Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrstu tömdu hreindýrin á Íslandi til sýnis Fyrsti hreindýradýragarður landsins hefur verið opnaður en hann er á bænum Vínlandi á Héraði rétt við Egilsstaði. Í garðinum eru þeir Garpur og Mosi, rúmlega eins árs gamlir en þeim var bjargað agnarsmáum móðurlausum uppi á heiði. Garpur var þá þriggja daga gamall og Mosi átta daga. 6.7.2022 21:03
Til skoðunar hvort auglýsing Áslaugar sé lögmæt Menningarráðherra skoðar nú hvort starfsauglýsing annars ráðuneytis þar sem ekki er krafist íslenskukunnáttu stangist á við lög. Forsætisráðherra hefur miklar áhyggjur af stöðu tungumálsins og gagnrýnir þá þróun að innlend fyrirtæki velji sér ensk heiti í ríkari mæli. 6.7.2022 19:31
Sóttu slasaðar konur í Hvalfirði og á Snæfellsnesi Útkall barst til björgunarsveita á Vesturlandi á fjórða tímanum í dag vegna konu sem hafði hrasað og slasað sig á fæti í Hvalfirði. Hún hafði verið á göngu í Síldarmannagötum innst í firðinum þegar hún slasaðist og gat hún ekki gengið. 6.7.2022 19:25
Allt að þrefalt dýrara í hárri verðbólgu að taka verðtryggt húsnæðislán Höfuðstóll verðtryggðra húsnæðislána hækkar hratt þessa dagana vegna mikillar verðbólgu. Umboðsmaður skuldara segir afar mikilvægt að lántakendur séu meðvitaðir um áhættuna sem felist í slíkum lánum. Stærsti hluti húsnæðislána hjá lífeyrissjóðum er verðtryggður. 6.7.2022 19:05
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum okkar greinum við frá því hvernig höfuðstóll verðtryggðra lána getur margfaldast í verðbólgubálinu. Þannig getur höfuðstóll á algengri lásfjárhæð hækkað um allt að fjögur hundruð prósent á þrjátíu ára lánstíma. 6.7.2022 18:01
Glúmur og Karl Gauti sækja einnig um í Rangárþingi ytra Tuttugu og fimm sóttu um stöðu sveitarstjóra Rangárþings ytra. Fimm þeirra sem sóttu um drógu umsóknir sínar þó til baka. 6.7.2022 17:50
Skipstjórinn hafi brugðist hárrétt við Eigandi strandveiðibátsins Gosa KE-102, sem brann í morgun skammt frá Rifi, segir skipstjórann hafa brugðist hárrétt við. 6.7.2022 17:15
Elkem þarf ekki að greiða skatt af rúmum milljarði króna Elkem Ísland ehf., sem rekur kísilver á Grundartanga, lagði íslenska ríkið í héraðsdómi í dag þegar úrskurður ríkisskattstjóra var felldur úr gildi. Með úrskurðinum var fjárhæð frádráttarbærra gjaldfærðra vaxta í skattskilum Elkem lækkuð um ríflega átta hundruð milljónir og 25 prósent álagi bætt við. 6.7.2022 16:56
Ófremdarástandið gæti varað fram á haust Ófremdarástandið sem ríkir á flugvöllum víða í Evrópu gæti varað fram á haust að sögn forstjóra þýska flugfélagsins Lufthansa því erfitt hefur reynst að manna stöður eftir faraldurinn. Ritstjóri Túrista segir að það sé ekki skynsamlegt að bóka tengiflug í sumar því viðbúið sé að miklar breytingar verði á flugáætlunum. 6.7.2022 15:22
Sjúkratryggingar hækka endurgreiðslu aksturskostnaðar nýrnasjúklinga Þeir nýrnasjúklingar sem þurfa að ferðast milli sveitarfélaga til að komast í blóðskiljun geta nú fengið endurgreitt 95 prósent af aksturskostnaði. Sjúklingar þurfa að fara í blóðskilun þrisvar sinnum í viku í þrjá til fjóra tíma í senn. 6.7.2022 14:28
