Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fara ekki inn í bústaðinn í kvöld Eldur kom upp í húsi skammt frá Hafravatni fyrr í dag en búið var að slökkva eldinn á tíunda tímanum í kvöld. Bústaðurinn er ónýtur en slökkvilið telur ólíklegt að einhver hafi verið inni þegar eldurinn kom upp. 12.2.2022 16:42
Rannsakar lyfjamisnotkun eftir andlát bróður síns: „Þar sem eru stjörnur, þar er líka myrkur“ Niðurstöður vísindarannsóknar um lyfjamisnotkun íslenskra karlmanna birtust í einu virtasta tímariti um heilsu karlmanna í heimi. Greinin birtist aðeins þremur dögum fyrir afmælisdag Einars Darra, sem lést aðeins átján ára gamall úr ofneyslu lyfseðilskyldra lyfja, en systir hans er ein af höfundum rannsóknarinnar. 12.2.2022 16:01
„Samfylkingunni ber að lúta landslögum“ Guðmundur Ingi Þóroddsson frambjóðandi í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík segir ekki tilefni fyrir stuðningsmenn sína að segja sig úr flokknum. Greint var frá því í gærkvöldi að Guðmundi hafi verið meinuð þátttaka í prófkjörinu þar sem hann er á reynslulausn eftir fangelsisvist. 12.2.2022 15:03
Fangavarðaskólinn í fjarnámi – 26 nemendur í skólanum Tuttugu og sex nemendur eru nú í Fangavarðaskólanum þar sem um þriðjungur þeirra eru konur. Námið fer fram í fjarnámi, auk einnar viku í staðarlotu í verklegum æfingum í samstarfi við þjálfara Lögregluskólans. Fangavörður segir starfið glettilega skemmtilegt og gefandi. 12.2.2022 14:06
Gylfi bíður eftir uppsögn Gylfi Þór Þorsteinsson segir að þrátt fyrir að áfram sé töluvert álag á farsóttahúsin þá búist hann við að þeim verði lokað fyrr en síðar. Starfsfólk sé þegar farið að svipast um eftir öðrum störfum. Sjálfur hefur Gylfi verið áberandi í heimsfaraldrinum sem forstöðumaður farsóttahúsanna. 12.2.2022 12:43
Kom á óvart að vera meinuð þátttaka í prófkjöri á síðustu stundu Guðmundi Inga Þóroddssyni frambjóðanda í prófkjöri Samfylkingarinnar í Reykjavík var meinuð þátttaka í prófkjörinu á síðustu stundu þar sem hann er enn á reynslulausn eftir fangelsisvist. Hann telur sig hins vegar kjörgengan samkvæmt lögum. 12.2.2022 11:57
Hádegisfréttir Bylgjunnar Minnst átta Íslendingar eru nú í Úkraínu þar sem mikið óvissuástand ríkir vegna mögulegrar innrásar Rússa í landið. Utanríkisþjónustan hvetur Íslendinga í landinu til þess að láta vita af sér og huga vel að ferðaskilríkjum sínum. 12.2.2022 11:49
Reyna að komast í samband við Íslendinga í Úkraínu Minnst átta Íslendingar eru nú í Úkraínu þar sem mikið óvissuástand ríkir vegna mögulegrar innrásar Rússa í landið. Utanríkisþjónustan hvetur Íslendinga í landinu til þess að láta vita af sér og huga vel að ferðaskilríkjum sínum. 12.2.2022 11:31
Karlmaður á þrítugsaldri með Covid lést á gjörgæslu Karlmaður á þrítugsaldri með Covid-19 lést á gjörgæslu Landspítalans í gær. 12.2.2022 11:26
2.029 greindust smitaðir innanlands í gær 2.029 greindust smitaðir af kórónuveirunni innanlands í gær en 49 á landamærunum. 12.2.2022 10:58
Björn vill þriðja sætið hjá Sjálfstæðisflokknum í borginni Björn Gíslason, borgarfulltrúi og formaður Fylkis, gefur kost á sér í þriðja sæti lista Sjálfstæðisflokksins í próofkjöri fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. 12.2.2022 10:47
