur greiðir mest en þar með er ekki öll sagan sögð Kópavogsbær greiðir 56 þúsund krónur í frístundastyrk til barna í sveitarfélaginu. Styrkurinn er sá hæsti sem veittur er hér á landi. Frístundastyrkur segir þó ekki alla söguna enda bæði misjafnt hve dýrt er fyrir börn að stunda tómstundir í sveitarfélögum. 4.10.2022 10:47
Þórgnýr nýr upplýsingafulltrúi ÖBÍ Þórgnýr Einar Albertsson hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Öryrkjabandalags Íslands (ÖBÍ). Þórgnýr hefur þegar hafið störf. 4.10.2022 10:04
Kanna sameiningu NTÍ og Bjargráðasjóðs Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur farið þess á leit við stjórn Bjargráðasjóðs að hún kanni möguleikann á því að sameinast Náttúruhamfaratryggingum Íslands, NTÍ. 4.10.2022 09:09