„Mikil afturför, vanhugsað og ég er ósátt við minn ráðherra“ Lilja Rafney Magnúsdóttir, varaþingmaður Vinstri grænna, gagnrýnir Svandísi Svavarsdóttur, matvælaráðherra, harðlega fyrir áætlanir um að taka upp svæðaskiptingu á kvóta strandveiða á ný. Lilja segir ákvörðunina vanhugsaða, hún feli í sér mikla afturför og að ráðherra ætti frekar að einbeita sér að því að „taka á þeim hlutum sem vitað er að þarf að bæta í kerfinu.“ 6.7.2022 13:48
Iða Marsibil nýr sveitarstjóri Grímsnes- og Grafningshrepps Sveitarstjórn Grímsnes- og Grafningshrepps samþykkti samhljóða á fundi sínum í morgun að ráða Iðu Marsibil Jónsdóttur í starf sveitarstjóra. 6.7.2022 11:57
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar greinum við frá mannbjörg þegar eldur kom upp í smábáti á Breiðafirði í morgun. Eini skipverjinn kom sér sjálfur í björgunarbát. 6.7.2022 11:45
Katrín um endurgreiðslu launa: „Ef einhver ætti að ráða við það þá erum það við“ Forsætisráðherra segir eðlilegt að þeir embættismenn sem hafi fengið ofgreidd laun síðustu þrjú ár endurgreiði hluta þeirra til ríkisins, sérstaklega í ljósi þess að þeir hafi hve hæst laun hjá hinu opinbera. 6.7.2022 11:32
Segir skipta höfuðmáli að lögfesta Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks Guðmundur Ingi Guðbrandsson félags- og vinnumarkaðsráðherra segir það algjört grundvallaratriði í sínum huga að vinna að því að gera kerfið betra. „Við þurfum að vinna á öllum þeim áskorunum sem koma upp og ekki síst þegar kemur að málefnum fatlaðs fólks.“ 6.7.2022 11:12
Nítján sóttu um stöðu bæjarstjóra í Hveragerði Nítján sóttu um stöðu bæjarstjóra í Hveragerðisbæ en staðan var auglýst á dögunum. Aldís Hafsteinsdóttir er fráfarandi bæjarstjóri en hún mun taka við sem sveitarstjóri Hrunamannahrepps. 6.7.2022 10:44
Aldís fær 1,78 milljón á mánuði og 217 þúsund króna akstursstyrk Aldís Hafsteinsdóttir, sveitarstjóri Hrunamannahrepps, fær 1,78 milljónir í mánaðarlaun og akstursstyrk upp á 217 þúsund samkvæmt oddvita hreppsins. Aldís var bæjarstjóri Hveragerðis síðastliðin sextán ár en náði ekki inn í kosningunum í vor þegar Sjálfstæðisflokkurinn missti meirihluta. Fulltrúar Hrunamannahrepps heyrðu í henni í kjölfarið. 6.7.2022 10:36
Meirihluti sveitarfélaga uppfyllti ekki lágmarksviðmið um skuldahlutfall Eftirlitsnefnd með fjármálum sveitarfélaga sendi í júní bréf til 43 sveitarfélaga, sem uppfylltu ekki lágmarksviðmið nefndarinnar um skuldahlutfall. Það var gert eftir að nefndin hafði yfirfarið ársreikninga allra sveitarfélaga fyrir árið 2021 fyrir A-hluta eða A- og B-hluta. 6.7.2022 10:27
Eldur í báti norður af Hellissandi Eldur kom upp í smábáti rétt norður af Hellissandi rétt í þessu. Einn var um borð í bátnum en hann er kominn heill á húfi í björgunarbátinn Björgu. 6.7.2022 10:11
Eldur í hraðbanka á Bíldshöfða í nótt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í nógu að snúast í nótt en frá klukkan 17:00 til 05:00 í morgun hefur lögreglan sinnt 64 málum. 6.7.2022 06:32
Hyggst leggja fram frumvarp um svæðisskiptingu á kvóta strandveiða Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hyggst leggja fram frumvarp á Alþingi í haust um að taka upp svæðaskiptingu á kvóta strandveiða á ný. 6.7.2022 06:12
Rannsaka hverastrýtur í Eyjafirði til að öðlast skilning á upphafi lífs Alþjóðlegur hópur vísindamanna, kostaður af geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, rannsakar nú hverastrýturnar í Eyjafirði í því skyni að kanna hvort líf hafi getað þróast á Mars og til undirbúnings frekari könnunarleiðöngrum til reikistjörnunnar. Jafnframt er vonast til að strýturnar gefi svör um líkur á lífi á öðrum hnöttum í sólkerfinu. 5.7.2022 23:31