Ragnhildur Alda boðar oddvitaslag hjá Sjálfstæðisflokknum í borginni Ragnhildur Alda María Vilhjálmsdóttir, varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, hyggst gefa kost á sér í fyrsta sæti á lista flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Hún fer þar upp á móti Hildi Björnsdóttur, borgarfulltrúa, sem var í öðru sæti listans í síðustu kosningum. 12.2.2022 10:37
Katrín með Covid Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er með Covid-19. Frá þessu greinir Katrín á Facebook-síðu sinni í dag. 12.2.2022 10:25
Leigubílstjórar í vandræðum með ölvaða í nótt Talsvert líf var á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og nótt ef marka má dagbók lögreglu. Töluvert var um ölvun í miðbæ Reykjavíkur og glímdu leigubílstjórar margir í vandræðum við þá sem höfðu verið úti á lífinu. 12.2.2022 07:25
Þessar tilslakanir tóku gildi á miðnætti Nú á miðnætti tók gildi ný reglugerð heilbrigðisráðherra um samkomutakmarkanir. Með nýrri reglugerð mega 200 manns koma saman innandyra og fjöldatakmarkanir utandyra falla alfarið á brott. 12.2.2022 00:02
Biðja Íslendinga í Úkraínu að láta vita af sér Borgaraþjónusta utanríkisráðuneytisins hvetur fólk sem hyggur á ferðalög til Úkraínu að kynna sér vel ferðaviðvaranir áður en haldið er af stað í ferðalagið. Þá eru Íslendingar í Úkraínu hvattir til þess að láta ráðuneytið vita af sér. 11.2.2022 23:06
Böllin verða víruð, rosaleg, geggjuð Á meðan segja má að enginn hópur hafi þurft að að súpa seyðið af sóttvarnatakmörkunum svo mjög sem ungmenni undanfarin misseri, er líka hægt að segja að enginn hópur hafi nú endurheimt frelsið með eins ótvíræðum hætti. 11.2.2022 23:01
Býst áfram við þungum róðri á Landspítalanum Starfandi forstjóri Landspítalans segir helsta vandann sem spítalinn stendur nú frammi fyrir vera einangrun starfsfólks. Smit á spítalanum séu nokkuð dreifð og því sé áskorun að einangra sjúklinga og verja þá fyrir smiti. 11.2.2022 22:45
Hnoðaði föður sinn til lífsins: „Ég ætlaði ekkert bara að horfa á pabba fara þarna“ Ung kona sem bjargaði lífi föður síns með því að beita skyndihjálp þegar hann fór í hjartastopp er Skyndihjálparmaður ársins 2021. Hún segir skyndihjálparnámskeið sem hún sótti hafa skipt sköpum en þökk sé snöggum viðbrögðum hennar er faðir hennar við fulla heilsu í dag. 11.2.2022 20:50
„Það verður partý í kvöld, það verður veisla“ Einn eigenda skemmtistaðarins Priksins er spenntur fyrir því að geta haft opið til klukkan eitt í nótt, en reglugerð heilbrigðisráðherra um tilslakanir á sóttvarnatakmörkunum tekur gildi á miðnætti. Þrátt fyrir þakklæti fyrir auka klukkustund má heyra á veitingamönnum að þeir telji tilslakanir ganga frekar hægt. 11.2.2022 20:38
Myndasyrpa: Mánuðir þar til skýrist hvað leiddi til slyssins Það gætu liðið mánuðir þar til rannsókn leiðir í ljós hvað gerðist þegar flugvél fórst í Þingvallavatni í síðustu viku. Aðgerðum við að endurheimta brak vélarinnar úr vatninu hefur verið frestað um nokkrar vikur hið minnsta. 11.2.2022 20:27
Bankarnir sýni heimilunum svigrúm Forsætisrráðherra og fjármálaráðherra segja góða stöðu banka í eigu ríkisins koma sér vel með miklum argreiðslum í ríkissjóð sem nýtist til fjármögnunar félagslegra verkefna. Fjármálaráðherra segir heimilin þó standa vel og vanskil þeirra séu í algeru lágmarki. 11.2.2022 19:30