Björguðu hundi sem féll um tuttugu metra Björgunarsveitir á Sauðárkróki og Mývatni voru kallaðar út með stuttu millibili á áttunda tímanum í kvöld. Fyrsta útkallið sneri að hundi sem lenti féll um tuttugu metra fram af kletti í Skagafirði og hið seinna var vegna mótorhjólaslys við afleggjarann að Herðubreiðalindum. 5.7.2022 22:41
Yrðlingur og hundur bestu vinir á Mjóeyri á Eskifirði Tíkin Skotta og nokkra vikna yrðlingur á bænum Mjóeyri við Eskifjörð eru bestu vinir og leika sér mikið saman. Þá er mjög gæf maríuerla líka á bænum og heiti potturinn á staðnum vekur sérstaka athygli. 5.7.2022 21:01
„Við verðum að gera betur“ Loftslagsráð og Náttúruverndarsamtök Íslands gagnrýna stjórnvöld fyrir óskýr markmið í loftslagsmálum á sama tíma og losun gróðurhúsalofttegunda eykst gríðarlega hratt eftir heimsfaraldur. Ráðherra tekur undir þetta og vill gera betur. 5.7.2022 20:01
Mættu 25 tímum fyrir flug á erfiðasta flugvöll Evrópu Farþegar sem komu með vél Icelandair frá Schiphol-flugvelli í Amsterdam til Íslands seinni partinn í gær lentu í því að töskur þeirra voru skildar eftir úti. Flugfélagið segir að vegna manneklu á vellinum úti hafi þurft að taka ákvörðun um að halda fluginu nokkurn veginn á áætlun og sleppa töskunum eða seinka því um marga klukkutíma á meðan beðið væri eftir að flugvallarstarfsmenn gætu hlaðið þeim um borð. 5.7.2022 18:54
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Loftslagsráð og Náttúruverndarsamtök Íslands gagnrýna stjórnvöld fyrir óskýr markmið í aðgerðum gegn loftslagsbreytingum á sama tíma og losun gróðurhúsalofttegunda eykst mjög eftir heimsfaraldur. Ráðherra tekur undir gagnrýnina og vill gera betur. 5.7.2022 18:01
Áhrifafólk í Miðflokknum ósammála formanninum um kynrænt sjálfræði Varaþingmaður og fyrrverandi bæjarfulltrúi Miðflokksins skrifa grein á Vísi í dag þar sem þau segja samþykkt laga um kynrænt sjálfræði „enn eitt framfaraskrefið í þá átt að tryggja réttindi borgaranna.“ Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokks þeirra, hefur lengi talað opinberlega gegn frumvarpinu sem hann hefur kallað „ómanneskjulegt og fornaldarlegt öfgamál“. 5.7.2022 16:24
Næturstrætó snýr aftur um helgina Næturstrætó úr miðbæ Reykjavíkur snýr aftur aðfaranótt laugardags 9. júlí eftir um tveggja ára hlé. 5.7.2022 16:18
Sóttu slasaðan skipverja á þyrlunni Skömmu fyrir hádegi í dag barst stjórnstöð Landhelgisgæslunnar aðstoðarbeiðni frá erlendu skipi sem var um 100 sjómílur suðvestur af Reykjanesi, vegna slasaðs skipverja. 5.7.2022 16:12
Telur ekki að hætta eigi hvalveiðum en er „alltaf á vaktinni“ Viðskiptaráðherra telur ekki þörf á því að breyta fyrirkomulagi hvalveiða hér á landi til þess að verja hagsmuni ferðaþjónustunnar. Hún segir það þó háð sífelldu mati. 5.7.2022 16:01
Vélarvana bátur dreginn í höfn á Drangsnesi Stjórnstöð Landhelgisgæslunnar bárust upplýsingar um vélarvana bát norðan við Drangsnes á Ströndum um hádegisbil í dag. Nálægum fiskibát tókst að draga bátinn í land með aðstoð stýrimanns þyrlu Landhelgisgæslunnar. 5.7.2022 15:09
Áttatíu ár liðin frá mesta sjóslysi við Íslandsstrendur Áttatíu ár eru í dag liðin frá mesta sjóslysi við Íslandsstendur þegar um 240 manns fórust við það að skipalestin QP-13 sigldi í þoku inn í belti tundurdufla sem hafði verið lagt til varnar óvinaskipum norður af Aðalvík á Vestfjörðum. 5.7.2022 14:58