Sjálfstæðisflokkurinn missir tvo borgarfulltrúa samkvæmt könnun Maskínu Meirihlutaflokkarnir myndu bæta við sig tveimur borgarfulltrúum ef kosið yrði til borgarstjórnar nú samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir fréttastofuna. Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu fylgi frá síðustu kosningum, Píratar sækja í sig veðrið og Framsóknarflokkurinn næði inn manni. 11.2.2022 19:20
Tæplega 10 þúsund manns losnuðu úr sóttkví í dag Tæplega tíu þúsund manns losnuðu úr sóttkví í dag og hún heyrir nú sögunni til vegna tilslakana á sóttvarnaráðstöfunum. Frá miðnætti mega tvö hundruð manns koma saman og opnunartími veitinga- og skemmtistaða lengist. Stefnt er að því að aflétta öllum aðgerðum í lok mánaðar. 11.2.2022 19:01
Kalla eftir úrbótum eftir að heiðin var lokuð í þrjá sólarhringa Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar hefur skorað á Vegagerðina að gera allt sem í hennar valdi stendur til þess að koma í veg fyrir að aftur komi upp ástand viðlíka því sem varð í byrjun vikunnar, þegar vegurinn um Hellisheiði var lokaðir fyrir allri umferð í þrjá sólarhringa vegna veðursins sem gekk yfir landið. 11.2.2022 18:21
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður fjallað ítarlega um þær tilslakanir sem gripið verður til nú á miðnætti, þegar tvö hundruð mega koma saman og opnunartími veitinga- og skemmtistaða lengist. Við tökum stöðuna á Landspítalanum og hittum hressa framhaldsskóla krakka sem fagna því ákaft að geta loks haldið skólaböll á ný. 11.2.2022 18:01
Ógætilegur akstur hafi orðið til þess að bifreiðin skemmdist Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í dag afskipti af ökumanni bifreiðar í miðborg Reykjavíkur sem var að þenja bifreið sína og aka ógætilega. Þetta kemur fram í dagbók lögreglu um verkefni dagsins. 11.2.2022 17:23
Kviknaði í snjóruðningstæki í Kömbunum Eldur kviknaði í snjóruðningstæki í Kömbunum austan Hellisheiðar á fimmta tímanum í dag. Ekki er vitað til þess að nein slys hafi orðið á fólki. 11.2.2022 16:49
Sigló goðsögnin Nanna Franklíns látin 105 ára gömul Nanna Franklínsdóttir er látin 105 ára að aldri. Nanna hafði undanfarna daga borið titilinn elsti Íslendingurinn. 11.2.2022 15:41
Dómur fyrir nauðgun á kvennasalerni staðfestur en bætur lækkaðar Landsréttur hefur staðfest þriggja ára fangelsisdóm yfir Reebar Abdi Mohammed, 34 ára karlmanni frá Kúrdistan, fyrir nauðgun. Reebar var dæmdur fyrir að nauðga konu á kvennasalernisbás skemmtistaðar í Reykjavík í febrúar 2019. Miskabætur til konunnar voru lækkaðar úr þremur milljónum króna í tvær með dómi Landsréttar. 11.2.2022 14:36
Segir skilyrðislausa ríkisstyrki á meðal stærstu hagstjórnarmistakanna Á meðal stærstu pólitísku hagstjórnarmistaka sem gerð voru í kórónuveirufaraldrinum var að láta hjá líða að setja skilyrði um að fyrirtæki geti ekki greitt út arð ef þau þiggja lokunar- og viðspyrnustyrki. Þetta segir Drífa Snædal forseti Alþýðusambands Íslands. 11.2.2022 14:26
Hægt að aflétta öllu fyrir mánaðamót komi ekkert óvænt upp Komi ekkert óvænt upp ætti að vera hægt að stefna að afléttingu allra samkomutakmarkana vegna kórónuveirunnar fyrir næstu mánaðamót. Frá 14. janúar hafa tæplega 37 þúsund greinst með Covid-19 en 44 lagst inn á sjúkrahús vegna Covid-19. 11.2.2022 13:48