Starfsmaður stal 1,7 milljón króna af Bónus Kona var nýverið dæmd til sextíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að hafa, yfir tæplega fjögurra ára tímabil, stolið um 1,7 milljón króna af vinnuveitanda sínum Högum hf. en hún starfaði í Bónus. 5.7.2022 14:55
Smitáhrif af skotárásum: „Margir þeirra þrá þessa athygli og þessa frægð“ Margrét Valdimarsdóttir, doktor í afbrotafræði og dósent í lögreglufræðum við Háskólann á Akureyri, segir að nýlegar rannsóknir í afbrotafræðum bendi til þess að smitáhrif verði þegar umfangsmikil fjölmiðlaumfjöllun skapast um fjöldaárásir. 5.7.2022 13:41
Unnur Valborg ráðin sveitarstjóri í Húnaþingi vestra Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur ráðið Unni Valborgu Hilmarsdóttur í starf sveitarstjóra til næstu fjögurra ára. 5.7.2022 13:40
Sara Elísabet endurráðin sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkti á fundi sínum þann 30. júní síðastliðinn að Sara Elísabet Svansdóttir yrði ráðin sveitarstjóri Vopnafjarðarhrepps frá 2022 til ársins 2026. 5.7.2022 12:56
Lilja gagnrýnir miklar arðgreiðslur á sama tíma og verð hækkar Viðskiptaráðherra segir alla þurfa að leggja sitt af mörkum til þess að draga úr verðbólguþrýstingi. Hún tekur undir gagnrýni verkalýðshreyfingarinnar á miklar arðgreiðslur fyrirtækja á sama tíma og verð hækkar. 5.7.2022 12:15
Hundrað bókanir eftir Michelin-stjörnuna Stofnandi Óx segir það mikinn heiður að hljóta Michelin-stjörnu eftir áralanga þróun og vinnu með veitingastaðinn. Tveir íslenskir staðir státa nú af stjörnunni eftirsóttu. 5.7.2022 12:07
Hyggjast stórefla hinsegin fræðslu í Garðabæ Bæjarráð Garðabæjar samþykkti á fundi sínum í morgun að fela fræðslu- og menningarsviði að ganga til viðræðna við Samtökin ’78 um samstarfssamning, með það fyrir augum að stórefla hinsegin fræðslu og meðvitund um hinsegin málefni í sveitarfélaginu. 5.7.2022 11:57
Háskólanám Kvikmyndaskólans í sjónmáli Væntingar Kvikmyndaskóla Íslands standa til þess að úttektarferli fyrir BA námsbraut skólans, í samstarfi við Háskóla Íslands, ljúki í september á þessu ári. BA námsbraut í Kvikmyndaskólanum gæti því orðið að veruleika í haust. 5.7.2022 11:44
Hádegisfréttir Bylgjunnar Lilja Alfreðsdóttir viðskiptaráðherra tekur undir gagnrýni verkalýðshreyfingarinnar á miklar arðgreiðslur fyrirtækja á sama tíma og verðlag hækkar. 5.7.2022 11:39
Viðsnúningur í losun gróðurhúsalofttegunda Losun gróðurhúsalofttegunda jókst um 3,3% á árinu 2021 og nálgast sama stig og fyrir faraldur. 5.7.2022 11:26
Báðir forsjáraðilar fá nú sjálfkrafa aðgang að Heilsuveru barna sinna Báðir forsjáraðilar barna sem búa á tveimur heimilum tengjast nú sjálfkrafa Heilsuveru barna sinna. Hingað til hefur aðgangurinn verið bundinn við lögheimili barnsins þó að forsjárforeldri, sem er ekki með lögheimili barnsins skráð hjá sér, hafi til þessa getað sótt sérstaklega um aðgang. 5.7.2022 11:17
Tilbúin að fullgilda aðild Svía og Finna hratt Forsætisráðherrar Íslands, Danmerkur og Noregs segja ríki sín tilbúin til að fullgilda samninga um inngöngu Finna og Svía í Atlantshafsbandalagið. Þetta kemur fram í sameiginlegri tilkynningu frá forsætisráðherrum ríkjanna þriggja. 5.7.2022 11:09