Grafa kom snjóplóg til bjargar á Tjörninni Það blés ekki byrlega fyrir starfsmanni Reykjavíkurborgar sem hætti sér á litlum snjóplóg út á ísilagða Tjörnina í Reykjavík í morgun. Tjörnin er ekki aðeins ísilögð heldur er þar heljarinnar lag af snjó sem til stóð að rýma. Væntanlega til að fólk gæti rennt sér á skautum. 11.2.2022 13:41
Tveir nú í gæsluvarðhaldi vegna árásarinnar í Grafarholti Tveir karlar á þrítugsaldri hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna rannsókar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á skotárás í Grafarholti í Reykjavík í fyrrinótt. 11.2.2022 13:11
Hætta aðgerðum við Þingvallavatn í dag vegna íss Ákveðið hefur verið að hætta aðgerðum við Þingvallavatn í dag þar sem stefnt var að því að ná flugvélinni TF-ABB af botni vatnsins. Ís er nú upp í fjögurra sentimetra þykkur og það sem brotið er leggur jafnharðan. 11.2.2022 11:43
Bein útsending: Hvers konar ofbeldi í brennidepli á 112 deginum Áhersla 112 dagsins sem haldinn er um land allt föstudaginn 11. febrúar er að þessu sinni lögð á að vinna gegn hverskonar ofbeldi, en ofbeldishegðun hefur farið vaxandi þau tvö ár sem Covidfaraldurinn hefur geysað. 11.2.2022 11:35
Ráðherra vill friðmælast við leigubílstjóra Einar Hafsteinn Árnason, formaður Fylkis sem er félag leigubílsstjóra á Suðurnesjum, átti fund með Sigurði Inga Jóhannssyni samgönguráðherra nýverið. Einar segir að ráðherra hafi gefið til kynna að hann myndi tala fyrir því að stöðvaskylda verði inni í nýju frumvarpi um leigubílaakstur. 11.2.2022 11:30
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um afléttingar sóttvarnaaðgerða sem heilbrigðisráðherra kynnti að loknum ríkistjórnarfundi nú á tólfta tímanum. 11.2.2022 11:30
Tvö hundruð mega koma saman og sóttkví afnumin Slakað verður á sóttvarnaraðgerðum á miðnætti eins og búist var við. Tvö hundruð mega koma saman. Reglur um sóttkví verða afnumdar. 11.2.2022 11:20
Búið að bera kennsl á þá fjóra sem voru í Þingvallavatni Þingvallavatn hefur lagt á ný og þykktin á ísnum gæti reynst slík að fresta þurfi því að ná flugvélinni TF ABB af botni vatnsins. Þeir fjórir sem voru í vélinni náðust á land í gær og hafa aðstanendur borið kennsl á þá látnu. 11.2.2022 10:39
Meintur skotmaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Maðurinn sem grunaður er um að hafa skotið karl og konu með skammbyssu í Grafarholti í fyrrinótt hefur verið úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald. Hinn maðurinn sem talinn er tengjast árásinni verður að líkindum leiddur fyrir dómara síðar í dag. Þetta staðfestir Grímur Grímsson, yfirmaður miðlægrar rannsóknardeildar lögreglu. 11.2.2022 10:32
1.800 greindust innanlands í gær 1.800 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær og 76 á landamærum. 11.2.2022 10:19
Ríkisstjórnin fundar um afléttingar Nú stendur yfir ríkisstjórnarfundur þar sem meðal annars er rætt um afléttingar á sóttvarnaaðgerðum. Fregna af fundinum er beðið með mikilli eftirvæntingu en sóttvarnalæknir skilaði nýjum tillögum til heilbrigðisráðherra í gær. 11.2.2022 09:55
Þessi nöfn koma til greina á sameinuðu sveitarfélagi Undirbúningsstjórn sameinaðs sveitarfélags Skútustaðahrepps og Þingeyjarsveitar hefur sent örnefnanefnd átta tillögur að nafni á sameinuðu sveitarfélagi til umsagnar. 11.2.2022 09:54
32 sjúklingar nú á Landspítala með Covid-19 32 sjúklingar liggja á Landspítala með Covid-19. Tveir eru á gjörgæslu og báðir í öndunarvél. 11.2.2022 09:37